Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr 204/2024-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 204/2024

Miðvikudaginn 10. júlí 2024

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 5. maí 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. apríl 2024, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 17. maí 2023 og var umsóknin samþykkt 5. júní 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. apríl 2024, var kæranda tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans hefðu verið stöðvaðar á grundvelli 4. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sökum þess að hann hefði ekki tilkynnt stofnuninni um tilfallandi tekjur eða vinnu. Kæranda var jafnframt tilkynnt að hann hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 90.840 kr., að meðtöldu 15% álagi, sem yrðu innheimtar samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 5. maí 2024. Með bréfi, dags. 7. maí 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 12. júní 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 13. júní 2024. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru greinir kærandi frá því að Vinnumálastofnun hafi tilkynnt honum að hann hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu október 2023, að fjárhæð 78.991 kr. og að hann væri krafinn um endurgreiðslu alls að fjárhæð 90.840 kr., að meðtöldu 15% álagi.

Kærandi greinir frá því að hafa í október 2023 verið í starfsþjálfun sem aðstoðarmaður ungs manns í hjólastól og að reynslutíminn hafi byrjað í lok októbermánaðar. Kærandi hafi ekki verið á samningi á reynslutímanum og kveðst hafa skilið það þannig að hann fengi laun í nóvembermánuði. Kærandi hafi því fyrst afskráð umsókn um atvinnuleysisbætur þann 31. október 2023 þegar honum hafi verið tilkynnt að hann fengi fastráðningu sem aðstoðarmaður  mannsins. Þetta komi fram í gögnum hjá Vinnumálastofnun. Kærandi hafi því miður fengið greitt fyrir reynslutímann í október á meðan hann hafi enn þegið atvinnuleysisbætur. Að mati kæranda gæti það stafað af tungumálaörðugleikum og því að hann hafi ekki skilið ferlið að fullu. Kærandi hafi aldrei ætlað sér að svindla á kerfinu og hafi á sínum tíma þurft á fullum bótum að halda eftir að hafa verið atvinnulaus í meira en tvö ár. Nú þegar kærandi sé enn í fullu starfi óski hann eftir því að þurfa ekki að endurgreiða ofgreiddar bætur, að fjárhæð 90.840 kr., sökum einfalds misskilnings. Hann óski því eftir að skuldin verði felld niður.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslur atvinnuleysistrygginga þann 17. maí 2023. Með erindi, dags. 5. júní 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að bótaréttur hans væri 100%.

Í kjölfar reglulegs eftirlits Vinnumálastofnunar hafi komið í ljós að kærandi hefði verið með óútskýrðar tekjur í október 2023 frá B, auk greiðslna frá C. Með erindi, dags. 10. apríl 2024, hafi þess verið óskað að kærandi veitti stofnuninni skýringar á umræddum tekjum, auk afrits af launaseðlum. Kærandi hafi ekki skilað umbeðnum gögnum innan þess sjö daga frests sem honum hafi verið veittur né hafi stofnuninni borist skýringar hans á viðkomandi greiðslum.

Með erindi, dags. 30. apríl 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að þar sem hann hefði látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um nauðsynlegar upplýsingar sem höfðu áhrif á rétt hans til atvinnuleysistrygginga væri bótaréttur hans felldur niður frá og með þeim degi. Sú ákvörðun hafi verið var tekin á grundvelli 1. og 4. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Jafnframt hafi kæranda verið tilkynnt að samkvæmt fyrirliggjandi gögnum í máli hans hefði hann fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur, samtals að fjárhæð 90.840 kr., að álagi meðtöldu, sem yrðu innheimtar samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laganna.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Kærð sé ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. apríl 2024, þess efnis að kærandi skuli sæta viðurlögum og greiðslustöðvun á grundvelli 1. og 4. mgr. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, auk þess að vera gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysistryggingar sökum þess að hann hafi ekki tilkynnt stofnuninni um tekjur sínar í október 2023.

Fyrir liggi að kærandi hafi hvorki upplýst Vinnumálastofnun um tekjur sínar frá B né veitt skýringar á greiðslum frá C. Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé rík áhersla lögð á upplýsingaskyldu atvinnuleitanda gagnvart Vinnumálastofnun. Þannig beri atvinnuleitanda meðal annars að tilkynna stofnuninni um allar breytingar á aðstæðum sem gætu haft áhrif á rétt viðkomandi til greiðslu atvinnuleysisbóta, sbr. 2. mgr. 14. gr. laganna. Í 3. mgr. 9. gr. sé sérstaklega kveðið á um skyldu atvinnuleitanda til að tilkynna stofnuninni um tekjur vegna tilfallandi vinnu. Þar segi orðrétt:

„Sá sem telst tryggður á grundvelli laga þessara skal upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir.“

Vinnumálastofnun árétti að upplýsingaskylda atvinnuleitanda sé ítrekuð á öllum stigum umsóknarferlis um atvinnuleysisbætur. Við upphaf umsóknar séu atvinnuleitendum kynnt margvísleg atriði er varði réttindi og skyldur, þar á meðal upplýsingaskyldu. Í lok umsóknarferlis staðfesti allir atvinnuleitendur að þeir hafi kynnt sér þau atriði. Þá sé á heimasíðu Vinnumálastofnunar að finna ítarlegar upplýsingar til handa atvinnuleitendum um skyldur þeirra sem hafi þegið tekjur samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta og hvernig eigi að skrá slíkar tekjur.

Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. hafi kæranda borið að tilkynna Vinnumálastofnun um umræddar tekjur. Í kæru og greinargerð með henni greini kærandi frá því að hann hafi ekki gert sér grein fyrir því að hann þyrfti að tilkynna störf í október þar sem hann hafi talið að launagreiðslur færu fram í nóvember. Hann hafi auk þess ekki verið kominn með fastráðningu í október. Hann hafi af þeim sökum afskráð sig frá og með nóvember.

Ein meginskylda atvinnuleitanda sé að tilkynna stofnuninni um störf sem hann sinni og allar þær tekjur sem viðkomandi þiggi á meðan hann fái greiddar atvinnuleysisbætur. Á heimasíðu Vinnumálastofnunar megi í því skyni finna ítarlegar upplýsingar og kennslumyndband um hvernig tilkynna beri tekjur til stofnunarinnar en þar sé meðal annars tiltekið að tilkynna skuli stofnuninni um tekjur með minnst dags fyrirvara og að skrá skuli fjárhæð tekna inn á ,,Mínum síðum“. Kærandi hafi ekki greint frá því að hann hafi starfað hjá B í október. Eðli máls samkvæmt geti atvinnuleitandi ekki þegið óskertar atvinnuleysistryggingar samhliða launuðum störfum. Kærandi hafi verið upplýstur um skyldu sína til að upplýsa um allar tekjur, hlutastarf, tilfallandi vinnu, tekjur, eða fjármagnstekjur við upphaf vinnslu umsóknar hans, með tölvupósti 17. maí 2023. Þess beri að gæta að sambærilegar upplýsingar hafi verið sendar kæranda í tíð eldri umsókna hans, sbr. tölvupósta frá 16. september 2021 og 11. desember 2020. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að kæranda hefði mátt vera fulljóst að honum bæri að tilkynna stofnuninni um störf sín, auk þeirra tekna sem hann aflaði sér.

Í ljósi framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki uppfyllt upplýsingaskyldu sína samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Af þeirri ástæðu hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. sömu laga en ákvæðið hljóði svo:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Á grundvelli 4. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta stöðvun á greiðslum atvinnuleysisbóta frá degi ákvörðunar. Að auki hafi ofgreiddar atvinnuleysisbætur verið innheimtar, samtals að fjárhæð 90.840 kr., að meðtöldu álagi.

Kærandi hafi verið í vinnu og þegið laun í október 2023 frá B að fjárhæð 321.609 kr. Tekjur kæranda komi til frádráttar atvinnuleysisbótum í samræmi við 1. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sem hljóði svo:

„Þegar samanlagðar tekjur af hlutastarfi hins tryggða, sbr. 17. eða 22. gr., og atvinnuleysisbætur hans skv. 32.–34. gr. eru hærri en sem nemur óskertum rétti hans til atvinnuleysisbóta að viðbættu frítekjumarki skv. 4. mgr. skal skerða atvinnuleysisbætur hans um helming þeirra tekna sem umfram eru. Hið sama gildir um tekjur hins tryggða fyrir tilfallandi vinnu, elli- eða örorkulífeyrisgreiðslur samkvæmt lögum um almannatryggingar, um elli- og örorkulífeyrisgreiðslur úr almennum lífeyrissjóðum, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga sem eru komnar til vegna óvinnufærni að hluta, fjármagnstekjur hins tryggða og aðrar greiðslur sem hinn tryggði kann að fá frá öðrum aðilum. Eingöngu skal taka tillit til þeirra tekna sem hinn tryggði hefur haft á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur, sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum.“

Samkvæmt 3. gr. reglugerðar nr. 1480/2022, settri með stoð í 4. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sé frítekjumark 81.547 kr. á mánuði vegna ársins 2023. Í umræddum mánuði hafi tekjur kæranda numið hærri fjárhæð en frítekjumark atvinnuleysisbóta. Umræddar tekjur hefðu því réttilega átt að koma til skerðingar á atvinnuleysisbótum í samræmi við 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun hafi hins vegar ekki verið kunnugt um umræddar tekjur við útgreiðslur og því hafi myndast skuld við stofnunina, samtals að fjárhæð 90.840 kr., að meðtöldu álagi.

Í 2. mgr. 39. gr. er kveðið á um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“

Í framangreindu ákvæði sé mælt fyrir um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Í athugasemdum með 39. gr. í frumvarpi því sem hafi orðið að lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslunnar hafi með öðrum orðum ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð sem hafi verið ofgreidd. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé því fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Heildarskuld kæranda hafi verið 90.840 kr. og þar af sé álag að fjárhæð 11.849 kr.

Í lokamálslið 2. mgr. 39. gr. segi að fella skuli niður álagið færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er hafi leitt til skuldamyndunar. Það sé mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki uppfyllt upplýsingaskyldu sína gagnvart stofnuninni, sbr. 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ein meginskylda atvinnuleitanda sé að tilkynna stofnuninni um allar tekjur og skýr fyrirmæli sé að finna þess efnis að slíkt skuli gera í gegnum ,,Mínar síður“ atvinnuleitanda. Jafnframt vísi Vinnumálastofnun til þess að það sé á ábyrgð þess er fái greiddar atvinnuleysisbætur að tryggja að Vinnumálastofnun berist nauðsynlegar upplýsingar er geti haft áhrif á rétt hans til greiðslu atvinnuleysisbóta. Í ljósi framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að ekki sé tilefni til að fella niður álag á skuld kæranda.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum og stöðvun á greiðslum atvinnuleysisbóta á grundvelli 1. og 4. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, sbr. 4. mgr. 61. gr. sömu laga.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á grundvelli 4. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Þá segir í 4. mgr. 59. gr. laganna að hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili samkvæmt 29. gr. þegar atvik sem lýst sé í 1. mgr. eigi sér stað skuli hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfylli skilyrði 31. gr.

Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., án ástæðulausrar tafar.

Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var með tekjur í október 2023 frá B samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta frá Vinnumálastofnun. Þær upplýsingar bárust Vinnumálastofnun í kjölfar reglulegs eftirlits innan stofnunarinnar í apríl 2024. Kærandi hefur vísað til þess að hann hafi ekki gert sér grein fyrir því að hann þyrfti að tilkynna störf í október þar sem hann hafi talið að launagreiðslur færu fram í nóvember.

Þann 17. maí 2023 var kæranda tilkynnt að Vinnumálastofnun hefði móttekið umsókn hans um atvinnuleysisbætur. Kæranda var greint frá því að upplýsa þyrfti um allar breytingar á persónulegum högum inni á „Mínum síðum“. Einnig þyrfti að upplýsa um allar tekjur, hlutastarf, tilfallandi vinnu og fjármagnstekjur. Þá var kæranda bent á að ítarlegri upplýsingar um réttindi hans og skyldur væri að finna á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Á heimasíðu Vinnumálastofnunar er að finna kennslumyndband um hvernig tilkynna beri um tilfallandi vinnu eða tekjur á „Mínum síðum“. Þar er meðal annars tiltekið að nauðsynlegt sé að tilkynna Vinnumálastofnun um alla launaða vinnu og allar tekjur sem atvinnuleitandi fái samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta. Tilkynna þurfi vinnu með að minnsta kosti dags fyrirvara en ekki sé gerð krafa um að skila launaseðli vegna tilfallandi vinnu eða hlutastarfs. Með hliðsjón af framangreindu telur úrskurðarnefndin að kærandi hefði mátt vita, eða að minnsta kosti haft tilefni til þess að afla sér frekari upplýsinga um skyldu sína til að tilkynna Vinnumálastofnun fyrir fram um framangreindar tekjur með viðeigandi hætti. 

Í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hann tilkynnti stofnuninni ekki fyrir fram um þær tekjur sem hann fékk í október 2023. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti.

Þegar kærandi var beittur viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laganna hafði hann þegið atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun í 29,63 mánuði. Því voru atvinnuleysisbætur til hans stöðvaðar á grundvelli 4. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 og á kærandi því ekki rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr. laganna, þ.e. eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur.

Mál þetta lýtur einnig að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að innheimta ofgreiddar bætur vegna framangreindra tekna. Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann hafi átt rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið, að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á. Þar sem kærandi tilkynnti ekki fyrir fram um framangreindar tekjur fékk hann greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Aftur á móti skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Líkt og áður greinir tilkynnti kærandi ekki Vinnumálastofnun fyrir fram um þær tekjur sem hann fékk í október 2023 og er því að mati úrskurðarnefndarinnar ekki tilefni til að fella niður álagið sem stofnunin lagði á endurgreiðslukröfuna.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. apríl 2024, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til A, og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta