Mál nr. 316/2024-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 316/2024
Fimmtudaginn 3. október 2024
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 11. júlí 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 3. júlí 2024, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 7. mars 2024 og var umsóknin samþykkt 4. apríl 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 3. júlí 2024, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hún hefði ekki mætt á boðaðan fund. Mál kæranda var tekið fyrir að nýju hjá Vinnumálastofnun í kjölfar frekari skýringa frá henni. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. júlí 2024, var fyrri ákvörðun staðfest með þeim rökum að sú ákvörðun hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu þrátt fyrir ný gögn í málinu.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 11. júlí 2024. Með bréfi, dags. 12. júlí 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 26. ágúst 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 27. ágúst 2024. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru greinir kærandi frá því að hún telji ákvörðun Vinnumálastofnunar hafa verið tekna án þess að tekið hafi verið tillit til aðstæðna og tæknilegra vandamála með fullnægjandi hætti. Kærandi vilji því koma á framfæri ítarlegum skýringum og óski eftir að mál hennar verði endurskoðað.
Í fyrsta lagi hafi kærandi ekki fengið neinar tilkynningar um fund Vinnumálastofnunar vegna tæknilegra vandamála í síma kæranda. Síðan þá hafi kærandi uppfært og endurræst símann til að leysa vandamálin. Um leið og kærandi hafi áttað sig á málinu hafi hún mætt á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar til að útskýra stöðuna.
Í öðru lagi hafi kærandi veitt Vinnumálastofnun skýringar og sönnunargögn um viðveru sína í Reykjavík tafarlaust, þar á meðal skjáskot. Þrátt fyrir það hafi ekki verið fallist á skýringar hennar.
Í þriðja lagi sé kærandi einstæð móðir án meðlags, fjölskyldu og ættingja á Íslandi. Það hafi verið verulega krefjandi að sjá um alla hluti ein sem hafi haft áhrif á andlega heilsu hennar. Kærandi hafi alltaf unnið síðan hún flutti til landsins fyrir sex árum og hafi aðeins þurft á atvinnuleysisbótum að halda í einn mánuð fyrir umrætt atvik.
Í fjórða lagi hafi skyndileg afturköllun á atvinnuleysisbótum sett kæranda í afar erfiða stöðu. Hún eigi í erfiðleikum með að sjá fyrir sér og barni sínu sem hafi leitt til verulegrar vanlíðan.
Í ljósi einlægrar viðleitni kæranda til að uppfylla kröfurnar, krefjandi persónulegra aðstæðna og tafarlausra aðgerða til að leiðrétta vandamál varðandi tilkynningu óski kærandi eftir því að mál hennar verði endurskoðað. Kærandi telji það ómannúðlegt og ósanngjarnt að neita henni um bætur án þess að taka tillit til framangreindra þátta.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga þann 7. mars 2024. Með bréfi, dags. 4. apríl 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 68%.
Með erindi, dags. 3. júní 2024, klukkan 8:26, hafi kærandi verið boðuð á upplýsingafund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 4. júní 2024, klukkan 9:00. Athygli hafi verið vakin á því að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun á greiðslum atvinnuleysistrygginga. Boðunin hafi verið birt á „Mínum síðum“ kæranda. Ásamt því hafi athygli verið vakin á nýjum samskiptum, með tölvupósti á skráð netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer hennar, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 3. júní 2024, klukkan 8:26. Kærandi hafi ekki mætt á boðaðan fund.
Með erindi, dags. 5. júní 2024, hafi verið óskað eftir skýringum á fjarveru kæranda. Skýringar hafi borist frá kæranda sama dag þar sem fram hafi komið að hún hefði ekki fengið tilkynningu frá stofnuninni og því ekki vitað af fundarboði. Með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 18. júní 2024, hafi kæranda verið tilkynnt um tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslum samkvæmt 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Kærandi hafi verið boðuð á annan upplýsingafund með erindi, dags. 20. júní 2024, klukkan 8:51, sem haldinn hafi verið á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík 21. júní 2024, klukkan 9:15. Athygli hafi verið vakin á því að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun á greiðslum atvinnuleysistrygginga. Boðun þessi hafi verið send á „Mínar síður“ kæranda og tilkynnt með smáskilaboðum í símanúmer kæranda og tölvupósti á skráð netfang hennar í kerfi stofnunarinnar. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 20. júní 2024, klukkan 8:51.
Kærandi hafi ekki mætt á þann fund og ekki boðað forföll. Vinnumálastofnun hafi því óskað eftir skýringum hennar öðru sinni með erindi, dags. 27. júní 2024. Svar hafi borist frá kæranda sama dag þar sem fram hafi komið að kærandi hefði ekki fengið tilkynningu um fundarboð og hefði þann dag verið í atvinnuviðtali hjá tilgreindum atvinnurekanda. Með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 3. júlí 2024, hafi kæranda verið tilkynnt um þriggja mánaða biðtíma eftir greiðslum samvkæmt 1. mgr. 58. gr. og 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Stofnuninni hafi borist frekari gögn frá kæranda þann 11. júlí 2024. Mál kæranda hafi verið tekið fyrir að nýju en þann 19. júlí 2024 hafi henni verið tilkynnt að stofnunin teldi ekki ástæðu til að breyta ákvörðun í máli hennar.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Á meðal skilyrða fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta sé að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Samkvæmt [h-lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum. Ráðgjafar stofnunarinnar skuli boða atvinnuleitendur reglulega í viðtöl eftir þörfum hvers og eins atvinnuleitanda.
Á grundvelli 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitendum að hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Í tilfelli kæranda hafi hann verið boðaður á fund hjá stofnuninni, en samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laganna sé Vinnumálastofnun heimilt að boða atvinnuleitendur til stofnunarinnar með sannanlegum hætti, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum þeirra sem kunni að hafa áhrif á rétt þeirra til greiðslu atvinnuleysisbóta. Atvinnuleitendur skuli vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara. Ákvæði 3. mgr. 13. gr. hafi komið inn í lög um atvinnuleysistryggingar með 4. gr. laga nr. 134/2009, en í athugasemdum með 4. gr. segi að gert sé ráð fyrir að stofnunin geti boðað atvinnuleitanda með allt að sólarhringsfyrirvara á þá skrifstofu sína sem næst sé lögheimili viðkomandi.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á upplýsingafundi Vinnumálastofnunar 4. júní og 21. júní 2024. Áður hafi kærandi fengið sendar tilkynningar á ,,Mínum síðum“, í tölvupósti og farsíma um boðun á umræddan fund. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Ákvæðið sé svohljóðandi:
„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“
Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga, komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.
Skýringar kæranda á ástæðum þess að hún hafi ekki mætt á fundi Vinnumálastofnunar lúti að því að hún hafi ekki fengið tilkynningar frá stofnuninni. Í kæru greini kærandi frá því að hún hafi verið í tæknilegum vandræðum með síma sinn sem hún hafi nú lagfært. Þá hafi komið fram að kærandi hafi verið í atvinnuviðtali þann dag sem seinni upplýsingafundur stofnunarinnar hafi farið fram þann 21. júní 2024.
Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar enda hafi kærandi verið upplýst með fullnægjandi hætti um fundarboð, bæði með tilkynningu í tölvupósti og smáskilaboðum ásamt því að tilkynning hafi verið aðgengileg á „Mínum síðum“ stofnunarinnar. Boðun til umrædds fundar hafi verið gerð með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun telji ekki efni til að fallast á skýringar kæranda fyrir fjarveru á boðaðan fund.
Í ljósi alls þess sem hér hafi verið rakið og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Með því að hafa ekki mætt til umrædds fundar hafi kærandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði og beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Þar sem kærandi hafi ekki mætt til viðtals hjá stofnuninni tvisvar sinnum eigi ákvæði 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar við um seinna tilvik málsins. Samkvæmt ákvæðinu skuli sá sem þurfi að sæta viðurlögum í annað sinn sæta biðtíma í þrjá mánuði eftir greiðslum atvinnuleysisbóta.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli annars vegar sæta viðurlögum í formi tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta og hins vegar þriggja mánaða biðtíma á grundvelli 1. mgr. 58. gr. og 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.
Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:
„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“
Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.
Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.
Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var þann 20. júní 2024 boðuð á upplýsingafund hjá Vinnumálastofnun sem fara átti fram á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík daginn eftir, þann 21. júní 2024. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að forföll bæri að tilkynna án tafar á netfang Vinnumálastofnunar eða með því að senda skýringarbréf í gegnum „Mínar síður“. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Þá var kærandi hvött til að hafa samband ef hún vildi frekari upplýsingar. Kærandi hvorki boðaði forföll né mætti á fundinn.
Kærandi hefur gefið þær skýringar að hún hafi ekki séð boðun í umrætt viðtal sökum tæknilegra vandamála í síma hennar. Hún hafi lagfært símann og veitt Vinnumálastofnun skýringar á fjarveru sinni.
Framangreind boðun var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hún hafi ekki mætt á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun.
Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:
„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“
Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 18. júní 2024 á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. laga nr. 54/2006, staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 3. júlí 2024, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir