Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 578/2021 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 578/2021

Fimmtudaginn 17. mars 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 2. nóvember 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. júní 2021, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. júní 2021, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Kærandi fór fram á að mál hennar yrði tekið fyrir að nýju með vísan til nýrra gagna og með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. ágúst 2021, var ákvörðun frá 21. júní 2021 staðfest þar sem hún hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 2. nóvember 2021. Með bréfi, dags. 5. nóvember 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar. Með bréfi, dags. 21. janúar 2022, barst greinargerð Vinnumálastofnunar þar sem fram kom að ranglega hefði verið staðið að ákvörðun í máli kæranda og því hafi ákvörðun um niðurfellingu bótaréttar verið afturkölluð. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 27. janúar 2022, var óskað eftir afstöðu kæranda vegna greinargerðar Vinnumálastofnunar. Sú beiðni var ítrekuð með erindi úrskurðarnefndar 2. mars 2022. Svar barst ekki. 

II.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. júní 2021, um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði. Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndarinnar var vísað til þess að ranglega hefði verið staðið að ákvörðun í máli kæranda og því hafi hin kærða ákvörðun verið afturkölluð. Úrskurðarnefndin óskaði eftir afstöðu kæranda til greinargerðar Vinnumálastofnunar en svar barst ekki.

Úrskurðarnefnd velferðarmála kveður upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, sbr. 11. gr. laganna. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og Vinnumálastofnunar. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta