Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 132/2024-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 132/2024

Miðvikudaginn 10. júlí 2024

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 15. mars 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. mars 2024, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 1. mars 2023 og var umsóknin samþykkt 8. mars 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. mars 2024, var kæranda tilkynnt að réttur hennar til atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hún hefði ekki tilkynnt stofnuninni um tilfallandi tekjur eða vinnu. Kæranda var jafnframt tilkynnt að hún hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 215.695 kr., að meðtöldu 15% álagi, sem yrðu innheimtar samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 15. mars 2024. Með bréfi, dags. 20. mars 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Sú beiðni var ítrekuð 30. apríl 2024. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 1. maí 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 7. maí 2024. Athugasemdir bárust ekki. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 28. maí 2024, var óskað eftir frekari upplýsingum frá Vinnumálastofnun vegna málsins. Sú beiðni var ítrekuð 19. júní 2024. Umbeðnar upplýsingar bárust 1. júlí 2024 og voru kynntar kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru greinir kærandi frá því að vegna yfirsjónar hennar og trausts á yfirmanni sínum hafi hún ekki sent Vinnumálastofnun upplýsingar um hlutastarf sitt tímanlega. Kærandi viti að það sé eingöngu henni að kenna en óski eftir að mál hennar verði endurskoðað. Kærandi hafi lagt traust sitt á rangan aðila í stað þess að fara eftir ráðleggingum Vinnumálastofnunar. Vinnuveitandi kæranda hafi ekki enn sent launaseðil fyrir fyrstu mánuðina. Ákvörðun Vinnumálastofnunar varði maí 2023 en þá hafi kærandi fengið greitt út orlof og hlunnindi. Meðfylgjandi kæru séu þau gögn sem kærandi hafi undir höndum. Hún óski eftir endurskoðun málsins og mögulega að greiðslu verði dreift á 22 mánuði.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um atvinnuleysistryggingar 1. mars 2023. Með erindi, dags. 8. mars 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að bótaréttur væri 100%. Kærandi hafi þegið greiðslur allt til 21. desember 2023 en með tölvupósti, dags. 20. desember 2023, hafi kærandi skýrt frá því að hún væri að hefja störf hjá B daginn eftir í 100% stöðugildi. Kærandi hafi verið afskráð frá 21. desember 2023.

Í kjölfar reglulegs eftirlits innan Vinnumálastofnun hafi komið í ljós að kærandi hafi verið með óútskýrðar tekjur í maí 2023 frá C og í september, október og nóvember 2023 frá B. Með erindi, dags. 15. febrúar 2024, hafi þess verið óskað að kærandi veitti stofnuninni skýringar vegna umræddra tekna, auk launaseðla. Kærandi hafi hvorki skilað umbeðnum gögnum innan þess sjö daga frests sem henni hafi verið gefinn né hafi stofnuninni borist skýringar hennar á viðkomandi greiðslum.

Með erindi, dags. 13. mars 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að þar sem hún hefði látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um nauðsynlegar upplýsingar sem höfðu áhrif á rétt hennar til atvinnuleysisbóta væri bótaréttur hennar felldur niður frá og með þeim degi í tvo mánuði. Sú ákvörðun hafi verið var tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Jafnframt hafi kæranda verið tilkynnt að samkvæmt fyrirliggjandi gögnum í máli hennar hefði hann fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur, samtals að fjárhæð 215.695 kr., að álagi meðtöldu, sem yrðu innheimtar samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laganna.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun um tekjur sínar frá C og frá B. Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé rík áhersla lögð á upplýsingaskyldu atvinnuleitanda gagnvart Vinnumálastofnun. Þannig beri atvinnuleitanda meðal annars að tilkynna stofnuninni um allar breytingar á aðstæðum sem gætu haft áhrif á rétt viðkomandi til greiðslu atvinnuleysisbóta, sbr. 2. mgr. 14. gr. laganna. Í 3. mgr. 9. gr. sé sérstaklega kveðið á um skyldu atvinnuleitanda til að tilkynna stofnuninni um tekjur vegna tilfallandi vinnu. Þar segi orðrétt:

„Sá sem telst tryggður á grundvelli laga þessara skal upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir.“

Vinnumálastofnun árétti að upplýsingaskylda atvinnuleitanda sé ítrekuð á öllum stigum umsóknarferlis um atvinnuleysisbætur. Við upphaf umsóknar séu atvinnuleitendum kynnt margvísleg atriði er varði réttindi og skyldur, þar á meðal upplýsingaskyldu. Í lok umsóknarferlis staðfesti allir atvinnuleitendur að þeir hafi kynnt sér þau atriði. Þá sé á heimasíðu Vinnumálastofnunar að finna ítarlegar upplýsingar til handa atvinnuleitendum um skyldur þeirra sem hafi þegið tekjur samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta og hvernig eigi að skrá slíkar tekjur.

Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. hafi kæranda borið að tilkynna Vinnumálastofnun um umræddar tekjur. Í kæru greini kærandi frá því að hafa yfirsést að tilkynna stofnuninni að hún hefði hafið störf á reynslutíma. Vinnumálastofnun þyki rétt að ítreka að öll þau samskipti sem starfsmenn stofnunarinnar eigi við atvinnuleitendur séu skráð í kerfum stofnunarinnar af viðkomandi starfsmanni, þar á meðal öll símtöl. Í gögnum málsins sé hvergi að sjá að kærandi hafi haft samband við Vinnumálastofnun að eigin frumkvæði vegna vinnu sinnar fyrr en 20. desember 2023 þar sem hún hafi óskað eftir afskráningu þar sem hún væri að hefja störf í 100% stöðugildi daginn eftir.

Ein meginskylda atvinnuleitanda sé að tilkynna stofnuninni um allar þær tekjur sem viðkomandi þiggi á meðan hann fái greiddar atvinnuleysisbætur. Á heimasíðu Vinnumálastofnunar megi í því skyni finna ítarlegt kennslumyndband um hvernig tilkynna beri tekjur til stofnunarinnar en þar sé meðal annars tiltekið að tilkynna skuli stofnuninni um tekjur með minnst dags fyrirvara og að skrá skuli fjárhæð tekna inn á ,,Mínum síðum“. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hafi kærandi ekki greint frá því að hún hafi starfað á reynslutíma. Eðli máls samkvæmt geti atvinnuleitandi ekki þegið óskertar atvinnuleysistryggingar samhliða launuðum störfum. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að kæranda hefði mátt vera fulljóst að henni bæri að tilkynna stofnunni um upphaf og lok vinnu sinnar, auk þeirra tekna sem hún aflaði sér. Í þessu samhengi vísi Vinnumálastofnun jafnframt til úrskurðar úrskurðarnefndarinnar í máli nr. 86/2013 þar sem fram komi að það sé á ábyrgð þess er fái greiddar atvinnuleysisbætur að tryggja að Vinnumálastofnun berist allar nauðsynlegar upplýsingar er geti haft áhrif á rétt hans til greiðslu atvinnuleysisbóta.

Í ljósi framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki uppfyllt upplýsingaskyldu sína samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Af þeirri ástæðu hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. sömu laga en ákvæðið hljóði svo:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum í tvo mánuði. Að auki hafi ofgreiddar atvinnuleysisbætur verið innheimtar, samtals að fjárhæð 215.695 kr.

Eins og áður segi hafi kærandi þegið laun í maí 2023 frá C, að fjárhæð 84.387 kr., 114.596 kr. frá B í september 2023, 103.854 kr. í október 2023 og 125.612 kr. í nóvember 2023. Tekjur kæranda komi til frádráttar atvinnuleysisbótum í samræmi við 1. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sem hljóði svo:

„Þegar samanlagðar tekjur af hlutastarfi hins tryggða, sbr. 17. eða 22. gr., og atvinnuleysisbætur hans skv. 32.–34. gr. eru hærri en sem nemur óskertum rétti hans til atvinnuleysisbóta að viðbættu frítekjumarki skv. 4. mgr. skal skerða atvinnuleysisbætur hans um helming þeirra tekna sem umfram eru. Hið sama gildir um tekjur hins tryggða fyrir tilfallandi vinnu, elli- eða örorkulífeyrisgreiðslur samkvæmt lögum um almannatryggingar, um elli- og örorkulífeyrisgreiðslur úr almennum lífeyrissjóðum, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga sem eru komnar til vegna óvinnufærni að hluta, fjármagnstekjur hins tryggða og aðrar greiðslur sem hinn tryggði kann að fá frá öðrum aðilum. Eingöngu skal taka tillit til þeirra tekna sem hinn tryggði hefur haft á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur, sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum.“

Samkvæmt 3. gr. reglugerðar nr. 1480/2022, settri með stoð í 4. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sé frítekjumark 81.547 kr. á mánuði vegna ársins 2023. Í umræddum mánuði hafi tekjur kæranda numið hærri fjárhæð en frítekjumark atvinnuleysisbóta. Umræddar tekjur hefðu því réttilega átt að koma til skerðingar á atvinnuleysisbótum í samræmi við 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun hafi hins vegar ekki verið kunnugt um umræddar tekjur við útgreiðslur og því hafi myndast skuld við stofnunina, samtals að fjárhæð 187.561 kr.

Í 2. mgr. 39. gr. er kveðið á um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“

Í framangreindu ákvæði sé mælt fyrir um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Í athugasemdum með 39. gr. í frumvarpi því sem hafi orðið að lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslunnar hafi með öðrum orðum ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð sem hafi verið ofgreidd. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé því fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. 

Heildarskuld kæranda standi nú í 215.695 kr. og þar af sé álag að fjárhæð 28.134 kr. en skuldajöfnun í síðar tilkomnum greiðslum hafi ekki átt sér stað. Eins og kveðið sé á um í lokamálslið 2. mgr. 39. gr. skuli fella niður álagið færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er hafi leitt til skuldmyndunar. Í þessu samhengi vísi Vinnumálastofnun til þess sem að framan hafi verið rakið. Það sé mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki uppfyllt upplýsingaskyldu sína gagnvart stofnuninni, sbr. 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ein meginskylda atvinnuleitanda sé að tilkynna stofnuninni um allar tekjur og skýr fyrirmæli sé að finna þess efnis að slíkt skuli gera í gegnum ,,Mínar síður“ atvinnuleitanda. Jafnframt vísi Vinnumálastofnun til þess að það sé á ábyrgð þess er fái greiddar atvinnuleysisbætur að tryggja að Vinnumálastofnun berist nauðsynlegar upplýsingar er geti haft áhrif á rétt hans til greiðslu atvinnuleysisbóta. Í ljósi framangreinds sé það mat Vinnumálastofnun að ekki sé tilefni til að fella niður álag á skuld kæranda.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og að henni beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysistryggingar að fjárhæð 215.695 kr., að meðtöldu álagi samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laganna.

Í svari Vinnumálastofnunar frá 1. júlí 2024 kemur fram að ofgreiðslur kæranda séu vegna tekna í september, október, nóvember og desember 2023. Í eftirfarandi töflu megi sjá útreikninga á skerðingu samkvæmt greiðsluseðlum.

Vinnuveitandi

Kt. vinnuveitanda

Mán.ár

Heildarlaun

Lífeyrissjóður

Persónuafsláttur

36. gr. Skerðing

Raun*

 

B

6112220330

12/2023

602.115 kr

24.085 kr

169.379 kr

260.284 kr

173.523 kr

 

B

6112220330

11/2023

125.612 kr

5.024 kr

37.925 kr

22.033 kr

22.033 kr

 

B

6112220330

10/2023

103.854 kr

4.154 kr

31.356 kr

11.154 kr

11.154 kr

 

B

6112220330

9/2023

-114.596 kr

-4.584 kr

- kr

 

 

B

6112220330

9/2023

114.596 kr

-4.584 kr

- kr

 

 

B

6112220330

9/2023

114.596 kr

4.584 kr

- kr

16.525 kr

16.525 kr

C

6810153610

5/2023

84.387 kr

3.375 kr

- kr

1.420 kr

 

1.420 kr

 

 

Kærandi hafi þegið greiðslur frá 1. til 20. desember 2023. Heildartekjur hennar frá B hafi numið 602.115 kr. fyrir allan mánuðinn. Skerðingartímabil í desember sé því reiknað frá 1. til 20. desember, eða 67% af mánuðinum, samkvæmt reikningi og komi til skerðingar sá hluti sem hún hafi aflað í sama hlutfalli. Til skerðingar séu þá 401.410 kr. (602.115 x 0,67) vegna viðkomandi tímabils. Af þeirri fjárhæð sé frítekjumark á árinu 2023 dregið frá, sem hafi numið 81.547 kr. Eftir standi 319.863 kr. (401.410-81.547). Helmingur þeirrar fjárhæðar komi því til skerðingar (hálf króna á móti hverri krónu), samkvæmt 36. gr. sem leiði til þess að (brúttó) skerðing nemi 173.523 kr. og að frádregnum liðunum staðgreiðsla, lífeyrissjóður og eftir atvikum, stéttarfélagsgjöldum, nemi ofgreiðslan (nettó) 155.401 kr. Önnur tímabil séu með einfaldaðri reglunni að heildartekjur kæranda séu lagðar til grundvallar, frítekjumark sé dregið frá og eftirstöðvar þess deilist í, sem leiði til framangreindrar skerðingar í töflu. Raunreikningur sé samkvæmt orðanna hljóðan í 1. mgr. 36. gr., þ.e. heildartekjur aðila og atvinnuleysistryggingar á sama tímabili séu lagðar saman og ef þær reynist hærri en summa bótaréttarins og frítekjumarks sé mismunurinn skertur um helming.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnun um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Ákvæðið ber meðal annars að túlka með hliðsjón af ákvæði 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 en samkvæmt því skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., án ástæðulausrar tafar.

Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var með tekjur í maí 2023 frá C og í september, október og nóvember 2023 frá B samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta frá Vinnumálastofnun. Þær upplýsingar bárust Vinnumálastofnun í kjölfar reglulegs eftirlits innan stofnunarinnar í febrúar 2024.

Í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hún tilkynnti stofnuninni ekki fyrir fram um þær tekjur sem hún fékk framangreinda mánuði. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti.

Mál þetta lýtur einnig að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að innheimta ofgreiddar bætur vegna framangreindra tekna. Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann hafi átt rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið, að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á. Þar sem kærandi tilkynnti ekki fyrir fram um framangreindar tekjur fékk hún greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hún átti rétt á. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Aftur á móti skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Líkt og áður greinir tilkynnti kærandi ekki Vinnumálastofnun fyrir fram um þær tekjur sem hún fékk framangreinda mánuði og er því að mati úrskurðarnefndarinnar ekki tilefni til að fella niður álagið sem stofnunin lagði á endurgreiðslukröfuna.

Hvað varðar beiðni kæranda um greiðsludreifingu skuldarinnar skal bent á að slík beiðni skal berast Sýslumanninum á Norðurlandi vestra sem annast innheimtu á ofgreiddum bótum frá Vinnumálastofnun.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. mars 2024, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum