Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 481/2024-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 481/2024

Þriðjudaginn 17. desember 2024

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 1. október 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. september 2024, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 2. febrúar 2024 og var umsóknin samþykkt 28. febrúar 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. september 2024, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 1. október 2024. Með bréfi, dags. 3. október 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 28. október 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 30. október 2024. Athugasemdir bárust frá kæranda 4. nóvember 2024 og voru þær kynntar Vinnumálastofnun með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 5. nóvember 2024. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hann sé enn ringlaður vegna vinnubragða Vinnumálastofnunar í tengslum við fund sem hann hafi ekki mætt á. Kærandi hafi áður mætt á fund hjá Vinnumálastofnun og þá gert ferilskrá. Kæranda hafi verið tjáð að hann þyrfti þá ekki að koma aftur. Kærandi hafi fengið tölvupóst frá Vinnumálastofnun en hafi haldið að það væri vegna staðfestingar á atvinnuleit, hann hafi því ekki farið inn á vefsvæði stofnunarinnar. Þrátt fyrir þetta allt hafi kærandi ekki haft tök á því að mæta á fund hjá Vinnumálastofnun þennan dag. Maki kæranda hafi verið mjög veik þennan dag og hann hafi ákveðið að vera með henni og reyna að fá læknatíma.

Kærandi tekur fram að hann sé enn í virkri atvinnuleit og óski eftir því að honum verði ekki refsað. Ef kærandi missi bæturnar í tvo mánuði geti hann ekki greitt leigu og verði þá án efa hent út úr húsnæðinu. Hann hafi ekki neinn stað til að fara á ef það gerist. Kærandi geti sannað að hann hafi verið með veikum maka sínum þennan dag, ef þörf krefji.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 2. febrúar 2024. Með erindi, dags. 28. febrúar 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 35%.

Þann 9. september 2024 hafi kærandi verið boðaður á upplýsingafundinn „Tækifæri í atvinnuleit“ á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 10. september 2024, klukkan 10:15. Kærandi hafi verið upplýstur um að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Sömuleiðis hafi kæranda verið tjáð að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans yrðu stöðvaðar. Boðunin hafi verið birt á „Mínum síðum“ atvinnuleitanda. Ásamt því hafi verið vakin athygli á nýjum samskiptum með tölvupósti á netfang kæranda og með SMS skilaboðum í skráð símanúmer kæranda, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi SMS skilaboðin borist í símtæki kæranda þann 9. september 2024, klukkan 09:02. Kærandi hafi ekki mætt á boðaðan upplýsingafund.

Með erindi, dags. 17. september 2024, hafi verið óskað eftir skriflegum skýringum kæranda á fjarveru hans á boðaðan upplýsingafund sem hafi farið fram þann 10. september 2024. Áréttað hafi verið að ef kærandi hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerð án gildra ástæðna gæti hann þurft að sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Samdægurs hafi borist tölvupóstur frá kæranda þar sem fram komi að hann hafi ekki lesið boðunina. Kærandi hafi sagst hafa fengið þær upplýsingar á ferilsskránámskeiði sem hann hafi farið á að hann þyrfti ekki mæta aftur á fund á vegum Vinnumálastofnunar. Kærandi hafi beðist afsökunar á fjarveru sinni og hafi boðist til að mæta á næsta mögulega fund.

Þann 26. september 2024 hafi Vinnumálastofnun borist skýringarbréf frá kæranda þar sem fram komi að hann hafi misskilið boðun á upplýsingafundinn. Hann hafi ekki vitað að skammstöfunin „VMST“ í tölvupóstfangi stofnunarinnar „[email protected] sem tilgreint var í boðun á upplýsingafund stæði fyrir „Vinnumálastofnun“. Hann hafi því hvorki mætt á boðaðan upplýsingafund né boðað forföll.

Með erindi, dags. 30. september 2024, hafi kæranda verið tilkynnt um tveggja mánaða stöðvun á greiðslum atvinnuleysisbóta til hans vegna fjarveru á boðaðan upplýsingafund þann 10. september 2024. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Þann 30. september 2024 hafi borist frekari skýringar á fjarveru kæranda á boðaðan upplýsingafund. Kærandi hafi sagst hafa staðið í þeirri trú að hann þyrfti ekki á mæta á upplýsingafund þar sem hann værir nú þegar með ferilskrá. Þá hafi kærandi haldið að boð Vinnumálastofnunar væri áminning um að staðfesta atvinnuleit. Mál kæranda hafi verið tekið fyrir að nýju með tilliti til nýrra gagna. Það hafi verið mat stofnunarinnar að skýringar kæranda á fjarveru gætu ekki talist gildar og fyrri ákvörðun hafi því verið staðfest. Sú ákvörðun hafi verið tilkynnt kæranda með erindi, dags. 8. október 2024. Ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 1. október 2024.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Eitt af almennum skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á upplýsingafund sem hafi farið fram á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 10. september 2024. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, farsíma og á ,,Mínum síðum“ um boðun á umræddan upplýsingafund. Kærandi hafi fengið rúmlega sólarhringsfyrirvara til að bregðast við boðun stofnunarinnar. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kærandi verið inntur eftir skýringum á fjarveru sinni með erindi, dags. 13. september 2024. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Skýringar sem kærandi hafi veitt Vinnumálastofnun vegna fjarveru á boðaðan upplýsingafund beri með sér að hann hafi misskilið boð Vinnumálastofnunar. 

Vinnumálastofnun meti skýringar kæranda ekki gildar. Í því samhengi bendi Vinnumálastofnun á að kærandi hafi valið að vera í rafrænum samskiptum við stofnunina þegar hann hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta. Þegar umsókn kæranda hafi verið samþykkt hafi honum verið tilkynnt að Vinnumálastofnun myndi framvegis koma skilaboðum til hans með tölvupósti, skilaboðum inn á „Mínum síðum“ atvinnuleitenda og með smáskilaboðum. Kærandi hafi því verið upplýstur með fullnægjandi hætti um hvernig honum yrðu send mikilvæg skilaboð og tilkynningar. Fyrir liggi að kæranda hafi verið send tilkynning í farsíma og tölvupósti þar sem honum hafi verið tjáð að skilaboð biðu eftir honum á „Mínum síðum“ atvinnuleitanda. Í samskiptasögu kæranda komi fram að honum hafi sannarlega verið sendur tölvupóstur á uppgefið tölvupóstfang, X, og með textaskilaboðum í skráð farsímanúmer, X, þann 9. september 2024, klukkan 09:02. Boðun til umrædds upplýsingafundar hafi því borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þá bendi Vinnumálastofnun á að glöggt komi fram í boðun til kæranda að um skyldumætingu hafi verið að ræða á umræddan upplýsingafund og bent hafi verið á að fjarvera gæti leitt til greiðslustöðvunar á greiðslum atvinnuleysisbóta. Auðvelt hefði verið fyrir kæranda að senda fyrirspurn á uppgefið tölvupóstfang og spyrjast fyrir hvert erindi Vinnumálastofnunar væri. Það hafi kærandi ekki gert. Því verði að líta svo á að kærandi hafi brugðist skyldu sinni sem atvinnuleitandi að mæta á boðaðan upplýsingafund.

Í ljósi alls þess sem hér hafi verið rakið, og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Með því að hafa ekki mætt á umræddan upplýsingafund og ekki tilkynnt um forföll hafi kærandi brugðist skyldum sínum og beri því að sæta tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var þann 9. september 2024 boðaður á upplýsingafund hjá Vinnumálastofnun sem fara átti fram á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík daginn eftir, þann 10. september 2024. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án tafar í gegnum netfang Vinnumálastofnunar. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Boðunin var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma. Kærandi hvorki boðaði forföll né mætti á fundinn.

Kærandi hefur gefið þær skýringar að hann hafi haldið að tölvupóstur Vinnumálastofnunar væri vegna staðfestingar á atvinnuleit, hann hafi því ekki farið inn á vefsvæði stofnunarinnar. Þá hefur kærandi greint frá því að maki hans hafi verið mjög veik þennan dag og því hafi hann ekki haft tök á því að mæta á fund hjá Vinnumálastofnun.

Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta fjarveru á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. september 2024, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta