Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 510/2023-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 510/2023

Fimmtudaginn 18. janúar 2024

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 19. október 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. september 2023, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 15. maí 2023 og var umsóknin samþykkt 12. júní 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. september 2023, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði ekki mætt á boðað námskeið. Mál kæranda var tekið fyrir að nýju hjá Vinnumálastofnun í kjölfar frekari skýringa og gagna frá honum. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. október 2023, var fyrri ákvörðun staðfest með þeim rökum að sú ákvörðun hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu, þrátt fyrir ný gögn í málinu.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 19. október 2023. Með bréfi, dags. 20. október 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 16. nóvember 2023 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 21. nóvember 2023. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála óskar kærandi eftir því að ákvörðun Vinnumálastofnunar um viðurlög verði breytt. Kærandi hafi verið boðaður á námskeið sem hann hafi ekki komist á vegna vinnu og hann hafi látið vita af því. Útskýringar kæranda hafi ekki verið metnar gildar.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 24. mars 2022. Með erindi, dags. 2. maí 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100% en með tilliti til starfsloka hans hjá B væri réttur hans felldur niður í tvo mánuði. Kærandi hafi sjálfur sagt upp störfum hjá vinnuveitanda og veitt þær skýringar í kjölfarið að hann hefði verið tilneyddur til þess þar sem vinnutíminn „hentaði ekki með [knattspyrnuiðkun].“ Kærandi hafi verið afskráður 1. september 2022. Kærandi hafi aftur sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 15. maí 2023. Með erindi, dags. 12. júní 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Þann 5. september 2023 hafi kærandi verið boðaður á námskeiðið ,,Fullkomin ferilskrá”. Námskeiðið hafi verið haldið í þrjú skipti dagana 7., 11. og 13. september 2023. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að skyldumæting væri á námskeiðið og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Sömuleiðis hafi kæranda verið tjáð að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans yrðu stöðvaðar. Boðunin hafi verið send á ,,Mínar síður” kæranda, með tilkynningu í farsíma og á uppgefið netfang hans. Þann 6. september 2023 hafi borist svohljóðandi tölvupóstur frá kæranda: „kemst ekki á ferilskráarnámskeið vegna knattspyrnuæfinga“. Að loknu umræddu námskeiði hafi Vinnumálastofnun borist þær upplýsingar frá námskeiðshaldara að kærandi hefði ekkert mætt á námskeiðið. Í kjölfarið hafi kæranda með erindi, dags. 18. september 2023, verið boðið að skila stofnuninni skriflegum skýringum á ástæðum þess að hann hefði ekki mætt á umrætt námskeið. Áréttað hafi verið að ef kærandi hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerð án gildra ástæðna gæti hann þurft að sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þann 20. september 2023  hafi Vinnumálastofnun borist skýringar kæranda á ástæðum þess að hann hefði ekki mætt á boðað námskeið. Kærandi hafi greint frá því að vegna knattspyrnuæfinga hefði hann ekki mætt á námskeið „6. september 2023“. Með erindi, dags 28. september 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að réttur hans til atvinnuleysisbóta væri felldur niður í þrjá mánuði sökum þess að hann hefði ekki mætt á umrætt námskeið. Framangreind ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Skriflegar skýringar hafi borist Vinnumálastofnun þann 28. september 2023, skjáskot úr dagatali síma sem hafi sýnt æfingu fimmtudaginn 7. september 2023 frá klukkan 12:00 til 13:10 hjá C, meistaraflokki karla, auk skýringa þess efnis að hann væri skyldugur til að mæta á æfingar þar sem hann væri „samningsbundinn.“ Skýringar kæranda hafi verið metnar sem ósk um endurupptöku ákvörðunar frá 28. september 2023. Með ákvörðun, dags. 18. október 2023, hafi fyrri ákvörðun verið staðfest og kæranda tilkynnt bréflega um niðurstöðu endurupptöku málsins. Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 19. október 2023. Rökstuðningur kæranda í kæru sé ekki fullkomlega samhljóða þeim skýringum sem hann hafi veitt Vinnumálastofnun nema að hluta en í kæru komi fram að hann hafi ekki getað sinnt námskeiði vegna vinnu.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna og sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Í 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um almenn skilyrði fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta til launamanna. Í a. lið 13. gr. sé kveðið á um það skilyrði að atvinnuleitandi skuli vera í virkri atvinnuleit. Samkvæmt h. lið 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum. Þá beri atvinnuleitendum samkvæmt 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðað námskeið sem hafi verið haldið í þrjú skipti dagana 7., 11. og 13. september 2023 en hafi boðað forföll einn dag vegna fótboltaæfingar. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, með smáskilaboðum í farsíma og á ,,Mínum síðum“ á vef Vinnumálastofnunar þar sem tilgreindar hafi verið tímasetningar og og staðsetning. Kæranda hafi sömuleiðis verið greint frá því að öll forföll þyrfti að tilkynna til stofnunarinnar án ástæðulausrar tafar. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi meðal annars að ekki séu tilgreindar sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir sem geti valdið því að hinn tryggði þurfi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu heldur eigi það við um allar aðgerðir sem hinum tryggða sé boðið að taka þátt í til að auka líkur sínar á að fá vinnu við hæfi. Gert sé ráð fyrir því að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Kærandi hafi veitt skýringar á fjarveru sinni á umrætt námskeið en þær lúti að því að hann sé samningsbundinn og/eða í vinnu við knattspyrnuiðkun. Að mati Vinnumálastofnunar geti skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Bæði hafi kærandi aldrei tilkynnt um vinnu sína til Vinnumálastofnunar né sé að sjá að hann sé að þiggja laun fyrir störf sín ef skoðuð séu gögn frá skattayfirvöldum.

Ljóst sé að rík skylda hvíli á þeim er þiggi atvinnuleysisbætur til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Það komi í hlut stofnunarinnar að skipuleggja vinnumarkaðsúrræði og atvinnuleitendur hafi ekki forræði á því hvort þeir sinni þeim úrræðum. Atvinnuleitendum beri skylda til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum og leita leiða til að auka líkur sínar á að finna starf, sbr. 13. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir. Þá sé á meðal almennra skilyrða fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta til launamanna að þeir séu í virkri atvinnuleit, sbr. a. liður 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í virkri atvinnuleit felist að viðkomandi atvinnuleitandi hafi vilja og getu til að taka þátt í vinnumarkaðsaðgerðum sem honum standi til boða, sbr. h. liður 1. mgr. 14. gr. sömu laga.

Þá vísi Vinnumálastofnun jafnframt til þess að atvinnuleitendum beri samkvæmt 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr. sömu greinar, þar á meðal um tilfallandi veikindi og fjarveru á boðaðan fund, án ástæðulausrar tafar. Kærandi hafi afboðað sig einn dag á boðað námskeið en hafi ekki tilkynnt um önnur forföll. Af ákvæði 13. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir sé ljóst að atvinnuleitandi beri tilkynningarskyldu gagnvart Vinnumálastofnun.

Með vísan til alls framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sér það mat Vinnumálastofnunar að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Með því að hafa ekki mætt á umrætt námskeið hafi kærandi brugðist skyldum sínum samkvæmt 7. mgr. 9. gr. og 3. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Honum beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 61. gr. vegna ítrekunaráhrifa fyrri viðurlaga.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars um 1. mgr. 58. gr. að ekki séu tilgreindar sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir sem geti valdið því að hinn tryggði þurfi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu heldur eigi það við um allar aðgerðir sem hinum tryggða sé boðið að taka þátt í til að auka líkur sínar á að fá vinnu við hæfi. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar. Þannig megi ætla að þeim sem eru tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins verði boðin þátttaka í vinnumarkaðsúrræðum við hæfi en litið sé svo á að þeim sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist hinn tryggði þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var þann 5. september 2023 tilkynnt að hann væri boðaður á námskeiðið „Fullkomin ferilskrá“ sem ætti að hefjast 7. september 2023 klukkan 09:00. Kæranda var greint frá því að skyldumæting væri á námskeiðið og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Jafnframt var kæranda greint frá því að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Þá var kærandi hvattur til að hafa samband ef eitthvað væri óljóst eða hann óskaði frekari upplýsinga. Með tölvupósti 6. september 2023 tilkynnti kærandi Vinnumálastofnun að hann kæmist ekki á námskeiðið vegna knattspyrnuæfingar. Í skýringum kæranda til Vinnumálastofnunar kemur fram að honum sé skylt að mæta á æfingar þar sem hann sé samningsbundinn. Þá fylgdi skjáskot af dagatali úr síma kæranda sem sýndi æfingu fimmtudaginn 7. september 2023 klukkan 12:00.

Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hann hafi ekki mætt í vinnumarkaðsúrræði sem honum var gert að sækja. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins.

Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:

„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“

Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 2. maí 2022 á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. laga nr. 54/2006, staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. september 2023, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta