Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 511/2023-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 511/2023

Fimmtudaginn 18. janúar 2024

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 18. október 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 16. október 2023, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 2. júní 2023 og var umsóknin samþykkt 19. júní 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 16. október 2023, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði hafnað starfi hjá B. Kærandi sendi Vinnumálastofnun frekari skýringar samdægurs og var mál hans því tekið fyrir að nýju. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. október 2023, var fyrri ákvörðun staðfest með þeim rökum að sú ákvörðun hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 18. október 2023. Með bréfi, dags. 20. október 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 21. nóvember 2023 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 24. nóvember 2023 og tölvupósti 11. desember 2023. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi tekur fram að hann hafi ekki neinn til að passa börn sín en móðir barnanna sé ekki á landinu. Kærandi eigi ekki pening og þurfi greiðslu frá Vinnumálastofnun til að greiða fyrir húsnæði og mat fyrir börnin sín þrjú. Kærandi hafi ekki fundið lausa dagmömmu og sé að bíða eftir að móðir barnanna komi aftur til Íslands til að hann geti farið að vinna.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 2. júní 2023. Með erindi, dags. 19. júní 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Þann 26. september 2023 hafi kæranda verið miðlað í tvö störf, annað þeirra hjá B. Í starfinu hafi falist vinna á dekkjaverkstæði og vinnutími hafi verið frá klukkan 8:00 til 17:00. Þann 9. október 2023 hafi Vinnumálastofnun borist þær upplýsingar að kærandi hefði hafnað starfi hjá B. Með erindi, dags. 11. október 2023, hafi verið óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda vegna höfnunar á starfi hjá B. Athygli kæranda hafi jafnframt verið vakin á því að ef atvinnuleitandi hefði hafnað atvinnutilboði eða atvinnuviðtali án gildra ástæðna gæti hann þurft að sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga. Þá hafi kæranda verið greint frá því að ef atvinnuleitandi hefði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur kynni viðkomandi að þurfa að ávinna sér rétt til nýs bótatímabils. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að veita stofnuninni skýringar. Skýringar hafi borist Vinnumálastofnun þann 12. október 2023. Kæranda hafi í kjölfarið verið sent erindi þann 16. október 2023 og honum tilkynnt að greiðslur atvinnuleysistrygginga til hans hefðu verið stöðvaðar frá og með þeim degi á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þann 16. október 2023 hafi kærandi sent Vinnumálastofnun frekari skýringar og mál hans hafi verið tekið til meðferðar að nýju í samræmi við 24. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi hafi sagst ekki hafa barnagæslu til þess að geta tekið starfi hjá B, hann þyrfti að gæta barna sinna þar sem móðir þeirra væri í Víetnam. Nánari skýringar á fjölskylduaðstæðum kæranda hafi ekki fylgt en samkvæmt Þjóðskrá sé hann ekki skráður í neitt sambúðarform og ekki með nein börn á framfæri. Með erindi, dags. 19. október 2023, hafi kæranda verið greint frá því að mál hans hefði verið tekið fyrir að nýju með tilliti til nýrra gagna. Það væri þó mat stofnunarinnar að staðfesta bæri fyrri ákvörðun, dags. 16. október 2023, enda hefði sú ákvörðun að geyma efnislega rétta niðurstöðu í máli hans þrátt fyrir að ný gögn hefðu borist stofnuninni.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð á meðan þeir leiti sér að nýju starfi. Með þessu sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Gert sé ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðubúnir að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu. Ríkar kröfur beri að gera til þeirra sem hafni starfi á innlendum vinnumarkaði að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. liður 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit.

Í 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög vegna höfnunar á starfi. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Fyrir liggi að kærandi hafi hafnað starfi hjá B og hann hafi veitt skýringar á ástæðum höfnunar á umræddu starfi. Því komi til álita hvort skýringar hans séu gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt 4. mgr. 57. gr. skuli Vinnumálastofnun meta við ákvörðun um viðurlög samkvæmt 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg en í 4. mgr. segi orðrétt:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Vinnumálastofnun sé gert að meta skýringar atvinnuleitanda vegna höfnunar á atvinnutilboði með hliðsjón af þeirri ríku skyldu sem hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til að vera reiðubúnir að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun sé heimilt að líta til aldurs hins tryggða, félagslegra aðstæðna tengdum skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima við ákvörðun um hvort hinn tryggði skuli sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 57. gr. laganna. Enn fremur sé Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar í boði sé starf fjarri heimili hans sem geri kröfur um að hlutaðeigandi flytji búferlum. Í athugasemdum með 57. gr. í frumvarpi því er hafi orðið að lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar segi þó að það beri að ítreka að það að hafa ekki barnapössun fyrir ung börn á dagvinnutíma teljist ekki réttlæta höfnun á starfi samkvæmt ákvæðinu.

Skýringar kæranda lúti að því að hann hafi umönnunarskyldu með þremur börnum. Eins og hafi verið rakið teljist skortur á barnagæslu ekki til gildra ástæðna fyrir höfnun á starfstilboði í skilningi 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í ljósi þessa og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum að taka því starfi sem þeim bjóðist telji Vinnumálastofnun að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kæranda beri að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar vegna höfnunar á starfi hjá B.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Þá segir svo í 4. mgr. 57. gr. laganna:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Samkvæmt gögnum málsins var kæranda þann 26. september 2023 miðlað í starf hjá B. Fyrirtækið tilkynnti Vinnumálastofnun þann 9. október 2023 að kærandi hefði hafnað starfinu þar sem hann væri heima með börnin sín. Kærandi hefur vísað til þess að móðir barnanna sé ekki á landinu og að hann hafi ekki neinn til að passa.

Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála er ekki réttlætanlegt að hafna starfi á dagvinnutíma vegna umönnunar barna. Úrskurðarnefndin bendir á að í 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 er fjallað um almenn skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögunum. Eitt af þeim skilyrðum er að vera í virkri atvinnuleit samkvæmt 14. gr. en í því felst meðal annars að hafa vilja og getu til að taka starfi án sérstaks fyrirvara, sbr. d. liður 1. mgr. ákvæðisins og að vera reiðubúinn að taka starfi óháð því hvort um fullt starf eða hlutastarf er að ræða eða vaktavinnu, sbr. f. liður 1. mgr. ákvæðisins.

Í athugasemdum við ákvæðið 14. gr. í frumvarpi til laga nr. 54/2006 segir meðal annars svo:

„Enn fremur þykir ástæða til að taka fram að umsækjandi teljist vera í virkri atvinnuleit þegar hann, frá því að umsókn um atvinnuleysisbætur barst, hefur bæði vilja og getu til að taka starfi án sérstaks fyrirvara. Að öðrum kosti verður ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit. Felur þetta til dæmis í sér að gert er ráð fyrir að foreldrar í virkri atvinnuleit með ung börn hafi barnapössun en reynslan í núverandi kerfi er að ungt fólk ber oft fyrir sig að það geti hvorki mætt í atvinnuviðtöl né tekið þátt í vinnumarkaðsúrræðum þar sem það hefur ekki gæslu fyrir börn sín.“

Í 4. mgr. 14. gr. kemur fram að Vinnumálastofnun sé heimilt að veita undanþágu frá skilyrðum c-, e- og f-liða 1. mgr. þannig að hinn tryggði, sem vegna aldurs, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima óskar eftir hlutastarfi eða starfi innan tiltekins svæðis, geti talist vera í virkri atvinnuleit. Enn fremur sé heimilt að taka tillit til aðstæðna hins tryggða sem geti ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt mati sérfræðilæknis. Um þetta er tekið fram í athugasemdum með ákvæðinu að með umönnunarskyldu vegna ungra barna sé ekki átt við þau tilvik er hinir tryggðu beri fyrir sig að hafa ekki barnapössun fyrir ung börn á dagvinnutíma.

Með vísan til framangreinds er það mat úrskurðarnefndarinnar að þær skýringar sem kærandi hefur gefið séu ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á starfinu, sbr. 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006. Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 16. október 2023, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta