Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

Mál nr. 427/2024-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 427/2024

Miðvikudaginn 6. nóvember 2024

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.

Með rafrænni kæru, móttekinni 11. september 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvarðanir Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikninga og uppgjör tekjutengdra bóta vegna áranna 2019, 2020, 2021, 2022 og 2023, dagsettar 22. maí 2020, 20. maí 2021, 27. október 2022, 23. maí 2023 og 28. maí 2024.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Niðurstaða endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra bóta ársins 2023 var sú að kæranda hefðu verið ofgreiddar bætur það ár að fjárhæð 27.115 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Kæranda var tilkynnt um framangreinda ofgreiðslu og innheimtu með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 28. maí 2024. Niðurstaða endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra bóta ársins 2022 var sú að kæranda hefðu verið ofgreiddar bætur það ár að fjárhæð 406.753 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Kæranda var tilkynnt um framangreinda ofgreiðslu og innheimtu með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 23. maí 2023. Niðurstaða endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra bóta ársins 2021 var sú að kæranda hefðu verið ofgreiddar bætur það ár að fjárhæð 86.965 kr. Kæranda var tilkynnt um framangreinda niðurstöðu með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 27. október 2022. Niðurstaða endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra bóta ársins 2020 var sú að kæranda hefðu verið ofgreiddar bætur það ár að fjárhæð 130.421 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Kæranda var tilkynnt um framangreinda ofgreiðslu og innheimtu með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 23. júlí 2021. Niðurstaða endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra bóta ársins 2019 var sú að kæranda hefðu verið ofgreiddar bætur það ár að fjárhæð 148.025 kr. Kæranda var tilkynnt um framangreinda ofgreiðslu og innheimtu með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 22. maí 2020.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 11. september 2024. Með bréfi, dags. 8. október 2024, var kæranda tilkynnt að kæra hefði borist að liðnum kærufresti og var henni gefinn kostur á að koma að athugasemdum og/eða gögnum, teldi hún að skilyrði, sem fram kæmu í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, gætu átt við í málinu. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru er greint frá því að Tryggingastofnun hafi endurákvarðað ellilífeyrisrétt kæranda 2023 og 2024, að því er best verði séð með skerðingu réttar til ellilífeyris á grundvelli lífeyristekna frá Danmörku. 

Kærandi fái ekki séð að þessi skerðing sé réttmæt samkvæmt lögum nr. 100/2007 um almannatryggingar, sbr. 6. tölulið 30. gr. umræddra laga.  

Ekki verði séð af skjölum Tryggingastofnunar hvaða forsendur séu fyrir skerðingum aðrar en að þær byggi á tekjuupplýsingum framtals frá Skattinum og kröfu um endurálagningu gjalda 2024 vegna tekna 2023.

Farið sé fram á að úrskurðarnefnd velferðarmála yfirfari réttindi kæranda og upplýsi um réttmæti ákvörðunar Tryggingastofnunar með tilvísun í ákvæði laga þar um, sem og eftir atvikum hlutist til um leiðréttingu í samræmi við niðurstöðu.

III.  Niðurstaða

Mál þetta varðar endurreikninga og uppgjör á tekjutengdum bótum kæranda vegna áranna 2019, 2020, 2021, 2022 og 2023.

Samkvæmt 2. mgr. 13. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sbr. 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála, skal kæra til úrskurðarnefndar vera skrifleg og skal hún borin fram innan þriggja mánaða frá því að aðila var tilkynnt um ákvörðun.

Fyrir liggur að í hinum kærðu ákvörðunum var kæranda leiðbeint um kæruheimild til úrskurðarnefndar velferðarmála og um tímalengd kærufrests.

Samkvæmt gögnum málsins liðu þrír mánuðir og 14 dagar frá því að kæranda var tilkynnt um hina kærðu ákvörðun, dags. 28. maí 2024, þar til kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 11. september 2024 og meira en ár frá því að kæranda var tilkynnt um kærðar ákvarðanir, dags. 22. maí 2020, 23. júlí 2021, 27. október 2022 og 23. maí 2023. Kærufrestur samkvæmt 2. mgr. 13. gr. laga um almannatryggingar var því liðinn þegar kæran barst nefndinni.

Í 5. mgr. 7. gr. laga um úrskurðarnefnd velferðarmála er vísað til þess að um málsmeðferð, sem ekki er kveðið á um í lögunum, fari samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga og ákvæðum laga sem málskotsréttur til nefndarinnar byggist á hverju sinni.

Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 segir:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Kæru skal þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.“

Samkvæmt gögnum málsins leið meira en ár frá því kæranda var tilkynnt um ákvarðanir Tryggingastofnunar á árunum 2020 til og með 2023 þar til kæra í máli þessu barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 11. september 2024. Þegar af þeirri ástæðu verður kæru vegna þessara ákvarðana ekki sinnt, sbr. 2. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga.

Varðandi ákvörðun, dags. 28. maí 2024, er nauðsynlegt að taka til skoðunar með vísan til 1. og 2. tölul. hvort atvik séu með þeim hætti að afsakanlegt verði talið að kæran hafi borist að liðnum kærufresti eða hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, en ákvæðið mælir fyrir um skyldubundið mat stjórnvalds á því hvort atvik séu með þeim hætti að rétt sé að taka stjórnsýslukæru til efnislegrar meðferðar, þrátt fyrir að lögbundinn kærufrestur sé liðinn.

Eins og áður hefur komið fram liggur fyrir að í hinni kærðu ákvörðun frá 28. maí 2024 var kæranda leiðbeint um kæruheimild til úrskurðarnefndar velferðarmála og um tímalengd kærufrests. Í kæru er ekki að finna útskýringu á því hvers vegna kæran barst ekki til úrskurðarnefndarinnar innan kærufrests. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 8. október 2024, var kæranda veittur kostur á að koma að athugasemdum og/eða gögnum teldi hún að skilyrði, sem fram kæmu í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, gætu átt við í málinu. Hvorki bárust athugasemdir né gögn frá kæranda.

Í ljósi þessa er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála að ekkert í gögnum málsins bendi til þess að afsakanlegt sé að kæra hafi ekki borist fyrr. Þá verður ekki heldur séð að veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Með hliðsjón af framangreindu er kærunni vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta