Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 246/2022-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 246/2022

Fimmtudaginn 25. ágúst 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 9. maí 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 6. apríl 2022, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun þann 26. janúar 2021. Með ákvörðun, dags. 16. mars 2021, var kæranda tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og bótaréttur metinn 98%. Þann 28. mars 2022 bárust Vinnumálastofnun upplýsingar um að kærandi hefði hafnað starfi hjá B og daginn eftir bárust stofnuninni upplýsingar um að kærandi hefði ekki mætt í boðað viðtal hjá C Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 30. mars 2022, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda vegna höfnunar á starfi hjá B og hvers vegna hún hefði ekki mætt í boðað viðtal hjá C. Skýringar bárust ekki. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 6. apríl 2022, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Kærandi sendi Vinnumálastofnun ný gögn 4. maí 2022 og var mál hennar því endurupptekið. Kæranda var tilkynnt samdægurs að fyrri ákvörðun í máli hennar væri staðfest. Þann 5. maí 2022 bárust frekari gögn og skýringar frá kæranda. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 10. maí 2022, var kæranda tilkynnt að beiðni hennar um endurupptöku máls væri synjað.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 9. maí 2022. Með bréfi, dags. 11. maí 2022, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar ásamt gögnum málsins. Sú beiðni var ítrekuð 21. júní 2022. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 23. júní 2022 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 24. júní 2022. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hún hafi látið Vinnumálastofnun vita í lok mars 2022 að hún færi í fullt starf 2. maí. Kærandi hafi fengið samþykktan vinnusamning í gegnum D 12. apríl og viku seinna hafi hún fengið að vita að hún ætti ekki rétt á honum. Kærandi hafi hafnað störfum vegna þess að hún hafi verið komin með fulla vinnu. Greiðslustofa og fleiri deildir hjá Vinnumálastofnun virðist ekki tala neitt saman því að hún hafi látið vita að hún væri með vinnu frá 2. maí. Kærandi tekur fram að hún sé ekki heldur sátt við að fá eingöngu 75% bótarétt þar sem hún sé eigandi fyrirtækis. Vegna Covid hafi kærandi ekkert verið að vinna hjá því fyrirtæki og einu greiðslurnar sem hún hafi fengið séu frá Vinnumálastofnun frá því í apríl 2021.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 26. janúar 2021. Með erindi, dags. 16. mars 2021, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur hennar væri 98%. Greiðslur hafi verið samþykktar frá 3. nóvember 2020.

Þann 23. mars 2022 hafi ferilskrá kæranda verið send á atvinnurekenda, C. Yfirskrift starfsins hafi verið pökkun, þrif og útkeyrsla. Atvinnurekandi hafi svarað tillögu að starfsmanni þann 29. mars þar sem fram hafi komið að kærandi hefði ekki mætt í boðað viðtal. Ferilskrá kæranda hafi einnig verið send á atvinnurekenda, B, þann 24. mars. Yfirskrift starfsins hafi verið afgreiðsla. Atvinnurekandi hafi svarað tillögu að starfsmanni þann 28. mars 2022 þar sem fram hafi komið að kærandi hefði hafnað starfinu af þeirri ástæðu að hún væri í fullu starfi á öðrum stað.

Með erindi, dags. 30. mars 2022, hafi verið óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda vegna höfnunar á starfi hjá B og hvers vegna hún hafi ekki mætt í boðað atvinnuviðtal hjá C. Athygli kæranda hafi jafnframt verið vakin á því að hafi atvinnuleitandi hafnað atvinnutilboði eða atvinnuviðtali án gildra ástæðna gæti hann þurft að sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga eða missi bótaréttar með vísan til 57. og 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Veittur hafi verið sjö daga frestur til að skila umbeðnum gögnum.

Vinnumálastofnun hafi fjallað um mál kæranda 6. apríl. Skýringar kæranda hafi ekki legið fyrir. Kærandi hafi verið upplýst um að þar sem hún hafi hafnað atvinnutilboði hjá B og vegna fjarveru hennar í atvinnuviðtali hjá C væru greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar stöðvaðar. Kæranda hafi verið gert að sæta niðurfellingu bótaréttar í tvo mánuði sem ella hefðu verið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir. Sú ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kærandi hafi þann 4. maí 2022 sent inn staðfestingu á starfstímabili ásamt ráðningarsamningi vegna 100% starfs hjá D með upphafsdegi ráðningar þann 2. maí 2022. Frekari gögn eða skýringar kæranda hafi ekki borist. Þann 4. maí 2022 hafi Vinnumálastofnun fjallað um mál kæranda að nýju með tilliti til nýrra gagna. Það hafi verið mat stofnunarinnar að staðfesta bæri fyrri ákvörðun í málinu frá 6. apríl 2022, enda hefði sú ákvörðun að geyma efnislega rétta niðurstöðu, þrátt fyrir að ný gögn hefðu borist.

Skýringar kæranda ásamt afriti úr staðgreiðsluskrá fyrir tekjuárin 2021 og 2022 hafi borist 5. maí 2022. Kærandi hafi sagst hafa reynt að ná inn til stofnunarinnar í dágóðan tíma hvað varðaði greiðslur til hennar, auk þess sem hún hafi í lok mars upplýst stofnunina um að hún myndi hefja fullt starf 2. maí 2022 og því hefði hún hafnað umræddum störfum. Á fundi þann 10. maí 2022 hafi Vinnumálastofnun fjallað um beiðni kæranda um að mál hennar yrði tekið fyrir að nýju með tilliti til nýrra gagna. Það hafi verið mat stofnunarinnar að beiðnin gæfi ekki tilefni til endurupptöku, enda hefði ekki komið fram upplýsingar sem gætu haft þýðingu í málinu. Ekki hafi verið séð að ákvörðun frá 4. maí 2022 hafi verið byggð á röngum eða ófullnægjandi upplýsingum og kæmi því ekki til endurupptöku á málinu.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Mál þetta lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslu atvinnuleysistrygginga til kæranda vegna höfnunar á starfi og að sinna ekki boðun í atvinnuviðtal.

Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð á meðan þeir séu að leita sér að nýju starfi. Með þessu sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Gert sé ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðubúnir að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu. Ríkar kröfur beri að gera til þeirra sem hafni starfi á innlendum vinnumarkaði um að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að hann sé í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 1. mgr. 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi, án sérstaks fyrirvara, óháð því hvort um fullt starf eða hlutastarf sé að ræða, og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit. 

Í 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög vegna höfnunar á starfi. Ákvæðið sé svohljóðandi:

,,Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Ágreiningur í máli þessu snúi meðal annars að því hvort ástæður fyrir höfnun á starfi séu réttlætanlegar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt 4. mgr. 57. gr. skuli Vinnumálastofnun meta við ákvörðun um viðurlög samkvæmt 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg, en í 4. mgr. segi orðrétt:

,,Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Vinnumálastofnun sé gert að meta skýringar atvinnuleitenda vegna höfnunar á atvinnutilboði með hliðsjón af þeirri ríku skyldu sem hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til að vera reiðubúnir að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara, og hafa til þess vilja og getu. Gert sé ráð fyrir því að Vinnumálastofnun sé heimilt að líta til aldurs hins tryggða, félagslegra aðstæðna tengdum skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima við ákvörðun um hvort hinn tryggði skuli sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 57. gr. laganna. Enn fremur sé Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar í boði sé starf fjarri heimili hans sem geri kröfur um að hlutaðeigandi flytji búferlum.

Fyrir liggi að kæranda hafi verið boðið starf hjá B og í atvinnuviðtal hjá C. Kærandi hafi gefið skýringar á höfnun á starfi og atvinnuviðtali til Vinnumálastofnunar og í kæru til nefndarinnar. Skýringar lúti einkum að því að hún hefði í lok mars tilkynnt að hún færi í fullt starf hjá eigin fyrirtæki þann 2. maí 2022 og hefði af þeirri ástæðu hafnað störfunum. 

Vinnumálastofnun telji skýringar kæranda ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á atvinnutilboði en atvinnuleitendur geti almennt ekki hafnað störfum á þeim forsendum að þeir muni hefja störf rúmlega mánuði seinna. Ákvæði 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 geri ekki ráð fyrir að réttlætanlegt sé að hafna almennum störfum vegna þess að viðkomandi hafi ráðið sig til annarra starfa og að upphafsdagur ráðningar sé mánuði síðar. Þá samræmist slíkar skýringar ekki skilyrðum 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um virka atvinnuleit atvinnuleitanda. Atvinnuleitendur geti almennt ekki hafnað því að mæta í atvinnuviðtöl á þeirri forsendu að þeir komi til með að ráða sig til starfa hjá eigin fyrirtæki í náinni framtíð.  Þar að auki hafi skýringar og áætlanir kæranda ekki staðist en kærandi sé enn skráð atvinnulaus hjá Vinnumálastofnun og hafi staðfest atvinnuleit sína í maí og júní 2022.

Út frá fyrirliggjandi gögnum sé ekki fallist á að kærandi hafi verið reiðubúin að taka því starfi sem hafi boðist, án sérstaks fyrirvara. Það sé mat Vinnumálastofnunar að skýringar kæranda fyrir því að hafna starfi geti ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laganna.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Þá segir svo í 4. mgr. 57. gr. laganna:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Samkvæmt gögnum málsins var ferilskrá kæranda send til C þann 23. mars 2022 og B daginn eftir. Þann 28. mars 2022 barst Vinnumálastofnun tilkynning frá B um að kærandi hefði hafnað starfi þar sem hún væri í fullu starfi annars staðar. Þá barst Vinnumálastofnun tilkynning frá C daginn eftir þess efnis að kærandi hefði ekki mætt í viðtal. Kærandi hefur vísað til þess að hún hafi látið Vinnumálastofnun vita í lok mars 2022 að hún færi í fullt starf 2. maí. Vegna þessa hafi hún hafnað vinnum.

Að mati úrskurðarnefndarinnar er ekki réttlætanlegt að hafna starfi eða sinna ekki atvinnuviðtali á þeirri forsendu að annað starf bíði meira en mánuði síðar. Úrskurðarnefndin bendir á að í 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er fjallað um almenn skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögunum. Eitt af þeim skilyrðum er að vera í virkri atvinnuleit samkvæmt 14. gr. en í því felst meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt er fyrir, sbr. c. lið 1. mgr. ákvæðisins, og að hafa vilja og getu til að taka starfi, án sérstaks fyrirvara, sbr. d. lið 1. mgr. ákvæðisins. Að því virtu er það mat úrskurðarnefndarinnar að þær skýringar sem kærandi hefur gefið séu ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á starfinu, sbr. 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006. Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 6. apríl 2022, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta