Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 179/2024-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 179/2024

Miðvikudaginn 10. júlí 2024

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 18. apríl 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. apríl 2024, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 1. maí 2023 og var umsóknin samþykkt 11. maí 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. apríl 2024, var kæranda tilkynnt að réttur hans til atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði ekki tilkynnt stofnuninni um tilfallandi tekjur eða vinnu. Kæranda var jafnframt tilkynnt að hann hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 973.060 kr., að meðtöldu 15% álagi, sem yrðu innheimtar samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006. Í kjölfar endurupptökubeiðni kæranda staðfesti Vinnumálastofnun fyrri ákvörðun sína 31. maí 2024.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 18. apríl 2024. Með bréfi, dags. 23. apríl 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 6. júní 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 11. júní 2024. Athugasemdir bárust ekki. Með erindi úrskurðarnefndar, dags. 18. júní 2024, var óskað eftir tilteknum gögnum frá Vinnumálastofnun vegna kærumálsins. Sú beiðni var ítrekuð 2. júlí 2024. Umbeðin gögn og skýringar bárust 3. júlí 2024.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru greinir kærandi frá því að honum hafi verið gert að endurgreiða allar atvinnuleysisbætur sem hann hafi fengið í þrjá mánuði þar sem hann hefði ekki tilkynnt um tekjur fyrir þá mánuði. Hann óski eftir því að bæta fyrir þau mistök vegna þess að tekjurnar hafi verið svo lágar.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslur atvinnuleysistrygginga þann 1. maí 2023. Með bréfi, dags. 11. maí 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt með 100 bótarétti%.

Í kjölfar reglulegs eftirlits Vinnumálastofnunar hafi komið í ljós að kærandi hafi verið með ótilkynntar tekjur í maí 2023 frá B, auk þess að hafa verið með opna launagreiðendaskrá í október 2023. Með erindi, dags. 10. apríl 2024, hafi þess verið óskað að kærandi veitti stofnuninni skýringar vegna umræddra tekna, auk afrits af launaseðlum. Kærandi hafi sent umbeðin gögn með tölvupósti, dags. 11. apríl 2024, vegna tekna í maí 2023 en kveðist ekki vita hvar hann ætti að nálgast gögn um síðarnefnda tímabilið.

Með erindi, dags. 18. apríl 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að þar sem hann hefði látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um nauðsynlegar upplýsingar sem hefðu áhrif á rétt hans til atvinnuleysistrygginga væri bótaréttur hans felldur niður frá og með þeim degi í tvo mánuði. Sú ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Jafnframt hafi kæranda verið tilkynnt að samkvæmt fyrirliggjandi gögnum í máli hans hefði hann fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur, samtals að fjárhæð 973.060 kr., að álagi meðtöldu, sem yrðu innheimtar samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laganna. Ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála sama dag.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Kærð sé ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. apríl 2024, þess efnis að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, auk þess að vera gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysistryggingar sökum þess að hann hafi ekki tilkynnt stofnuninni um tekjur sínar í maí 2023 og ekki upplýst um opnun launagreiðendaskrár í október, nóvember og desember 2023.

Fyrir liggi að kærandi hafi hvorki upplýst Vinnumálastofnun um tekjur sínar frá B né veitt skýringar á opinni launagreiðendaskrá frá október 2023 til loka desembermánaðar sama ár. Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé rík áhersla lögð á upplýsingaskyldu atvinnuleitanda gagnvart Vinnumálastofnun. Þannig beri atvinnuleitanda meðal annars að tilkynna stofnuninni um allar breytingar á aðstæðum sem gætu haft áhrif á rétt viðkomandi til greiðslu atvinnuleysisbóta, sbr. 2. mgr. 14. gr. laganna. Í 3. mgr. 9. gr. sé sérstaklega kveðið á um skyldu atvinnuleitanda til að tilkynna stofnuninni um tekjur vegna tilfallandi vinnu. Þar segi orðrétt:

„Sá sem telst tryggður á grundvelli laga þessara skal upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir.“

Málið varði einnig ofgreiðslu atvinnuleysistrygginga til kæranda á tímabilinu 1. október 2023 til 31. desember 2023 sökum þess að kærandi hafi verið með opinn rekstur á tímabilinu.

Fjallað sé um sjálfstætt starfandi einstaklinga í 3. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sem hljóði svo:

„Hver sá sem starfar við eigin atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi í því umfangi að honum sjálfum er gert að standa mánaðarlega, eða með öðrum reglulegum hætti samkvæmt reglum ríkisskattstjóra um reiknað endurgjald, skil á staðgreiðslu af reiknuðu endurgjaldi og tryggingagjaldi vegna starfs síns.“

Samkvæmt f. og g. lið 18. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé eitt af skilyrðum fyrir atvinnuleysistryggingum atvinnuleitanda að hann hafi stöðvað rekstur og leggi fram staðfestingu um stöðvun reksturs, sbr. 20. og 21. gr. laga nr. 54/2006.

20. gr. laga nr. 54/2006 sé svohljóðandi:

„Sjálfstætt starfandi einstaklingur, sbr. b-lið 3. gr., telst hafa stöðvað rekstur hafi hann tilkynnt til launagreiðendaskrár ríkisskattstjóra að hann hafi stöðvað rekstur og að öll starfsemi hafi verið stöðvuð. Þegar metið er hvort starfsemi hafi verið stöðvuð skal líta til hreyfinga í virðisaukaskattsskrá ríkisskattstjóra. Heimilt er að taka tillit til hreyfinga í virðisaukaskattsskrá vegna eignasölu enda hafi sjálfstætt starfandi einstaklingur lagt fram yfirlýsingu þess efnis að hann hyggist hætta rekstri.

Enn fremur telst sjálfstætt starfandi einstaklingur hafa stöðvað rekstur hafi hann tilkynnt skráningarnúmer sitt af skrá, sýnt fram á að atvinnutæki hafi verið seld eða afskráð, reksturinn framseldur öðrum eða hann hafi verið tekinn til gjaldþrotaskipta.“

Þá hljóði 21. gr. laganna svo:

„Sjálfstætt starfandi einstaklingur, sbr. b-lið 3. gr., skal leggja fram staðfestingu á því að hann hafi stöðvað rekstur skv. 20. gr. Staðfestingin skal fela í sér:

a. yfirlýsingu um að öll starfsemi hafi verið stöðvuð og ástæður þess, og

b. afrit af tilkynningu til launagreiðendaskrár ríkisskattstjóra um að rekstur hafi verið stöðvaður, vottorð frá skattyfirvöldum um að skráningarnúmer hans hafi verið tekið af skrá eða önnur viðeigandi gögn frá opinberum aðilum er staðfesta kunna stöðvun rekstrar.“

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum í máli þessu hafi kærandi verið með opinn rekstur er hann hafi þegið greiðslur atvinnuleysisbóta í október, nóvember og desember 2023. Á þeim tíma sem kærandi hafi þegið greiðslur úr atvinnuleysistryggingasjóði hafi hann aldrei skráð tilfallandi störf né upplýst um verktakavinnu á „Mínum síðum“ stofnunarinnar.

Í ljósi skýrra fyrirmæla í lögum telji Vinnumálastofnun sér ekki heimilt að greiða einstaklingum atvinnuleysisbætur á meðan þeir séu með opinn rekstur, enda uppfylli þeir ekki skilyrði laganna, sbr. 18., 20., og 21. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ljóst sé að kærandi hafi verið með opna launagreiðendaskrá frá 1. október 2023 á meðan hann hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur allt þar til hann hafi verið afskráður í janúar 2024. Beri honum því að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir þann tíma, samtals að fjárhæð 973.060 kr., að meðtöldu álagi. Sú niðurstaða byggi einnig á 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 sem hljóði svo:

„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“

Í kæru til úrskurðarnefndarinnar skýri kærandi frá því að honum sé gert að endurgreiða þrjá mánuði og hann óski eftir því að bæta fyrir þau mistök að hafa ekki tilkynnt um tekjurnar á grundvelli þess að þær hafi verið lágar. Líkt og fyrr segi hafi kærandi verið með opna launagreiðendaskrá á sama tímabili og hann hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur. Kærandi hafi aldrei veitt upplýsingar um tímabil sem hann hafi tekið að sér tilfallandi verktakavinnu. Þá hafi kærandi engum reikningum skilað til stofnunarinnar né gert tilraunir til að nálgast frekari skýringar eða aðstoð við skráningar, aðrar en þær almennu sem honum hafi verið veittar í upphafi umsóknarferlis. Í málsgögnum sé ekki að finna útlistanir á þeim leiðbeiningum sem kæranda hafi verið veittar aðrar en þær almennu sem hafi verið sendar til hans þann 4. maí 2023 við upphaf síðasta umsóknarferlis, en þar áður, 4. maí 2022, hafi honum verið sent sambærilegt erindi.

Vinnumálastofnun upplýsi almenna atvinnuleitendur um að óheimilt sé að starfa við rekstur á eigin kennitölu og að viðkomandi þurfi að skrá sig af atvinnuleysisbótum þá daga sem verkefni standi yfir. Þá séu atvinnuleitendur upplýstir um það að óheimilt sé að vera skráður á launagreiðendaskrá ríkisskattstjóra samhliða greiðslu atvinnuleysistrygginga. Þegar umsókn um atvinnuleysistryggingar beri með sér að kærandi hafi áður starfað við eigin rekstur eða umsækjandi haki við að hann hafi verið með atvinnurekstur á síðastliðnum mánuðum fyrir umsóknardag sé viðkomandi gert að undirrita yfirlýsingu um rekstrarstöðvun og skila inn viðeigandi skjölum frá Ríkisskattstjóra áður en umsókn hans sé samþykkt. Umsókn kæranda hafi ekki borið með sér að hann hefði verið með opinn rekstur á eigin kennitölu. Ríkisskattstjóri geri ekki kröfu um að einstaklingar tilkynni um rekstur sinn sé umfang starfseminnar svo óverulegt að reiknað endurgjald sé lægra en ákveðið viðmið á ári. Í slíkum tilfellum séu laun aðeins talin fram á skattframtali einstaklings. Atvinnuleitendur hafi því getað stundað tilfallandi verktakavinnu án þess að skrá sig á launagreiðendaskrá svo lengi sem þeir afskrái sig hjá stofnuninni þegar vinna fari fram. Þeir sem taki að sér stærri verkefni eða séu með viðvarandi starfsemi þurfi að standa regluleg skil á reiknuðu endurgjaldi og þurfi ávallt að opna og loka rekstri á meðan vinna standi yfir. Vinnumálastofnun fallist hvorki á að leiðbeiningar til kæranda hafi verið ófullnægjandi né að skortur á upplýsingum til atvinnuleitenda skuli leiða til þess að þeir eigi rétt á atvinnuleysisbótum þvert á skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar.

Vinnumálastofnun árétti að upplýsingaskylda atvinnuleitanda sé ítrekuð á öllum stigum umsóknarferlis um atvinnuleysisbætur. Við upphaf umsóknar sé atvinnuleitendum kynnt margvísleg atriði er varði réttindi og skyldur, þar á meðal upplýsingaskyldu. Í lok umsóknarferlis staðfesti allir atvinnuleitendur að þeir hafi kynnt sér þau atriði. Þá sé á heimasíðu Vinnumálastofnunar að finna ítarlegar upplýsingar til handa atvinnuleitendum um skyldur þeirra sem hafi þegið tekjur samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta og hvernig eigi að skrá slíkar tekjur. Þá sé atvinnuleitendum ekki síður gert ljóst að verktakavinnu beri að tilkynna og að opnun launagreiðendaskrár sé óheimil.

Í ljósi framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki uppfyllt upplýsingaskyldu sína samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Af þeirri ástæðu hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. sömu laga, en ákvæðið hljóði svo:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum í tvo mánuði. Að auki hafi ofgreiddar atvinnuleysisbætur verið innheimtar, samtals að fjárhæð 973.060 kr.

Eins og áður segi hafi kærandi þegið laun í maí 2023 frá B, að fjárhæð 161.144 kr. Tekjur kæranda teljist til uppgjörs við starfslok og greiðslna utan tímabils sem hann hafi þegið greiðslur úr atvinnuleysistryggingasjóði og komi því ekki til frádráttar atvinnuleysisbótum í samræmi við 1. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Í 2. mgr. 39. gr. sé kveðið á um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“

Í framangreindu ákvæði sé mælt fyrir um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Í athugasemdum með 39. gr. í frumvarpi því sem hafi orðið að lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslunnar hafi með öðrum orðum ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð sem hafi verið ofgreidd. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé því fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur.

Heildarskuld kæranda hafi verið 973.060 kr. og þar af sé álag að fjárhæð 126.921 kr., en skuldajöfnun í síðar tilkomnum greiðslum hafi ekki átt sér stað þar sem kærandi hafi verið afskráður áður en ákvörðun stofnunarinnar um skuldamyndun hafi verið tekin.

Eins og kveðið sé á um í lokamálslið 2. mgr. 39. gr. skuli fella niður álagið færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er hafi leitt til skuldamyndunar. Í þessu samhengi vísi Vinnumálastofnun til þess sem að framan hafi verið rakið. Það sé mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki uppfyllt upplýsingaskyldu sína gagnvart stofnuninni, sbr. 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ein meginskylda atvinnuleitanda sé að tilkynna stofnuninni um allar tekjur og skýr fyrirmæli sé að finna þess efnis að slíkt skuli gera í gegnum ,,Mínar síður“ atvinnuleitanda. Jafnframt vísi Vinnumálastofnun til þess að það sé á ábyrgð þess er fái greiddar atvinnuleysisbætur að tryggja að Vinnumálastofnun berist nauðsynlegar upplýsingar er geti haft áhrif á rétt hans til greiðslu atvinnuleysisbóta. Í ljósi framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að ekki sé tilefni til að fella niður álag á skuld kæranda.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og að honum beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Ákvæðið ber meðal annars að túlka með hliðsjón af ákvæði 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 en samkvæmt því skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., án ástæðulausrar tafar.

Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var með tekjur í maí 2023 frá B samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta frá Vinnumálastofnun. Þær upplýsingar bárust Vinnumálastofnun í kjölfar reglulegs eftirlits stofnunarinnar í apríl 2024 og kom þá einnig í ljós að kærandi hafði verið með opna launagreiðendaskrá á árinu 2023. Kærandi hefur vísað til þess að hann hafi ekki tilkynnt um tekjur sökum þess að þær hafi verið svo lágar.

Þann 1. maí 2023 var kæranda tilkynnt að Vinnumálastofnun hefði móttekið umsókn hans um atvinnuleysisbætur. Kæranda var greint frá því að upplýsa þyrfti um allar breytingar á persónulegum högum inni á „Mínum síðum“. Einnig þyrfti að upplýsa um allar tekjur, hlutastarf, tilfallandi vinnu og fjármagnstekjur. Þá var kæranda bent á að ítarlegri upplýsingar um réttindi hans og skyldur væri að finna á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Á heimasíðu Vinnumálastofnunar er að finna kennslumyndband um hvernig tilkynna beri um tilfallandi vinnu eða tekjur á „Mínum síðum“. Þar er meðal annars tiltekið að nauðsynlegt sé að tilkynna Vinnumálastofnun um alla launaða vinnu og allar tekjur sem atvinnuleitandi fái samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta. Tilkynna þurfi vinnu með að minnsta kosti dags fyrirvara en ekki sé gerð krafa um að skila launaseðli vegna tilfallandi vinnu eða hlutastarfs. Með hliðsjón af framangreindu telur úrskurðarnefndin að kærandi hefði mátt vita, eða að minnsta kosti haft tilefni til þess að afla sér frekari upplýsinga um skyldu sína til að tilkynna Vinnumálastofnun fyrir fram um framangreindar tekjur með viðeigandi hætti.

Í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hann tilkynnti stofnuninni hvorki fyrir fram um þær tekjur sem hann fékk í maí 2023 né um opna launagreiðendaskrá. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti.

Mál þetta lýtur einnig að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að innheimta ofgreiddar bætur fyrir tímabilið október til desember 2023 með vísan til þess að kærandi hefði verið með opna launagreiðendaskrá á því tímabili.

Eitt af skilyrðum fyrir atvinnuleysistryggingum sjálfstætt starfandi einstaklinga er að hafa stöðvað rekstur og leggja fram staðfestingu um slíka stöðvun, sbr. f. og g. liði 1. mgr. 18. gr. laga nr. 54/2006. Í 20. gr. laganna kemur fram að sjálfstætt starfandi einstaklingur telst hafa stöðvað rekstur hafi hann tilkynnt til launagreiðendaskrár Ríkisskattstjóra að hann hafi stöðvað rekstur og að öll starfsemi hafi verið stöðvuð. Enn fremur telst sjálfstætt starfandi einstaklingur hafa stöðvað rekstur hafi hann tilkynnt skráningarnúmer sitt af skrá, sýnt fram á að atvinnutæki hafi verið seld eða afskráð, reksturinn framseldur öðrum eða hann hafi verið tekinn til gjaldþrotaskipta. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sjálfstætt starfandi einstaklingur leggja fram staðfestingu á því að hann hafi stöðvað rekstur og skal staðfestingin fela í sér yfirlýsingu um að öll starfsemi hafi verið stöðvuð og ástæður þess og afrit af tilkynningu til launagreiðendaskrár Ríkisskattstjóra um að rekstur hafi verið stöðvaður, vottorð frá skattyfirvöldum um að skráningarnúmer hans hafi verið tekið af skrá eða önnur viðeigandi gögn frá opinberum aðilum er staðfesta kunna stöðvun rekstrar.

Með erindi til Vinnumálastofnunar, dags. 18. júní 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir gögnum frá Skattinum sem staðfestu að kærandi hefði verið með opna launagreiðendaskrá. Samkvæmt yfirliti sem barst nefndinni var kærandi með opna launagreiðendaskrá í nóvember og desember 2023. Í skýringum Vinnumálastofnunar til nefndarinnar varðandi októbermánuð 2023 kom meðal annars fram að Skatturinn hefði þann mánuð tekið við gjöldum af reiknuðu endurgjaldi án þess þó að opna launagreiðendaskrá fyrir það tímabil. Kærandi hefði því verið með opinn rekstur í þeim mánuði.

Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann hafi átt rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið, að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fyrir liggja gögn frá Skattinum um að kærandi hafi verið með opna launagreiðendaskrá samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta í nóvember og desember 2023. Ljóst er samkvæmt framangreindum lagaákvæðum að kærandi uppfyllti ekki skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögum nr. 54/2006 á því tímabili og átti því ekki rétt á greiðslum frá Vinnumálastofnun. Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir nóvember og desember 2023 er því staðfest. Að mati úrskurðarnefndarinnar er ekki tilefni til að fella niður álagið sem Vinnumálastofnun lagði á endurgreiðslukröfuna þar sem kærandi tilkynnti ekki stofnuninni að hann væri með opna launagreiðendaskrá. Hvað varðar októbermánuð 2023 liggja að mati úrskurðarnefndar ekki fyrir fullnægjandi gögn sem staðfesta að kærandi hafi verið með opna launagreiðendaskrá þann mánuð eins og Vinnumálastofnun hefur vísað til. Með vísan til þess er sá hluti hinnar kærðu ákvörðunar felldur úr gildi og vísað til nýrrar meðferðar stofnunarinnar.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. apríl 2024, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir nóvember og desember 2023, er staðfest. Ákvörðun stofnunarinnar um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta fyrir október 2023 er felld úr gildi og þeim hluta málsins vísað til nýrrar meðferðar.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta