Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

Mál nr. 242/2016

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 242/2016

Miðvikudaginn 5. október 2016

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins


Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eggert Óskarsson lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni 27. júní 2016, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála afgreiðslu Tryggingastofnunar ríkisins frá 21. júlí 2015, um endurreikning og uppgjör ofgreiddra bóta á árinu 2014.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kæranda var tilkynnt um með bréfi frá Tryggingastofnun ríkisins, dags. 21. júlí 2015, að hann hefði fengið ofgreiddar bætur að fjárhæð 649.914 kr. á árinu 2014.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 27. júní 2016. Með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 18. júlí 2016, var kæranda tilkynnt um að kæra hefði borist að liðnum kærufresti og var honum gefinn kostur á að koma að athugasemdum og/eða gögnum, teldi hann að skilyrði sem fram kæmu í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 gætu átt við í máli hans. Þá var ítrekun send kæranda með bréfi, dags. 12. september 2016. Engin svör bárust frá kæranda.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi krefst þess að greiðsluáætlun Tryggingastofnunar ríkisins fyrir árið 2014, þá sérstaklega fyrir nóvembermánuð, verði leiðrétt samkvæmt löglegu bókhaldi og að greiðsluskjöl verði skoðuð nánar. Einnig krefst hann þess að farið sé í skattframtal ársins 2014 sem Ríkisskattstjóri hafi leiðrétt með röngu bókhaldi í greiðsluáætlun sem valdið hafi því að ofgreiðsla hafi myndast hjá Tryggingastofnun.

Kærandi telji þá ofgreiðslu enn vera fyrir hendi en hún ætti ekki að vera til, vegna rangrar leiðréttingar og vegna engrar leiðréttingar hjá Tryggingastofnun. Kærandi kveðst ekkert hafa unnið síðan hann hafi farið inn í örorkukerfið.

III.  Niðurstaða

Mál þetta varðar endurreikning og uppgjör á tekjutengdum greiðslum kæranda vegna ársins 2014 sem tilkynntur var kæranda með bréfi, dags. 21. júlí 2015.

Samkvæmt 2. mgr. 13. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sbr. 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála, skal kæra til úrskurðarnefndar velferðarmála vera skrifleg og skal hún borin fram innan þriggja mánaða frá því aðila máls var tilkynnt um ákvörðun.

Samkvæmt gögnum málsins liðu rúmlega ellefu mánuðir frá því að kæranda var tilkynnt um ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins þann 21. júlí 2015 og þar til kæra barst úrskurðarnefndinni þann 27. júní 2016. Kærufrestur samkvæmt 2. mgr. 13. gr. laga um almannatryggingar var því liðinn þegar kæra barst nefndinni.

Í 5. mgr. 7. gr. laga um úrskurðarnefnd velferðarmála er vísað til þess að um málsmeðferð, sem ekki er kveðið á um í lögunum, fari samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga og ákvæðum laga sem málskotsréttur til nefndarinnar byggist á hverju sinni. Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 segir:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá nema:

  1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

  2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Kæru skal þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.“

Með vísan til þessa er nauðsynlegt að taka til skoðunar hvort fyrir hendi séu atriði sem hafa þýðingu við mat á því hvort afsakanlegt verði talið að kæran hafi borist að liðnum kærufresti eða hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, en ákvæðið mælir fyrir um skyldubundið mat stjórnvalds á því hvort atvik séu með þeim hætti að rétt sé að taka stjórnsýslukæru til efnislegrar meðferðar, þrátt fyrir að lögbundinn kærufrestur sé liðinn.

Fyrir liggur að í hinni kærðu ákvörðun frá 21. júlí 2015 var kæranda leiðbeint um kæruheimild til úrskurðarnefndarinnar og um tímalengd kærufrests. Í kæru sem barst úrskurðarnefndinni þann 27. júní 2016 eru ekki gefnar skýringar á því hvers vegna kæra hafi borist að liðnum kærufresti. Með bréfi úrskurðarnefndar velferðarmála, dags. 18. júlí 2016, sem ítrekað var með bréfi, dags. 12. september 2016, var kæranda veittur kostur á að koma að athugasemdum og/eða gögnum teldi hann að skilyrði sem fram kæmu í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga gætu átt við í máli hans. Úrskurðarnefndinni bárust hvorki athugasemdir né gögn frá kæranda.

Engin gögn liggja fyrir í málinu sem hafa þýðingu við mat á því hvort skilyrði 1. tölul. 1. mgr. 28. gr. geti átt við. Að því virtu er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála að ekkert í málinu bendi til þess að það hafi verið afsakanlegt að kæra hafi ekki borist fyrr og því verður það ekki lagt til grundvallar. Þá verður heldur ekki séð að veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Með hliðsjón af framangreindu er kæru vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála, sbr. 1. mgr. 28. gr. laga nr. 37/1993.  


Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta