Mál nr. 460/2024-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 460/2024
Fimmtudaginn 28. nóvember 2024
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 23. september 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. september 2024, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 24. janúar 2024 og var umsóknin samþykkt 28. febrúar 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. september 2024, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði ekki mætt í boðað viðtal hjá stofnuninni.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 23. september 2024. Með bréfi, dags. 26. september 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 28. október 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 30. október 2024. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru greinir kærandi frá því að hann hafi verið boðaður í viðtal hjá ráðgjafa Vinnumálastofnunar í Vestmannaeyjum, dags. 10. september 2024, klukkan 11:00. Í kjölfar viðtalsboðunar hafi kærandi sent stofnuninni tölvupóst um að hann kæmist ekki í viðtalið þar sem hann væri á námskeiði á sama tíma sem stæði yfir í þrjá mánuði. Kærandi hefði verið sjálfboðaliði hjá B nokkrum mánuðum áður og hefði verið hvattur til að fá próf til að geta fengið þar vinnu. Hann stundi því umrætt námskeið með það fyrir augum að fá vinnu eins og honum hafi verið lofað. Kærandi hafi þegar greitt fyrir námskeiðið sem hafi byrjað í upphafi septembermánaðar 2024 og því ljúki í lok nóvember 2024. Kærandi hafi spurt hvort mögulegt væri að mæta í viðtalið síðar sama dag eða í hádeginu en ekki fengið svar við því. Hann hafi þó fengið að vita að starfsfólk stofnunarinnar hefði verið á þjónustuskrifstofunni til klukkan tvö. Kærandi hefði því getað mætt tveimur klukkustundum síðar, eða klukkan eitt.
Þrettán dögum eftir að kærandi hafi fengið svar frá Vinnumálastofnun um að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans yrðu settar á bið næstu þrjá mánuði hafi kærandi spurt tveggja mikilvægra spurninga. Í fyrsta lagi hafi kærandi spurt hvernig hann ætti að geta lifað næstu þrjá mánuðina og hver myndi borga fyrir leigu og mat. Í öðru lagi hafi hann spurt hvers vegna hann hefði ekki fengið svar fyrr.
Kærandi telji ákvörðun Vinnumálastofnunar hljóma svolítið fáránlega og bendi á að hann hefði getað mætt tveimur klukkustundum síðar og málið hefði þar með verið leyst. Kærandi telji að ef Íslendingur hefði lent í því sama hefði meðferðin verið önnur en hann voni að hann hafi rangt fyrir sér. Kærandi óski eftir því að tekið sé tillit til þess að hann reiði sig daglega á atvinnuleysisbætur og hafi ekki gert neitt rangt sem réttlæti biðtíma eftir bótum.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um atvinnuleysistryggingar með umsókn, dags. 24. janúar 2024. Með erindi, dags. 28. febrúar 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%. Kæranda hafi verið gert að sæta tveggja mánaða bið eftir greiðslum á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með tilliti til starfsloka hans.
Með erindi, dags. 6. september 2024, hafi kærandi verið boðaður í viðtal við ráðgjafa [Vinnumálastofnunar] í Vestmannaeyjum sem haldið yrði 10. september 2024, klukkan 13:00. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að um skyldumætingu væri að ræða og að ótilkynnt forföll og forföll án gildra ástæðna gætu valdið stöðvun greiðslna atvinnuleysisbóta. Umrædd boðun hafi verið send þann 6. september 2024, klukkan 12:34, á „Mínar síður“ kæranda, með tilkynningu á uppgefið netfang, C, og með smáskilaboðum í farsímanúmerið X.
Kærandi hafi ekki mætt í viðtalið en boðað forföll 9. september 2024 og kveðist vera í fjarnámskeiði sem stæði í tvo og hálfan mánuð. Þá hafi kærandi einnig upplýst að hann hefði verið að sinna sjálfboðaliðastarfi um hríð hjá B. Kæranda hafi verið boðið að hliðra tímasetningu viðtalsins til klukkan 11:00 þann 10. september 2024 sem hann hafi hafnað.
Með erindi, dags. 11. september 2024, hafi kærandi verið inntur eftir nánari skýringum á fjarveru sinni í boðað viðtal. Kæranda hafi verið greint frá því að hefði hann hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði kynni það að leiða til viðurlaga í formi biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að koma að skýringum sínum.
Skýringar hafi borist frá kæranda þann sama dag, 11. september 2024, þar sem hann hafi óskað eftir því að fá fundi utan reglulegs vinnutíma (e. regular hours) þar sem hann hefði greitt fyrir námskeiðið og ætlaði sér ekki að falla í því. Þá hafi jafnframt komið fram í skýringum kæranda að hann biði eftir staðfestingu frá námskeiðshaldara.
Kæranda hafi með erindi, dags 23. september 2024, verið tilkynnt um ákvörðun Vinnumálastofnunar um þriggja mánaða bið eftir greiðslum atvinnuleysisbóta til hans þar sem hann hefði ekki sinnt viðtalsboðun, dags. 10. september 2024. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 4. mgr. sömu greinar laga um atvinnuleysistryggingar.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Eitt af almennum skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum.
Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.
Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitanda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um atvinnuleysisbætur komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt í boðað viðtal sem hafi átt að halda þann 10. september 2024. Áður hafi kærandi fengið sendar tilkynningar í tölvupósti, með smáskilaboðum í farsíma og á „Mínum síðum“ þar sem tímasetning og staðsetning hafi verið tilgreindar. Kæranda hafi sömuleiðis verið greint frá því að öll forföll þyrfti að tilkynna til stofnunarinnar án ástæðulausrar tafar. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Ákvæðið sé svohljóðandi:
„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“
Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Kærandi hafi veitt skýringar á fjarveru sinni í umrætt vinnumarkaðsúrræði en þær lúti að því að hann eigi í vandræðum með að mæta í viðtöl á reglulegum vinnutíma (e. regular hours). Kærandi hafi ekki getað mætt í viðtalið vegna setu á fjarnámskeiði. Þá liggi fyrir að kærandi hafi haft samband við Vinnumálastofnun þann 9. september 2024 til að tilkynna forföll í viðtalið. Að mati Vinnumálastofnunar geti skýring kæranda á forföllum ekki talist fullnægjandi. Vinnumálastofnun vísi í því samhengi til þess að kærandi hafi sent inn þann 11. september 2024 gögn á portúgölsku um yfirlit námskeiða sem kærandi sitji. Þar komi fram að fræðilegur hluti námsins sé 125 klukkustundir en verklegur hluti þess sé 180 klukkustundir. Það sé ekki hægt að sjá hvar þeir hlutar séu kenndir í gögnum málsins en ætla megi að verklegi hlutinn, 180 klukkustundir, sé í það minnsta mánaðarstarf á vettvangi. Fyrir liggi að kærandi hafi aldrei upplýst um setu á þessu námskeiði né um sjálfboðaliðastarf sitt fyrr en eftir umrædda boðun í viðtalið 10. september 2024. Þar að auki sé bent á það að í 8. gr. reglugerðar nr. 918/2020, um þátttöku atvinnuleitenda sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins í vinnumarkaðsaðgerðum og um greiðslu styrkja úr Atvinnuleysistryggingasjóði, komi fram að atvinnuleitandi sem sinni sjálfboðaliðastarfi samkvæmt sértökum samningi skuli engu að síður vera í virkri atvinnuleit á gildistíma samnings. Kæranda hefði með öðrum orðum verið skylt að mæta í umrætt viðtal jafnvel þótt kærandi hefði tilkynnt um starf sitt til Vinnumálastofnunar og undirritað samning um sjálfboðaliðastarf samkvæmt 8. gr. reglugerðarinnar.
Með vísan til alls framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Með því að mæta ekki í viðtalið hafi kærandi brugðist skyldum sínum samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.
Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:
„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“
Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.
Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.
Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var þann 6. september 2024 boðaður í viðtal hjá Vinnumálastofnun sem fara átti fram á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar í Vestmannaeyjum þann 10. september 2024, klukkan 13:00. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Þá var kærandi hvattur til að hafa samband við stofnunina ef eitthvað væri óljóst eða ef hann vildi frekari upplýsingar. Kærandi mætti ekki í viðtalið en boðaði forföll 9. september 2024 og kvaðst vera á fjárnámskeiði. Kæranda var boðið að mæta í viðtalið 10. september 2024 klukkan 11:00 en hann kvaðst ekki komast á þeim tíma.
Kærandi hefur gefið þær skýringar að hann hafi verið á námskeiði á þeim tíma sem viðtalið hafi átt að fara fram. Hann hafi spurt hvort mögulegt væri að mæta í viðtalið síðar sama dag eða í hádeginu en ekki fengið svar við því. Kærandi hafi þó fengið að vita að starfsfólk stofnunarinnar hefði verið á þjónustuskrifstofunni til klukkan tvö. Hann hefði því getað mætt tveimur klukkustundum síðar, eða klukkan eitt.
Framangreind boðun var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta fjarveru í boðað viðtal hjá Vinnumálastofnun.
Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:
„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“
Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 28. febrúar 2024 á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. laga nr. 54/2006, staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. september 2024, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir