Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 24/2015

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 22. september 2015 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, nr. 24/2015.

1. Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 26. janúar 2015, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að stofnunin hefði á fundi sínum þann 22. janúar 2015 tekið þá ákvörðun að fella niður bótarétt kæranda í þrjá mánuði sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir í samræmi við 59. gr., sbr. 61. gr., laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, þar sem hún hefði ekki tilkynnt stofnuninni um dvöl sína erlendis. Þá segir að um sé að ræða niðurfellingu bótaréttar öðru sinni sem valdi ítrekunaráhrifum fyrri ákvörðunar skv. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi var jafnframt krafin um ofgreiddar atvinnuleysisbætur vegna tímabilsins 22. desember 2014 til 31. desember 2014, sem innheimtar yrðu skv. 3. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi kærði ákvörðun Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi mótteknu 26. febrúar 2015. Vinnumálastofnun telur að rétt hafi verið staðið að ákvörðun í máli kæranda.

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur þann 30. september 2014. Með bréfi, dags. 15. október 2014, var kæranda tilkynnt um að afgreiðslu umsóknar hennar hefði verið frestað og óskað var eftir skriflegri afstöðu á ástæðum uppsagnar hennar hjá B. Skýringar bárust með tölvupósti þann 20. október 2014. Með bréfi, dags. 6. nóvember 2014, var kæranda tilkynnt um að réttur hennar til atvinnuleysisbóta væri felldur niður í tvo mánuði vegna starfsloka hennar hjá B sbr. 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Með bréfi, dags. 6. janúar 2015, var kæranda tilkynnt að stofnunin hefði upplýsingar um að hún hefði verið stödd erlendis á sama tíma og hún þáði greiðslur atvinnuleysisbóta. Var kæranda gefinn sjö daga frestur til að skila inn skýringum vegna þessa. Skýringarbréf kæranda barst 12. janúar 2015 þar sem kærandi greinir m.a. frá því að hún hafi gleymt að láta Vinnumálastofnun vita af ferð sinni.

Kærandi greinir frá því í kæru að hún mótmæli því ekki að bótaréttur hennar falli niður vegna þeirra daga sem hún hafi dvalið erlendis. Hún hafi vitað að hún þyrfti að tilkynna um utanlandsferð sína til Vinnumálastofnunar en það hafi gleymst í öllu stressinu. Hún hafi munað eftir því í flugvélinni á leiðinni út en ákveðið að láta vita þegar hún kæmi heim. Hins vegar skilji hún ekki af hverju bótaréttur hennar falli niður í þrjá mánuði sökum þess að hún hafi áður sætt niðurfellingu bótaréttar. Hún telji það alls ekki rétt. Þegar að hún hafi skráð sig á atvinnuleysisbætur í september hafi henni verið tjáð að hún þyrfti að bíða í ákveðinn tíma eftir að fá bætur þar sem hún hafi sagt upp vinnu sinni í mars 2013 og hætt að vinna í júní 2013. Hún hafi ekki sætt niðurfellingu bóta heldur einungis þurft að bíða eins og aðrir. Þess vegna skilji hún ekki þá ákvörðun Vinnumálastofnunar að fella niður bótarétt hennar í 3 mánuði sökum ítrekunaráhrifa fyrri ákvörðunar líkt og hún hafi gerst brotleg þegar að hún hafi skráð sig eða af því að hún hafi sagt upp starfi sínu sjálf sökum vanlíðan í vinnu.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 31. mars 2015, vísar Vinnumálastofnun til c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt sé fyrir um að umsækjandi um greiðslur atvinnuleysistrygginga þurfi að vera búsettur og staddur hér á landi til að teljast tryggður samkvæmt lögunum. Vinnumálastofnun vísar einnig til 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt sé fyrir um upplýsingarskyldu umsækjanda til Vinnumálastofnunar, en atvinnuleitanda beri skylda til þess að upplýsa Vinnumálastofnun um allar þær breytingar sem kunni að verða á högum hans eða annað sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar. Stofnunin bendir á að í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 37/2009 til breytinga á lögum um atvinnuleysistryggingar, komi meðal annars fram að láti atvinnuleitandi hjá líða að veita Vinnumálastofnun nauðsynlegar upplýsingar eða veiti rangar upplýsingar, komi til álita að beita viðurlögum skv. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun áréttar að einnig sé mælt fyrir um þessa upplýsingarskyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysisbóta í 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þar segi að atvinnuleitanda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum.

Í 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög við brotum á upplýsingaskyldu hins tryggða. Ljóst sé að kærandi hafi verið stödd erlendis tímabilið 21. desember 2014 til 5. janúar 2015. Í 13. og 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé skýrt kveðið á um þá skyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysisbóta að vera í virkri atvinnuleit.  Sé það jafnframt gert að skilyrði að umsækjandi sé staddur hér á landi, sbr. c-lið 1. mgr. 13. gr. laganna. Kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun fyrir fram um utanlandsferð sína, líkt og henni hafi borið skv. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Á kynningarfundum Vinnumálastofnunar sé vakin athygli á því að eitt af skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta sé að atvinnuleitandi sé búsettur og staddur hér á landi og að ótilkynntar ferðir til útlanda séu óheimilar meðfram töku atvinnuleysistrygginga. Þessar upplýsingar sé einnig að finna á heimasíðu Vinnumálastofnunar.

Ljóst sé að kæranda hafi verið gert að sæta biðtíma í september 2014 á grundvelli 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þar sem um hafi verið að ræða niðurfellingu bóta kæranda öðru sinni, hafi það verið niðurstaða Vinnumálastofnunar að greiðslur atvinnuleysisbóta skyldu ekki greiddar fyrr en kærandi hefði verið skráð hjá Vinnumálastofnun án bóta í þrjá mánuði í samræmi við 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé Vinnumálastofnun skylt að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbóta og innheimta þær atvinnuleysisbætur sem ofgreiddar hafi verið. Í athugasemdum við 39. gr. frumvarps er hafi orðið að lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum þeim tilvikum þegar atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Skuld kæranda muni verða innheimt samkvæmt 39. gr. laga um atvinnuleysisbætur.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 1. apríl 2015, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum. Athugasemdir bárust ekki.

2. Niðurstaða

Mál þetta lýtur m.a. að túlkun á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 22. gr. laga nr. 134/2009, 3. gr. laga nr. 153/2010 og 14. gr. laga nr. 142/2012, sem er svohljóðandi:

Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur … látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.

Þetta ákvæði þarf meðal annars að túlka með hliðsjón af því að skv. c-lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 4. gr. laga nr. 134/2009, er eitt af skilyrðum þess að geta haldið rétti sínum í atvinnuleysistryggingakerfinu að vera búsettur og staddur hér á landi. Fyrir liggur að kærandi var stödd erlendis á tímabilinu frá 21. desember 2014 til 5. janúar 2015, en tilkynnti ekki Vinnumálastofnun fyrirfram að hún yrði ekki stödd á landinu á umræddu tímabili.

Í ljósi þeirrar upplýsingaskyldu atvinnuleitenda sem kveðið er á um í 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 1. gr. laga nr. 134/2009, verður fallist á með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn trúnaðarskyldum sínum gagnvart Vinnumálastofnun í umrætt sinn er hún hélt af landi brott án þess að láta vita af því fyrirfram. Því bar Vinnumálastofnun að láta hana sæta viðurlögum skv. 1. mgr. 59. gr. laganna. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er fortakslaust en í því felst að hvorki Vinnumálastofnun né úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða getur tekið ákvörðun um vægari viðurlög í máli kæranda en ákvæðið felur í sér.

Kærandi var þó ekki einungis látin sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar heldur beitti Vinnumálastofnun einnig ítrekunaráhrifum skv. 1. mgr. 61. gr. laganna. Bótaréttur kæranda var því felldur niður í þrjá mánuði í stað tveggja líkt og 1. mgr. 59. gr. kveður á um. Af kæru má ráða að kærandi er fyrst og fremst ósátt við þá ákvörðun. Ágreiningur málsins lýtur því einnig að túlkun á ákvæði 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sem hljóðar svo:

Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. og 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.

Kærandi byggir á því að hún hafi ekki áður sætt niðurfellingu bótaréttar. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 6. nóvember 2014, var kæranda hins vegar tilkynnt um að vegna starfsloka hennar hjá B væri réttur hennar til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo mánuði með vísan til 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Af bréfinu má ráða að með tveggja mánaða niðurfellingu bótaréttar sé átt við tveggja mánaða biðtíma. Úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða telur að ráða megi af framangreindu að kærandi hafði nú þegar sætt biðtíma skv. 54. gr. laganna áður en hin kærða ákvörðun var tekin. Því bar Vinnumálastofnun að fella niður bótarétt kæranda í þrjá mánuði skv. 31. gr. laganna.

Í 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er fjallað um leiðréttingar á atvinnuleysisbótum og hljóðar 2. mgr. lagagreinarinnar svo:

Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Samkvæmt 2. málsl. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar ber kæranda einnig að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil sem hún uppfyllti ekki skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi ber því að endurgreiða þær atvinnuleysisbætur sem hún hlaut á meðan hún var erlendis, þ.e. fyrir tímabilið frá 22. desember 2014 til 31. desember 2014, auk 15% álags eða samtals 64.018 kr.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar staðfest.

 

Úrskurðarorð

Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 26. janúar 2015 í máli A um niðurfellingu bótaréttar kæranda í þrjá mánuði og endurgreiðslu ofgreiddra bóta, er staðfest.

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta