Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr.382/2024-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 382/2024

Þriðjudaginn 29. október 2024

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 19. ágúst 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 29. júlí 2024, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti síðast um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 5. desember 2023 og var umsóknin samþykkt 9. janúar 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags 29. júlí 2024, var kæranda tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans væru stöðvaðar á grundvelli 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði ekki mætt í boðað viðtal hjá stofnuninni. Mál kæranda var tekið fyrir að nýju hjá Vinnumálastofnun í kjölfar frekari skýringa frá honum. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 9. ágúst 2024, var fyrri ákvörðun staðfest með þeim rökum að sú ákvörðun hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu þrátt fyrir ný gögn í málinu.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 19. ágúst 2024. Með bréfi, dags. 20. ágúst 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 5. september 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 9. september 2024. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hafa ekki mætt á fund Vinnumálastofnunar vegna þess að hann hafi verið á lögreglustöð á þeim tíma þar sem bifreið hans hefði verið stolið. Kærandi hafi veitt Vinnumálastofnun staðfestingu frá lögreglu. Stofnunin hafi hins vegar hunsað skýringar kæranda og stöðvað greiðslur atvinnuleysisbóta til hans. Af þeim sökum geti kærandi ekki borgað leigu eða önnur gjöld.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 5. desember 2023. Með erindi, dags. 9. janúar 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Með erindi, dags. 2. júlí 2024, hafi kærandi verið boðaður til viðtals hjá ráðgjafa Vinnumálastofnunar. Viðtalið hafi átt að fara fram 3. júlí 2024, klukkan 9:15. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að um skyldumætingu væri að ræða og að ótilkynnt forföll og forföll án gildra ástæðna gætu valdið stöðvun greiðslna atvinnuleysisbóta. Umrædd boðun hafi verið send þann 2. júlí 2024, klukkan 8:59 á „Mínum síðum“ kæranda. Þá hafi kæranda verið send tilkynning á uppgefið netfang, B, og með smáskilaboðum í uppgefið símanúmer, X. Þann 2. júlí 2024 hafi kærandi haft samband við Vinnumálastofnun með símtali og spurt hvenær hann ætti að mæta. Þá hafi kærandi sagst vera mjög upptekinn og kveðist ósáttur með tímasetningu fundarins.

Kærandi hafi hvorki mætt til boðaðs viðtals né boðað forföll. Þann 11. júlí 2024 hafi kærandi hringt að nýju og skilað skýringarbréfi. Skýringar kæranda hafi verið þær að bifreið hans hefði verið stolið þann dag sem hann hafi átt að mæta. Hann hafi því verið á lögreglustöðinni að tilkynna brotið.

Með erindi, dags. 16. júlí 2024, hafi verið óskað eftir skýringum á fjarveru í boðað viðtal. Kæranda hafi verið greint frá því að hefði hann hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði kynni það að leiða til viðurlaga í formi biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að koma að skýringum sínum.

Kærandi hafi haft samband símleiðis við Vinnumálastofnun þann 16. júlí 2024 og óskað eftir leiðbeiningum um hverju hann ætti að skila. Honum hafi verið leiðbeint um að skila staðfestingu frá lögreglu. Þann 22. júlí 2024 hafi kærandi komið á þjónustuskrifstofu og tilkynnt að lögreglan hafi ekki viljað gefa honum staðfestingu á því að hann hafi á þeim tíma sem fundurinn hafi átt að fara fram verið á fundi hjá þeim.

Kæranda hafi með erindi, dags. 29. júlí 2024, verið tilkynnt um ákvörðun Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans frá og með 29. júlí 2024, sökum þess að hann hefði ekki sinnt boðun í viðtal þann 3. júlí 2024. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. og 4. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Þann 30. júlí 2024 hafi Vinnumálastofnun borist afrit af dagbók lögreglu frá kæranda. Þar hafi komið fram að bifreiðin hefði þann 26. júní 2024, klukkan 00:49, verið tilkynnt stolin til neyðarlínu. Þá komi jafnframt fram að kærandi hafi næst mætt á lögreglustöð þann 11. júlí 2024.

Mál kæranda hafi verið tekið fyrir að nýju með tilliti til nýrra gagna. Það hafi verið mat stofnunarinnar að skýringar kæranda á fjarveru gætu ekki talist gildar og hafi fyrri ákvörðun því verið staðfest og tilkynnt með erindi, dags. 9. ágúst 2024.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Á meðal skilyrða fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta sé að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum. Ráðgjafar stofnunarinnar skuli boða atvinnuleitendur reglulega í viðtöl eftir þörfum hvers og eins atvinnuleitanda.

Á grundvelli 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitendum að hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Í tilfelli kæranda hafi hann verið boðaður til viðtals hjá stofnuninni, en samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laganna sé Vinnumálastofnun heimilt að boða atvinnuleitendur til stofnunarinnar með sannanlegum hætti, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum þeirra sem kunni að hafa áhrif á rétt þeirra til greiðslu atvinnuleysistrygginga. Atvinnuleitendur skuli vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara. Ákvæði 3. mgr. 13. gr. hafi komið inn í lög um atvinnuleysistryggingar með 4. gr. laga nr. 134/2009, en í athugasemdum með 4. gr. segi að gert sé ráð fyrir að stofnunin geti boðað atvinnuleitanda með allt að sólarhringsfyrirvara á þá skrifstofu sína sem næst sé lögheimili viðkomandi.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt til viðtals á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 3. júlí 2024. Áður hafi kærandi fengið sendar tilkynningar í tölvupósti, farsíma og á „Mínum síðum“ um boðun í umrætt viðtal. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Í 4. mgr. 58. gr. segi að hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili þegar atvik sem lýst sé í 1. mgr. 58. gr. eigi sér stað skuli hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfylli skilyrði 31. gr.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til.

Skýringar kæranda á ástæðum þess að hann hafi ekki mætt til boðaðs viðtals lúti að því að bifreið hans hafi verið stolið þann dag sem hann hafi átt að mæta á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Þá hafi kærandi jafnframt skýrt að hann hafi verið á lögreglustöðinni þann dag sem fundurinn hafi átt að fara fram.

Í afriti af dagbók lögreglu komi fram hvenær neyðarlínu hafi borist tilkynning frá skráðum eiganda um þjófnað á bifreið sinni. Þar komi fram að tilkynningin hafi borist þann 26. júní 2024, klukkan 00:49. Í atvikalýsingu tilkynningarinnar hafi svo verið handskrifuð dagsetningin 2024.07.03. Þá komi jafnframt fram að kærandi hafi þann 11. júlí 2024 komið á lögreglustöðina ásamt skráðum eiganda bifreiðarinnar til þess að tilkynna formlega um nytjastuld á bifreiðinni.

Vinnumálastofnun telji því ljóst að skýringar kæranda um að bifreiðinni hafi verið stolið þann dag sem hann hafi átt að mæta á fund hjá stofnuninni samræmist ekki innsendum gögnum frá lögreglu. Hið sama gildi um skýringar kæranda um að hafa verið staddur á fundi á lögreglustöðinni á sama tíma og fundurinn hafi átt að fara fram hjá Vinnumálastofnun.

Í ljósi alls þess sem hér hafi verið rakið og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Með því að hafa ekki mætt til umrædds viðtals án gildra ástæðna hafi kærandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði og hafi því borið að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þar sem kærandi hafi þegið greiðslur atvinnuleysisbóta í rúma 27 mánuði þegar atvikið hafi átt sér stað hafi stofnuninni borið að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta frá og með degi ákvörðunar þann 29. júlí 2024 í samræmi við 4. mgr. 58. gr. sömu laga.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta stöðvun á greiðslum atvinnuleysisbóta frá og með 29. júlí 2024 á grundvelli 1. og 4. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á grundvelli 4. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna. Þá segir í 4. mgr. 58. gr. laganna að hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili samkvæmt 29. gr. þegar atvik sem lýst sé í 1. mgr. eigi sér stað skuli hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var boðaður á upplýsingafund hjá Vinnumálastofnun þann 2. júlí 2024 sem fara átti fram 3. júlí 2024. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna á netfang Vinnumálastofnunar. Kærandi var jafnframt upplýstur um að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Þá var kærandi hvattur til að hafa samband við stofnunina ef eitthvað væri óljóst eða ef hann vildi frekari upplýsingar. Kærandi hvorki boðaði forföll né mætti á fundinn.

Kærandi hefur gefið þær skýringar að hann hafi ekki getað mætt á fund Vinnumálastofnunar sökum þess að hann hafi verið á lögreglustöð á þeim tíma þar sem bifreið hans hefði verið stolið. Fundur Vinnumálastofnunar var haldinn þann 3. júlí 2024. Samkvæmt gögnum málsins var atvikið tilkynnt til neyðarlínu þann 26. júní 2024. Þá mætti kærandi á lögreglustöð til að tilkynna formlega um nytjastuld á bifreiðinni þann 11. júlí 2024.

Framangreind boðun var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tölvupósti, smáskilaboðum í farsíma og skilaboðum á „Mínum síðum“.  Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta fjarveru á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun.

Þegar kærandi var beittur viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laganna hafði hann þegið atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun í rúmlega 27 mánuði. Því voru atvinnuleysisbætur til hans stöðvaðar á grundvelli 4. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 og á kærandi því ekki rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr. laganna, þ.e. eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á grundvelli 4. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 29. júlí 2024, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til A, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta