Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 581/2020 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 581/2020

Föstudaginn 18. júní 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 9. nóvember 2020, kærði A til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. október 2020, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 1. október 2020. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. október 2020, var kæranda tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt en bótaréttur hans felldur niður í tvo mánuði með vísan til starfsloka hans hjá fyrrum vinnuveitanda.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 9. nóvember 2020. Með bréfi, dags. 19. nóvember 2020, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar. Með bréfi, dags. 12. janúar 2021, barst greinargerð Vinnumálastofnunar þar sem fram kom að hin kærða ákvörðun hefði verið afturkölluð þar sem skýringar kæranda vegna starfsloka hans hafi verið metnar gildar. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 18. janúar 2021, var óskað eftir afstöðu kæranda vegna greinargerðar Vinnumálastofnunar. Svar barst ekki. 

II.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. október 2020, um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndarinnar var vísað til þess að stofnunin hefði afturkallað hina kærðu ákvörðun þar sem skýringar kæranda á starfslokum hans hafi verið metnar gildar. Úrskurðarnefndin óskaði eftir afstöðu kæranda til greinargerðar Vinnumálastofnunar en svar barst ekki.

Úrskurðarnefnd velferðarmála kveður upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, sbr. 11. gr. laganna. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og Vinnumálastofnunar. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta