Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 187/2012.

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 24. september 2013 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, nr. 187/2012.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 16. nóvember 2012, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum 14. nóvember 2012 fjallað um rétt kæranda til atvinnuleysisbóta. Umsóknin var samþykkt en með vísan til starfsloka kæranda hjá Bvar réttur hennar til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo mánuði frá 12. október 2012 sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir. Vinnumálastofnun tók ákvörðun þessa á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með kæru, dags. 6. desember 2012. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og réttur hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði frá 12. október 2012 verði staðfestur. Vinnumálastofnun telur að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun.

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur 12. október 2012.

Í vottorði vinnuveitanda, B, dags. 12. október 2012, er ástæða starfsloka tilgreind sem eigin uppsögn kæranda. Vinnumálastofnun benti kæranda á að hún þyrfti mögulega að sæta viðurlögum sökum þess hvernig starfslokum hennar hjá B var háttað og var kæranda bent á að skila skýringum á uppsögn sinni. Greiðslustofu Vinnumálastofnunar bárust skýringar frá kæranda með bréfi, dags. 21. október 2012. Vinnumálastofnun taldi skýringar kæranda á ástæðum starfsloka sinna ekki gildar í skilningi 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og felldi því niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði með ákvörðun sinni frá 14. nóvember 2012.

Í kæru sinni til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 6. desember 2012, vísar kærandi til athugasemda við 54. gr. frumvarps þess er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar. Þar segi að við mat á því hvaða ástæður teljist gildar í skilningi ákvæðisins þurfi að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða. Einnig er þar vísað til reglugerðar nr. 545/1997, sem felld var brott með reglugerð nr. 548/2006, en þar komi fram að til gildra ástæðna geti meðal annars talist þau tilvik þegar maki hins tryggða hefur hafið störf í öðrum landshluta og fjölskyldan hefur af þeim sökum þurft að flytja búferlum.

Kærandi tilgreinir að ástæða flutninga hennar og fjölskyldu hennar hafi verið að húsnæði þeirra í Mosfellsbæ hafi verið orðið of lítið og því hafi þau fjárfest í stærra húsnæði á Akranesi. Maki kæranda sæki vinnu í Reykjavík og hafi þau hjónin því talið að annað þyrfti að vera statt á Akranesi barna þeirra vegna, til dæmis ef skyndilega væri nauðsynlegt að sækja þau í skóla. Kærandi greinir einnig frá því að ekki hafi verið mögulegt að fá vinnutíma hennar hjá Bbreytt. Vinnutíminn hafi verið kl. 9‒17 og hún hafi enga barnapössun haft þann tíma sem tæki hana að ferðast til og frá vinnu í Reykjavík.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 28. desember 2012, vísar stofnunin til þess að í greinargerð með frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar sé áréttað að eitt af markmiðum vinnumarkaðskerfisins sé að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Með hliðsjón af því sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þegar annað starf er ekki í boði.

Vinnumálastofnun bendir á að í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar segi meðal annars að það sé erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega í lögum og reglugerðum hvaða ástæður liggi að baki ákvörðun þess að fólk segi störfum sínum lausum séu gildar, þar sem þær ástæður geti verið af margvíslegum toga. Því hafi verið lagt til að lagareglan yrði matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Vinnumálastofnun áréttar að tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir eru og misst hafa fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Veiti lögin þeim fjárhagslegt úrræði og beri að gera ríkar kröfur til þeirra sem segi upp störfum sínum, um að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. Í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi orðalagið gildar ástæður verið túlkað þröngt og hafi fá tilvik fallið í raun þar undir.

Ástæður þær er kærandi nefni í kæru sinni til úrskurðarnefndarinnar og í skýringum sínum til Vinnumálastofnunar snúi fyrst og fremst að því að hún hafi hætt störfum hjá B vegna búferlaflutninga frá Mosfellsbæ til Akraness þar sem fjölskylda hennar hafi þurft stærra húsnæði. Maki kæranda sæki vinnu í Reykjavík en kærandi telur sig ekki geta sótt vinnu í Reykjavík vegna barna sinna og ekki hafi verið mögulegt að breyta vinnutíma hennar hjá B. Kærandi og fjölskylda hennar eigi ekki ættingja á Akranesi og hún hafi því þurft að vera á staðnum til að koma börnunum í skóla og leikskóla.

Í athugasemdum þeim er fylgdu frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar segir um 54. gr. að gild ástæða fyrir uppsögn geti annars vegar verið um þau tilvik er maki hins tryggða hefur hafið störf í öðrum landshluta og fjölskyldan hefur af þeim sökum þurft að flytja búferlum. Hins vegar þegar um er að ræða tilvik þegar uppsögn má rekja til þess að atvinnuleitandi hafi sagt upp störfum af heilsufarsástæðum en er að öðru leyti vinnufær. Í máli kæranda liggi fyrir að maki kæranda sækir enn vinnu í Reykjavík og er því ástæða flutninga kæranda ekki vegna vinnu maka. Vinnumálastofnun bendir einnig á að margir íbúar á Akranesi sæki vinnu í Reykjavík.

Ástæður kæranda geta þar af leiðandi ekki talist gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að mati Vinnumálastofnunar og með vísan til fordæma úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða. Kæranda hafi mátt vera ljóst að með því að segja starfi sínu lausu gæti verið erfiðleikum bundið að fá annað starf. Þá hefur kærandi ekki sýnt fram á að hún hafi mátt eiga von á starfi á Akranesi. Verði jafnframt að líta til þess að heppilegra hefði verið fyrir kæranda að reyna að útvega sér annað starf áður en hún sagði starfi sínu lausu hjá B.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 7. janúar 2013, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 21. janúar 2013. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda. Með bréfi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða til kæranda, dags. 12. ágúst 2013, er henni tilkynnt að afgreiðsla máls hennar muni tefjast vegna gríðarlegs málafjölda fyrir nefndinni.


 

 

2.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 17. gr. laga nr. 134/2009 og 9. gr. laga nr. 142/2012, en hún er svohljóðandi:

Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.“

Almenn lagarök mæla með því að ákvæði 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um niðurfellingu bótaréttar skuli fyrst og fremst beitt þegar viðkomandi einstaklingur segir starfi sínu lausu og sækir í kjölfar þess um atvinnuleysisbætur. Í skilningi 1. mgr. 54. gr. er orðalagið „gildar ástæður“ skýrt þröngt, sem þýðir í raun að fá tilvik falla þar undir.

Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar segir að nefnd er fjallaði um efni laganna hafi tekið afstöðu til þess hvað gætu talist gildar ástæður og komist að þeirri niðurstöðu að það væri erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega slíkar ástæður í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagaregla þessi verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun sé þar með falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggur falli að umræddri reglu. Stofnuninni beri því að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Samkvæmt gögnum málsins er ljóst kærandi sagði sjálf starfi sínu lausu hjá B vegna flutninga til Akraness án þess að hafa að annarri vinnu að hverfa. Það liggur jafnframt fyrir að flutningar kæranda voru ekki af þeim sökum að maki kæranda hafi fengið starf á Akranesi enda sækir hann enn vinnu í Reykjavík.

Með vísan til framanritaðs er það mat úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða að ástæður kæranda fyrir uppsögn á starfi sínu teljist ekki gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ber því að staðfesta ákvörðun Vinnumálastofnunar um niðurfellingu bótaréttar í tvo mánuði.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 14. nóvember 2012 um niðurfellingu bótaréttar A í tvo mánuði er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir,

formaður

 

Hulda Rós Rúríksdóttir                                             Helgi Áss Grétarsson

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta