Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 336/2021 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 336/2021

Fimmtudaginn 9. september 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 2. júlí 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 7. júní 2021, um að fella niður bótarétt hans í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 23. nóvember 2020 og var umsókn hans samþykkt 27. janúar 2021. Í apríl 2021 var kæranda boðið starf hjá B. Í kjölfarið bárust Vinnumálastofnun upplýsingar um að kærandi hefði hafnað starfinu. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 14. maí 2021, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda vegna höfnunar á atvinnutilboði. Skýringar bárust frá kæranda 20. maí 2021. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 7. júní 2021, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Með bréfi, dags. 28. júní, skilaði kærandi frekari skýringum og var mál hans því tekið fyrir að nýju á fundi þann dag. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 30. júní 2021, var kæranda tilkynnt að fyrri ákvörðun stofnunarinnar frá 7. júní 2021 hefði verið staðfest þar sem sú ákvörðun hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 2. júlí 2021. Með bréfi, dags. 8. júlí 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Sú beiðni var ítrekuð þann 5. ágúst 2021. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 9. ágúst 2021 og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hann sé ósáttur við úrskurð Greiðslustofu Vinnumálastofnunar um tveggja mánaða greiðslustöðvun atvinnuleysisbóta á grundvelli þess að hann hafi hafnað atvinnutilboði frá FB  sem miðlað hafi verið af Vinnumálastofnun. Kærandi hafi talið starfið ekki henta sér og hafi hafnað því. Þetta hafi verið í fyrsta og eina skiptið sem Vinnumálastofnun hafi miðlað til kæranda starfi af nokkru tagi og fyrsta og eina skiptið sem kærandi hafi hafnað slíku tilboði. Kærandi hafi ekki gert sér grein fyrir því hverjar afleiðingarnar kynnu að verða af því að vera vandlátur á við hvað hann starfaði og hafi ekki verið upplýstur um það á neinu stigi málsins. Þegar ljóst hafi verið í hvað stefndi hafi kærandi sent inn bréf með nánari útlistun á ástæðum þess að hann hafi ekki tekið starfið, en ekki hafi verið tekið mark á því. Kærandi sé ekki sáttur við meðferðina og aðallega við það að hann hafi ekki verið upplýstur um afleiðingar þess eða varaður við á neinu stigi málsins. Kærandi telji það með öllu óviðunandi starfshætti og samskipti að hálfu ríkisstofnunar sem hafi verið falið það hlutverk að aðstoða atvinnulaust fólk sem leiti í úrræðaleysi sínu til stofnunarinnar með það fyrir augum að þiggja aðstoð í þeim fjárhagserfiðleikum sem atvinnuleysi fylgi og að komast í starf sem það geti sætt sig við þótt ekki væri það draumastarfið, og jafnvel mjög langt frá því. Kærandi hafi sínar hugmyndir um hvers konar störf hann kæri sig um að vinna og séu þau störf fjölmörg og þykist kærandi ekki vera mjög vandfýsinn eða með háleitar hugmyndir eða kröfur um störf. Eftir að vefur Vinnumálastofnunar hafi komist í lag hafi kærandi sótt um nokkur störf þar og nokkur störf á öðrum atvinnumiðlunarsíðum og bíði svars. Kærandi hafi ekki verið spenntur fyrir því eina starfi sem hafi verið miðlað til hans, sem að hans mati ætti að vera fullkomlega eðlileg skoðun að hafa og tvímælalaust ólík á milli einstaklinga, og hann telji jafnvel að hann hafi svo gott sem verið egndur í gildru sem hafi leitt til umræddrar greiðslustöðvunar og þar með sviptingar á rétti til atvinnuleysisbóta. Með þessum gjörningi hafi Vinnumálastofnun losað sig undan þeirri ábyrgð að greiða kæranda bætur næstu tvo mánuði sem kæranda gruni að séu hlutfallslega þær lægstu sem tíðkist að veita.

Kærandi krefjist því þess að hann njóti áfram þeirra atvinnuleysisbóta sem hann eigi rétt á, á meðan hann sé atvinnulaus og í atvinnuleit og að greiðslustöðvun sú sem nú hafi tekið gildi með fylgjandi fjárhagsvanda verði afturkölluð hið snarasta.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að þann 28. apríl 2021 hafi Greiðslustofu Vinnumálastofnunar borist þær upplýsingar að kærandi hafi hafnað starfi hjá B. Um hafi verið að ræða starf sem afleysingarleiðbeinandi á leikskóla. Samkvæmt upplýsingum frá B hafi kærandi hafnað umræddu starfi þar sem hann hafi talið starfið ekki henta sér.

Ágreiningur í máli þessu snúi að því hvort ástæður kæranda vegna umræddrar höfnunar séu gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð meðan þeir séu að leita sér að nýju starfi. Með þessu sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Gert sé ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðubúnir að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu. Ríkar kröfur beri að gera til þeirra sem hafni starfi á innlendum vinnumarkaði að þeir hafi til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að hann sé í virki atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi, án sérstaks fyrirvara, og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit.

Í 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög vegna höfnunar á starfi eða atvinnuviðtali. Ákvæðið sé svohljóðandi:

,,Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Þá segi í 4. mgr. sömu greinar orðrétt:

,,Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Vinnumálastofnun sé þannig gert að meta skýringar atvinnuleitanda vegna höfnunar á atvinnutilboði með hliðsjón af þeirri ríku skyldu sem hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til að vera reiðubúnir að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara, og hafa til þess vilja og getu. Þannig sé gert ráð fyrir því að Vinnumálastofnun sé heimilt að líta til aldurs hins tryggða, félagslegra aðstæðna tengdum skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima við ákvörðun um hvort hinn tryggði skuli sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 57. gr. laganna. Enn fremur sé Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar í boði sé starf fjarri heimili hans sem geri kröfur um að hlutaðeigandi flytji búferlum.

Þær skýringar sem kærandi hafi veitt Vinnumálastofnun vegna höfnunar á umræddu atvinnutilboði og þær skýringar sem hann beri fyrir sig í kæru til nefndarinnar, snúi að því að starfið hafi hvorki hentað reynslu hans né áhugasviði. Að mati Vinnumálastofnunar geti atvinnuleitendur ekki hafnað störfum á þeim forsendum að áhugasvið, starfsþjálfun og reynsla þeirra liggi í annarri atvinnugrein. Enn fremur telji Vinnumálastofnun að atvinnuleitendur geti ekki hafnað störfum á þeim forsendum að starfið henti þeim ekki. Eins og áður hafi verið rakið hvíli rík skylda á atvinnuleitendum að taka því starfi sem þeim bjóðist, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. Að mati Vinnumálastofnunar séu því skýringar kæranda ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á atvinnutilboði, sbr. 4. mgr. 57. gr. laganna.

Í kæru greini kærandi frá því að hann sé ósáttur við málsmeðferð stofnunarinnar, og þá aðallega ósáttur við að hann hafi hvorki verið upplýstur um afleiðingar þess að hafna starfi né varaður við á neinu stigi málsins. Við móttöku umsóknar um atvinnuleysistryggingar veiti Vinnumálastofnun öllum atvinnuleitendum leiðbeiningar um hvar finna megi upplýsingar um réttindi og skyldur atvinnuleitenda. Öllum atvinnuleitendum sé þannig vísað á heimasíðu Vinnumálastofnunar þar sem meðal annars sé að finna skýrar upplýsingar um afleiðingar þess að hafna starfi, án gildra ástæðna. Að mati Vinnumálastofnunar geti kærandi ekki borið fyrir sig vankunnáttu á lögum. Ákvæði laga um atvinnuleysistryggingar séu skýr hvað varði skyldu atvinnuleitenda til að taka störfum sem í boði séu og um höfnun á atvinnutilboðum. Kæranda sé ekki stætt á því að halda því fram að hann, ólíkt öðrum atvinnuleitendum, sé undanþeginn grundvallarskilyrðum laganna eða viðurlagakafla þeirra. Ekkert hafi fram komið í máli þessu sem bendi til þess að kærandi hafi fengið rangar eða misvísandi upplýsingar um réttindi sín og skyldur sem leiða skuli til ógildingar á ákvörðun stofnunarinnar.

Með vísan til alls framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar kæranda vegna höfnunar á atvinnutilboði hjá B geti ekki talist gildar í skilningi laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Kæranda beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laganna.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta lýtur að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Þá segir svo í 4. mgr. 57. gr. laganna:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Óumdeilt er að kærandi hafnaði atvinnutilboði hjá B en ágreiningur málsins lýtur að því hvort ástæður kæranda fyrir þeirri höfnun hafi verið réttlætanlegar í skilningi 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006. Kærandi hefur vísað til þess umrætt starf hafi ekki hentað honum og áhugasviði hans. Þá hafi hann ekki áttað sig á afleiðingum þess að hafna umræddu starfi.

Að mati úrskurðarnefndarinnar eru þær ástæður og skýringar sem kærandi hefur gefið ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á starfinu, sbr. 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006. Úrskurðarnefndin bendir á að í 1. mgr. 13. gr. laganna er fjallað um almenn skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögunum. Eitt af þeim skilyrðum er að vera í virkri atvinnuleit samkvæmt 14. gr. en í því felst meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt er fyrir, sbr. c. lið 1. mgr. ákvæðisins.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 7. júní 2021, um að fella niður bótarétt A, í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta