Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 504/2022-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 504/2022

Fimmtudaginn 12. janúar 2023

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 17. október 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 10. október 2022, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 6. september 2021 og var umsóknin samþykkt 30. september 2021. Þann 13. septemer 2022 var ferilskrá kæranda send til B vegna starfs hjá fyrirtækinu. Þann 27. september 2022 bárust Vinnumálastofnun upplýsingar um að kærandi hefði hafnað starfi hjá B. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 3. október 2022, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda vegna höfnunar á starfi hjá B. Skýringar bárust frá kæranda 4. október 2022. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 10. október 2022, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Kærandi sendi Vinnumálastofnun ný gögn og var mál hans því endurupptekið. Kæranda var tilkynnt með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 14. október 2022, að fyrri ákvörðun í máli hans væri staðfest.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 17. október 2022. Með bréfi, dags. 18. október 2022, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 4. nóvember 2022 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 19. desember 2022, var óskað eftir tilteknum upplýsingum frá  B vegna málsins. Svar barst frá fyrirtækinu 27. desember 2022 og var það kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 2. janúar 2023. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hann hafi hringt í mann út af starfinu og fengið þær upplýsingar að þörf væri á fólki með ökuréttindi. Kærandi hafi sagst ekki vera með ökuréttindi og þá fengið þær upplýsingar að ekki væri þörf á honum að svo stöddu. Kærandi viti ekki af hverju Vinnumálastofnun hafi stöðvað atvinnuleysisbætur til hans í tvo mánuði.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 21. október 2021. Með erindi, dags. 30. september 2021, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Þann [27. september] 2022 hafi Greiðslustofu Vinnumálastofnunar borist þær upplýsingar að kærandi hefði hafnað starfi hjá B sem aðstoðarmaður smiða þann 26. september 2022. Samkvæmt upplýsingum frá atvinnurekanda sem hafi borist stofnuninni 27. september 2022 hafi kærandi sagst vera slæmur í hendinni og ekki geta unnið byggingarvinnu.

Með erindi, dags. 3. október 2022, hafi kæranda verið veittur sjö virkra daga frestur til að koma að frekari athugasemdum vegna höfnunar á umræddu starfi. Í framhaldinu hafi borist skýringar frá kæranda þess efnis að atvinnurekandi hafi óskað eftir starfsmanni með ökuréttindi og þar sem kærandi væri ekki með slík réttindi gæti hann ekki boðið honum starfið. Stofnunin hafi metið skýringar kæranda ófullnægjandi og kæranda hafi verið tilkynnt þann 10. október 2022 að bótaréttur hans hefði verið felldur niður í tvo mánuði sem ella hefðu verið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir. Ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Þann 14. október 2022 hafi mál kæranda verið tekið til endurumfjöllunar eftir að nýtt skýringarbréf hafi borist frá kæranda. Það hafi verið mat stofnunarinnar að skýringar kæranda teldust ekki gildar í skilningi laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Fyrri ákvörðun stofnunarinnar frá 10. október 2022 hafi verið staðfest, enda hafi stofnunin talið að sú ákvörðun hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu, þrátt fyrir ný gögn.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Fyrir liggi að kærandi hafi hafnað starfi hjá B. Ágreiningur í málinu snúi að því hvort ástæður kæranda vegna umræddrar höfnunar séu gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð á meðan þeir séu að leita sér að nýju starfi. Með þessu sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Gert sé ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðubúnir að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu. Ríkar kröfur beri að gera til þeirra sem hafni starfi á innlendum vinnumarkaði um að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að vera í virki atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi, án sérstaks fyrirvara, og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit.

Í 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög vegna höfnunar á starfi eða atvinnuviðtali. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Þá segi orðrétt í 4. mgr. sömu greinar:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Vinnumálastofnun sé gert að meta skýringar atvinnuleitanda vegna höfnunar á atvinnutilboði með hliðsjón af þeirri ríku skyldu sem hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur að vera reiðubúnir að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara, og hafa til þess vilja og getu. Kærandi hafi gefið skýringar á höfnun til Vinnumálastofnunar. Í máli þessu liggi fyrir að kærandi hafi hafnað starfstilboði hjá B. Samkvæmt atvinnurekanda hafi kærandi hafnað starfinu þar sem hann hafi sagst vera slæmur í hendinni og ekki geta unnið byggingarvinnu. Hins vegar vísi kærandi til þess að hann hafi ekki fengið starfið þar sem hann væri ekki með ökuréttindi. Í máli þessu liggi fyrir að um hafi verið að ræða starf sem aðstoðarmaður smiða og ljóst að starfið hafi ekki krafist ökuréttinda, auk þess sem skýringar kæranda samræmist ekki þeim skýringum sem atvinnurekandi hafi gefið stofnuninni. Vinnumálastofnun telji skýringar kæranda ekki réttlæta höfnun á starfi samkvæmt 57. gr. laganna.

Líkt og áður hafi verið rakið hvíli rík skylda á atvinnuleitendum að taka því starfi sem þeim bjóðist, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. Að mati Vinnumálastofnunar séu skýringar kæranda ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á atvinnutilboði. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að þær skýringar sem kærandi hafi fært fram í máli þessu geti ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun telji því að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Með vísan til framangreindra sjónarmiða sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta biðtíma í tvo mánuði frá ákvörðunardegi, sbr. 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Þá segir svo í 4. mgr. 57. gr. laganna:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Samkvæmt gögnum málsins var ferilskrá kæranda send B þann 13. september 2022. Fyrirtækið tilkynnti Vinnumálastofnun þann 27. september 2022 að kærandi hefði hafnað starfi vegna þess að hann væri slæmur í hendi og gæti því ekki unnið byggingarvinnu. Kærandi hefur vísað til þess að hann sé ekki með ökuréttindi en atvinnurekandi hafi sagt að hann kæmi ekki til greina í starfið vegna þess. Af hálfu Vinnumálastofnunar hefur komið fram að um hafi verið að ræða starf sem aðstoðarmaður smiða og að starfið hafi ekki krafist ökuréttinda, auk þess sem skýringar kæranda samræmist ekki þeim skýringum sem atvinnurekandi hafi gefið stofnuninni.

Úrskurðarnefndin óskaði eftir upplýsingum frá B um hvort kæranda hafi verið boðið starf hjá fyrirtækinu og þá hvort hann hafi hafnað því. Í svari fyrirtækisins kom fram að kæranda hafi alltaf staðið til boða starf hjá fyrirtækinu. Hins vegar hefði getað verið erfitt fyrir kæranda að mæta til vinnu á réttum tíma þar sem hann væri ekki með ökuréttindi og vinnutími væri frá klukkan 7 til 16 alla virka daga. 

Í 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 er fjallað um almenn skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögunum. Eitt af þeim skilyrðum er að vera í virkri atvinnuleit samkvæmt 14. gr. en í því felst meðal annars að vera reiðubúinn að taka starfi óháð því hvort um fullt starf eða hlutastarf er að ræða eða vaktavinnu, sbr. f-lið 1. mgr. ákvæðisins. Úrskurðarnefndin telur ljóst að það starf sem kæranda var boðið hafi verið meira en fullt starf, sbr. það sem að framan greinir um vinnutímann. Þá er ljóst að kærandi hefði átt erfitt með að vera mættur svo snemma til vinnu með almenningssamgöngum. Að því virtu er það mat úrskurðarnefndarinnar að kærandi beri ekki að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 vegna atvinnutilboðs frá B. Hin kærða ákvörðun er því felld úr gildi.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 10. október 2022, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er felld úr gildi.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta