Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 23/2016

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 23/2016

Fimmtudaginn 9. júní 2016

A

gegn

Vinnumálastofnun


Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Agnar Bragi Bragason lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni þann 11. janúar 2016, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 7. desember 2015, um að staðfesta fyrri ákvörðun um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar þar til hún hefur starfað í að minnsta kosti tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði og innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 82.140 kr. að meðtöldu 15% álagi.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti síðast um greiðslur atvinnuleysisbóta þann 5. ágúst 2015 og var umsókn hennar samþykkt.

Með bréfi, dags. 2. nóvember 2015, var kæranda tilkynnt um að við samkeyrslu tölvugagna Vinnumálastofnunar og ríkisskattstjóra hafi virst sem kærandi hafi haft tekjur í ágúst 2015 frá B að fjárhæð 148.205 kr. án þess að gera grein fyrir þeim, á sama tíma og hún hafi þegið atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun. Þá var óskað eftir skýringum kæranda á framangreindum tekjum. Samkvæmt samskiptasögu kæranda skilaði hún skýringum sama dag þar sem hún segir að um hafi verið að ræða síðustu laun sín frá B og að hún hafi gert tilkynningu um tekjur. Þá kemur jafnframt fram í samskiptasögu kæranda að hún hafi unnið í mánuð í samræmi við leiðbeiningar frá Vinnumálastofnun til þess að hún næði nýju bótatímabili.

Með bréfi, dags. 25. nóvember 2015, var kæranda tilkynnt um að stofnunin hefði ákveðið að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og að hún skyldi ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hún hefði starfað í að minnsta kosti tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði þar sem hún hafi verið að vinna hjá B samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur án þess að tilkynna Vinnumálastofnun um vinnuna. Þá var kærandi krafin um endurgreiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta samtals að fjárhæð 84.140 kr. að meðtöldu 15% álagi á grundvelli 2. mgr. 39. gr. laganna.

Með bréfi, dags. 25. nóvember 2015, óskaði kærandi eftir endurupptöku á málinu. Var mál hennar í kjölfarið tekið fyrir aftur. Var kæranda tilkynnt sú ákvörðun Vinnumálastofnunar að staðfesta fyrri ákvörðun með bréfi, dags. 7. desember 2015.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 11. janúar 2016. Með bréfi, dags. 5. febrúar 2016, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 14. mars 2016. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 22. mars 2016, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust með tölvubréfi, dags. 31. mars 2016, og voru sendar Vinnumálastofnun til kynningar með bréfi, dags. 31. mars 2016. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru kemur fram að í júlí 2015 hafi umsókn kæranda verið hafnað þar sem hún hafi ekki áunnið sér bótarétt að nýju. Það hafi henni þótt skrýtið þar sem hún hafi verið búin að vinna í 24 mánuði og hafi aðeins þurft að bíða til 1. ágúst 2015 til að fá bótarétt að nýju. Hún hafi sent tölvupóst til Vinnumálastofnunar 30. júlí 2015 og spurt nánar út í mál sitt, en einu svörin sem hún hafi fengið hafi verið þau að hún ætti að tala við greiðslustofu Vinnumálastofnunar. Hún hafi farið á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar X 2015 og talað þar við starfsmann. Ráðgjafinn hafi verið afar svartsýnn og tjáð henni að hún væri í vondum málum. Hann hafi bent henni á að hún gæti áunnið sér bótarétt að nýju með því að vinna í einn mánuð til viðbótar til að komast á atvinnuleysisbætur. Kærandi hafi tjáð ráðgjafanum að hún myndi vinna hjá B út ágúst 2015. Kærandi tekur það fram að móðir hennar hafi verið viðstödd þegar hún hafi fengið þessar upplýsingar.

Undir eins hafi kærandi haft samband við fyrri vinnuveitanda sinn og óskað eftir vinnu í einn mánuð. Það hafi gengið eftir og hún hafi fengið X vaktir hjá B. Hún hafi verið með [...] og hafi þurft að vinna næturvaktir. Hún hafi fengið vaktir til X. ágúst 2015 sem hún hafi klárað samviskusamlega til að fá atvinnuleysisbætur.

Kærandi segir að í rökstuðningi Vinnumálastofnunar komi fram að hún hafi sent tölvupóst þann 30. júlí 2015 og að hún hafi vitað að hún hafi mátt sækja um að nýju þann 2. ágúst 2015 en hún hafi mætt á þjónustuskrifstofu þeirra þann X ágúst 2015 og spurt nánar út í sín mál og starfsmaður stofnunarinnar hafi sagt henni að hún yrði að vinna til að fá bætur. Hún sé búin að lenda á villuskrá, bótaréttur hennar hafi minnkað, hún hafi fengið rangar upplýsingar og upplifað missi bóta.

Hún hafi gert þau mistök að tilkynna ekki umræddar tekjur frá B á „Mínum síðum“ á vefsvæði Vinnumálastofnunar þar sem hún taldi að starfsmaður stofnunarinnr hefði skráð þessar upplýsingar inn. Greiðslan sem hún hafi fengið í september hafi verið uppgjör á vinnu í ágúst. Að senda ekki inn launaseðla hafi verið hennar mistök en þetta hafi alls ekki verið ótilkynnt vinna. Sér hafi einnig verið sagt að vinna í einn mánuð og þar að auki hafi hún tilkynnt vinnu á staðnum.

Kærandi segir að ef hún hefði fengið réttar upplýsingar frá starfsmanni þá hefði hún aldrei unnið til að byrja með en hún hafi ekki verið vísvitandi að vinna og fá bætur. Í málinu sé því um orð gegn orði að ræða og telur kærandi að Vinnumálastofnun ætti að taka á sig hluta af ábyrgðinni. Ekkert sé skráð um samskipti kæranda við áðurnefndan starfsmann í samskiptasögu hennar og því sé ómögulegt fyrir hana að sanna hvað hafi farið fram. Sanngjarnt sé að einstaklingurinn fái að njóta vafans í samskiptum við stofnun eins og Vinnumálastofnun.

Í athugasemdum kæranda við greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi mótmæli þeirri staðhæfingu að hún hafi unnið til X 2015 en það sé ekki rétt. Það vanti mjög mikið í samskiptasögu eins og til dæmis að hún hafi mætt á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar X 2015 þar sem henni hafi verið tjáð að hún myndi ekki fá bætur því hún hafi ekki starfað í sex mánuði þegar hún hafi verið í fæðingarorlofi.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að mál þetta lúti að ákvörðun stofnunarinnar um viðurlög samkvæmt 60. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Annar málsliður 60. gr. laganna taki á því þegar atvinnuleitandi starfi á vinnumarkaði, til lengri eða skemmri tíma, samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að hafa uppfyllt skyldu sína samkvæmt 10. gr. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar um að upplýsa Vinnumálastofnun um störf sín.

Í 13. gr. laganna segi jafnframt að það sé skilyrði fyrir því að launamaður teljist vera tryggður í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar að hann sé í virkri atvinnuleit. Í 14. gr. laganna sé að finna nánari útlistun á því hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Ljóst sé að aðili sem starfi á vinnumarkaði geti hvorki talist vera án atvinnu né í virkri atvinnuleit í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Í málinu liggi fyrir að kærandi hafi sótt um atvinnuleysisbætur frá og með 5. ágúst 2015. Þá liggi fyrir launaseðill frá B sem staðfesti að kærandi hafi starfað hjá fyrirtækinu í sama mánuði. Það sé því óumdeilt að kærandi hafi verið við störf á sama tíma og hún hafi verið skráð atvinnulaus hjá Vinnumálastofnun.

Kærandi haldi því fram að henni hafi verið tjáð af fulltrúa Vinnumálastofnunar að hún þyrfti að vinna í mánuð til viðbótar til að eiga rétt á bótum. Þó megi sjá af tölvupósti kæranda frá 30. júlí 2015 að hún hafi gert sér grein fyrir því að ástæða fyrir höfnun á umsókn hennar hafi verið sú að ekki hafi verið liðnir 24 mánuðir frá því að hún fékk síðast atvinnuleysisbætur. Jafnvel þótt kærandi hafi talið að hún þyrfti að vinna í mánuð til viðbótar áður en hún gæti sótt um atvinnuleysisbætur verði ekki horft framhjá því að kærandi hafi starfað á innlendum vinnumarkaði á meðan hún hafi verið skráð atvinnulaus hjá Vinnumálastofnun. Þá beri að líta til þess að með tölvupósti, dags. 5. ágúst 2015, hafi kæranda verið tjáð að hún gæti sótt um atvinnuleysisbætur þar sem nægjanlega langur tími hafi verið liðinn frá því að hún fékk síðast greitt úr sjóðnum. Kærandi hafi í kjölfarið sótt um atvinnuleysisbætur en haldið áfram að vinna hjá B. Í umsókn kæranda frá 5. ágúst 2015 hafi hvergi komið fram að hún væri atvinnulaus frá og með 5. ágúst og að hún gæti hafið störf frá þeim degi. Hvergi í umsókn eða fylgigögnum hafi komið fram að kærandi væri enn við störf. Þá hafi kærandi ekki tilkynnt um vinnu sína til Vinnumálastofnunar.

Vinnumálastofnun telur því að kærandi hafi brugðist skyldum sínum og beri að sæta viðurlögum samkvæmt 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Þar sem kærandi hafi þegið atvinnuleysisbætur á sama tíma og hún hafi verið við störf hjá B hafi hún fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar skuli atvinnuleitandi endurgreiða atvinnuleysisbætur hafi hann fengið hærri atvinnuleysisbætur en hann eigi rétt á að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem viðkomandi hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann hafi ekki uppfyllt skilyrði laganna.

Ofgreiðsla til kæranda vegna þessa máls nemi 44.266 kr. Við þá fjárhæð bætist 15% álag samkvæmt 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun vekur athygli á því að heildarskuld kæranda vegna ofgreiddra atvinnuleysisbóta nemi nú 80.616 kr. Ofan á skuld vegna máls þessa bætist skuld sem hafi myndast í X vegna tekna kæranda hjá C á meðan hún hafi þegið greiðslur atvinnuleysistryggingar.

Með vísan til framangreindra sjónarmiða sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og að henni beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Ágreiningur máls þessa lýtur að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda þar til hún hefur starfað í að minnsta kosti tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði samkvæmt 60. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og krefja kæranda um endurgreiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laganna.

Ákvæði 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, hljóðar svo:

„Sá sem lætur vísvitandi hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða veitir vísvitandi rangar upplýsingar sem leiða til þess að hann telst ranglega tryggður að fullu eða að hluta samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en hann sækir aftur um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. eða um tilfallandi vinnu skv. 35. gr. a. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Af gögnum málsins verður ráðið að hin kærða ákvörðun sé byggð á 2. málsl. 60. gr. laganna. Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 15. mars 2016 (E-2547/2015) var leyst úr ágreiningi sem varðaði ákvörðun Vinnumálastofnunar um beitingu viðurlaga samkvæmt 2. málsl. 60. gr. laganna. Í dóminum var fjallað ítarlega um túlkun framangreinds ákvæðis. Í niðurstöðunni segir meðal annars svo:

„Samkvæmt framangreindu verður fallist á þá efnislegu niðurstöðu umboðsmanns Alþingis, í fyrrgreindu áliti hans, að miða verði við að í verknaðarlýsingu 2. málsliðar 60. gr. laga nr. 54/2006 felist krafa um atvinnuleitandi hafi ætlað að afla sér atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti. Af hálfu stefndu er því ómótmælt að mál stefnanda hafi ekki verið rannsakað sérstaklega með hliðsjón af huglægri afstöðu hans, enda byggir málatilbúnaður þeirra á því að slík afstaða hafi ekki haft þýðingu um meðferð og niðurstöðu stjórnsýslumálsins. Að virtri framagreindri niðurstöðu um skýringu 2. málsliðar 60. gr. laga nr. 54/2006 liggur þannig fyrir að verulegir annmarkar voru á málsmeðferð stefnda Vinnumálastofnunar og úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga svo og rökstuðningi ákvarðana. Er jafnframt ljóst að umræddir annmarkar voru til þess fallnir að hafa áhrif á niðurstöðu málsins. Verður því að fallist á kröfu stefnanda um að umræddar stjórnvaldsákvarðanir stefndu Vinnumálastofnunar og úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga um sviptingu bótaréttar stefnanda verði felldar úr gildi.“ 

Samkvæmt framangreindu er það skilyrði fyrir beitingu viðurlaga á grundvelli 2. málsl. 60. gr. að atvinnuleitandi hafi aflað sér atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti. Úrskurðarnefnd velferðarmála telur að af gögnum málsins verði ráðið að Vinnumálastofnun hafi beitt kæranda viðurlögum á grundvelli framangreinds ákvæðis þar sem hún hafi starfað á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hún hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur án þess að hafa tilkynnt stofnuninni um vinnuna. Því virðist huglæg afstaða kæranda ekki hafa verið könnuð áður en ákvörðun um beitingu viðurlaga var tekin. Með hliðsjón af framangreindu er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála að málið hafi ekki verið nægjanlega upplýst áður en Vinnumálastofnun tók hina kærðu ákvörðun, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Því verður ekki hjá því komist að fella hina kærðu ákvörðun úr gildi og vísa málinu til baka til mats á því hvort kærandi hafi aflað sér atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti.

Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið er ákvörðun Vinnumálastofnunar um beitingu viðurlaga og innheimtu ofgreiddra bóta felld úr gildi og málinu vísað aftur til stofnunarinnar til nýrrar meðferðar.


Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 7. desember 2015, í máli A, um að staðfesta fyrri ákvörðun um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda þar til hún hefur starfað í að minnsta kosti tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði og innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta samtals að fjárhæð 84.140 kr. að meðtöldu 15% álagi, er felld úr gildi. Málinu er vísað aftur til stofnunarinnar til nýrrar meðferðar.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta