Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 79/2013

Úrskurður

 

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 21. janúar 2014 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, nr. 79/2013.

 

1.
Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 30. maí 2013, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, José A, að stofnunin hefði ákveðið á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans þar sem hann hafi verið staðin að vinnu hjá fyrirtækinu R ehf.
1. febrúar 2013. Var það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hann hafi starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði. Kæranda var einnig gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur, að viðbættu 15% álagi, fyrir tímabilið 1. febrúar til 31. mars 2013 fjárhæð 351.222 kr. Kærandi vildi ekki una ákvörðun Vinnumálastofnunar og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með kæru, dags. 31. júlí 2013, mótt. 13. ágúst 2013. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun telur að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun.

Kærandi sótti síðast um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 2. janúar 2013.

Vinnumálastofnun bárust upplýsingar frá aðilum vinnumarkaðarins þess efnis að kærandi hefði verið við störf hjá fyrirtækinu R ehf. 1. febrúar 2013. Kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun 11. febrúar 2013 um tilfallandi vinnu sína hjá R ehf. og í viðtali við ráðgjafa stofnunarinnar 13. sama mánaðar. Kæranda var sent erindi, dags. 26. mars 2013, þar sem honum var tilkynnt að samkvæmt gögnum frá aðilum vinnumarkaðarins frá 1. febrúar 2013 hefði hann verið við störf hjá fyrirtækinu R ehf. samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að tilkynna það til stofnunarinnar. Óskað hafi verið eftir skýringum á þessu hjá kæranda fyrir 5. apríl 2013.

 

Kærandi hafði samband við Vinnumálastofnun símleiðis 10. apríl 2013 og kom þar fram að hann hafi fengið þær upplýsingar frá stofnuninni að nægilegt væri að tilkynna tilfallandi vinnu með því að skila inn launaseðlum vegna vinnunnar þegar þeir lægju fyrir.

Vinnumálastofnun óskaði eftir því að kærandi skilaði inn skýringum og bárust þær sama dag í tölvupósti. Í skýringarbréfinu kemur meðal annars fram að hann hafi verið kallaður í vinnu til að leysa af vegna veikinda. Kærandi kveðst hafa látið vita af þessari tilfallandi vinnu í viðtali hjá tilgreindum ráðgjafa stofnunarinnar (Sólveigu) 13. febrúar 2013 og að í símtali 20. sama mánaðar hafi hann fengið þær upplýsingar að hann þyrfti að bíða þar til hann fengi launin greidd og fara síðan inn á „Mínar síður“ og tilkynna þau.

Kæranda var send hin kærða ákvörðun í bréfi, dags. 30. maí 2013. Vinnumálastofnun barst tilkynning um tilfallandi tekjur frá R ehf. 2. júlí 2013 fyrir febrúar og mars 2013. Vinnumálastofnun barst beiðni kæranda 18. júlí 2013 um rökstuðning fyrir ákvörðuninni, en þar sem 14 daga frestur til að óska eftir rökstuðningi var liðinn skv. 21. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, var kæranda synjað um hann.

Af hálfu kæranda kemur fram í kæru að hann hafi ekki verið að vinna 1. febrúar 2013 hjá Rehf. Hann kveðst hafa unnið þar áður og því hafi vinnustaðaskírteinið hans verið hjá þeim. Einhver annar hafi framvísað skírteininu hans. Kærandi kveðst hafa látið Vinnumálstofnun vita 11. febrúar 2013 að hann væri að fara að vinna hjá R ehf. um kvöldið og að hann myndi fá tilfallandi vinnu þar í kjölfarið. Hann hafi svo rætt þetta við ráðgjafa 13. febrúar 2013. Kærandi greinir frá því að aldrei hafi verið ætlun hans að svíkja út bætur enda hafi hann tilkynnt um tekjur sínar inn á „Mínum síðum“ um leið og hann fékk útborgað. Sú tilkynning hafi ekki borist Vinnumálastofnun þá þar sem hann hafi gert þau mistök að hann smellti ekki á hnapp til að staðfesta. Honum hafi yfirsést að skrolla neðst á síðuna þar sem takkinn „senda“ er.


 

Í greinargerð til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 10. september 2013, bendir Vinnumálastofnun á að lög um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verða atvinnulausir. Málið lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar sem tilkynnt hafi verið með bréfi, dags. 30. maí 2013, þar sem kæranda hafi verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Hafi honum einnig verið gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar.

Vinnumálastofnun vísar til ákvæðis 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og bendir á að annar málsliður taki á því þegar atvinnuleitandi starfar á vinnumarkaði, til lengri eða skemmri tíma, samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að hafa uppfyllt skyldu sína skv. 10. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar um að upplýsa Vinnumálastofnun um störf sín.

Stofnunin bendir einnig á 10. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun vísar til þess að í 13. gr. laganna segi jafnframt að það sé skilyrði fyrir því að launamaður teljist vera tryggður í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar að hann sé í virkri atvinnuleit. Í 14. gr. sömu laga sé að finna nánari útfærslu á því hvað telst til virkrar atvinnuleitar. Ljóst sé að aðili sem starfar á vinnumarkaði geti hvorki talist vera án atvinnu eða í virkri atvinnuleit í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Samkvæmt upplýsingum frá aðilum vinnumarkaðarins hafi kærandi verið við störf fyrir Rehf. 1. febrúar 2013 samhliða því að þiggja greiðslur atvinnuleysisbóta og kærandi hafi ekki tilkynnt um störf sín fyrr en eftir að eftirlitsfulltrúar höfðu mætt á vinnustað hans. Kærandi hafni því fyrst í rökstuðningi fyrir kæru að hann hafi verið við störf hjá R ehf. 1. febrúar 2013 og telur að annar starfsmaður hljóti að hafa framvísað vinnustaðaskírteininu hans. Vinnumálastofnun bendir á að hvorki í símtali við starfsmann stofnunarinnar 10. apríl 2013 né í skýringarbréfi hans sem sent var sama dag hafi kærandi haldið því fram að einhver annar en hann hafi verið við störf 1. febrúar 2013. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að telja verði þær skýringar ótrúverðugar, enda hafi mátt leiða að því líkur að kærandi hefði greint frá þessum skýringum sínum strax í upphafi málsins ef þær væru á rökum reistar.

 

 

Kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun fyrirfram um störf sín hjá R ehf. Vinnumálastofnun telur í ljósi afdráttarlausrar verknaðarlýsingar 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og þeirrar skyldu sem hvíli á atvinnuleitanda til að tilkynna um tilfallandi vinnu til stofnunarinnar, sbr. 35. gr. a laganna, verði að telja að kærandi hafi brugðist skyldum sínum.

 

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 11. september 2013, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum til 25. september 2013. Ekki bárust athugasemdir frá kæranda. Með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 2. október 2013, var kæranda tilkynnt um að mál hans myndi tefjast hjá nefndinni sökum mikils málafjölda.

 

2.
Niðurstaða

Mál þetta lýtur að því hvort kærandi hafi aflað atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti í skilningi 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Með hliðsjón af mikilvægi ákvæðisins við framkvæmd atvinnuleysistryggingakerfisins þykir réttlætanlegt að varpa ítarlegu ljósi á forsögu þess og tilgang. Markmiðið með þessu er að setja fram skýr viðmið um hvernig beri að túlka ákvæðið.

Þegar lög um atvinnuleysistryggingar voru upphaflega sett var kveðið á um þá meginreglu í fyrstu málsgrein 60. gr. laganna að sá sem aflar sér eða reynir að afla sér atvinnuleysisbóta samkvæmt lögunum með svikum getur misst rétt sinn í allt að tvö ár og þurft að sæta sektum. Það var hvergi skýrlega skilgreint hvað væru svik í skilningi ákvæðisins og er sú ályktun nærtæk að ákvæðinu hafi sjaldan verið beitt fram til þess tíma sem því var breytt með setningu 23. gr. laga nr. 134/2009. Þessi nýja regla tók gildi 1. janúar 2010 og veigamesti tilgangur hennar var að sporna gegn „svartri atvinnustarfsemi“.

 

Í athugasemdum greinargerðar við 23. gr. frumvarps þess er síðar varð að lögum nr. 134/2009 kom meðal annars fram að beita ætti ákvæðinu í þrenns konar tilvikum, í fyrsta lagi þegar atvinnuleitandi veitir Vinnumálastofnun vísvitandi rangar upplýsingar í umsókn um atvinnuleysisbætur sem leiða til þess að hann telst ranglega tryggður að fullu eða að hluta samkvæmt lögunum, í öðru lagi þegar atvinnuleitandi starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. laganna og í þriðja lagi þegar atvinnuleitandi verður uppvís að þátttöku á vinnumarkaði án þess að hafa tilkynnt um tilfallandi vinnu, sbr. nú 35. gr. a.

Með setningu 4. gr. laga nr. 103/2011 var orðalagi fyrsta málsliðar 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar breytt. Frá og með 3. september 2011 hefur ákvæðið verið svohljóðandi:

Sá sem lætur vísvitandi hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða veitir vísvitandi rangar upplýsingar sem leiða til þess að hann telst ranglega tryggður að fullu eða að hluta samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en hann sækir aftur um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. eða um tilfallandi vinnu skv. 35. gr. a. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.

Þegar þessi texti er skýrður er óhjákvæmilegt að horfa til þeirra athugasemda sem vitnað var hér til að framan um 23. gr. laga nr. 134/2009. Þannig er ljóst að fyrsti málsliður ákvæðisins á við ef atvinnuleitandi hefur með vísvitandi hætti hegðað sér með tilteknum hætti á meðan slíkt huglægt skilyrði á ekki við ef háttsemin fellur undir annan málslið ákvæðisins. Þessi munur stafar af því að annar málsliðurinn tekur á því þegar atvinnuleitandi starfar á vinnumarkaði, til lengri eða skemmri tíma, samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að hafa uppfyllt skyldu sína skv. 10. gr. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar að upplýsa Vinnumálastofnun um þessa atvinnuþátttöku.

Sérstök ástæða er til að taka fram að orðalagið „[h]ið sama gildir“ í upphafi annars málsliðar 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar vísar einvörðungu til viðurlaganna sem upp eru talin í fyrsta málslið ákvæðisins en ekki til þeirra huglægu skilyrða sem þar þurfa að vera uppfyllt. Þessi túlkun byggir meðal annars á því að greiðsla atvinnuleysisbóta er ekki ætluð þeim sem sinna störfum á vinnumarkaði og því teljast það svik í skilningi annars málsliðar 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar ef atvinnuleitandi sinnir starfi á vinnumarkaði án þess að láta Vinnumálastofnun vita af því með þeim hætti sem kveðið er á um í 10. gr. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar. Þessi skilningur er í samræmi við orðalag annars málsliðar 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og fær einnig stoð í athugasemdum greinargerðar við 23. gr. frumvarps þess er síðar varð að lögum nr. 134/2009.

Hvort sem háttsemi fellur undir fyrsta eða annan málslið 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar eru viðurlög við bótasvikum ströng en þau fela í sér að atvinnuleitanda ber ekki að eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en hann sækir aftur um atvinnuleysisbætur. Jafnframt ber atvinnuleitanda að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr. laganna, sbr. lokamálslið 60. gr. laganna.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi við störf hjá Rehf. 1. febrúar 2013 er aðilar vinnumarkaðarins komu þar við við eftirlitsstörf. Af hálfu kæranda er því haldið fram í kæru að hann sjálfur hafi ekki verið við störf þennan dag og einhver annar hafi framvísað vinnustaðaskírteininu hans en hann hafi geymt það hjá R ehf. en hann hafi unnið þar áður. Í 3. mgr. 3. gr. laga um vinnustaðaskírteini og eftirlit með vinnustöðum, nr. 42/2010, er það skilyrði að ásamt nafni, kennitölu eða öðru auðkenni á hvort tveggja atvinnurekanda og starfsmanni skuli vera ljósmynd af starfsmanninum. Með vísan til þessa og þess sem fram kemur í greinargerð Vinnumálastofnunar fellst úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða ekki á þessar skýringar kæranda.


 

Af gögnum málsins verður því ekki ráðið að kærandi hafi tilkynnt Vinnumálastofnun um störf sín hjá R ehf., þ.e. um hina tilfallandi vinnu í skilningi 35. gr. a með þeim hætti sem honum bar að gera. Í 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er kveðið á um þá skyldu atvinnuleitanda að upplýsa Vinnumálastofnun um breytingar á högum viðkomandi eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, eins og námsþátttöku og tekjur fyrir tilfallandi vinnu. Þá er atvinnuleitanda skv. 10. gr. laga um atvinnuleysistryggingar skylt að tilkynna til Vinnumálastofnunar án ástæðulausrar tafar þegar hann hættir virkri atvinnuleit. Af hálfu kæranda er því einnig haldið fram að hann hafi fengið þær upplýsingar hjá starfsmanni Vinnumálastofnunar að nægilegt væri að tilkynna um störf fyrir tilfallandi vinnu á þann hátt að senda inn launaseðil. Að mati úrskurðarnefndarinnar getur kærandi ekki borið fyrir sig vankunnáttu í lögunum þar sem víðtækar upplýsingar um stöðu atvinnuleitenda liggja fyrir, meðal annars á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Þar kemur skýrt fram að atvinnuleitanda ber að veita nákvæmar upplýsingar um hagi sína, meðal annars vegna tilfallandi tekna.

Í ljósi afdráttarlausrar verknaðarlýsingar í 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og þeirrar skyldu atvinnuleitanda, sem kveðið er á um í 35. gr. a sömu laga, verður að telja að kærandi hafi brugðist trúnaðar- og upplýsingaskyldum sínum gagnvart Vinnumálastofnun. Háttsemi kæranda hefur því réttilega verið heimfærð til ákvæðis 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda ber því að sæta viðurlögum þeim sem þar er kveðið á um, enda var hann starfandi á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann þáði atvinnuleysisbætur án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um tilfallandi vinnu eða að atvinnuleit hafi verið hætt. Með vísan til framangreinds og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram fyrir hinni kærðu ákvörðun, verður hún staðfest.

Kæranda ber einnig að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 1. febrúar til 31. mars 2013 samtals að fjárhæð 351.222 kr. en inni í þeirri fjárhæð er 15% álag skv. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 

 


 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 30. maí 2013 í máli A þess efnis að hann skuli ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði er staðfest.

Kærandi skal endurgreiða Vinnumálastofnun ofgreiddar atvinnuleysisbætur, samtals að fjárhæð 351.222 kr.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir,

formaður

 

 

                        Hulda Rós Rúriksdóttir                                             Helgi Áss Grétarsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta