Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 175/2012.

Úrskurður 

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 17. september 2013 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, nr. 175/2012. 

1.
Málsatvik og kæruefni 

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 23. október 2012, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að samkvæmt upplýsingum stofnunarinnar hafi hún verið stödd erlendis á tímabilinu 17. september–9. október 2012 og hafi því ekki uppfyllt skilyrði þess að fá greiddar atvinnuleysisbætur á því tímabili, sbr. c-lið 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Vinnumálastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að þar sem hún hafi látið hjá líða að veita upplýsingar um dvöl sína erlendis skv. 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi stofnunin tekið ákvörðun um að fella niður bótarétt hennar í tvo mánuði sem ella hefði verið greiddar bætur fyrir frá degi ákvörðunar. Jafnframt var kærandi krafin um ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 20.993 kr. vegna tímabilsins 17. september–9. október 2012, sbr. 3. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi vildi ekki una ákvörðun Vinnumálastofnunar og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, mótteknu 15. nóvember 2012. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun telur að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun. 

Kærandi sótti síðast um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun þann 12. júlí 2012. 

Þann 20. september 2012 barst staðfesting frá kæranda á atvinnuleit frá Danmörku. Í kjölfarið var kæranda sent bréf, dags. 2. október 2012, frá greiðslustofu Vinnumálastofnunar þar sem óskað var eftir skýringum á dvöl hennar erlendis og farseðlum. Þann 6. október 2012 barst Vinnumálastofnun tölvupóstur frá kæranda með skýringum ásamt farseðlum sem staðfestu að tímabil dvalar hennar erlendis var frá 17. september til 9. október 2012. 

Mál kæranda var tekið fyrir á fundi stofnunarinnar 22. október 2012 og var ákveðið í samræmi við 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að fella niður greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda í tvo mánuði frá ákvörðunardegi. Með bréfi, dags. 23. október 2012, var kæranda tilkynnt um ákvörðun stofnunarinnar. 

Í kæru sinni, dags. 12. nóvember 2012, til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða greinir kærandi frá því að henni hafi ekki verið kunnugt um að henni hafi verið óheimilt að þiggja atvinnuleysisbætur á meðan hún var stödd erlendis. Kærandi tiltekur ferðin hafi verið farin með mjög stuttum fyrirvara vegna skyndilegra erfiðleika hjá fjölskyldu sonar hennar og að það hafi alls ekki verið ætlun hennar að brjóta lög. 

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 27. desember 2012, vísar Vinnumálastofnun til c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um að umsækjandi um greiðslur atvinnuleysistrygginga þurfi að vera búsettur og staddur hér á landi til að teljast tryggður samkvæmt lögunum. Vinnumálastofnun vísar einnig til 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um upplýsingaskyldu umsækjanda til Vinnumálastofnunar, en atvinnuleitanda ber skylda til þess að upplýsa Vinnumálstofnun um allar þær breytingar sem kunna að verða á högum hans eða annað sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar. Stofnunin bendir á að í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 37/2009 til breytinga á lögum um atvinnuleysistryggingar, komi meðal annars fram að láti atvinnuleitandi hjá líða að veita Vinnumálstofnun nauðsynlegar upplýsingar eða veiti rangar upplýsingar, komi til álita að beita viðurlögum skv. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun áréttar að einnig sé mælt fyrir um þessa upplýsingaskyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysisbóta í 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistrygginga. Þar segir að atvinnuleitanda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum. 

Vinnumálastofnun bendir á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem kveðið er á um viðurlög við brotum á upplýsingaskyldu hins tryggða. 

Vinnumálastofnun áréttar að í 13. og 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé skýrt kveðið á um þá skyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysisbóta að vera í virkri atvinnuleit. Sé það jafnframt gert að skilyrði að umsækjandi sé staddur hér á landi, sbr. c-lið 1. mgr. 13. gr. laganna. Óumdeilt sé að kærandi hafi verið stödd erlendis á sama tíma og hún var skráð atvinnulaus hjá Vinnumálastofnun. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum stofnunarinnar hafi hún verið stödd erlendis 17. september–9. október 2012. 

Kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun ekki fyrir fram um þessa ferð sína til útlanda, eins og henni bar skv. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. 

Vinnumálastofnun tekur fram að á kynningarfundum sé vakin athygli á því að eitt af skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta sé að atvinnuleitandi sé búsettur og staddur hérlendis og að ótilkynntar ferðir til útlanda séu óheimilar meðfram töku atvinnuleysistrygginga. Einu undanþágurnar frá skilyrðum c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að finna í VIII. kafla laganna. Sé sérstaklega vakin athygli á framangreindum atriðum á heimasíðu stofnunarinnar og lög um atvinnuleysistryggingar séu þar einnig aðgengileg. Þá vekur stofnunin athygli á því að í þeim tilvikum sem stofnuninni er tilkynnt fyrir fram um slíkar ferðir þá sé atvinnuleitanda gerð grein fyrir því að hann fái ekki greiddar atvinnuleysisbætur á meðan hann er erlendis frá stofnuninni nema fyrir liggi E-303 vottorð. 

Fram kemur að það sé mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi í umrætt sinn látið hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar um atvik er höfðu bein áhrif á rétt hennar til greiðslu atvinnuleysisbóta. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að kærandi uppfyllti ekki skilyrði atvinnuleysistrygginga á tímabilinu 17. september–9. október 2012. 

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 4. janúar 2013, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 18. janúar 2013. Athugasemdir kæranda bárust úrskurðarnefndinni með tölvubréfi, dags. 10. janúar 2013, þar sem kærandi ítrekar rök sín fyrir kæru, dags. 12. nóvember 2012. Með bréfi úrskurðarnefndar atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerða til kæranda, dags. 12. ágúst 2013, var henni tilkynnt um töf á afgreiðslu máls hennar vegna gríðarlegs málafjölda hjá úrskurðarnefndinni. 

2. 
Niðurstaða 

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 22. gr. laga nr. 134/2009 og 3. gr. laga nr. 153/2010, en hún er svohljóðandi: 

Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“ 

Þetta ákvæði þarf meðal annars að túlka með hliðsjón af því að skv. c-lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 4. gr. laga nr. 134/2009, er eitt af skilyrðum þess að geta haldið rétti sínum í atvinnuleysistryggingakerfinu að vera búsettur og staddur hér á landi. 

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi stödd erlendis á tímabilinu 17. september–9. október 2012, en tilkynnti ekki Vinnumálastofnun fyrir fram að hún yrði ekki stödd á landinu á umræddu tímabili. Samkvæmt samskiptaskrá Vinnumálstofnunar þurfti hún að fara til útlanda þar sem sonur hennar og fjölskylda hans, sem þar býr, lentu skyndilega í erfiðleikum og þurftu nauðsynlega aðstoð hennar. Kærandi lagði fram afrit af flugfarseðlum. 

Fram hefur komið í máli Vinnumálastofnunar að veittar séu upplýsingar um þessi atriði á kynningarfundum stofnunarinnar. Einnig verður til þess að líta að tíðkanlegt er að launþegar upplýsi vinnuveitendur sínar um fjarvistir vegna dvalar erlendis en réttarsamband atvinnuleitanda og Vinnumálastofnunar er um sumt eðlislíkt því sem er á milli launþega og vinnuveitanda. Þessu til viðbótar hafa um nokkurt skeið verið veittar upplýsingar um réttindi og skyldur atvinnuleitenda á heimasíðu Vinnumálastofnunar. 

Í ljósi þeirrar upplýsingaskyldu atvinnuleitenda sem kveðið er á um í 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 1. gr. laga nr. 134/2009, verður fallist á að kærandi hafi brotið gegn trúnaðarskyldum sínum gagnvart Vinnumálastofnun í umrætt sinn, er hún hélt af landi brott án þess að láta vita af því fyrir fram. Því bar Vinnumálastofnun að láta hana sæta viðurlögum skv. 1. mgr. 59. gr. laganna. Að auki ber kæranda að endurgreiða þær atvinnuleysisbætur sem hún þáði á meðan hún var stödd erlendis og uppfyllti ekki skilyrði um greiðslu atvinnuleysisbóta, sbr. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. 

Með vísan til framangreinds og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram fyrir hinni kærðu ákvörðun verður hún staðfest. 

Úrskurðarorð 

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 22. október 2012 í máli A um niðurfellingu bótaréttar hennar í tvo mánuði og endurgreiðslu atvinnuleysisbóta sem hún fékk greiddar fyrir tímabilið 17. september til 9. október 2012 að fjárhæð 20.993 kr. er staðfest. 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður 

Hulda Rós Rúriksdóttir 

Helgi Áss Grétarsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta