Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

Mál nr. 396/2024-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 396/2024

Miðvikudaginn 6. nóvember 2024

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni 27. ágúst 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 28. maí 2024 um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta vegna ársins 2023.

I. Málsatvik og málsmeðferð

Niðurstaða endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra bóta ársins 2023 var sú að kæranda hefðu verið ofgreiddar bætur það ár að fjárhæð 181.763 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Kæranda var tilkynnt um framangreinda ofgreiðslu og innheimtu með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 28. maí 2024.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 27. ágúst 2024. Með bréfi, dags. 29. ágúst 2024, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 17. september 2024, barst greinargerð stofnunarinnar og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 18. september 2024. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru segir að kærandi sé mjög ósátt við að fá álagningu á sig vegna ársins 2023. Hún hafi skipt um banka á árinu 2023 og hafi átt inni séreignarsparnað sem hún hafi tekið út þar sem hún sé ekki lengur að borga í þann sparnað. Þá hafi kærandi fengið á sig álagningu og þurfi að endurgreiða Tryggingastofnun ríkisins rúmlega 180.000 kr. Kærandi fái ekki miklar greiðslur og hafi ekki haft hugmynd um að úttekt á séreignarsparnaði myndi hafa áhrif á greiðslurnar. Kæranda skiljist að þar sem hún fái sérstaka uppbót til framfærslu þá hafi þetta haft þessi áhrif. Hún hafi aldrei beðið um þessa framfærslu og óski eftir að þetta verði skoðað betur.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram kærður sé endurreikningur tekjutengdra greiðslna ársins 2023.

Í 30. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar sé vísað til laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, varðandi hvað skuli teljast til tekna við útreikning örorkulífeyris. Til tekna teljist tekjur skv. II. kafla laga um tekjuskatt nr. 90/2003, að teknu tilliti til ákvæða sömu laga um hvað ekki teljist til tekna og frádráttarliða skv. 1., 3., 4. og 5. tölul. A-liðar 1. mgr. 30. gr. og 31. gr. sömu laga eða undantekninga og takmarkana samkvæmt öðrum sérlögum.

Tryggingastofnun greiði lífeyri á grundvelli áætlunar um tekjur viðkomandi árs, sbr. 1. mgr. 33. gr. almannatryggingalaga. Bótaþegi beri ábyrgð á því að slík tekjuáætlun endurspegli árstekjur og beri að breyta áætluninni ef svo sé ekki, sbr. 1. mgr. 47. gr. sömu laga og 3. gr. reglugerðar nr. 598/2009, um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags, en þar komi fram að bótaþega sé skylt að veita Tryggingastofnun allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra. Að sama skapi sé bótaþega skylt að tilkynna Tryggingastofnun um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á greiðslur.

Í 3. mgr. 33. gr. almannatryggingalaga komi fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna. Einnig sé fjallað um endurreikning í reglugerð nr. 598/2009. Tryggingastofnun hafi ekki heimild til að líta fram hjá tekjuupplýsingum sem fram komi í skattframtölum.

Komi í ljós við endurreikning bóta að bætur hafi verið ofgreiddar fari um það skv. 34. gr.  laga um almannatryggingar. Þar komi fram sú skylda Tryggingastofnunar að innheimta ofgreiddar bætur. Sú meginregla sé ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

Á árinu 2023 hafi kærandi verið með örorkulífeyri, aldurstengda örorkuuppbót, tekjutryggingu og sérstaka uppbót til framfærslu allt árið. Kæranda hafi verið tilkynnt um endurreikning og uppgjör tekjutengdra greiðslna ársins 2023 með bréfi, dags. 28. maí 2024. Uppgjör tekjutengdra bóta ársins hafi leitt til 181.763 kr. ofgreiðslu að teknu tilliti til greiddrar staðgreiðslu.

Ástæða þess að endurkrafa hafi myndast sé að endanlegar tekjur kæranda á árinu 2023 hafi reynst hærri en tekjuáætlun kæranda á árinu hafi gert ráð fyrir. Endurreikningur byggist á upplýsingum úr skattframtölum bótaþega.

Kærandi hafi fengið senda tillögu að tekjuáætlun fyrir árið 2023 þann 13. desember 2022 ásamt bréfi þar sem komið hafi fram að tillagan sýndi væntanlegar tekjur kæranda árið 2023 og að kærandi þyrfti að fara yfir tillöguna og leiðrétta hana ef hún teldi hana ekki endurspegla væntanlegar tekjur ársins 2023 þar sem tekjuáætlunin væri á ábyrgð kæranda. Samkvæmt tillögunni hafi verið gert ráð fyrir að árið 2023 hefði kærandi 1.050.060 kr. í lífeyrissjóðstekjur og sameiginlegar tekjur þeirra hjóna væru 31.569 kr. í vexti og verðbætur.

Við bótauppgjör ársins 2023 hafi komið í ljós að á árinu 2023 hefði kærandi haft 1.107.518 kr. í lífeyrissjóðstekjur, 365.028 kr. úr séreignarsjóði og sameiginlegar tekjur þeirra hjóna hafi verið 31.521 kr. í vexti og verðbætur. Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2023 hafi verið að kærandi hafi fengið ofgreitt í bótaflokknum sérstök uppbót til framfærslu.

Tryggingastofnun sé skylt lögum samkvæmt að framkvæma endurreikning ár hvert þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Tryggingastofnun sé ekki heimilt að horfa framhjá tekjum sem birtist á framtali bótaþega, eins og ítrekað hafi verið staðfest af úrskurðarnefnd og hafi einnig verið staðfest fyrir dómstólum.

Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2023 hafi verið að kærandi hafi fengið greitt á árinu 3.277.133 kr. en hefði átt að fá greitt 3.011.980 kr. Þetta hafi leitt til ofgreiðslu að fjárhæð 181.763 kr. að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu.

Kærandi gerir athugasemd við að stofnunin endurkrefji hana um ofgreidd réttindi vegna úttektar á séreignarsparnaði á árinu 2023, sem hafi haft áhrif á greiðslu sérstakrar uppbótar, en hún hafi aldrei beðið um þessa framfærslu.

Samkvæmt 2. mgr. 9. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð sé heimilt að greiða einstaklingi sem fái örorkulífeyri samkvæmt lögum um almannatryggingar sérstaka uppbót á lífeyri vegna framfærslu ef sýnt þyki að hann geti ekki framfleytt sér án þess. Við mat á því hvort lífeyrisþegi geti framfleytt sér án sérstakrar uppbótar skuli miða við að heildartekjur hans séu undir tiltekinni fjárhæð á mánuði. Í 3. mgr. ákvæðisins sé farið yfir þau tekjuviðmið sem miðað sé við svo einstaklingur geti átt rétt á sérstakri uppbót. Þá segi í 4. mgr. að til tekna samkvæmt ákvæðinu teljist allar skattskyldar tekjur, þar á meðal bætur almannatrygginga og bætur skv. lögum um félagslega aðstoð, sem og erlendar tekjur sem ekki séu taldar fram hér á landi. Hér undir falli einnig séreignarsparnaður.

Með vísun til framanritaðs telji Tryggingastofnun ekki forsendur vera fyrir hendi til að breyta ákvörðun um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta ársins 2023. Stofnunin telji að miðað við fyrirliggjandi gögn þá sé ljóst að afgreiðsla málsins hafi að fullu og öllu verið í samræmi við lög, reglur og góða stjórnsýsluhætti.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum kæranda vegna ársins 2023.

Kærandi fékk greiddan örorkulífeyri og tengdar greiðslur frá Tryggingastofnun á árinu 2023. Samkvæmt 47. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar er umsækjanda eða greiðsluþega skylt að veita stofnuninni allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum og endurskoðun þeirra. Enn fremur er skylt að tilkynna stofnuninni um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geta haft áhrif á bætur eða greiðslur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Tryggingastofnun um tekjur á bótagreiðsluári sem kunna að hafa áhrif á bótarétt.

Í 30. og 33. gr. laga um almannatryggingar er kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun ríkisins skuli standa að útreikningi bóta. Í 1. mgr. 30. gr. segir að til tekna samkvæmt VI. kafla skuli telja tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt með tilteknum undantekningum. Á grundvelli 3. mgr. 33. gr. laga um almannatryggingar ber Tryggingastofnun ríkisins að endurreikna bótafjárhæðir eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Leiði endurreikningur í ljós að bætur hafi verið ofgreiddar ber Tryggingastofnun að innheimta þær samkvæmt 34. gr. laga um almannatryggingar. Sú meginregla er ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags.

Samkvæmt gögnum málsins gerði tillaga Tryggingastofnunar að tekjuáætlun, dags. 13. desember 2022, ráð fyrir kærandi fengi á árinu 1.050.060 kr. í lífeyrissjóðstekjur. Kærandi gerði ekki athugasemdir við þá áætlun og voru bótaréttindi því reiknuð og bætur greiddar út frá þessum tekjuforsendum.

Samkvæmt upplýsingum skattyfirvalda vegna tekjuársins 2023 reyndust tekjur kæranda hafa verið 1.107.518 kr. lífeyrissjóðstekjur, 365.028 kr. í séreignarsparnað og 31.521 kr. í fjármagnstekjur. Endurreikningur Tryggingastofnunar á tekjutengdum bótagreiðslum vegna ársins leiddi í ljós 181.763 kr. ofgreiðslu á árinu 2023 að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Nánar tiltekið var um ofgreiðslu að ræða í bótaflokknum sérstakri uppbót til framfærslu sökum tekna.

Samkvæmt framangreindu reyndust tekjur kæranda vera hærri á árinu 2023 en gert hafði verið ráð fyrir. Um var að ræða lífeyrissjóðstekjur, séreignarsparnað og fjármagnstekjur. Kærandi fékk greidda sérstaka uppbót lífeyri vegna framfærslu á árinu 2023 en slík uppbót er greidd örorkulífeyrisþegum sem hafa heildartekjur undir tiltekinni fjárhæð á mánuði, sbr. 2. mgr. 9. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð. Til tekna teljist allar skattskyldar tekjur, þar á meðal bætur almannatrygginga og bætur skv. lögum um félagslega aðstoð, sem og erlendar tekjur sem ekki séu taldar fram hér á landi, sbr. 3. mgr. 9. gr. laganna. Framangreindar tekjur kæranda hafa því áhrif á útreikning á sérstakri uppbót til framfærslu. Tryggingastofnun greiðir tekjutengdar bætur á grundvelli upplýsinga úr tekjuáætlun viðkomandi greiðsluþega. Þá ber stofnuninni lögum samkvæmt að endurreikna bætur með hliðsjón af upplýsingum skattyfirvalda og innheimta ofgreiddar bætur.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun um endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum kæranda á árinu 2023.

Úrskurðarnefnd velferðarmála telur rétt benda kæranda á að hún getur freistað þess að leggja fram beiðni um niðurfellingu ofgreiddra bóta til Tryggingastofnunar á grundvelli undanþáguákvæðis 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags. Þar kemur fram að heimilt sé að falla frá endurkröfu að fullu eða að hluta ef alveg sérstakar aðstæður séu fyrir hendi. Þá skuli einkum litið til fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna greiðsluþega og þess hvort hún hafi verið í góðri trú um greiðslurétt sinn.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum A, á árinu 2023, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta