Mál nr. 398/2024-Úrskurður
.
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 398/2024
Þriðjudaginn 29. október 2024
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 28. ágúst 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. ágúst 2024, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 27. desember 2023 og var umsóknin samþykkt 23. janúar 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. ágúst 2024, var kæranda tilkynnt að réttur hans til atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði ekki tilkynnt stofnuninni um tilfallandi tekjur eða vinnu. Kæranda var jafnframt tilkynnt að hann hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 17.389 kr., að meðtöldu 15% álagi, sem yrðu innheimtar samkvæmt 3. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 28. ágúst 2024. Með bréfi, dags. 29. ágúst 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 19. september 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 24. september 2024. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru greinir kærandi frá því að hafa sótt um atvinnuleysisbætur þann 27. desember 2023 og umsóknin hafi verið samþykkt. Hann hafi fengið fyrstu greiðslu þann 1. febrúar 2024. Í janúar 2024 hafi kærandi hins vegar fengið tekjur fyrir sjö daga vinnu en ekki tilkynnt Vinnumálastofnun um þær vegna misskilnings. Kærandi viðurkenni að hann hafi ekki látið stofnunina vita af umræddum tekjum vegna skilningsleysis eða samskiptaörðugleika. Kærandi hafi farið á skrifstofu Vinnumálastofnunar og fengið þær upplýsingar að ef tekjur færu ekki yfir tiltekna upphæð kæmi aðeins til 25% skerðingar á atvinnuleysisbótum. Þar að auki hafi umrætt starf aðeins verið prufa og kærandi hafi ekki haldið þar áfram.
Þegar kærandi hafi fengið fast hlutastarf hafi hann haft samband við Vinnumálastofnun um leið til að tilkynna breytingarnar og stöðugt tilkynnt um tekjur sínar. Kærandi sjái mjög eftir því að hafa ekki tilkynnt um tekjur sínar í janúar 2024 og biðjist velvirðingar á því. Kærandi telji þó að biðtími eftir atvinnuleysisbótum séu of þung viðurlög. Hann óski því eftir að ákvörðun Vinnumálastofnunar verði endurskoðuð með tilliti til aðstæðna kæranda. Mistök kæranda hafi verið óviljandi og hann sé reiðubúinn að endurgreiða það sem ofgreitt hafi verið.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga þann 27. desember 2023. Með erindi, dags. 23. janúar 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.
Í kjölfar reglulegs eftirlits Vinnumálastofnunar hafi komið í ljós að kærandi hafi verið með óútskýrðar tekjur í janúar 2024 frá B og með erindi, dags. 22. ágúst 2024, hafi þess verið óskað að kærandi veitti stofnuninni skýringar vegna umræddra tekna, auk afrits af launaseðlum.
Kærandi hafi skilað yfirliti úr staðgreiðsluskrá Skattsins vegna tekjuársins 2024 innan þess sjö daga frests sem honum hafi verið veittur en stofnuninni hafi ekki verið veittar skýringar á viðkomandi greiðslum. Kæranda hafi verið tilkynnt með erindi, dags. 28. ágúst 2024, að þar sem hann hefði látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um nauðsynlegar upplýsingar sem hefðu áhrif á rétt hans til atvinnuleysistrygginga væri bótaréttur hans felldur niður frá og með þeim degi í tvo mánuði. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda hafi jafnframt verið tilkynnt að samkvæmt fyrirliggjandi gögnum í máli hans hefði hann fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur, samtals að fjárhæð 17.389 kr. að álagi meðtöldu, sem innheimtar yrðu samkvæmt 3. mgr. 39. gr. laganna með skuldajöfnuði af síðar tilkomnum atvinnuleysisbótum.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Kærð sé ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. ágúst 2024, þess efnis að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og að honum hafi verið gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysistryggingar sökum þess að hann hafi ekki tilkynnt stofnuninni um tekjur sínar í janúar 2024.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki upplýst Vinnumálastofnun um tekjur sínar frá B. Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé rík áhersla lögð á upplýsingaskyldu atvinnuleitanda gagnvart Vinnumálastofnun. Þannig beri atvinnuleitanda meðal annars að tilkynna stofnuninni um allar breytingar á aðstæðum sem gætu haft áhrif á rétt viðkomandi til greiðslu atvinnuleysisbóta, sbr. 2. mgr. 14. gr. laganna. Í 3. mgr. 9. gr. sé sérstaklega kveðið á um skyldu atvinnuleitanda til að tilkynna stofnuninni um tekjur vegna tilfallandi vinnu. Þar segi orðrétt:
„Sá sem telst tryggður á grundvelli laga þessara skal upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir.“
Vinnumálastofnun árétti að upplýsingaskylda atvinnuleitanda sé ítrekuð á öllum stigum umsóknarferlis um atvinnuleysisbætur. Við upphaf umsóknar séu atvinnuleitendum kynnt margvísleg atriði er varði réttindi og skyldur, þar á meðal upplýsingaskyldu. Í lok umsóknarferlis staðfesti allir atvinnuleitendur að þeir hafi kynnt sér þau atriði. Þá sé á heimasíðu Vinnumálastofnunar að finna ítarlegar upplýsingar til handa atvinnuleitendum um skyldur þeirra sem hafi þegið tekjur samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta og hvernig eigi að skrá slíkar tekjur.
Ein meginskylda atvinnuleitanda sé að tilkynna stofnuninni um allar þær tekjur sem viðkomandi þiggi á meðan hann fái greiddar atvinnuleysisbætur. Á heimasíðu Vinnumálastofnunar megi í því skyni finna ítarlegt kennslumyndband um hvernig tilkynna beri tekjur til stofnunarinnar en þar sé meðal annars tiltekið að tilkynna skuli stofnuninni um tekjur með minnst dags fyrirvara og að skrá skuli fjárhæð tekna inn á ,,Mínum síðum“. Kærandi hafi ekki greint frá því að hann hefði starfað hjá B í janúar 2024. Eðli máls samkvæmt geti atvinnuleitandi ekki þegið óskertar atvinnuleysistryggingar samhliða launuðum störfum. Kærandi hafi verið upplýstur um skyldu sína til að upplýsa um allar tekjur, hlutastarf, tilfallandi vinnu, tekjur, eða fjármagnstekjur við upphaf vinnslu umsóknar hans og með tölvupósti, dags. 27. desember 2023. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að kæranda hafi mátt vera fulljóst að honum bæri að tilkynna stofnunni um upphaf og lok vinnu sinnar, auk þeirra tekna sem hann hafi aflað sér.
Í ljósi framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki uppfyllt upplýsingaskyldu sína samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Af þeirri ástæðu hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. sömu laga en ákvæðið hljóði svo:
„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“
Á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum í tvo mánuði. Að auki hafi ofgreiddar atvinnuleysisbætur verið innheimtar, samtals að fjárhæð 17.389 kr., að álagi meðtöldu.
Í 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að láti einstaklingur hjá líða að tilkynna um tilfallandi tekjur samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta skuli hann sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta. Með því að hafa látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um tilfallandi vinnu sína samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta í janúar 2024 beri kæranda að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Eins og áður segi hafi kærandi þegið laun í janúar 2024 frá B. Umræddar tekjur kæranda hafi numið 132.572 kr. í janúar 2024. Tekjur kæranda komi til frádráttar atvinnuleysisbótum í samræmi við 1. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sem hljóði svo:
„Þegar samanlagðar tekjur af hlutastarfi hins tryggða, sbr. 17. eða 22. gr., og atvinnuleysisbætur hans skv. 32.–34. gr. eru hærri en sem nemur óskertum rétti hans til atvinnuleysisbóta að viðbættu frítekjumarki skv. 4. mgr. skal skerða atvinnuleysisbætur hans um helming þeirra tekna sem umfram eru. Hið sama gildir um tekjur hins tryggða fyrir tilfallandi vinnu, elli- eða örorkulífeyrisgreiðslur samkvæmt lögum um almannatryggingar, um elli- og örorkulífeyrisgreiðslur úr almennum lífeyrissjóðum, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga sem eru komnar til vegna óvinnufærni að hluta, fjármagnstekjur hins tryggða og aðrar greiðslur sem hinn tryggði kann að fá frá öðrum aðilum. Eingöngu skal taka tillit til þeirra tekna sem hinn tryggði hefur haft á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur, sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum.“
Samkvæmt 3. gr. reglugerðar nr. 1422/2023, settri með stoð í 4. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sé frítekjumark 86.114 kr. á mánuði vegna ársins 2024.
Í umræddum mánuði hafi tekjur kæranda numið hærri fjárhæð en frítekjumark atvinnuleysisbóta. Umræddar tekjur hafi því réttilega átt að koma til skerðingar á atvinnuleysisbótum í samræmi við 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun hafi hins vegar ekki verið kunnugt um umræddar tekjur við útgreiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda og því hafi myndast skuld við stofnunina, samtals að fjárhæð 15.121 kr.
Í 2. mgr. 39. gr. sé kveðið á um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ákvæðið sé svohljóðandi:
„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“
Í framangreindu ákvæði sé mælt fyrir um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Í athugasemdum með 39. gr. í frumvarpi því sem hafi orðið að lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslunnar hafi með öðrum orðum ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð sem hafi verið ofgreidd. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé því fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Kæranda beri því að greiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur með 15% álagi.
Heildarskuld kæranda sé 17.389 kr. og þar af sé álag að fjárhæð 2.268 kr.
Eins og kveðið sé á um í lokamálslið 2. mgr. 39. gr. skuli fella niður álagið færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er hafi leitt til skuldmyndunar. Í þessu samhengi vísi Vinnumálastofnun til þess sem að framan hafi verið rakið. Það sé mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki uppfyllt upplýsingaskyldu sína gagnvart stofnuninni, sbr. 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ein meginskylda atvinnuleitanda sé að tilkynna stofnuninni um allar tekjur og skýr fyrirmæli sé að finna þess efnis að slíkt skuli gera í gegnum ,,Mínar síður“ atvinnuleitanda. Vinnumálastofnun vísi jafnframt til þess að það sé á ábyrgð þess er fái greiddar atvinnuleysisbætur að tryggja að Vinnumálastofnun berist nauðsynlegar upplýsingar er geti haft áhrif á rétt hans til greiðslu atvinnuleysisbóta. Í ljósi framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að ekki sé tilefni til að fella niður álag á skuld kæranda.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og að honum beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.
Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:
„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“
Ákvæðið ber meðal annars að túlka með hliðsjón af ákvæði 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 en samkvæmt því skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., án ástæðulausrar tafar.
Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var með tekjur í janúar 2024 frá B samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta frá Vinnumálastofnun. Þær upplýsingar bárust Vinnumálastofnun í kjölfar reglulegs eftirlits innan stofnunarinnar í júlí 2024.
Í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hann tilkynnti stofnuninni ekki fyrir fram um þær tekjur sem hann fékk framangreindan mánuð. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti.
Mál þetta lýtur einnig að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að innheimta ofgreiddar bætur vegna framangreindra tekna. Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann hafi átt rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið, að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.
Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á. Þar sem kærandi tilkynnti ekki fyrir fram um framangreindar tekjur fékk hann greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Aftur á móti skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Líkt og áður greinir tilkynnti kærandi ekki Vinnumálastofnun fyrir fram um þær tekjur sem hann fékk framangreindan mánuð og er því að mati úrskurðarnefndarinnar ekki tilefni til að fella niður álagið sem stofnunin lagði á endurgreiðslukröfuna.
Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. ágúst 2024, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir