Mál nr. 616/2023-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 616/2023
Fimmtudaginn 14. mars 2024
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 22. desember 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. desember 2023, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 6. mars 2023 og var umsóknin samþykkt 15. mars 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. desember 2023, var kæranda tilkynnt að réttur hans til atvinnuleysisbóta væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar vegna höfnunar á starfi.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 22. desember 2023. Með bréfi, dags. 4. janúar 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 23. janúar 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 24. janúar 2024. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi greinir frá því að hann vilji kæra ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði. Samkvæmt ákvörðun stofnunarinnar hafi hann hafnað starfstilboði en það sé ekki rétt. Ferilskrá kæranda hafi verið send í bakarí og hann hafi í kjölfarið farið í viðtal. Í viðtalinu hafi atvinnurekandinn tjáð honum að einnig væri unnið með kjöt í bakaríinu. Kærandi hafi þá tjáð atvinnurekandanum að hann gæti gert allt í bakaríinu, svo sem unnið með brauð og kökur, en ekki kjöt þar sem hann sé vegan. Hann sé mjög viðkvæmur fyrir þjáningu dýra og geti hann því ekki unnið með nein matvæli sem innihaldi kjöt. Atvinnurekandinn hafi þá tjáð honum að hann myndi ekki passa í starfið og viðtalinu hafi lokið. Vegna þess hafi atvinnuleysisbætur hans verið felldar niður í þrjá mánuði.
Kærandi hafi ekki borðað kjöt í mörg ár og það sé vandamál fyrir hann að vinna með dýraafurðir. Hann geti ekki tekið þátt í þjáningu dýra þar sem það stríði gegn trú hans. Áður hafi hann unnið á vegan veitingastað, B, en það starf hafi verið fullkomið fyrir hann. Því miður hafi veitingastaðurinn verið seldur og hann hafi misst vinnuna. Nú leiti hann að starfi í eldhúsi þar sem hann geti unnið með matvæli sem sé í samræmi við trú hans. Kærandi hafi átt erfitt með að finna starf í aðdraganda jóla. Hann vilji ekki vera þvingaður til að starfa við eitthvað sem stríði gegn trú hans og vilji þess vegna að ákvörðun Vinnumálastofnunar verði felld úr gildi svo að hann fái lengri tíma til að leita sér að starfi.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi fyrst sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 26. apríl 2021. Með erindi, dags. 20. maí 2021, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100% en samkvæmt 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar bæri honum að sæta tveggja mánaða bið eftir greiðslum vegna þess að hann hafi sagt sjálfur upp starfi. Kærandi hafi þegið greiðslur til loka febrúar 2022 en hafi þá verið afskráður vegna þess að hann hafi hafið störf að nýju.
Kærandi hafi sótt aftur um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 6. mars 2023. Með erindi, dags. 15. mars 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.
Þann 23. nóvember 2023 hafi Vinnumálastofnun borist tilkynning þess efnis að kærandi hefði hafnað starfi hjá C. Um hafi verið að ræða starf aðstoðarmanns í bakaríi, en kæranda hafi verið miðlað í umrætt starf af Vinnumálastofnun. Af upplýsingum frá atvinnurekanda megi ráða að kærandi hafi gert honum ljóst í viðtalinu að hann vildi ekki starfið hjá honum. Með erindi, dags. 14. desember 2023, hafi þess verið óskað að kærandi veitti stofnuninni skýringar á ástæðum þess að hann hafi hafnað starfinu.
Vinnumálastofnun hafi borist skýringar kæranda þann 14. desember 2023 á ástæðum þess að hann hafi hafnað starfi hjá C. Kærandi hafi greint frá því að hann hefði ekki hafnað starfinu, hann hefði viljað starfa þar. Jafnframt hafi hann sagt í skýringum að hann hafi gert eigandanum ljóst að hann væri vegan og gæti þar af leiðandi ekki unnið með kjöt þar sem það færi gegn trú hans (e. against my beliefs).
Með erindi, dags. 20 desember 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að réttur hans til greiðslu atvinnuleysistrygginga væri felldur niður í þrjá mánuði sökum þess að hann hefði hafnað starfi hjá C. Sú ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. jafnframt 1. mgr. 61. gr. sömu laga. Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20 desember 2023, hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 22. desember 2023. Rökstuðningur kæranda í kæru sé efnislega samhljóða þeim skýringum sem hann hafi veitt Vinnumálastofnun.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð meðan þeir leiti nýs starfs. Með þessu sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Gert sé ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðbúnir til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu. Ríkar kröfur beri að gera til þeirra sem hafni starfi á innlendum vinnumarkaði að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.
Eitt af almennum skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem sé á Íslandi án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit.
Fyrir liggur að kærandi hafi hafnað starfi hjá C. Honum hafi í kjölfarið verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. einnig 1. mgr. 61. gr. sömu laga. Ákvæði 1. mgr. 57. gr. sé svohljóðandi:
„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“
Í athugasemdum með 57. gr. í frumvarpi því er hafi orðið að lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé tekið fram að það að hafna því að fara í atvinnuviðtal eða sinna ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar hafi sömu áhrif og sú ákvörðun að taka ekki starfi sem bjóðist. Ástæðan sé einkum sú að atvinnuviðtal sé venjulega meginforsenda þess að hinum tryggða verði boðið starf og þyki mega leggja þá ákvörðun að jöfnu við því að hafna starfi.
Samkvæmt 4. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar skuli Vinnumálastofnun meta við ákvörðun um viðurlög samkvæmt 1. mgr. 57. gr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg, en í 4. mgr. segi orðrétt:
„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“
Vinnumálastofnun sé gert að meta skýringar atvinnuleitanda vegna höfnunar á atvinnutilboði með hliðsjón af þeirri ríku skyldu sem hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til að vera reiðubúnir að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Gert sé ráð fyrir því að Vinnumálastofnun sé heimilt að líta til aldurs hins tryggða, félagslegra aðstæðna tengdum skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima við ákvörðun um hvort hinn tryggði skuli sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 57. gr. laganna. Enn fremur sé Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar í boði sé starf fjarri heimili hans sem geri kröfur um að hlutaðeigandi flytji búferlum.
Þær skýringar sem kærandi hafi veitt fyrir ástæðum þess að hann hafi hafnað starfi lúti að því að hann geti ekki, sökum þess að hann sé vegan og að það stríði gegn trú hans, starfað þar sem meðhöndlun dýraafurða sé viðhöfð. Rétt sé að taka fram að kærandi hafi ekki áður upplýst Vinnumálastofnun um þær takmarkanir á störfum sem hann geti unnið. Það sé á ábyrgð atvinnuleitanda að stofnuninni berist réttar og nákvæmar upplýsingar um vinnufærni og þau störf sem viðkomandi telji sig ekki geta unnið. Slíkt leiði meðal annars af ákvæði 1. og 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Að mati Vinnumálastofnunar geti skýringar kæranda, þess efnis að hann hafi hafnað umræddu starfi hjá C sökum þess að hann sé vegan, ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Ekki sé í ákvæði 4. mgr. 57. gr. laganna gert ráð fyrir að réttlætanlegt sé að hafna almennum störfum á grundvelli trúarskoðana, hugmyndafræði eða afstöðu til matvælaframleiðslu. Þá vísi Vinnumálastofnun jafnframt til þess að á meðal almennra skilyrða fyrir greiðslum atvinnuleysistrygginga sé að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laganna. Í virkri atvinnuleit felist meðal annars að vera reiðubúinn til að taka hverju því starfi sem greitt sé fyrir, hvar sem sé á Íslandi, án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu, sbr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Að mati Vinnumálastofnunar samræmist það ekki skilyrði laganna um virka atvinnuleit að atvinnuleitandi geti af fyrrgreindum ástæðum hafnað almennum störfum sem felist í meðferð kjötafurða, eða séu unnin í návígi við þær. Lög um atvinnuleysistryggingar geri ekki ráð fyrir slíkum almennum undanþágum frá skilyrðinu um virka atvinnuleit. Vinnumálastofnun vísi máli sínu til stuðnings til úrskurðar úrskurðarnefndarinnar í málum nr. 513/2021 og [311/2023].
Með vísan til alls þess framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi hafi hafnað starfi hjá C í skilningi 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, og ekki haft þar að baki gildar ástæður, sbr. 4. mgr. sömu greinar. Kæranda beri því að sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. maí 2021, hafi kæranda verið gert að sæta tveggja mánaða bið eftir greiðslum vegna þess að hann hafi sjálfur sagt upp starfi á grundvelli 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þegar kæranda hafi verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laganna með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 20. desember 2023, hafi því komið til ítrekunaráhrifa fyrri viðurlaga, sbr. 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Hann skuli því ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysistrygginga fyrr en að þremur mánuðum liðnum.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í þrjá mánuði, sökum þess að hann hafi hafnað starfi hjá C, sbr. 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, sbr. 1. mgr. 61. gr. sömu laga.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 57. gr., sbr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:
„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“
Þá segir svo í 4. mgr. 57. gr. laganna:
„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“
Samkvæmt gögnum málsins var kæranda þann 1. nóvember 2023 miðlað í starf hjá C. Fyrirtækið tilkynnti Vinnumálastofnun þann 23. nóvember 2023 að kærandi hefði hafnað starfinu þar sem hann vildi eingöngu vinna á stað þar sem væri ekki verið að meðhöndla kjöt. Kærandi hefur gefið þær skýringar að hann hafi ekki hafnað starfinu. Þá hafi hann gefið þær skýringar að sé vegan og hafi getað starfað við allt í bakaríinu nema að meðhöndla kjöt en það hafi ekki verið hægt.
Ákvæði 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 gerir ekki ráð fyrir að réttlætanlegt sé að hafna almennum störfum á grundvelli trúar- og lífsskoðana. Þær ástæður og skýringar sem kærandi hefur gefið eru því ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á umræddu starfi, sbr. 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006. Úrskurðarnefndin bendir á að í 1. mgr. 13. gr. laganna er fjallað um almenn skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögunum. Eitt af þeim skilyrðum er að vera í virkri atvinnuleit samkvæmt 14. gr. en í því felst meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt er fyrir, sbr. c. lið 1. mgr. ákvæðisins.
Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:
„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“
Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 20. maí 2021 á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna.
Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr., sbr. 1. mgr. 61. laga nr. 54/2006, staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. desember 2023, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir