Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 313/2024-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 313/2024

Fimmtudaginn 19. september 2024

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 9. júlí 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 8. júlí 2024, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 3. apríl 2024 og var umsóknin samþykkt 2. maí 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 8. júlí 2024, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hún hefði ekki mætt á boðaðan fund hjá stofnuninni.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 9. júlí 2024. Með bréfi, dags. 10. júlí 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 27. ágúst 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 28. ágúst 2024. Athugasemdir kæranda bárust 10. september 2024 og voru þær kynntar Vinnumálastofnun með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 11. september 2024. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru greinir kærandi frá því að hún sé mjög ósammála ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt hennar í tvo mánuði. Kærandi hafi verið boðuð á fund Vinnumálastofnunar sem fara átti fram þann 21. júní 2024 en hún hafi ekki mætt. Kærandi bendi á skort á upplýsingum á „Mínum síðum“ Vinnumálastofnunar. Þrátt fyrir tilkynningar í tölvupósti og smáskilaboðum hafi engin skilaboð verið að finna á „Mínum síðum“. Þau hafi ekki birst fyrr en löngu seinna. Kærandi geti ekki sagt til um nákvæman tíma en sonur hennar hafi farið inn á „Mínar síður“ þremur klukkustundum síðar og þá hafi enn engar upplýsingar verið um fundinn.

Þá hafi tilkynning um fundarboð borist með smáskilaboðum á sama tíma og áminning um að staðfesta atvinnuleit sem hafi ruglað kæranda í ríminu. Hún hafi verið sannfærð um að um sömu tilkynningu væri að ræða.

Kærandi greinir einnig frá því að sama dag og fundurinn hafi verið haldinn hafi hún unnið prufuvakt hjá fyrirtækinu B til klukkan 11:00. Vinnutíminn hafi ekki verið ákveðinn fyrirfram og því hafi kærandi ekki vitað hversu langur hann yrði. Fundur Vinnumálastofnunar hafi verið haldinn klukkan 10:15. Meðfylgjandi kæru sé staðfesting frá stjórnanda um að kærandi hafi verið á prufuvakt þann 21. júní 2024.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar sé kæranda óskiljanleg en hún hafi þegið atvinnuleysisbætur af heilsufarsástæðum. Eftir að hafa unnið í eitt og hálft ár og lyft þyngdum umfram styrk hafi meniscus brotnað í vinstra hné kæranda og hún farið í veikindaleyfi. Þegar kærandi hafi snúið aftur til vinnu hafi henni því miður verið sagt upp störfum. Þar sem kærandi hafi ekki fengið aðra vinnu um leið hafi hún sótt um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun og haldið áfram í atvinnuleit. Þegar kærandi hafi þegið bætur í einn mánuð hafi hún verið boðuð á fund sem hún hafi ekki mætt á. Henni hafi þá verið refsað fyrir að leita að vinnu á eigin vegum og skipuleggja prufuvaktir. Það sé kæranda óskiljanlegt.

Séu framangreindar skýringar ekki nægilegar vegna fjarveru á boðaðan fund spyrji kærandi hvað sé nægilegt. Kærandi forðist ekki vinnu eða atvinnuleit en ástandið hafi gjörsamlega svipt hana lífsviðurværi sínu og haft neikvæð sálræn áhrif. Hún óski því eftir endurskoðun á málinu.

Í athugasemdum kæranda vegna greinargerðar Vinnumálastofnunar ítrekar kærandi óánægju sína við ákvörðun stofnunarinnar. Í ákvörðun sinni vísi Vinnumálastofnun til laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Í lögunum sé fjallað um það að forðast atvinnuleit og mætingu á boðaða fundi. Kærandi hafi greint frá ástæðu fjarveru sinnar, þ.e. atvinnuleit á eigin vegum og lagt fram vottorð sem staðfesti viðveru kæranda á prufuvakt á fundardegi. Hún hafi einnig óskað eftir nýrri dagsetningu til að mæta á fund Vinnumálastofnunar. Það að fundurinn hafi verið haldinn sama dag og kærandi hafi unnið prufuvakt sé ekki kæranda að kenna. Hún telji dagsetningu prufuvaktarinnar mikilvæga þegar um atvinnuleit sé að ræða þar sem atvinnuviðtöl og prufuvaktir séu forsenda fyrir því að fá vinnu.

Kærandi telji því að reglur Vinnumálastofnunar eigi ekki við í hennar tilviki og ekki eigi að koma til refsingar á grundvelli þeirra.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um atvinnuleysistryggingar þann 3. apríl 2024. Með bréfi, dags. 2. maí 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Með erindi, dags. 20. júní 2024, klukkan 09:45, hafi kærandi verið boðuð á upplýsingafund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar, Grensásvegi 9, þann 21. júní 2024, klukkan 10:15. Athygli hafi verið vakin á því að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun á greiðslum atvinnuleysistrygginga. Boðun þessi hafi verið send með smáskilaboðum í símanúmer kæranda og tölvupósti á skráð netfang í kerfi stofnunarinnar.

Kærandi hafi hvorki mætt á boðaðan fund né látið vita um forföll. Kærandi hafi haft samband við stofnunina þann 25. júní 2024 og leitað upplýsinga um tilhögun mögulegrar tilfallandi vinnu. Þann sama dag hafi Vinnumálastofnun borist skýringarbréf frá kæranda og skjáskot þar sem hún hafi veitt skýringar á fjarveru sinni og lagt fram skjáskot úr síma því til stuðnings sem sýni staðfestingu á atvinnuleit hennar. Kærandi hafi kveðist ekki hafa séð viðkomandi boðun þrátt fyrir að hafa móttekið smáskilaboð og tölvupóst þess efnis að hún ætti erindi inni á „Mínum síðum“.

Þann 1. júlí 2024 hafi Vinnumálastofnun sent kæranda erindi þar sem óskað hafi verið eftir skriflegum skýringum á fjarveru á boðaðan fund. Skýringar hafi broist frá kæranda þann 3. júlí 2024, endursendar frá 25. júní, auk þess sem kærandi hafi sagt að hvergi hefði verið að finna upplýsingar um boðun á „Mínum síðum“. Þá hafi kærandi kveðist ekki hafa getað mætt á upplýsingafundinn þar sem hún hafi verið að taka prufuvakt á veitingastað þann 21. júní 2024.

Með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 8. júlí 2024, hafi kæranda verið tilkynnt um tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslum samkvæmt 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Kærandi hafi þann 8. júlí 2024 sent beiðni um að ákvörðun um viðurlög yrði tekin upp að nýju. Meðfylgjandi hafi verið samhljóða skýringar um að henni hafi yfirsést boðun í umrætt viðtal og hún hafi ekki getað sinnt fundinum vegna vinnu. Ákvörðun stofnunarinnar um tveggja mánaða niðurfellingu greiðslna hafi verið tekin til umfjöllunar að nýju og kæranda tilkynnt með erindi, dags. 7. ágúst 2024, að fyrri ákvörðun hefði verið staðfest.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Á meðal skilyrða fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta sé að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt [h-lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum. Ráðgjafar stofnunarinnar skuli boða atvinnuleitendur reglulega í viðtöl eftir þörfum hvers og eins atvinnuleitanda.

Á grundvelli 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitendum að hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Í tilfelli kæranda hafi hún verið boðuð á fund hjá stofnuninni, en samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laganna sé Vinnumálastofnun heimilt að boða atvinnuleitendur til stofnunarinnar með sannanlegum hætti, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum þeirra sem kunni að hafa áhrif á rétt þeirra til greiðslu atvinnuleysisbóta. Atvinnuleitendur skuli vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara. Ákvæði 3. mgr. 13. gr. hafi komið inn í lög um atvinnuleysitryggingar með 4. gr. laga nr. 134/2009, en í athugasemdum með 4. gr. segi að gert sé ráð fyrir að stofnunin geti boðað atvinnuleitanda með allt að sólarhringsfyrirvara á þá skrifstofu sína sem næst sé lögheimili viðkomandi.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á fund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 21. júní 2024. Kærandi hafi fengið sendar tilkynningar í tölvupósti, farsíma og á ,,Mínum síðum“ um boðun á umræddan fund. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.

Skýringar kæranda á ástæðum þess að hún hafi ekki mætt á boðaðan fund hafi verið þær að hún hafi ekki fundið skilaboð Vinnumálastofnunar á „Mínum síðum“ og að hún hafi verið í vinnu þann dag.

Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi hafi í upphafi umsóknar verið upplýst með fullnægjandi hætti um hvernig henni yrðu send mikilvæg skilaboð og tilkynningar. Boðun til umrædds fundar hafi borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Auk þess hafi sérstaklega verið tekið fram að tilkynningar um forföll skyldu berast án ástæðulausrar tafar. Þá sé ekki að finna neinar upplýsingar um að kærandi væri í vinnu þennan dag. Kærandi hafi fyrst haft samband við Vinnumálastofnun þann 25. júní 2024 til að fá upplýsingar um skráningar á tilfallandi störfum sem hugsanlega myndi hefjast í byrjun júlí.

Í ljósi framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Með því að hafa ekki mætt til umrædds fundar hafi kærandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði og beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var þann 20. júní 2024 boðuð á upplýsingafund hjá Vinnumálastofnun sem fara átti fram á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík daginn eftir, þann 21. júní 2024. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án tafar. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Þá var kærandi hvött til að hafa samband við stofnunina ef hún vildi frekari upplýsingar. Kærandi hvorki boðaði forföll né mætti á fundinn.

Kærandi hefur gefið þær skýringar að hún hafi fengið tilkynningar í tölvupósti og smáskilaboðum en engar upplýsingar hafi verið að finna á „Mínum síðum“. Þá hafi tilkynning um fundinn borist með smáskilaboðum á sama tíma og áminning um að staðfesta atvinnuleit og kærandi hafi haldið að um sömu tilkynningu væri að ræða. Þá hafi kærandi verið á prufuvakt á sama tíma og fundurinn hafi verið haldinn.

Framangreind boðun var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta fjarveru á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 8. júlí 2024, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta