Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 660/2021 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 660/2021

Fimmtudaginn 31. mars 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 8. desember 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála bréf Vinnumálastofnunar, dags. 16. nóvember 2021.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslu atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 6. desember 2019 og var umsókn hans samþykkt 30. desember 2019. Þann 3. nóvember 2021 var kærandi boðaður á hópfund hjá Vinnumálastofnun sem fara átti fram daginn eftir. Tekið var fram að um skyldumætingu væri að ræða og að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til stöðvunar greiðslna. Kærandi mætti ekki á fundinn eða boðaði forföll. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 16. nóvember 2021, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda til þess að hafa ekki mætt á fundinn. Skýringar bárust frá kæranda 23. nóvember 2021.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála þann 8. desember 2021 og vísaði til þess að Vinnumálastofnun hefði ekki greitt honum atvinnuleysisbætur. Með erindi úrskurðarnefndar, dags. 13. desember 2021, var óskað eftir upplýsingum frá Vinnumálastofnun um stöðu máls kæranda. Svar barst frá Vinnumálastofnun 16. desember 2021 þess efnis að með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 13. desember 2021, hafi kæranda verið tilkynnt um niðurfellingu bótaréttur í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði ekki mætt í boðað viðtal. Með bréfi, dags. 21. desember 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 11. febrúar 2022 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 15. febrúar 2022. Athugasemdir bárust ekki.

II. Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hann hafi sent Vinnumálastofnun skýringar vegna fjarveru á fundi. Í byrjun desember 2021 hafi kærandi ekki fengið greiðslu frá Vinnumálastofnun og því hafi hann haft samband við stofnunina. Stuttu síðar hafi kærandi fengið tölvupóst þess efnis að hann þyrfti að bíða í sex vikur eftir ákvörðun. Kærandi hafi lesið á heimasíðu Vinnumálastofnunar að ekki mætti halda eftir greiðslu nema á grundvelli ákvörðunar stofnunarinnar. Engin slík ákvörðun væri í máli hans.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 6. desember 2019. Með erindi, dags. 30. desember 2021, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 80%.

Þann 3. nóvember 2021 hafi kærandi verið boðaður til hópfundar á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar að Kringlunni 1, Reykjavík, þann 4. nóvember 2021 klukkan 10. Áréttað hafi verið að skyldumæting væri á umræddan fund og að öll forföll þyrfti að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Kæranda hafi jafnframt verið gerð grein fyrir því að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysistrygginga til hans yrðu stöðvaðar. Boðun þessi hafi verið send á uppgefið netfang kæranda og með smáskilaboðum í uppgefið símanúmer hans. Kærandi hafi hvorki mætt á umræddan fund né hafi hann boðað forföll. Með erindi, dags. 16. nóvember 2021, hafi verið óskað eftir skriflegum skýringum kæranda á ástæðum þess að hann hafi ekki mætt til fundar þann 3. nóvember 2021. Áréttað hafi verið að hefði atvinnuleitandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerð án gildra ástæðna gæti hann þurft að sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysistrygginga. Þann 23. nóvember 2021 hafi kærandi veitt Vinnumálastofnun skýringar í máli sínu. Hann hafi greint frá því að ástæða þess að hann hafi ekki mætt á umræddan fund hafi verið sú að hann hefði ekki skoðað tölvupóst sinn. Hann hafi því ekki vitað af fundinum.

Með erindi, dags. 13. desember 2021, hafi kæranda verið tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði. Skýringar kæranda vegna fjarveru á umræddum fundi hafi því ekki verið teknar gildar. Sú ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Fyrir mistök hafi þó rangt verið farið með dagsetningar og tiltekið að sá fundur sem kærandi hefði verið fjarverandi á hefði verið þann 27. október 2021. Viðurlagaákvörðun þessi byggi hins vegar á því að kærandi hafi verið fjarverandi á fundi þann 4. nóvember 2021, án þess að boða forföll sín. Vinnumálastofnun biðji kæranda velvirðingar á þessum mistökum.

Kæra hafi borist úrskurðarnefnd velferðarmála þann 8. desember 2021. Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar um viðurlög á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, hafi því ekki legið fyrir. Í kæru geri kærandi athugasemdir við að hann hafi ekki fengið greiðslu atvinnuleysisbóta án þess að fyrir hafi legið ákvörðun um viðurlög á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laganna. Hann hafi fengið þær upplýsingar frá starfsmanni stofnunarinnar að hann kynni að þurfa að bíða í um sex vikur eftir því að mál hans hlyti úrlausn hjá stofnuninni. Vinnumálastofnun dragi því þá ályktun að kærandi geri einkum athugasemd við það að hann hafi ekki fengið greiddar atvinnuleysisbætur á meðan stofnunin hafi farið yfir gögn í máli hans vegna mögulegra viðurlaga. Stofnuninni þyki þó rétt að færa jafnframt rök fyrir ákvörðun sinni frá 13. desember 2021.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna og sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Samkvæmt g-lið 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsúrræði komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi: 

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum. Skulu ráðgjafar stofnunarinnar boða atvinnuleitendur reglulega í viðtöl eftir þörfum hvers og eins atvinnuleitanda.

Á grundvelli 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitendum að hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Í tilfelli kæranda hafi hún verið boðuð til viðtals hjá stofnuninni en samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laganna sé Vinnumálastofnun heimilt að boða atvinnuleitendur til stofnunarinnar með sannanlegum hætti, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum þeirra sem kunni að hafa áhrif á rétt þeirra til atvinnuleysisbóta. Atvinnuleitendur skulu þá vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt til fundar þann 4. nóvember 2021 og ekki boðað forföll. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, á „Mínum síðum“ og í farsíma um boðun á umræddan fund þar sem tilgreind hafi verið tímasetning og staðsetning. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Ákvæðið sé svohljóðandi:

,,Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð sem hafi fylgt frumvarpi því sem hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitanda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það er fortakslaust skilyrði svo að unnt sé að aðstoða umsækjanda um atvinnuleysisbætur við að fá starf við hæfi og gefa honum kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitandi sinni þeim boðunum sem honum séu sendar. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í þau viðtöl, sækja þá fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til. 

Skýringar kæranda snúi að því að hann hafi ekki séð tilkynningu Vinnumálastofnunar þess efnis að hann væri boðaður á umræddan fund. Eins og áður segi hafi Vinnumálastofnun sent boðun á uppgefið netfang kæranda og símanúmer. Við samþykkt umsóknar kæranda hafi honum verið tilkynnt að Vinnumálastofnun myndi framvegis koma skilaboðum til hans með tölvupósti, skilaboðum inn á „Mínum síðum“ eða með smáskilaboðum. Skilaboð myndu berast honum með bréfpósti hefði hann óskað eftir því. Kærandi hafi því verið upplýstur með fullnægjandi hætti um hvernig honum yrðu send mikilvæg skilaboð og tilkynningar. Boðun til umrædds fundar hafi því borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Með vísan til framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Með því að hafa ekki mætt til umrædds fundar hafi kærandi brugðist skyldum sínum samkvæmt 7. mgr. 9. gr. og 3. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Því beri honum að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Eins og áður segi hafi kærandi gert athugasemdir við það í kæru að greiðslur til hans hefðu verið stöðvaðar á meðan mál hans hafi verið til úrlausnar hjá stofnuninni. Áður en viðurlagaákvörðun á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi verið tekin hafi greiðslum til kæranda verið frestað á grundvelli 2. mgr. 35. gr. laganna með erindi, dags. 16. nóvember 2021. Það hafi verið gert til þess að afla upplýsinga frá kæranda og til þess að staðreyna að hann uppfyllti skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar, svo sem um virka atvinnuleit. Það hafi jafnframt verið gert til þess að koma í veg fyrir að kærandi fengi greiðslu atvinnuleysisbóta sem hann kynni mögulega að ekki eiga rétt til en þannig sé hægt að komast hjá kröfu Vinnumálastofnunar um endurgreiðslu síðar og þeim aukakostnaði sem slíkri kröfu kunni að fylgja, bæði fyrir kæranda og stofnunina. Með greiðsluseðli, útgefnum 16. desember 2021, hafi kæranda verið greiddar þær atvinnuleysisbætur sem haldið hafi verið eftir fram að ákvörðunardegi og upphafsdegi biðtíma.

Með vísan til framangreindra sjónarmiða sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Jafnframt sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að heimilt hafi verið að fresta greiðslum atvinnuleysisbóta til kæranda á meðan mál hans hafi verið til úrlausnar hjá stofnuninni, sbr. 2. mgr. 35. gr. laganna. 

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að halda eftir greiðslu atvinnuleysisbóta til kæranda á meðan mál hans var til meðferðar hjá stofnuninni. Eftir að kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála tók Vinnumálastofnun þá ákvörðun að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Þar sem Vinnumálastofnun kom á framfæri afstöðu sinni til þeirrar ákvörðunar í greinargerð til úrskurðarnefndarinnar og þar sem það er til hagræðis fyrir kæranda mun úrskurðarnefndin fjalla um báðar ákvarðanir stofnunarinnar. Verður fyrst vikið að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að halda eftir greiðslu atvinnuleysisbóta.

Í 35. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um tilhögun greiðslna atvinnuleysisbóta. Þar segir í 1. mgr. að atvinnuleysisbætur skuli greiddar fyrsta virka dag hvers mánaðar og skuli þær greiddar eftir á fyrir undanfarandi mánuð eða hluta úr mánuði þannig að miðist við fyrsta til síðasta dag viðkomandi mánaðar. Samkvæmt 2. mgr. 35. gr. er Vinnumálastofnun heimilt að halda eftir greiðslu atvinnuleysisbóta sem hinum tryggða hafi áður verið ákvörðuð í allt að einn mánuð frá því að greiðsluna hafi átt að inna af hendi þegar stofnunin hafi rökstuddan grun um að hinn tryggði uppfylli ekki lengur skilyrði laganna eða hafi þegar fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Þegar slíkur grunur vakni skuli Vinnumálastofnun án ástæðulauss dráttar og að lágmarki fimm virkum dögum fyrir næsta greiðsludag atvinnuleysisbóta samkvæmt 1. mgr. tilkynna hlutaðeigandi með sannanlegum hætti að fyrirhugað sé að halda eftir greiðslu. Stofnunin skuli jafnframt hefja athugun á málinu þegar í stað samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og veita hlutaðeigandi andmælarétt samkvæmt 13. gr. sömu laga. Ákvæði stjórnsýslulaga gildi að öðru leyti um málsmeðferðina. Þá segir í 3. mgr. 35. gr. að komist Vinnumálastofnun að því eftir að hafa upplýst málið nægjanlega að hinn tryggði hafi átt rétt á þeirri greiðslu, að hluta eða öllu leyti, sem haldið hafi verið eftir samkvæmt 2. mgr. beri stofnuninni að greiða þá fjárhæð í síðasta lagi næsta greiðsludag samkvæmt 1. mgr. ásamt vöxtum fyrir það tímabil sem féð hafi verið í vörslu Atvinnuleysistryggingasjóðs. Vextir skuli vera jafnháir vöxtum sem Seðlabanki Íslands ákveði og birti á hverjum tíma samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.

Í athugasemdum við ákvæði 10. gr. í frumvarpi til laga nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, kemur fram að með rökstuddum grun sé átt við að fyrir liggi upplýsingar, svo sem frá skattyfirvöldum, sem bendi til að hlutaðeigandi uppfylli ekki lengur skilyrði laganna eða hafi þegar fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Tilgangur heimildarinnar sé aðallega að koma í veg fyrir að stofnunin greiði út atvinnuleysisbætur þegar hún hafi gögn undir höndum sem bendi til að viðkomandi einstaklingur eigi ekki lengur rétt á atvinnuleysisbótum samkvæmt lögunum en þannig megi komast hjá kröfu Vinnumálastofnunar um endurgreiðslu síðar og þeim aukakostnaði sem slíkri kröfu kunni að fylgja, bæði fyrir þann sem í hlut eigi og stofnunina.

Þá segir einnig í athugasemdunum:

„Að teknu tilliti til þess hversu íþyngjandi þessi heimild kann að vera fyrir þann einstakling sem í hlut á er Vinnumálastofnun settar þröngar skorður í þessu efni samkvæmt ákvæðinu enda atvinnuleysisbætur ætlaðar til framfærslu hlutaðeigandi. Þannig er gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun verði eingöngu heimilt að halda eftir greiðslu í allt að einn mánuð frá því að greiðsluna átti ella að inna af hendi þegar rökstuddur grunur vaknar um að hlutaðeigandi uppfylli ekki lengur skilyrði laganna eða hafi þegar fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur og skal stofnunin jafnframt tilkynna viðkomandi án ástæðulauss dráttar að fyrirhugað sé að halda eftir greiðslu. Sá frestur getur að lágmarki verið fimm virkir dagar og er sá tími ætlaður til að veita hlutaðeigandi svigrúm til að grípa til ráðstafana varðandi fjármál sín ef hann telur slíkt nauðsynlegt. Lagt er til að stofnuninni beri jafnframt að hefja athugun málsins þegar í stað á grundvelli 10. gr. stjórnsýslulaga og gæta þess að hinum tryggða sé veittur andmælaréttur á grundvelli sömu laga. Hefur stofnunin tíma fram til næsta greiðsludags þar á eftir til að taka ákvörðun í málinu að ákvæðum stjórnsýslulaga virtum. Komi upp rökstuddur grunur innan fimm virkra daga fyrir næsta greiðsludag skv. 35. gr. laganna skal Vinnumálastofnun engu síður greiða út atvinnuleysisbætur á greiðsludegi en jafnframt hefja athugun sína og tilkynna hlutaðeigandi þegar í stað um þá athugun. Vinnumálastofnun skal ávallt gæta meðalhófs við beitingu þessarar heimildar og aldrei halda eftir hærri fjárhæð en grunur leikur á að hlutaðeigandi eigi ekki lengur rétt á eða hafi fengið ofgreitt.“

Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 16. nóvember 2021, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda til þess að hafa ekki mætt í boðað viðtal hjá stofnuninni. Athygli kæranda var vakin á mögulegum viðurlögum á grundvelli 58. gr. laga nr. 54/2006. Þann 1. desember 2021 fékk kærandi ekki greiddar atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun og við eftirgrennslan var honum tjáð að umsókn hans væri á bið hjá Greiðslustofu þar sem hann hafi ekki mætt á fund.

Af ákvæði 2. mgr. 35. gr. laga nr. 54/2006 er ljóst að heimild til að halda eftir greiðslu atvinnuleysisbóta er bundin við það að uppi sé rökstuddur grunur um að hinn tryggði uppfylli ekki lengur skilyrði laganna eða að viðkomandi hafi þegar fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Að mati úrskurðarnefndarinnar átti hvorugt við í tilviki kæranda og er það því niðurstaða nefndarinnar að Vinnumálastofnun hafi ekki verið heimilt að halda eftir greiðslu þann 1. desember 2021. Þá er ljóst að Vinnumálastofnun tilkynnti ekki kæranda að greiðslu til hans yrði haldið eftir líkt og skylt er, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 35. gr.

Þann 16. desember 2021 fékk kærandi greiddar þær atvinnuleysisbætur sem haldið hafði verið eftir. Samkvæmt þeim greiðsluseðli er ljóst að kærandi fékk ekki greidda vexti fyrir það tímabil sem Vinnumálastofnun hélt eftir greiðslu. Að því virtu er lagt fyrir Vinnumálastofnun að greiða kæranda vexti í samræmi við 3. mgr. 35. gr. laga nr. 54/2006.

Kemur þá til skoðunar ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 58. gr. laga nr. 54/2006. Í því ákvæði er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr.,  3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi boðaður á hópfund hjá Vinnumálastofnun þann 4. nóvember 2021. Tekið var fram að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án tafar. Þá var kæranda bent á að ótilkynnt forföll gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Kærandi mætti ekki á fundinn og tilkynnti ekki forföll. Kærandi veitti þær skýringar að hann hefði ekki skoðað tölvupóstinn og því hefði hann ekki vitað af fundinum.

Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var boðaður til Vinnumálastofnunar með sannanlegum hætti, með tölvupósti, smáskilaboðum og skilaboðum á „Mínum síðum“. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram gildar skýringar sem réttlæta að hann hafi ekki mætt á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Ákvæðið er fortakslaust og því er ekki heimilt að beita vægari úrræðum en þar er kveðið á um. Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði er því staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. desember 2021, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest. Lagt er fyrir Vinnumálastofnun að greiða kæranda vexti í samræmi við 3. mgr. 35. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar fyrir það tímabil sem greiðslu atvinnuleysisbóta var haldið eftir.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta