Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 22/2012

Úrskurður

 

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 8. janúar 2013 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 22/2012.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

 

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 19. janúar 2012, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að samkvæmt upplýsingum stofnunarinnar hafi hún verið stödd erlendis á tímabilinu frá 18. desember 2011 til 6. janúar 2012 og hafi því ekki uppfyllt skilyrði þess að fá greiddar atvinnuleysisbætur á því tímabili. Vinnumálastofnun tilkynnti kæranda jafnframt, að þar sem hún hafi látið hjá líða að veita upplýsingar um dvöl sína erlendis skv. 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, hafi stofnunin tekið ákvörðun um að fella niður bótarétt hennar í þrjá mánuði, en vegna starfsloka kæranda hjá B sætti hún ítrekunaráhrifum skv. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 31. janúar 2012. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun telur að hin kærða ákvörðun sé rétt.

 

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 17. ágúst 2011.

 

Vinnumálastofnun barst rafræn staðfesting á atvinnuleit á kennitölu kæranda frá C 20. desember 2011. Í kjölfarið sendi Vinnumálastofnun kæranda bréf, dags. 29. desember 2011, þar sem óskað var eftir skýringum á dvöl hennar erlendis. Kærandi sendi skriflegar skýringar á dvöl sinni ásamt afriti af farseðli 7. janúar 2012. Á farseðlinum kemur fram að kærandi dvaldi í C á tímabilinu frá 18. desember 2011 til 6. janúar 2012, en kærandi tók fram að hún hafi verið að heimsækja fjölskyldu sína yfir jólin. Mál kæranda var tekið fyrir á fundi Vinnumálastofnunar 18. janúar 2012 og skýringar kæranda teknar til skoðunar. Var sú ákvörðun tekin að fella niður bótarétt hennar í þrjá mánuði á grundvelli 59., sbr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, en kærandi hafði áður sætt niðurfellingu bótaréttar 3. nóvember 2010 vegna starfsloka sinna hjá B eins og fram hefur komið. Vinnumálastofnun tilkynnti kæranda ákvörðun stofnunarinnar með bréfi, dags. 19. janúar 2012.


Í kæru til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 31. janúar 2012, greinir kærandi frá því að fjölskylda hennar sé búsett í C og hún hafi farið þangað til að geta verið hjá þeim yfir jólahátíðina. Hún hafi ekki vitað að hún þyrfti að gera grein fyrir ferðinni sem sjáist meðal annars á því að hún hafi staðfest atvinnuleysi sitt á Netinu frá C. Kærandi telur vegið að persónufrelsi hennar þar sem hún hafi ekki mátt eyða jólunum með fjölskyldunni sinni sem hafi gefið henni ferðina í jólagjöf. Hún hafi talið sig eiga rétt á jólafríi eins og aðrir. Hefði henni boðist starf á meðan þá hefði hún farið heim. Kærandi greinir frá því að eftir að hafa kynnt sér reglur Vinnumálastofnunar geri hún sér grein fyrir því að hún hafi brotið þær reglur, en hún hafi ekki vitað betur. Hún hafi ekki neitað að gefa upplýsingar heldur hafi þær borist tveimur dögum of seint en það hafi stafað af því að hún hafi ekki opnað bréf stofnunarinnar fyrr en hún kom heim. Hún hafi sent inn skýringar samdægurs. Kærandi fer fram á að ákvörðun um að fella niður bótarétt hennar í þrjá mánuði verði felld úr gildi en í staðinn verði dregnar af henni greiðslurnar sem hún hefði átt að fá fyrir tímabilið sem hún var í C. Hún fer einnig fram á að fá greitt fyrir þann tíma sem hún var á bið. Þá bendir kærandi á rétt fólks til að útskýra mál sitt áður en ákvarðanir eru teknar.

 

Í greinargerð til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 14. maí 2012, vísar Vinnumálastofnun til c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, þar sem mælt er fyrir um að umsækjandi um greiðslur atvinnuleysistrygginga þurfi að vera búsettur og staddur hér á landi til að teljast tryggður samkvæmt lögunum. Vinnumálastofnun vísar einnig til 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, þar sem mælt er fyrir um upplýsingaskyldu umsækjanda til Vinnumálastofnunar, en atvinnuleitanda ber skylda til þess að upplýsa Vinnumálstofnun um allar þær breytingar sem kunna að verða á högum hans eða annað sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar. Stofnunin bendir á að í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 37/2009 til breytinga á lögum um atvinnuleysistryggingar, komi meðal annars fram að láti atvinnuleitandi hjá líða að veita Vinnumálstofnun nauðsynlegar upplýsingar eða veiti rangar upplýsingar, komi til álita að beita viðurlögum skv. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun áréttar að einnig sé mælt fyrir um þessa upplýsingaskyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysistrygginga í 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistrygginga. Þar segi að atvinnuleitanda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum. Jafnframt komi þessar upplýsingar fram á heimasíðu stofnunarinnar.

 

Vinnumálastofnun bendir á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem kveðið er á um viðurlög við brotum á upplýsingaskyldu hins tryggða.

 

Vinnumálastofnun áréttar að í 13. og 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er skýrt kveðið á um þá skyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysistrygginga, að vera í virkri atvinnuleit. Sé það jafnframt gert að skilyrði að umsækjandi sé staddur hér á landi, sbr. c-lið 1. mgr. 13. gr. laganna. Óumdeilt sé að kærandi var stödd erlendis á sama tíma og hún var skráð atvinnulaus. Samkvæmt flugfarseðli var hún stödd í C á tímabilinu frá 18. desember 2011 til 16. janúar 2012.

 

Vinnumálastofnun bendir á að kærandi hafi ekki tilkynnt fyrirfram um utanlandsferðina líkt og henni hafi borið skv. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun bendir einnig á að í skýringarbréfi kæranda reki hún ástæðu þess að hún fór erlendis og í kæru bendi hún á að hún hafi verið grunlaus um að hún hafi ekki mátt fara erlendis. Þá hafi hún viðurkennt í kæru að eftir að hafa kynnt sér gildandi lög og reglur hafi hún brotið gegn þeim með því að tilkynna ekki fyrirfram um ferðir sínar. Vinnumálastofnun bendir á að margsinnis hafi verið vakin athygli á því að eitt af skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta sé að atvinnuleitandi sé búsettur og staddur hér á landi og ótilkynntar ferðir til útlanda séu óheimilar.

 

Niðurstaða Vinnumálastofnunar er því að kærandi skuli sæta biðtíma í þrjá mánuði frá ákvörðunardegi, sbr. 59., sbr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 21. maí 2012, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 4. júní 2012. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 


 

2.

Niðurstaða

 

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, eins og henni var breytt með 22. gr. laga nr. 134/2009 og 3. gr. laga nr.153/2010, en hún er svohljóðandi:

 

Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.

 

Þetta ákvæði þarf meðal annars að túlka með hliðsjón af því að eitt af skilyrðum þess að geta haldið rétti sínum í atvinnuleysistryggingakerfinu er að vera búsettur og staddur hér á landi, sbr. c-lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 

Kærandi hefur staðfest að hún var stödd erlendis frá 18. desember 2011 til 6. janúar 2012, en hún tilkynnti Vinnumálastofnun ekki fyrirfram að hún yrði ekki stödd á landinu á umræddu tímabili. Kærandi hefur fært fram þau rök að henni hafi ekki verið kunnugt um að atvinnuleitendum beri skylda til að tilkynna Vinnumálastofnun um utanlandsferðir fyrirfram. Engum gögnum er til að dreifa sem styðja þessa fullyrðingu. Fram hefur komið í máli Vinnumálastofnunar að margsinnis hafi verið vaktin athygli á þessu og sérstaklega sé fjallað um þessi atriði á heimasíðu stofnunarinnar. Einnig verður til þess að líta að tíðkanlegt er að launþegar upplýsi vinnuveitendur sínar um fjarvistir vegna dvalar erlendis en réttarsamband atvinnuleitanda og Vinnumálastofnunar er um sumt eðlislíkt því sem er á milli launþega og vinnuveitanda. Í ljósi framanritaðs og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram um þennan þátt málsins, verður talið að Vinnumálastofnun hafi veitt kæranda fullnægjandi leiðbeiningar í skilningi 1. mgr. 7. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Enn fremur er það mat úrskurðarnefndar að ekki hafi verið brotið gegn andmælarétti kæranda, sbr. 13. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, þar sem henni var með bréfi, dags. 29. desember 2011, gefinn kostur á að skila skýringum á dvöl sinni erlendis til Vinnumálastofnunar innan sjö daga frá dagsetningu bréfsins. Kærandi skilaði skýringum sínum 7. janúar 2012 þannig að þær lágu fyrir er ákvörðun Vinnumálastofnunar var tekin 18. janúar 2012.

 

Í ljósi þeirrar upplýsingaskyldu atvinnuleitenda sem kveðið er á um í 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, verður fallist á að kærandi hafi brotið gegn trúnaðarskyldum sínum gagnvart Vinnumálastofnun í umrætt sinn, er hún hélt af landi brott án þess að láta vita af því fyrirfram. Því bar Vinnumálastofnun að láta hana sæta viðurlögum skv. 1. mgr. 59. gr. laganna.

 

Með vísan til framangreinds og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram fyrir hinni kærðu ákvörðun, verður hún staðfest.

 

 

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 18. janúar 2012 í máli A um niðurfellingu bótaréttar hennar í þrjá mánuði er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta