Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 196/2024-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 196/2024

Miðvikudaginn 10. júlí 2024

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 30. apríl 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvarðanir Vinnumálastofnunar, dags. 8. febrúar 2024 og 11. mars 2024, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði og að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 5. október 2022 og var umsóknin samþykkt 26. október 2022. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 8. febrúar 2024, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans til væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sökum þess að hann hefði ekki mætt á boðað námskeið hjá stofnuninni. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. mars 2024, var kæranda tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans hefðu verið stöðvaðar á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 4. mgr. 61. gr. laganna, sökum þess að hann hefði ekki mætt á boðað námskeið hjá stofnuninni. Málin voru tekin fyrir að nýju að beiðni kæranda og með ákvörðunum Vinnumálastofnunar, dags. 13. febrúar 2024 og 19. mars 2024, voru fyrri ákvarðanir staðfestar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 30. apríl 2024. Með bréfi, dagsettu sama dag, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 12. júní 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 13. júní 2024. Athugasemdir bárust frá kæranda sama dag og voru kynntar Vinnumálastofnun með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 14. júní 2024. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru kemur fram að kærandi hafi verið á atvinnuleysisbótum í einhvern tíma þar til hann hafi verið boðaður á námskeið sem hann hafi ekki komist á. Kærandi hafi glímt við andleg og líkamleg veikindi á þeim tíma og sent Vinnumálastofnun læknisvottorð þegar þess hafi verið óskað. Kærandi kveðst hafa sent stofnuninni þrjú mismunandi bréf til þess að útskýra fjarveru sína en stofnunin hafi ekki viljað sætta sig við þá útskýringu. Kærandi hafi boðist til þess að mæta á annað námskeið þegar honum hafi farið að líða betur, en alltaf fengið synjun.

Kærandi greinir frá því að hafa reynt allt til þess að fá einhverjar bætur til þess að geta borgað reikninga fyrir sig og son sinn. Kærandi hafi þurft að taka mörg lán undanfarna þrjá mánuði til að þess að geta lifað af. Hann sé í mjög slæmri stöðu. Kærandi stefni á að hefja nám í sumar og sé á fullu í atvinnuleit en það gangi hægt. Kærandi eigi níu ára gamlan son sem greiða þurfi reikninga fyrir. Því geti hann ekki verið tekjulaus í annan mánuð. Andleg og líkamleg veikindi séu ekkert grín og kærandi hafi ekki viljandi misst af umræddu námskeiði.

Í athugasemdum vegna greinargerðar Vinnumálastofnunar bendir kærandi á að hann hafi verið úti á landi nær allan janúarmánuð þegar fyrra námskeiðið hafi átt að fara fram. Kærandi hafi útskýrt fjarveru sína í löngum pósti en síðar orðið ljóst að pósturinn hefði ekki skilað sér sökum þess að hann hefði ritað rangt netfang. Kærandi hafi í kjölfarið greint frá ástæðu fjarveru sinnar og óskað eftir því að vera skráður á annað námskeið. Honum hafi þrátt fyrir það verið gert að sæta biðtíma eftir greiðslum og því verið tekjulaus. Kærandi hafi verið boðaður á annað námskeið sem hann hafi ekki treyst sér til að mæta á vegna andlegra og líkamlegra veikinda. Hann hafi sent Vinnumálastofnun þær útskýringar. Tekjuleysið hafi haft mikil andleg áhrif á kæranda en öllum starfsumsóknum hans hafi ýmist verið hafnað eða ekki svarað.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 5. október 2022. Með erindi, dags. 26. október 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%. Kærandi hafi með því bréfi verið upplýstur um að honum yrði gert að sæta tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga vegna starfsloka hans hjá Reykjavíkurborg.

Með erindi, dags. 10. janúar 2024, hafi kærandi verið boðaður á námskeið dagana 17., 19., 22., 24., 26., 29. og 31. janúar, auk 2. febrúar 2024 hjá
Promennt. Kærandi hafi verið upplýstur um að skyldumæting væri á námskeiðið með að lágmarki 80% mætingu og að öll forföll bæri að tilkynna tafarlaust. Ítrekun hafi verið send á netfang og í síma kæranda þann 15. janúar 2024.

Kærandi hafi ekki mætt á boðað námskeið og þann 6. febrúar 2024 hafi Vinnumálastofnun sent kæranda bréf þar sem óskað hafi verið eftir skriflegum skýringum á fjarveru hans, en fyrir hafi legið að kærandi hefði ekkert mætt og engin forföll boðað. Skýringar hafi borist frá kæranda samdægurs þar sem hann hafi sagst hafa verið úti á landi í heilan mánuð og gert tilraun til þess að senda póst til að láta vita. Kærandi hafi hvorki tilgreint hvenær sá póstur hefði átt að hafa verið sendur né á hvaða netfang.

Vinnumálastofnun hafi tilkynnt kæranda þann 8. febrúar 2024 ákvörðun sína um þriggja mánaða viðurlög á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Með erindi, dags. 8. febrúar 2024, hafi kærandi verið boðaður á námskeið, dagana 12., 13., 14., 19. og 21. febrúar 2024 hjá Framvegis símenntunarmiðstöð. Kærandi hafi verið upplýstur um að skyldumæting væri á námskeiðið og að öll forföll bæri að tilkynna tafarlaust. Boðun hafi verið send með sama hætti og áður, á netfang og með smáskilaboðum í skráð númer kæranda.

Þann 9. febrúar 2024 hafi kærandi sent beiðni um endurupptöku ákvörðunar, dags. 8. febrúar 2024, þar sem hann væri þá þegar skráður á annað námskeið. Hann hafi ítrekað fyrri skýringar um rangt netfang þar sem hann hafi kveðist hafa tilkynnt fjarveru sína. Ekki hafi verið að finna neinar upplýsingar um hvaða misritun hefði átt sér stað né hvenær viðkomandi póstur hefði átt að vera sendur. Mál kæranda hafi verið tekið til endurskoðunar og honum tilkynnt um niðurstöðu þeirrar skoðunar með bréfi, dags. 13. febrúar 2024, þar sem Vinnumálastofnun hafi staðfest fyrri ákvörðun þar sem skýringar kæranda hefðu ekki verið metnar gildar.

Þar sem kærandi hefði í engu sinnt mætingu á námskeið dagana 12., 13., 14., 19. og 21. febrúar 2024 hafi honum verið sent erindi, dags. 1. mars 2024, þar sem óskað hafi verið eftir skýringum á fjarveru hans. Engar skýringar hafi borist frá kæranda innan gefins sjö daga frests en kærandi hafi sent inn orðsendingu sama dag sem hafi hljóðað svo:

„Góðan dag,

Ég var búinn að hafa samband í netspjallinu á síðunni ykkar og ég er búinn að bíða eftir svari úr tölvupósti til greiðslustofu í mánuð núna. Endilega skoðið það.“

Þann 11. mars 2024 hafi kæranda verið send ákvörðun stofnunarinnar um synjun á frekari greiðslum samkvæmt 1. mgr. 58. gr., sbr. 4. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Með bréfi, mótteknu 13. mars 2024, hafi skýringar borist á fjarveru kæranda á síðara námskeiðið sem hafi kveðist hafa verið veikur á fyrra námskeiðinu og þar sem hann hafi haldið að hann „væri bara búinn að missa bæturnar þar sem veikindi mín voru greinilega ekki nógu góð afsökun fyrir að missa af þessum námskeiðum og var ekki sýnt neitt tillit til þess að ég var að díla við þessi veikindi.“ Mál kæranda hafi verið endurskoðað með tilliti til þeirra skýringa sem fram hafi komið í bréfi kæranda, dags. 13. mars 2024. Ákvörðun stofnunarinnar frá 11. mars 2024 hafi verið staðfest og kæranda tilkynnt um þá niðurstöðu með bréfi, dags. 19. mars 2024.

Vinnumálastofnun hafi borist bréf kæranda, dags. 15. apríl 2024, sem túlkað hafi verið sem beiðni um endurupptöku en engin ný gögn eða aðrar skýringar hafi verið að finna í því að mati stofnunarinnar og því hafi beiðni um endurumfjöllun verið synjað með bréfi, dags. 22. apríl 2024.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Á meðal skilyrða fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta sé að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Samkvæmt [h-lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum. Ráðgjafar stofnunarinnar skuli boða atvinnuleitendur reglulega í viðtöl eftir þörfum hvers og eins atvinnuleitanda.

Á grundvelli 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitendum að hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Í tilfelli kæranda hafi hann verið boðaður [á námskeið] hjá stofnuninni, en samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laganna sé Vinnumálastofnun heimilt að boða atvinnuleitendur til stofnunarinnar með sannanlegum hætti, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum þeirra sem kunni að hafa áhrif á rétt þeirra til greiðslu atvinnuleysitrygginga. Atvinnuleitendur skuli vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara. Ákvæði 3. mgr. 13. gr. hafi komið inn í lög um atvinnuleysitryggingar með 4. gr. laga nr. 134/2009, en í athugasemdum með 4. gr. segi að gert sé ráð fyrir að stofnunin geti boðað atvinnuleitanda með allt að sólarhringsfyrirvara á þá skrifstofu sína sem næst sé lögheimili viðkomandi.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki uppfyllt mætingarskyldu á námskeið á vegum Vinnumálastofnunar í tvígang, á tímabilinu 17. janúar til 2. febrúar í fyrra skiptið og frá 12. til 21. febrúar í hið síðara. Kærandi hafi fengið sendar boðanir með tilkynningum í tölvupósti, farsíma og á „Mínum síðum“, með ítrekunum í báðum tilfellum. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna beggja tilvikanna. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga, komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.

Skýringar kæranda á ástæðum þess að hann hafi ekki mætt [á boðuð námskeið] lúti fyrst að því að hann hafi verið staddur úti á landi og tölvupóstur hafi ekki skilað sér, þar sem netfang hafi verið misritað. Af þeim sökum hafi tilkynningar um forföll ekki borist stofnuninni. Frekari skýringar hafi borist síðar en þá hafi kærandi kveðist hafa verið að fást við bæði líkamleg og andleg veikindi. Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi hafi verið upplýstur með fullnægjandi hætti um hvernig honum yrðu send mikilvæg skilaboð og tilkynningar. [Boðanir] til [umræddra námskeiða] hafi borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda hafi verið sendar tilkynningar með netföngum sem hafa skyldi samband við í báðum boðunum.

Þær skýringar sem hafi síðar komið fram hjá kæranda, það er að um veikindi hefði verið að ræða sem hefðu hamlað því að hann gæti sinnt mætingu á námskeiðin, hafi borist allnokkru eftir að námskeiðin hefðu verið haldin og engar tilkynningar þess efnis borist frá kæranda á þeim tíma sem námskeiðin hefðu verið boðuð og/eða haldin.

Í ljósi alls framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Með því að hafa ekki mætt á umrædd námskeið hafi kærandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði og beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Þar sem um ítrekunaráhrif samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi verið að ræða í ákvörðun stofnunarinnar frá 8. febrúar 2024 og samkvæmt 4. mgr. sömu greinar í ákvörðun stofnunarinnar frá 19. mars 2024, eigi kærandi ekki rétt á greiðslum fyrr en skilyrði 31. gr. laganna hafi verið uppfyllt.

Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 30. apríl 2024. Efni kærunnar sé að mestu samhljóða því bréfi sem hafi verið sent stofnuninni þann 15. apríl 2024.

IV.  Niðurstaða

Kærðar eru ákvarðanir Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði og að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 4. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var boðaður á námskeið á vegum Vinnumálastofnunar sem fara áttu fram á tímabilinu 17. janúar til 2. febrúar 2024 og frá 12. til 21. febrúar 2024. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Þá var kærandi hvattur til að hafa samband við stofnunina ef eitthvað væri óljóst eða ef hann vildi frekari upplýsingar. Kærandi hvorki boðaði forföll né mætti á námskeiðin.

Af hálfu kæranda hefur komið fram að hann hafi verið úti á landi nær allan janúarmánuð. Þá hafi tölvupóstur með skýringum á fjarveru kæranda ekki borist þar sem hann hefði ritað rangt netfang. Einnig hefur kærandi greint frá því að hann eigi við andleg og líkamleg veikindi að stríða.

Framangreind boðun var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta fjarveru á boðuð námskeið hjá Vinnumálastofnun.

Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:

„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“

Þá segir í 4. mgr. 61. gr. að ef atvik sem lýst sé í 1. málsl. 1. mgr. endurtaki sig á sama tímabili samkvæmt 29. gr. skuli hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr. Samkvæmt 29. gr. laga nr. 54/2006 getur sá sem telst tryggður samkvæmt lögunum átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í 30 mánuði frá þeim degi er Vinnumálastofnun tók við umsókn hans um atvinnuleysisbætur, nema annað leiði af lögunum. Biðtími eftir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt X. kafla telst hluti tímabilsins sem og sá tími er viðurlög samkvæmt XI. kafla standa yfir. Í 31. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að nýtt tímabil samkvæmt 29. gr. hefjist þegar hinn tryggði sækir að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur.

Samkvæmt gögnum málsins hófst bótatímabil kæranda í október 2022. Kærandi sætti niðurfellingu bótaréttar á grundvelli 54. gr. laga nr. 54/2006 þann 26. október 2022 og sætti aftur viðurlögum á grundvelli 58. gr. laganna þann 8. febrúar 2024. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom nú til ítrekunaráhrifa samkvæmt 4. mgr. 61. gr. laganna og á kærandi því ekki rétt á greiðslu atvinnuleysibóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr. laganna, þ.e. eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Hinar kærðu ákvarðanir eru því staðfestar.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvarðanir Vinnumálastofnunar, dags. 8. febrúar 2024 og 11. mars 2024, um niðurfellingu atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði og stöðvun greiðslna til A, eru staðfestar.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum