Mál nr. 270/2024 Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 270/2024
Fimmtudaginn 5. september 2024
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 12. júní 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 10. júní 2024, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 13. október 2023 og var umsóknin samþykkt 31. október 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 10. júní 2024, var kæranda tilkynnt að réttur hans til atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sökum þess að hann hefði hafnað starfi. Mál kæranda var tekið fyrir að nýju hjá Vinnumálastofnun í kjölfar frekari skýringa frá honum. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. júní 2024, var fyrri ákvörðun staðfest með þeim rökum að sú ákvörðun hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu, þrátt fyrir ný gögn í málinu.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 12. júní 2024. Með bréfi, dags. 13. júní 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 4. júlí 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar 9. júlí 2024. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru greinir kærandi frá því að í skýringum sínum til Vinnumálastofnunar vegna höfnunar á starfi hafi hann gert ítarlega grein fyrir verulegum vanköntum á ráðningarsamningi atvinnurekanda. Kærandi hafi óskað eftir endurupptöku á máli sínu og varpað fram spurningum til Vinnumálastofnunar um hvort lög og reglur um ráðningarsamninga gildi ekki. Þeim spurningum hafi ekki verið svarað og því hafi verið um ófullnægjandi afgreiðslu að ræða að mati kæranda.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 13. október 2023. Með erindi, dags. 31. október 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.
Þann 13. maí 2024 hafi Vinnumálastofnun borist þær upplýsingar að kærandi hefði hafnað atvinnutilboði sem honum stóð til boða hjá B. Um hafi verið að ræða starf við stjórnun af ýmsu tagi, starfsmannahald, sölumál og þjónustu við viðskiptavini, hugmyndavinnu og þátttöku í markaðssetningu á fyrirhugaðri kvikmyndahátíð sem haldin yrði í Reykjavík á komandi sumri. Vinnumálastofnun hafi sent ferilskrá kæranda til atvinnurekanda þann 20. apríl 2024 með það fyrir augum að koma á ráðningarsambandi milli kæranda og atvinnurekanda. Samkvæmt ferilskrá kæranda sé hann með BA-próf í miðlun og almannatengslum. Samkvæmt upplýsingum frá atvinnurekanda hafi kærandi hafnað umræddu starfstilboði.
Með erindi, dags. 4. júní 2024, hafi verið óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda á höfnun á atvinnutilboði hjá B. Athygli kæranda hafi jafnframt verið vakin á því að ef atvinnuleitandi hafi hafnað atvinnutilboði eða atvinnuviðtali án gildra ástæðna gæti hann þurft að sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga. Vinnumálastofnun hafi borist skýringar frá kæranda samdægurs þar sem hann hafi sagst hafa hafnað umræddu atvinnutilboði sökum þess að hann hafi ekki verið sáttur við ráðningarkjör. Hann hafi talið að launakjör væru óásættanleg. Þá hafi hann fengið utanaðkomandi ábendingar þess efnis að umfang starfsins væri margfalt meira en 100% starf geri ráð fyrir. Kærandi hafi jafnframt talið að starfið ætti ekki við sig þar sem hann væri hvorki með menntun né reynslu á því sviði sem umrætt starf krefðist.
Kæranda hafi verið tilkynnt með erindi Vinnumálastofnunar, dags. 10. júní 2024, að greiðslur atvinnuleysistrygginga til hans væru stöðvaðar í tvo mánuði. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þann 10. júní 2024 hafi kærandi sent frekari skýringar og beiðni um endurupptöku málsins. Kæranda hafi verið tilkynnt með erindi, dags. 12. júní 2024, að fyrri ákvörðun væri staðfest, enda hefðu ný gögn í máli kæranda ekki getað leitt til annarrar niðurstöðu.
Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 12. júní 2024. Í kæru skýri kærandi frá aðstæðum sínum og sjónarmiðum. Kæra til nefndarinnar sé efnislega samhljóða þeim skýringum sem þegar hafi borist Vinnumálastofnun. Skýringar kæranda á ástæðum höfnunar hans á fyrirliggjandi atvinnutilboði hafi verið þær að starfs- og launakjör sem atvinnurekandi hefði boðið væru ekki ásættanleg.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð á meðan þeir séu að leita sér að nýju starfi. Með þessu sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Gert sé ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðbúnir að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu. Ríkar kröfur beri að gera til þeirra sem hafni starfi á innlendum vinnumarkaði að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.
Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að hann sé í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit.
Í 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög vegna höfnunar á starfi eða atvinnuviðtali. Ákvæðið sé svohljóðandi:
„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“
Við móttöku umsóknar um atvinnuleysistryggingar veiti Vinnumálastofnun öllum atvinnuleitendum leiðbeiningar um hvar finna megi upplýsingar um réttindi og skyldur atvinnuleitanda. Þannig sé öllum atvinnuleitendum vísað á heimasíðu Vinnumálastofnunar, þar sem sé meðal annars að finna skýrar upplýsingar um afleiðingar þess að hafna starfi án gildra ástæðna. Ákvæði laga um atvinnuleysistryggingar séu skýr hvað varði skyldu atvinnuleitanda til að taka störfum sem séu í boði og um höfnun á atvinnuviðtölum.
Fyrir liggi að kærandi hafi fengið boð um atvinnu hjá B. Kærandi hafi sagst ekki geta samþykkt þau launakjör sem atvinnurekandi hafi boðið. Í því samhengi hafi kærandi bent á að launa- og starfskjör hafi verið undir þeim lágmarksviðmiðum sem til sé að dreifa á Evrópska efnahagssvæðinu. Kærandi hafi bent á að í ráðningarsamningi hafi verið tilgreint að ekki yrði greidd yfirvinna. Í þeim tilfellum sem atvinnuleitandi hafni atvinnuviðtali komi til álita hvort skýringar hans vegna höfnunar á umræddu starfi séu gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.
Samkvæmt 4. mgr. 57. gr. skuli Vinnumálastofnun meta við ákvörðun um viðurlög samkvæmt 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna atvinnuviðtali hafi verið réttlætanleg. Í 4. mgr. segi orðrétt:
„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“
Fyrir liggi að kæranda hafi boðist atvinnutilboð sem hann hafi ekki þegið sökum þess að hann hafi ekki verið sáttur með launakjör sem atvinnurekandi hafi boðið. Vinnumálastofnun sé gert að meta skýringar atvinnuleitenda með hliðsjón af þeirri ríku skyldu sem hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til að vera reiðubúnir að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúnir að taka starfi hvar sem er á Íslandi án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Það sé mat stofnunarinnar að skýringar kæranda geti ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Ríkar kröfur séu gerðar til atvinnuleitenda að þeir taki þeim störfum sem þeim kunni að bjóðast, enda eigi ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. Beri að líta til þess að samkvæmt 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þurfi atvinnuleitandi að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir samkvæmt lögum og kjarasamningum, hvar sem er á Íslandi og án sérstaks fyrirvara.
Það sé því afstaða Vinnumálastofnunar að kærandi hafi hafnað atvinnutilboði án gildra ástæðna og að hann skuli því sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:
„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“
Þá segir svo í 4. mgr. 57. gr. laganna:
„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“
Samkvæmt gögnum málsins var kæranda þann 20. apríl 2024 miðlað í starf hjá B. Fyrirtækið tilkynnti Vinnumálastofnun þann 13. maí 2024 að kærandi hefði hafnað starfinu. Kærandi hefur vísað til þess að verulegir vankantar hafi verið á ráðningarsamningi atvinnurekanda.
Í 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 er fjallað um almenn skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögunum. Eitt af þeim skilyrðum er að vera í virkri atvinnuleit en samkvæmt c. lið 1. mgr. 14. gr. fellur þar undir að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt er fyrir samkvæmt lögum og kjarasamningum, sbr. 1. gr. laga nr. 55/1980, um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda. Ekki verður séð af gögnum málsins að það hafi ekki verið uppfyllt vegna framangreinds starfs sem kæranda bauðst.
Með vísan til þess er það mat úrskurðarnefndarinnar að þær skýringar sem kærandi hefur gefið séu ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á starfinu, sbr. 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006. Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 10. júní 2024, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir