Mál nr. 92/2022-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 92/2022
Miðvikudaginn 22. júní 2022
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 8. febrúar 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. janúar 2022, um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. janúar 2022, var kæranda tilkynnt að hann hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 297.778 kr., að meðtöldu 15% álagi. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 8. febrúar 2022. Með bréfi, dags. 11. febrúar 2022, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar. Með bréfi, dags. 21. mars 2022, barst greinargerð Vinnumálastofnunar þar sem fram kom að vegna mistaka hefði kæranda verið sent innheimtubréf vegna skuldar sem hafði verið felld niður. Hin kærða ákvörðun hefði því verið afturkölluð. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 24. mars 2022, var óskað eftir afstöðu kæranda vegna greinargerðar Vinnumálastofnunar. Sú beiðni var ítrekuð með erindi úrskurðarnefndar 9. maí 2022. Svar barst ekki.
II. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. janúar 2022, um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta. Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndarinnar var vísað til þess að kæranda hefði fyrir mistök verið sent innheimtubréf vegna skuldar sem hafði verið felld niður og því hafi hin kærða ákvörðun verið afturkölluð. Úrskurðarnefndin óskaði eftir afstöðu kæranda til greinargerðar Vinnumálastofnunar en svar barst ekki.
Úrskurðarnefnd velferðarmála kveður upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, sbr. 11. gr. laganna. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og Vinnumálastofnunar. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir