Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 53/2017

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 53/2017

Fimmtudaginn 27. apríl 2017

AgegnVinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Agnar Bragi Bragason lögfræðingur.

Með kæru, dags. 6. febrúar 2017, kærir A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 3. febrúar 2017, um innheimtu ofgreiddra bóta.

I. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun þann 30. ágúst 2016. Umsókn hennar var samþykkt og bótaréttur metinn 89%. Á tímabilinu október 2016 til febrúar 2017 var kærandi í hlutastarfi og fékk greidd laun vegna þeirrar vinnu samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta. Kærandi tilkynnti um tekjur eftir á og því voru atvinnuleysisbætur hennar endurreiknaðar og kæranda tilkynnt um ofgreiðslu á greiðsluseðlum Vinnumálastofnunar. Með bréfi, dags. 3. febrúar 2017, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda að hún hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 294.400 kr. sem yrðu innheimtar í samræmi við 3. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 8. febrúar 2017. Með bréfi, dags. 10. febrúar 2017, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 7. mars 2017. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 8. mars 2017, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II. Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hún hafi verið í hlutastarfi frá því í október 2016 og hafi samviskusamlega tilkynnt Vinnumálastofnun um prósentuhlutfall í hverjum mánuði. Kærandi hafi yfirleitt verið í um 40% starfshlutfalli en bótaréttur hennar hafi verið metinn 89%. Kærandi tekur fram að hún hafi treyst á að Vinnumálastofnun myndi reikna henni réttar atvinnuleysisbætur en það hafi ekki verið gert. Starfsfólk Vinnumálastofnunar hafi augljóslega ekki verið að fylgjast með þeim upplýsingum sem hún hafi veitt heldur greitt henni atvinnuleysisbætur í samræmi við 89% bótarétt.

III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi fengið tekjur fyrir hlutastarf samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta á tímabilinu október 2016 til febrúar 2017. Kærandi hafi ekki gert neina tekjuáætlun hjá Vinnumálastofnun um áætlaðar tekjur vegna tilfallandi vinnu heldur tilkynnt um tekjurnar eftir á. Fyrir tímabilið október til desember 2016 hafi kærandi jafnframt tilkynnt um útborgaðar tekjur en ekki heildartekjur fyrir skatt. Við útgreiðslu atvinnuleysisbóta til kæranda hafi Vinnumálastofnun ekki getað tekið tillit til þeirra tekna, sem hún hafi þegið vegna tilfallandi vinnu, þar sem tekjuáætlun hafi ekki legið fyrir. Við það hafi kærandi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur og greiðslur því skertar afturvirkt í samræmi við 1. mgr. 36. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Vegna þessa hafi myndast skuld í greiðslukerfi stofnunarinnar sem kæranda beri að endurgreiða í samræmi við 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 en samkvæmt ákvæðinu sé stofnuninni skylt að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbóta. Í athugasemdum með ákvæðinu í frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 sé sérstaklega áréttað að leiðréttingin eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslu hafi því ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð sem hafi verið ofgreidd.

Vinnumálastofnun bendir á að kærandi hafi setið kynningarfund á vegum stofnunarinnar þar sem meðal annars hafi verið farið vandlega yfir hvernig tilkynna skyldi breytingar á högum atvinnuleitanda, þar með talið tilkynningu á tilfallandi vinnu og hlutastarfi og hvernig skyldi haga tilkynningu tekna vegna þeirra starfa. Þá hafi ráðgjafar Vinnumálastofnunar einnig leiðbeint kæranda um skráningu hlutastarfsins og tekjuáætlunar, meðal annars bréfleiðis þann 20. október 2016, eða tveimur dögum eftir að hún hafi byrjað að vinna. Enn fremur sé að finna ítarlegar leiðbeiningar um skráningu tekna og hlutastarfa á vefsíðu Vinnumálastofnunar og því hafi leiðbeiningarskyldu stofnunarinnar verið fullnægt, sbr. 7. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Í málinu liggi fyrir að kærandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur en í febrúar 2017 hafi skuld hennar við Vinnumálastofnun numið 294.400 kr.

IV. Niðurstaða

Ágreiningur máls þessa lýtur að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að krefja kæranda um endurgreiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta samkvæmt 3. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar að fjárhæð 294.400 kr.

Í 1. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um gildissvið laganna, en þar segir að lögin gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verða atvinnulausir. Í 2. gr. laganna kemur fram að markmið þeirra sé að tryggja launamönnum eða sjálfstætt starfandi einstaklingum tímabundna fjárhagsaðstoð á meðan þeir eru að leita sér að nýju starfi eftir að hafa misst fyrra starf sitt.

Í 35. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um tilhögun greiðslna atvinnuleysisbóta. Þar segir að atvinnuleysisbætur skuli greiddar fyrsta virka dag hvers mánaðar og þær skuli greiddar eftir á fyrir undanfarandi mánuð eða hluta úr mánuði þannig að miðist við fyrsta til síðasta dag viðkomandi mánaðar. Í 36. gr. laga nr. 54/2006 er fjallað um frádrátt frá atvinnuleysisbótum vegna tekna. Í 1. mgr. 36. gr. segir meðal annars að þegar samanlagðar tekjur af hlutastarfi hins tryggða og atvinnuleysisbætur hans eru hærri en sem nemur óskertum rétti hans til atvinnuleysisbóta að viðbættu frítekjumarki skuli skerða atvinnuleysisbætur hans um helming þeirra tekna sem umfram eru. Hið sama gildi um tekjur hins tryggða fyrir tilfallandi vinnu og elli- eða örorkulífeyrisgreiðslur samkvæmt lögum um almannatryggingar. Óumdeilt er að kærandi var í hlutastarfi samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta og að hún tilkynnti um tekjur sínar eftir á. Samkvæmt gögnum málsins lá ekki fyrir tekjuáætlun vegna þeirrar vinnu. Eftir að kærandi hafði skilað inn upplýsingum um tekjur sínar fyrir hvern mánuð endurreiknaði Vinnumálastofnun atvinnuleysisbætur kæranda og tilkynnti um ofgreiðslu bóta við uppgjör hvers mánaðar á greiðsluseðlum.

Í 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars svo í skýringum við ákvæðið:

„Efni ákvæðisins felur í sér möguleika á leiðréttingu á fjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta eftir að þær hafa verið keyrðar saman við álagningu skattyfirvalda að því er varðar það viðmiðunartímabil sem lagt er til að verði haft til hliðsjónar við útreikningana. Er því gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun hafi heimildir til að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbótanna til samræmis við álagningu skattyfirvalda. Er gert ráð fyrir að leiðréttingin geti átt sér stað nokkru eftir að bæturnar hafa verið greiddar eða þegar endanleg álagning skattyfirvalda liggur fyrir. Á sama hátt er jafnframt gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun geti leiðrétt fjárhæð grunnatvinnuleysisbóta. Slíkt getur átt við þegar upplýsingar þær er liggja grunnatvinnuleysisbótum til grundvallar hafa verið rangar eða hinn tryggði ekki tilkynnt til Vinnumálastofnunar um að hann sé ekki lengur í atvinnuleit.

Þannig er gert ráð fyrir að hinn tryggði endurgreiði Atvinnuleysistryggingasjóði þær fjárhæðir sem ofgreiddar eru í þeim tilvikum er hann fékk hærri greiðslur úr sjóðnum en honum bar. Á þetta við um öll tilvik sem kunna að valda því að hinn tryggði hafi fengið ofgreitt úr Atvinnuleysistryggingasjóði.“

Samkvæmt framangreindu er ákvæði 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Í máli þessu hefur ekkert álag verið lagt á skuld kæranda og því er ekki ágreiningur um það atriði. Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 3. febrúar 2017, í máli A, um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta