Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 295/2024-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 295/2024

Fimmtudaginn 19. september 2024

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 26. júní 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. mars 2024, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 6. janúar 2024 og var umsóknin samþykkt 2. febrúar 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. mars 2024, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um nauðsynlegar upplýsingar sem hefðu áhrif á rétt hans til atvinnuleysisbóta. Mál kæranda var tekið fyrir að nýju hjá Vinnumálastofnun í kjölfar frekari skýringa frá honum. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. apríl 2024, var fyrri ákvörðun staðfest með þeim rökum að sú ákvörðun hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu, þrátt fyrir ný gögn í málinu.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 26. júní 2024. Með bréfi, dags. 3. júlí 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 22. ágúst 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 27. ágúst 2024. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru greinir kærandi frá því að hann hafi verið boðaður á fund með dags fyrirvara og að slíkt geti ekki verið löglegt. Þegar kærandi sé veikur fari hann ekki inn á „Mínar síður“ Vinnumálastofnunar nema erindið sé tilgreint í tölvupósti og hversu áríðandi það sé. Kærandi hafi verið veikur og þurft að huga að heilsu sinni. Hann hafi einnig skilað læknisvottorði.

Kærandi hafi verið boðaður á fund þar sem um skyldumætingu hafi verið að ræða með dags fyrirvara. Hann hafi misst af fundinum vegna langra og erfiðra veikinda. Kærandi hafi verið boðaður á annan fund nokkrum dögum síðar, einnig með dags fyrirvara, þegar hann hafi enn verið veikur sem sé langt frá því að vera í lagi. Kærandi hafi óskað eftir nýjum fundi og lýst veikindum sínum. Bótaréttur kæranda hafi svo verið felldur niður í tvo mánuði vegna fjarveru hans. Kærandi telji Vinnumálastofnun reyna sitt besta til þess að þurfa ekki að greiða fólki atvinnuleysisbætur með því að gera þeim erfitt fyrir. Kærandi spyrji hvort erfitt hefði verið að boða kæranda á nýjan fund eins og hann hafi óskað eftir. Kærandi óski eftir því að fá bætur greiddar fyrir umrædda tvo mánuði.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 6. janúar 2024. Með erindi, dags. 2. febrúar 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Þann 13. mars 2024 hafi kærandi verið boðaður á kynningarfund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 14. mars 2024, klukkan 09:30. Kærandi hafi verið upplýstur um að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Kæranda hafi sömuleiðis verið tjáð að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans yrðu stöðvaðar. Boðun þessi hafi verið birt á „Mínum síðum“ kæranda ásamt því að vakin hafi verið athygli á nýjum samskiptum, með tölvupósti á netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer hans, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 13. mars 2024, klukkan 09:15. Kærandi hafi ekki mætt á boðaðan fund.

Með erindi, dags. 20. mars 2024, hafi verið óskað eftir skriflegum skýringum kæranda á fjarveru hans á fundi þann 14. mars 2024. Áréttað hafi verið að hafi hann hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerð án gildra ástæðna gæti hann þurft að sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Þann 21. mars 2024 hafi Vinnumálastofnun borist tölvupóstur frá kæranda þar sem fram hafi komið að kærandi hafi misst af skilaboðum varðandi fundinn. Hann hafi verið veikur og ekki verið að fylgjast nógu vel með skilaboðum. Erindi kæranda hafi verið svarað þann 26. mars 2024. Í svarinu hafi meðal annars komið fram leiðbeiningar um að skila læknisvottorði.

Með erindi, dags. 27. mars 2024, hafi kæranda verið tilkynnt um tveggja mánaða stöðvun á greiðslum atvinnuleysisbóta til hans vegna fjarveru á boðaðan fund, dags. 14. mars 2024. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Þann 27. mars 2024 hafi Vinnumálastofnun borist tölvupóstur frá kæranda með fyrirspurn um úrskurð. Kæranda hafi í svari sem honum hafi verið sent þann 5. apríl 2024 verið leiðbeint um að hann gæti sent inn frekari gögn og óskað eftir endurumfjöllun. Þá hafi jafnframt verið útskýrt að um væri að ræða annan fund sem kærandi hafi ekki mætt á. Fyrri fundurinn hafi átt að fara fram þann 5. mars 2024 en viðurlögin væru vegna fundar sem hafi átt að fara fram þann 14. mars 2024. Þá hafi verið ítrekað fyrir kæranda mikilvægi þess að tilkynna allar breytingar á högum sínum til Vinnumálastofnunar og honum bent á ítarefni á heimasíðu stofnunarinnar.

Þann 2. apríl 2024 hafi Vinnumálastofnun borist tölvupóstur frá kæranda þar sem óskað hafi verið eftir að 25% hlutastarfi hans hjá B yrði lokað. Kærandi hafi verið skráður í 20% hlutastarf og hafi því verið lokað að beiðni kæranda.

Þann 15. apríl 2024 hafi Vinnumálastofnun borist læknisvottorð í gegnum „Mínar síður“ kæranda. Í vottorðinu hafi komið fram að það væri gefið út í gegnum Heilsuveru og tilkynning um veikindi frá 4. til 14. mars 2024 hafi verið tilkynnt lækni þann 15. apríl 2024.

Með erindi, dags. 18. apríl 2024, hafi kæranda verið tilkynnt um að málið hefði verið tekið fyrir að nýju. Fyrri ákvörðun stofnunarinnar frá 27. mars 2024 hafi verið staðfest þar sem hvorki hafi komið fram skýringar né gögn sem hafi breytt grundvelli fyrri ákvörðunar.

Þann 19. apríl 2024 hafi stofnuninni borist erindi frá kæranda í gegnum „Mínar síður“ sem hafi verið túlkað sem beiðni um endurumfjöllun. Þann 30. apríl 2024 hafi kæranda verið tilkynnt að beiðni hans um endurumfjöllun hefði verið hafnað.

Með erindi, dags. 4. júlí 2024, hafi verið óskað eftir skriflegum skýringum kæranda á ótilkynntum tekjum hans frá B í apríl, maí og júní 2024. Auk þess hafi verið óskað eftir launaseðlum fyrir sömu tímabil. Vinnumálastofnun hafi hvorki borist skýringar né gögn og hafi kæranda því verið tilkynnt um að honum bæri að sæta greiðslustöðvun fyrir brot á tilkynningarskyldu sinni. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. mars 2024, hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 26. júní 2024.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Eitt af almennum skilyrðum greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a-lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitanda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í þau viðtöl, þá fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt til boðaðs fundar á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 14. mars 2024. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, farsíma og á „Mínum síðum“ um boðun á umræddan fund. Kærandi hafi fengið rúmlega sólarhringsfyrirvara til að bregðast við boðun stofnunarinnar. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kærandi verið inntur eftir skýringum á fjarveru sinni með erindi, dags. 20. mars 2024. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysistryggingar skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð er hafi fylgt frumvarpi því er hafi orðið að  lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Kærandi hafi skilað inn læknisvottorði eins og áður segi þann 15. apríl 2024 vegna fundarins sem hafi átt að vera þann 14. mars 2024. Þá hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 27. mars 2024, á grundvelli 1. mgr. 59. gr. og gert að sæta stöðvun á greiðslum atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

Í 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög við brotum á þessari upplýsingaskyldu hins tryggða:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Kærandi hafi valið að vera í rafrænum samskiptum við Vinnumálastofnun þegar hann hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta. Þegar umsókn kæranda hafi verið samþykkt hafi honum verið tilkynnt að Vinnumálastofnun myndi framvegis koma skilaboðum til hans með tölvupósti, skilaboðum inn á „Mínum síðum“ og með smáskilaboðum. Kærandi hafi því verið upplýstur með fullnægjandi hætti um hvernig honum yrðu send mikilvæg skilaboð og tilkynningar. Fyrir liggi að kæranda hafi verið send tilkynning í farsíma og tölvupósti þar sem honum hafi verið tjáð að honum biðu skilaboð á „Mínum síðum“. Í samskiptasögu kæranda komi fram að honum hafi sannarlega verið sendur tölvupóstur á uppgefið tölvupóstfang, X, og með textaskilaboðum í skráð farsímanúmer, X, þann 13. mars 2024, klukkan 09:15. Boðun til umrædds fundar hafi því borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Þá liggi fyrir að læknisvottorð það sem skilað hafi verið inn 15. apríl 2024 hafi verið útbúið og sótt af kæranda eftir að Vinnumálastofnun hafi óskað eftir skýringum á fjarveru á boðaðan fund. Kærandi hafi því ekki brugðist við boðun á fund og óskað fyrst eftir vottorði í gegnum vefþjónustu þann 15. apríl 2024 vegna veikinda sem samkvæmt vottorði hafi staðið yfir frá 4. til 14. mars 2024.

Í ljósi alls þess sem hér hafi verið rakið og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Með því að hafa ekki mætt til umrædds fundar og hvorki tilkynnt um veikindi né forföll hafi kærandi brugðist skyldum sínum til tilkynningar vegna atriða sem hafi haft áhrif á rétt hans til greiðslu atvinnuleysistrygginga og beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., þar á meðal um tilfallandi veikindi, án ástæðulausrar tafar. Þá segir meðal annars í 5. mgr. 14. gr. laganna að hinn tryggði skuli tilkynna um upphaf og lok veikinda til Vinnumálastofnunar án ástæðulausrar tafar. Jafnframt skuli hann skila inn læknisvottorði innan viku frá lokum veikindanna óski Vinnumálastofnun eftir því.

Í máli þessu liggur fyrir að kærandi mætti ekki á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun þann 14. mars 2024 vegna veikinda. Þá liggur fyrir að kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun ekki um veikindin fyrr en í apríl 2024 og ekki fyrr en stofnunin hafði leitað eftir skýringum á því hvers vegna hann hefði ekki mætt á fundinn.

Í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr., 2. og 5. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hann tilkynnti stofnuninni ekki strax um veikindi sín. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. mars 2024, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta