Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 12/2024-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 12/2024

Föstudaginn 22. mars 2024

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 9. janúar 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. desember 2023, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 20. nóvember 2023. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 19. desember 2023, var kæranda tilkynnt að umsókn hans um atvinnuleysisbætur hefði verið samþykkt en með vísan til starfsloka hjá fyrrum vinnuveitanda væri réttur til atvinnuleysisbóta hins vegar felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 9. janúar 2024. Með bréfi, dags. 11. janúar 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 6. febrúar 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 8. febrúar 2024. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að Vinnumálastofnun hafi neitað að greiða honum atvinnuleysisbætur. Rökstuðningur fyrir þeirri ákvörðun sé brot kæranda í starfi sem sé ekki sannað. Honum hafi verið sagt upp án fyrirvara.

 

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 20. nóvember 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. desember 2023, hafi umsókn kæranda verið samþykkt með 92% bótarétt en kæranda hafi jafnframt verið gert að sæta tveggja mánaða bið eftir greiðslum vegna ákvörðunar á grundvelli 54. gr. þar sem kæranda hafi verið sagt upp vegna brots í starfi.

Skýringar kæranda vegna uppsagnar hafi borist þann 22. desember 2023. Frekari skýringar hafi verið mótteknar 25. desember 2023 og hafi mál hans verið tekið fyrir að nýju. Í skýringum kæranda hafi meðal annars komið fram að í starfi sínu hefði hann gert mistök við úttekt á debetkorti atvinnurekanda upp á um það bil 23.000 kr. og að hann hafi sóst eftir því að fá að leiðrétta þau mistök. Enn fremur megi ráða af skýringum kæranda að brot hans hafi verið kært til lögreglu og að allar umleitanir hans til úrbóta hafi verið hunsaðar. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 9. janúar 2024, hafi ákvörðun stofnunarinnar frá 19. desember 2023 verið staðfest, þar sem skýringar hans hafi ekki verið metnar gildar.

Kæra hafi borist úrskurðarnefnd velferðarmála þann 9. janúar 2024. Af kæru megi ráða að kærð sé ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. desember 2023, um að fella niður rétt kæranda til greiðslu atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna og sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Lögin veiti þeim fjárhagslegt úrræði og beri að gera ríkar kröfur til þeirra sem segi upp störfum sínum að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Í 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar segi orðrétt:

„Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.“

Í greinargerð með frumvarpi því sem hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé það áréttað að eitt af markmiðum vinnumarkaðskerfisins sé að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í greinargerð með frumvarpi því sem hafi orðið að gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar sé vísað til þess að það væri erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega í lögum og reglugerðum hvaða ástæður sem liggi að baki ákvörðun þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missa starf sitt séu gildar, þar sem þær ástæður geti verið af margvíslegum toga. Því hafi verið lagt til að lagareglan væri matskennd og Vinnumálastofnun væri falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Fyrir liggi að kæranda hafi verið sagt upp starfi hjá B. Í vottorði vinnuveitanda komi fram að kæranda hafi verið sagt upp, án nánari skýringa. Kærandi hafi sjálfur greint frá því að brot í starfi hafi verið ástæða starfsloka. Uppsögn kæranda megi rekja til brots í starfi sem sé til rannsóknar hjá lögreglu samkvæmt upplýsingum frá kæranda. Af fyrirliggjandi gögnum í máli þessu og í kæru til úrskurðarnefndar megi ætla að kæranda sé fullljóst hvers vegna vinnuveitandi hans hafi sagt honum upp starfi. Þegar starfsmaður brjóti á veigamiklum atriðum ráðningarsamnings geti atvinnurekandi átt rétt á því að víkja viðkomandi úr starfi samstundis. Við mat á því hvort umsækjandi um atvinnuleysistryggingar skuli sæta viðurlögum, á grundvelli 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, í málum sem þessum beri stofnuninni að líta til þess hvort viðkomandi hafi misst starf sitt af ástæðum sem hann sjálfur eigi sök á.

Það sé mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi mátt gera sér grein fyrir því að háttsemi hans myndi leiða til brottvikningar úr starfi og að hann hafi misst starf sitt af ástæðum sem hann sjálfur hafi átt sök á, sbr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Því beri honum að sæta tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta.

Í ljósi alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta biðtíma á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til starfsloka hans.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 54. gr. laganna er svohljóðandi:

„Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.“

Óumdeilt er að kæranda var sagt upp störfum hjá B en ágreiningur málsins lýtur að því hvort hann hafi sjálfur átt sök á uppsögninni. Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar kemur fram að það sé erfiðleikum bundið að takmarka þau tilvik sem geti talist til gildra ástæðna í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagareglan verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Jafnframt er bent á að um íþyngjandi ákvörðun sé að ræða.

Fyrir liggur að kærandi starfaði hjá B sem þroskaþjálfi. Í skýringum kæranda til Vinnumálastofnunar um ástæðu uppsagnarinnar kemur fram að honum hafi verið sagt upp störfum þar sem honum hafði orðið á mistök við úttekt á 23.000 kr. á debetkorti atvinnurekanda. Honum hafi verið sagt frá því sex vikum síðar og óskað eftir því að fá að bæta fyrir brot sitt ef rétt reyndist. Málið hafi svo verið sent til rannsóknar lögreglu. Í staðfestingu B á starfstímabili kæranda kemur fram að ástæða starfsloka hafi verið uppsögn án þess að nánar væri greint frá ástæðu uppsagnarinnar.

Eins og fram hefur komið er ákvörðun um að umsækjandi skuli sæta biðtíma íþyngjandi ákvörðun. Að mati úrskurðarnefndarinnar verður því að gera þær kröfur að fyrirliggjandi gögn bendi eindregið til þess að rétt sé að beita því úrræði. Samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hvílir sú skylda á stjórnvaldi að sjá til þess að eigin frumkvæði að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því. Markmið rannsóknarreglunnar er að tryggja að stjórnvaldsákvarðanir verði bæði löglegar og réttar. Ekki er að sjá af gögnum málsins að Vinnumálastofnun hafi gætt að þeirri skyldu sinni, enda var í engu brugðist við skýringum kæranda áður en hin kærða ákvörðun var tekin, svo sem með því að óska eftir frekari upplýsingum frá fyrrum vinnuveitanda hans.

Hin kærða ákvörðun er því felld úr gildi og lagt fyrir Vinnumálastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. desember 2023, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er felld úr gildi og málinu vísað til nýrrar meðferðar stofnunarinnar.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta