Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 393/2024-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 393/2024

Þriðjudaginn 29. október 2024

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 27. ágúst 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. ágúst 2024, um að synja umsókn hans um greiðslur atvinnuleysisbóta.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti síðast um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 18. júlí 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. ágúst 2024, var kæranda tilkynnt að umsókn hans um atvinnuleysisbætur hefði verið synjað á grundvelli 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til starfsloka hjá fyrrum vinnuveitanda.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 27. ágúst 2024. Með bréfi, dags. 28. ágúst 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 19. september 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 24. september 2024. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru greinir kærandi frá því að hann hafi verið atvinnulaus frá 18. júlí 2024 til 27. ágúst 2024 og eigi inni 1,75 mánuði á bótatímabili.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysistrygginga með umsóknum, dags. 31. janúar 2017, 7. júní 2018 og 16. mars 2020. Samtals hafi verið greiddir 28,25 mánuðir á tímabilinu 31. janúar 2017 til 1. apríl 2024.

Kærandi hafi síðast sótt um greiðslur atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 18. júlí 2024. Með erindum, dags. 22. ágúst 2024, hafi kærandi verið inntur eftir skýringum á starfslokum. Þá hafi stofnunin óskað eftir upplýsingum um starfstímabil og afrit af uppsagnarbréfi vegna starfsloka hjá B. Uppsagnarbréf og skýringar hafi borist frá kæranda samdægurs.

Þann 23. ágúst 2024 hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið synjað á grundvelli 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, þar sem brot kæranda í starfi og fyrirvaralaus uppsögn í kjölfar þess hafi verið ástæða starfsloka. Dagana 23. ágúst 2024 og 26. ágúst 2024 hafi kærandi átt í samtali við spjallmenni Vinnumálastofnunar og með gagnasendingum á „Mínum síðum“ varðandi ákvörðun stofnunarinnar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim, sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Lögin veiti þeim fjárhagslegt úrræði og beri að gera ríkar kröfur til þeirra sem segi upp störfum sínum að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Í 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar segi orðrétt:

,,Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir um þann sem missir starf sitt af ástæðum sem hann sjálfur á sök á.“

Í 4. mgr. 54. gr. segi að hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili, þegar atvik sem lýst sé í 1. mgr. 54. gr. eigi sér stað skuli hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfylli skilyrði 31. gr.

Orðalagið „gildar ástæður“ í 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi verið túlkað þröngt og fá tilvik hafi verið talin falla þar undir. Úrskurðarnefnd velferðarmála hafi til að mynda í fyrri úrskurðum sínum talið að almennt beri að gera nokkuð ríkar kröfur til atvinnuleitanda þegar metið sé hvort ástæður fyrir uppsögn séu gildar samkvæmt 1. mgr. 54. gr. laganna. Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar komi fram að með ákvæðinu sé verið að undirstrika það markmið vinnumarkaðskerfisins að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Í ljósi þess að um matskennda ákvörðun sé að ræða sé Vinnumálastofnun falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls, er fyrir henni liggi, falli að umræddri reglu. Vinnumálastofnun beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Við mat á þeim aðstæðum þar sem atvinnuleitandi missi starf sitt af ástæðum sem hann sjálfur beri sök á hafi Vinnumálastofnun meðal annars horft til þess hvort viðkomandi hafi mátt gera sér grein fyrir því að hegðun hans gæti leitt til uppsagnar.

Fyrir liggi að kæranda hafi verið sagt upp störfum hjá B og að ástæða uppsagnar hans hafi verið „refsiverð brot í starfi“. Fram komi í uppsagnarbréfi, dags. 18. júlí 2024, að uppsögn sé fyrirvaralaus og að alvarleiki brotsins sé ástæða þess að launagreiðslur falli niður á sama tíma og uppsögnin taki gildi. Uppsagnarbréf B sé afdráttarlaust um að ástæður uppsagnar kæranda megi rekja til þjófnaðar kæranda á vörum sem hafi verið í vörslu fyrirtækisins.

Þær skýringar sem kærandi hafi veitt stofnuninni er varði ástæður uppsagnar lúti að því að hann hafi neitað sökum þeim sem á hann hafi verið bornar og að hann hafi „leitað til lögfræðings samstundis.“

Það sé mat Vinnumálastofnunar að uppsögn kæranda og skýringar hans geti ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Því beri að hafna umsókn hans, sbr. 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 4. mgr. sömu greinar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur á grundvelli 1. og 4. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 54. gr. laganna er svohljóðandi:

„Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.“

Í 4. mgr. 54. gr. segir að hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili samkvæmt 29. gr. þegar atvik sem lýst sé í 1. mgr. eigi sér stað skuli hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.

Óumdeilt er að kæranda var sagt upp störfum hjá B og kemur því til skoðunar hvort hann hafi sjálfur átt sök á uppsögninni. Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar kemur fram að það sé erfiðleikum bundið að takmarka þau tilvik sem geti talist til gildra ástæðna í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagareglan verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Jafnframt er bent á að um íþyngjandi ákvörðun sé að ræða.

Í fyrirliggjandi uppsagnarbréfi, dags. 18. júlí 2024, kemur fram að ástæða uppsagnar kæranda sé vegna refsiverðra brota í starfi þar sem kærandi hafi tekið ófrjálsri hendi vörur sem hafi verið í vörslu B. Af skýringum kæranda til Vinnumálastofnunar og kæru til úrskurðarnefndar verður ráðið að um réttar upplýsingar sé að ræða. Að því virtu er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála að kærandi hafi misst starf sitt af ástæðu sem hann átti sjálfur sök á.

Kærandi hafði þegið atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun í rúmlega 28,25 mánuði á tímabilinu 31. janúar 2017 til 1. apríl 2024. Því var umsókn hans um atvinnuleysisbætur, dags. 18. júlí 2024, synjað á grundvelli 4. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 og á kærandi því ekki rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr. laganna, þ.e. eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur á grundvelli 1. og 4. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.

 

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. ágúst 2024, um að synja umsókn A, um atvinnuleysisbætur, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta