Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 485/2023-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 485/2023

Fimmtudaginn 18. janúar 2024

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 8. október 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. júlí 2023, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 9. apríl 2023 og var umsóknin samþykkt 5. maí 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. júlí 2023, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hún hefði ekki mætt í boðað viðtal hjá stofnuninni. Mál kæranda var tekið fyrir að nýju hjá Vinnumálastofnun í kjölfar skýringa hennar, dags. 19. júlí 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 1. ágúst 2023, var fyrri ákvörðun staðfest með þeim rökum að sú ákvörðun hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu, þrátt fyrir ný gögn í málinu.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 8. október 2023. Með bréfi, dags. 11. október 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 31. október 2023 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 2. nóvember 2023. Athugasemdir bárust frá kæranda 6. nóvember 2023 og voru þær kynntar Vinnumálastofnun með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 8. nóvember 2023. Frekari athugasemdir bárust ekki.

 

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hún hafi ákveðið að flytja til höfuðborgarsvæðisins í leit að atvinnu og því sagt upp störfum hjá B. Fyrir mistök hafi kærandi merkt við Suðurland sem atvinnuleitarsvæði þegar hún hafi sótt um atvinnuleysisbætur, ásamt höfuðborgarsvæðinu. Þegar kærandi hafi fengið boð um atvinnuviðtal á Kirkjubæjarklaustri með stuttum fyrirvara hafi hún þá þegar verið stödd á höfuðborgarsvæðinu og því ekki getað mætt á boðaðan fund. Síðar hafi kærandi ekki tekið eftir beiðni Vinnumálastofnunar um skýringar.

Kærandi tekur fram að hún hafi verið ráðin tímabundið í starf frá 19. júlí 2023. Kærandi sé nú ófrísk og samningi hennar ljúki 30. nóvember 2023. Hún sé við góða heilsu og sé tilbúin að vinna fram að fæðingu en að finna nýtt starf verandi ófrísk sé mjög krefjandi, ef ekki ómögulegt. Án innkomu verði kærandi í mjög erfiðri fjárhagsstöðu vegna hás framfærslukostnaðar á Íslandi.

Kærandi hafi unnið hörðum höndum á Íslandi í rúm tvö ár. Hafi alltaf borgað skatta á réttum tíma, verið heiðarlegur og dýrmætur starfsmaður, sem allir vinnuveitendur hennar geti staðfest. Kærandi hafi flutt til Íslands í leit að betra lífi og hafi í hyggju að setjast hér að í mörg ár, ef ekki ævilangt. Kærandi hafi ekki áður nýtt sér rétt til atvinnuleysisbóta en nú þurfi hún á stuðningi að halda frá ríkinu. Kærandi skilji ákvörðun um refsingu vegna skorts á samskiptum hennar megin en hún óski eftir endurskoðun með vísan til alls framangreinds.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 9. apríl 2023. Með erindi, dags. 25. apríl 2023, hafi kæranda verið innt eftir skýringum á starfslokum sínum. Þegar engar skýringar hafi borist hafi kæranda verið tilkynnt þann 5. maí 2023 að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100% en vegna starfsloka væri bótaréttur hennar felldur niður í tvo mánuði frá 26. apríl 2023, eða frá þeim degi sem hún hafi sagst geta hafið störf. Kærandi hafi verið afskráð frá 2. júní 2023 vegna búferlaflutninga úr landi.

Kærandi hafi aftur sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta til Vinnumálastofnunar með umsókn, dags. 27. júní 2023. Með erindi, dags. 11. júlí 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%. Kærandi hafi jafnframt verið upplýst um að ótekinn biðtími frá fyrri umsókn hefði áhrif á það hvenær greiðslur hefðust. 

Þann 23. maí 2023 hafi kærandi verið boðuð til viðtals hjá ráðgjafa Vinnumálastofnunar. Viðtalið hafi átt að fara fram 26. maí, klukkan 09:00. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að um skyldmætingu væri að ræða og að ótilkynnt forföll og forföll án gildra ástæðna gætu valdið stöðvun greiðslna atvinnuleysisbóta. Umrædd boðun hafi verið send þann 23. maí 2023 klukkan 15:33 á „Mínar síður“ kæranda, með tilkynningu á uppgefið netfang og með smáskilaboðum í farsíma þar sem henni hafi verið tjáð að hún ætti skilaboð inn á „Mínum síðum“.

Kærandi hafi hvorki mætt til boðaðs viðtals né boðað forföll. Með erindi, dags. 31. maí 2023,  hafi kæranda verið boðið að koma að skýringum vegna fjarveru til viðtals. Kæranda hafi verið greint frá því að ef hún hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði kynni það að leiða til viðurlaga í formi biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að koma að skýringum sínum. Vinnumálastofnun hafi ekki borist skýringar frá kæranda innan tilskilins frests en kærandi hafi afskráð sig þann 2. júní með þeim skýringum að hún væri að flytja úr landi.

Með erindi, dags. 11. júlí 2023, hafi kæranda verið tilkynnt um ákvörðun Vinnumálastofnunar um frestun greiðslna atvinnuleysisbóta til hennar vegna þess að hún hefði ekki sinnt viðtalsboðun, dags. 26. maí 2023. Sú ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 4. mgr. sömu greinar.

Þann 18. júlí 2023 hafi Vinnumálastofnun borist skýringar kæranda og beiðni um endurupptöku ákvörðunar stofnunarinnar frá 11. júlí 2023. Kærandi hafi tekið fram að hún hefði séð boðun til umrædds viðtals en ekki getað sinnt því þar sem hún hafi verið stödd annars staðar á landinu en viðtalið hafi átt að fara fram. Kærandi hafi greint frá því að henni hefði yfirsést beiðni um skýringar á fjarveru hennar. Kærandi hafi óskað eftir því að viðurlög yrðu felld niður á grundvelli þess að skýringar væru nú komnar fram. Í kjölfar skýringa kæranda hafi mál hennar verið tekið fyrir að nýju. Með erindi, dags. 1. ágúst 2023, hafi kæranda þó verið tilkynnt að það væri mat Vinnumálastofnunar að staðfesta bæri fyrri ákvörðun í máli hennar, enda hefði sú ákvörðun að geyma efnislega rétta niðurstöðu þrátt fyrir að ný gögn hefðu borist í máli hennar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verða atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Á meðal skilyrða fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta sé að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit, sbr. a. liður 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt [h-lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum. Ráðgjafar stofnunarinnar skuli boða atvinnuleitendur reglulega í viðtöl eftir þörfum hvers og eins atvinnuleitanda.

Á grundvelli 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitendum að hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Í tilfelli kæranda hafi hún verið boðuð til viðtals hjá stofnuninni en samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laganna sé Vinnumálastofnun heimilt að boða atvinnuleitendur til stofnunarinnar með sannanlegum hætti, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum þeirra sem kunni að hafa áhrif á rétt þeirra til greiðslu atvinnuleysisbóta. Atvinnuleitendur skuli vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara. Ákvæði 3. mgr. 13. gr. hafi komið inn í lög um atvinnuleysistryggingar með 4. gr. laga nr. 134/2009 en í athugasemdum með 4. gr. segi að gert sé ráð fyrir að stofnunin geti boðað atvinnuleitanda með allt að sólarhringsfyrirvara á þá skrifstofu sem næst sé lögheimili viðkomandi.

Fyrir liggur að kærandi hafi ekki mætt til viðtals á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 26. maí 2023. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, farsíma og á ,,Mínum síðum“ um boðun í umrætt viðtal. Kærandi hafi fengið rúmlega tveggja sólarhringa fyrirvara til að bregðast við boðun stofnunarinnar. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það er fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysisbóta komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í þau viðtöl, þá fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til.

Skýringar kæranda á ástæðum þess að hún hafi ekki mætt til boðaðs viðtals lúti að því að hún hafi ekki getað mætt til viðtalsins vegna þess að hún hafi verið stödd fjarri viðtalsstað. Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi hafi valið að vera í rafrænum samskiptum við Vinnumálastofnun þegar hún hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta. Þegar umsókn kæranda hafi verið samþykkt hafi henni verið tilkynnt að Vinnumálastofnun myndi framvegis koma skilaboðum til hennar með tölvupósti, skilaboðum inn á ,,Mínum síðum“ eða með smáskilaboðum. Kærandi hafi því verið upplýst með fullnægjandi hætti um hvernig henni yrðu send mikilvæg skilaboð og tilkynningar. Boðun til umrædds fundar hafi því borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálsliður 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þá sé ljóst að mati Vinnumálastofnunar að það að kærandi hafi ekki getað sinnt boðun til umrædds viðtals vegna landfræðilegra aðstæðna réttlæti ekki höfnun á vinnumarkaðsúrræði. Kæranda hafi verið veittur það gott svigrúm frá boðun til að upplýsa stofnunina um aðstæður og þá ekki síður hefði verið hægt að flytja staðsetningu viðtals eða tímasetningu þess með lítilli fyrirhöfn. Gera verði þær kröfur til atvinnuleitenda að þeir kynni sér vel efni þeirra tilkynninga og boðana sem stofnunin sendi þeim og bregðist við þeim á tilhlýðilegan hátt, meðal annars með því að svara til um getu þeirra til að bregðast við þess háttar boðunum og hér um ræði.

Í ljósi alls þess sem hafi verið rakið og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Með því að hafa ekki mætt til umrædds viðtals hafi kærandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði og því beri henni að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 4. mgr. 58. gr. sömu laga.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var boðuð í viðtal hjá Vinnumálastofnun sem fara átti fram á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar á Kirkjubæjarklaustri þann 26. maí 2023. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið sviptingu greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Þá var kærandi hvött til að hafa samband við stofnunina ef eitthvað væri óljóst eða ef hún vildi frekari upplýsingar. Kærandi hvorki boðaði forföll né mætti í viðtalið. Af hálfu kæranda hefur komið fram að hún hafi fyrir mistök merkt við Suðurland sem atvinnuleitarsvæði þegar hún hafi sótt um atvinnuleysisbætur, ásamt höfuðborgarsvæðinu. Þegar kærandi hafi fengið boð um viðtal á Kirkjubæjarklaustri með stuttum fyrirvara hafi hún þá þegar verið stödd höfuðborgarsvæðinu og því ekki getað mætt á boðaðan fund.

Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hún hafi ekki mætt í boðað viðtal hjá Vinnumálastofnun.

Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:

„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“

Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 5. maí 2023 á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. laga nr. 54/2006, staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. júlí 2023, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta