Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 447/2021 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 447/2021

Fimmtudaginn 2. desember 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 1. september 2021, kærði A til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. ágúst 2021, um að fella niður bótarétt hennar í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 7. október 2020 og var umsókn hennar samþykkt 23. október 2020. Þann 19. júlí 2021 bárust Greiðslustofu Vinnumálastofnunar upplýsingar um að kærandi hefði hafnað starfi hjá B. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 11. ágúst 2021, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda vegna höfnunar á atvinnutilboði hjá því fyrirtæki. Skýringar bárust frá kæranda þann 16. ágúst 2021. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. ágúst 2021, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 1. september 2021. Með bréfi, dags. 3. september 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 8. október 2021 og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 11. október 2021. Athugasemdir bárust ekki.

 

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að vegna fyrri sjúkrasögu og líkamstjóns sem hafi átt sér stað árið 2015 sé hún ófær um að vinna við líkamlegt erfiði, en sé vinnufær að öðru leyti. Kærandi segi vinnuna þurfa að vera á C eða þar sem að almenningssamgöngur gangi.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að þann 19. júlí 2021 hafi Greiðslustofu Vinnumálastofnunar borist þær upplýsingar að kærandi hefði hafnað starfi sem þjónn hjá B. Í skýringum kæranda komi fram að kærandi hafi hafnað starfi vegna þess að hún hafi ekki haft bíl til umráða. Með erindi, dags. 11. ágúst 2021, hafi verið óskað eftir afstöðu kæranda til höfnunar á umræddu starfi. Þann 16. ágúst 2021 hafi Vinnumálastofnun borist skýringar frá kæranda. Þar komi fram að ástæða höfnunar á atvinnutilboði sé sú að kærandi sé ekki á bíl og sé að leita sér að vinnu á C svo að hún geti gengið til vinnu. Skýringar kæranda á höfnun hafi verið metnar ófullnægjandi og þann 25. ágúst 2021 hafi kæranda verið tilkynnt að bótaréttur hennar hafi verið felldur niður í tvo mánuði. Þann 13. september 2021 hafi Vinnumálastofnun borist læknisvottorð og bréf frá kæranda. Í læknisvottorðinu komi fram að kærandi hafi lent í slysi þann 21. apríl 2015 og vegna einkenna frá mjöðm þoli kærandi ekki miklar stöður og líkamleg átök. Þá komi einnig fram að kærandi sé fullfær um vinnu sem reyni ekki mikið á mjöðmina. Í bréfi frá kæranda komi fram að hún sé að leita að vinnu á C vegna þess að hún sé ekki á bíl.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Fyrir liggi að kærandi hafi hafnað starfsviðtali hjá B. Ágreiningur í máli þessu snúi að því hvort ástæður kæranda vegna umræddrar höfnunar séu gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð á meðan þeir séu að leita sér að nýju starfi. Með þessu sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Því sé gert ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðubúnir að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu. Ríkar kröfur beri að gera til þeirra sem hafni starfi á innlendum vinnumarkaði að þeir hafi til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit. 

Í 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög vegna höfnunar á starfi eða atvinnuviðtali. Ákvæðið sé svohljóðandi: 

,,Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Þá segi orðrétt í 4. mgr. sömu greinar:

,,Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Vinnumálastofnun sé gert að meta skýringar atvinnuleitenda vegna höfnunar á atvinnutilboði með hliðsjón af þeirri ríku skyldu sem hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til að vera reiðubúnir að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara, og hafa til þess vilja og getu.

Kærandi hafi gefið skýringar á höfnun til Vinnumálastofnunar og í kæru til úrskurðarnefndar. Það liggi fyrir að kærandi hafi hafnað starfstilboði hjá B vegna þess að hún sé ekki á bíl og vilji vinna á C þannig að hún geti gengið til vinnu. Ljóst sé að kærandi hafi hafnað starfi sem henni bauðst með sannanlegum hætti, sbr. 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 2. málsl. 4. mgr. 57. gr. komi fram að heimilt sé að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafni starfi fjarri heimili sínu. Að mati stofnunarinnar sé fjarlægðin frá heimili kæranda að B ekki slík að vinnan teljist fjarri heimili hennar í skilningi 2. málsl. 4. mgr. 57. gr. laganna. Því telji stofnunin að höfnun kæranda á starfinu hafi ekki verið réttlætanleg með hliðsjón af 4. mgr. 57. gr. laganna.

Vert sé að taka fram að ný gögn hafi borist stofnuninni þann 13. september 2021. Vinnumálastofnun hafi ekki tekið afstöðu til þeirra en úrskurðarnefnd hafi óskað eftir umsögn stofnunarinnar þann 3. september 2021. Þá vilji stofnunin einnig benda á að þegar kærandi hafi sótt um atvinnuleysisbætur þann 7. október 2020 hafi kærandi tekið fram að hún væri með skerta vinnufærni. Hins vegar hafi kærandi hvorki borið við skertri vinnufærni þegar hún hafi hafnað starfi hjá B né hafi hún gefið þær skýringar til atvinnurekanda þegar hún hafi hafnað starfinu, líkt og rakið sé að ofan. Vinnumálastofnun vísi í því samhengi sérstaklega til skýringa kæranda frá 16. ágúst 2021.

Með vísan til framangreindra sjónarmiða og þeirra gagna sem hafi legið fyrir þegar ákvörðun stofnunarinnar hafi verið tekin sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta biðtíma í tvo mánuði frá ákvörðunardegi, sbr. 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Þá segir svo í 4. mgr. 57. gr. laganna:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Óumdeilt er að kærandi hafnaði starfstilboði hjá B en ágreiningur málsins lýtur að því hvort ástæður kæranda fyrir þeirri höfnun hafi verið réttlætanlegar í skilningi 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006. Þegar hin kærða ákvörðun var tekin lágu fyrir skýringar frá kæranda þess efnis að hún væri ekki með bíl til umráða og væri því að leita að starfi á C, en kærandi er búsett þar. Í kæru til úrskurðarnefndar veitti kærandi sambærilegar skýringar sem og að hún væri ófær um að vinna líkamlega erfið störf.

B er staðsett rúmlega 17 kílómetrum frá heimili kæranda en ekki eru almenningssamgöngur þar á milli. Þar sem kærandi er ekki með bíl til umráða er það mat úrskurðarnefndarinnar að ákvörðun kæranda um að hafna því starfi hafi verið réttlætanleg með vísan til 2. málsl. 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006. Hin kærða ákvörðun er því felld úr gildi og lagt fyrir Vinnumálastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. ágúst 2021, um að fella niður bótarétt A, í tvo mánuði, er felld úr gildi og málinu vísað til nýrrar meðferðar stofnunarinnar.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta