Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 272/2023-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 272/2023

Fimmtudaginn 10. ágúst 2023

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 25. maí 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. maí 2023, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 11. apríl 2022 og var umsóknin samþykkt 23. maí 2022. Þann 9. maí 2023 var ferilskrá kæranda send fyrirtækinu B ehf. vegna starfs hjá fyrirtækinu. Þann 16. maí 2023 bárust Vinnumálastofnun upplýsingar um að kærandi hefði hafnað starfi hjá umræddu fyrirtæki. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 16. maí 2023, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda vegna höfnunar á starfi. Skýringar bárust frá kæranda og með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. maí 2022, var henni tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar væru stöðvaðar á grundvelli 1. mgr. 57. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Með bréfi, dags. 18. maí 2023, óskaði kærandi eftir endurupptöku á ákvörðun Vinnumálastofnunar. Með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 25. maí 2023, var fyrri ákvörðun staðfest þar sem hún hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 25. maí 2023. Með bréfi, dags. 5. júní 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 26. júní 2023 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 28. júní 2023. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hún hafi lent í miklum vandræðum hjá Vinnumálastofnun. Í hvert skipti sem hún reyni að rökræða við stofnunina fái hún neikvæð svör og haldi áfram að fá viðurlög.

Kærandi hafi fengið ákvörðun um biðtíma eftir atvinnuleysisbótum fyrir fjórum mánuðum þegar hún hafi sagt upp 50% starfi sínu. Ástæða uppsagnar hennar hafi verið sú að yfirmaður hennar hafi neitað að gefa henni stutt frí vegna tannlæknisheimsóknar í C, heimalandi hennar. Í kjölfar ákvörðunar Vinnumálastofnunar hafi kærandi átt í fjárhagslegum og andlegum erfiðleikum. Hún hafi byrjað að læra íslensku og sé nú þegar komin á annað stig í námi sínu. Í apríl hafi kærandi ráðið sig í 50% starf í hreingerningum á gistiheimili, með möguleika á auknu starfshlutfalli í framtíðinni. Í kjölfar ráðningarinnar hafi kærandi látið Vinnumálastofnun vita um starfið, eins og stofnunin geri kröfu um. Stuttu síðar hafi kærandi fengið starfsviðtal hjá fyrirtækinu B ehf. vegna sumarstarfs hjá fyrirtækinu í 100% starfshlutfalli. Þar sem hún sé að læra íslensku og sé nú þegar í 50% starfi hafi hún ekki getað samþykkt tilboð fyrirtækisins vegna dagskrár sinnar og möguleika á auknu starfi á hótelinu. Kærandi hafi reynt að skýra Vinnumálastofnun frá þessum aðstæðum sínum en þess í stað verið beitt viðurlögum vegna höfnunar á starfi.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 11. apríl 2022. Með erindi, dags. 23. maí 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 98%.

Þann 15. maí 2023 hafi Vinnumálastofnun borist þær upplýsingar að kærandi hefði hafnað starfi hjá B ehf. Um hafi verið að ræða starf við garðyrkju en kæranda hafi verið miðlað í umrætt starf af Vinnumálastofnun. Umræddur atvinnurekandi hafi minnt að kærandi hefði tjáð honum að hún væri þegar komin með vinnu. Með erindi, dags. 16. maí 2023, hafi Vinnumálastofnun óskað skýringa á ástæðum þess að hún hafi hafnað starfi hjá B ehf. Stofnuninni hafi borist skýringar kæranda sama dag, þann 16. maí 2023. Ástæða kæranda fyrir höfnun á umræddu starfi hafi verið sú að hún væri nú þegar í 50% starfi. Hún gæti því ekki tekið 100% starfi.

Í kjölfar þess að framangreindar skýringar hafi borist Vinnumálastofnun hafi kæranda með erindi, dags. 17. maí 2023, verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar væru stöðvaðar sökum þess að hún hafi hafnað starfi hjá B ehf. Sú ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 1. mgr. 61. gr. sömu laga.

Þann 18. maí 2023 hafi Vinnumálastofnun borist erindi frá kæranda þar sem hún hafi óskað þess að mál hennar yrði tekið fyrir að nýju. Kærandi hafi greint frá því að hún hafi ákveðið að skrá sig í íslenskunám til þess að auka líkur sínar á því að finna starf. Á meðan hún hafi stundað íslenskunámið hafi hún verið ráðin í 50% hlutastarf, sem hún hafi tilkynnt um til Vinnumálastofnunar. Stuttu síðar hafi kærandi fengið boð í atvinnuviðtal hjá B ehf. Um hafi verið að ræða sumarstarf í 100% starfshlutfalli. Hún hafi ómögulega getað tekið starfstilboðinu. Með erindi, dags. 25. maí 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að mál hennar hefði verið tekið fyrir að nýju með tilliti til nýrra gagna. Niðurstaða Vinnumálastofnunar væri hins vegar að staðfesta bæri fyrri ákvörðun í máli hennar, enda hefði sú ákvörðun að geyma efnislega rétta niðurstöðu þrátt fyrir að ný gögn hefðu borist í máli hennar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð á meðan þeir leiti nýrra starfa. Með lögunum sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Gert sé ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir séu í virkri atvinnuleit þann tíma. Ríkar kröfur beri að gera til þeirra sem hafni starfi á innlendum vinnumarkaði að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að vera í virki atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi án sérstaks fyrirvara, óháð því hvort um fullt starf eða hlutastarf sé að ræða og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit.

Fyrir liggi að kærandi hafi hafnað starfi hjá B ehf. Í kjölfarið hafi henni verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ákvæði 1. mgr. 57. gr. sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Í athugasemdum með 57. gr. í frumvarpi því sem hafi orðið að lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé tekið fram að ekki skipti máli hvort það starf sem bjóðist atvinnuleitanda sé fullt starf, hlutastarf eða vaktavinna, þar sem mikilvægt sé að hinn tryggði verði aftur virkur á vinnumarkaði. Þá sé áréttað að það að hafna því að fara í atvinnuviðtal eða sinna ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar hafi sömu áhrif og sú ákvörðun að taka ekki starfi sem bjóðist. Ástæðan sé einkum sú að atvinnuviðtal sé venjulega meginforsenda þess að hinum tryggða verði boðið starf og leggja megi þá ákvörðun að jöfnu við því að hafna starfi.

Samkvæmt 4. mgr. 57. gr. skuli Vinnumálastofnun meta við ákvörðun um viðurlög samkvæmt 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna atvinnuviðtali hafi verið réttlætanleg en í 4. mgr. segi orðrétt:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Vinnumálastofnun sé gert að meta skýringar atvinnuleitanda vegna höfnunar á atvinnutilboði með hliðsjón af þeirri ríku skyldu sem hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til að vera reiðubúnir að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara, og hafa til þess vilja og getu. Gert sé ráð fyrir því að Vinnumálastofnun sé heimilt að líta til aldurs hins tryggða, félagslegra aðstæðna tengdum skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima við ákvörðun um hvort hinn tryggði skuli sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 57. gr. laganna. Enn fremur sé Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar í boði sé starf fjarri heimili hans sem geri kröfur um að hlutaðeigandi flytji búferlum.

Þær skýringar sem kærandi hafi veitt fyrir ástæðu höfnunar á umræddu starfi lúti einkum að því að hún sé nú þegar í 50% starfi. Þá stundi hún nám í íslensku. Henni hafi aðeins boðist sumarstarf í 100% starfshlutfalli hjá B ehf. Hún hafi með vísan til framangreinds ómögulega getað tekið umræddu starfi. Það sé mat Vinnumálastofnunar að framangreindar skýringar geti ekki talist gildar í skilningi 4. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Eins og fyrr segi hvíli rík skylda á atvinnuleitendum að taka því starfi sem þeim bjóðist, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. Þá felist meðal annars í virkri atvinnuleit samkvæmt 1. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að vera reiðubúinn að taka hverju því starfi sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara og óháð því hvort um fullt starf eða hlutastarf sé að ræða. Vinnumálastofnun vísi jafnframt til athugasemda með 17. gr. í frumvarpi sem hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar en þar sé sérstaklega vikið að tilvikum sem þessum. Þar segi að hinn tryggði þurfi að uppfylla það skilyrði að vera í virkri atvinnuleit þó hann sé í hlutastarfi á móti greiðslum atvinnuleysisbóta. Í því felist meðal annars að hann sé reiðubúinn að taka störfum sem bjóðist og feli í sér hærra starfshlutfall en það starf sem hann gegni. Þá vísist jafnframt til áðurnefndra athugasemda með 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar í frumvarpi því sem hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar þar sem segi að ekki skipti máli hvort það starf sem atvinnuleitanda bjóðist sé fullt starf eða hlutastarf. Með vísan til framangreinds sé ljóst að mati Vinnumálastofnunar að atvinnuleitendur geti ekki hafnað störfum á þeim forsendum að þeir séu þegar í hlutastarfi. Jafnframt árétti Vinnumálastofnun að á umsókn sinni um greiðslur atvinnuleysisbóta hafi kærandi tilgreint að hún hafi óskað eftir fullu starfi.

Þá sé það mat Vinnumálastofnunar að það að kærandi hafi stundað íslenskunám réttlæti ekki höfnun hennar á starfi hjá B ehf. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum í máli kæranda hafi hún sótt námskeið í íslensku með styrk frá stofnuninni. Samkvæmt skýru orðalagi 1. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi þátttaka í vinnumarkaðsaðgerðum ekki í veg fyrir að hinn tryggði taki starfi sem bjóðist á þeim tíma.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi hafi hafnað starfi í skilningi 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og ekki haft þar að baki gildar ástæður, sbr. 4. mgr. 57. gr. sömu laga. Því beri henni að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laganna.

Kærandi hafi í þrjú skipti verið beitt biðtíma eða viðurlögum frá því að tímabil samkvæmt 29. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi hafist. Með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 23. maí 2022, hafi kæranda verið gert að sæta biðtíma í tvo mánuði á grundvelli 54. gr. laganna. Þá hafi kæranda verið gert að sæta biðtíma í þrjá mánuði á grundvelli sama ákvæðis, sbr. jafnframt 1. mgr. 61. gr., með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 25. janúar 2023. Með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 17. maí 2023, um viðurlög á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda því verið stöðvaðar, sbr. 4. mgr. 61. gr. laganna. Kærandi skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta að nýju fyrr en hún uppfylli skilyrði 31. gr. laganna.

Með vísan til alls framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi hafnað starfi hjá B ehf. og ekki haft þar að baki gildar ástæður, sbr. 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Því hafi borið að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda, sbr. 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 4. mgr. 61. gr. sömu laga.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á grundvelli 57. gr., sbr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Þá segir svo í 4. mgr. 57. gr. laganna:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Óumdeilt er að kærandi hafnaði starfi hjá B ehf. Kærandi hefur vísað til þess að hún hafi ekki getað tekið starfinu þar sem hún sé nú þegar í 50% starfi og sé í íslenskunámi.

Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála er ekki réttlætanlegt að hafna tilboði um 100% starf á þeirri forsendu að unnið sé í hlutastarfi. Úrskurðarnefndin bendir á að í 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 er fjallað um almenn skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögunum. Eitt af þeim skilyrðum er að vera í virkri atvinnuleit samkvæmt 14. gr. en í því felst meðal annars að hafa vilja og getu til að taka starfi, án sérstaks fyrirvara, sbr. d. lið 1. mgr. ákvæðisins og að vera reiðubúinn að taka starfi óháð því hvort um fullt starf eða hlutastarf er að ræða eða vaktavinnu, sbr. f. lið 1. mgr. ákvæðisins.

Í 3. mgr. 14. gr. laganna kemur fram að þátttaka í vinnumarkaðsaðgerðum komi ekki í veg fyrir að hinn tryggði taki starfi sem bjóðist á þeim tíma. Samkvæmt gögnum málsins var íslenskunám kæranda vinnumarkaðsúrræði á vegum Vinnumálastofnunar. Það átti því ekki að koma í veg fyrir að kærandi tæki það starf sem henni bauðst.

Með vísan til framangreinds er það mat úrskurðarnefndar að þær ástæður sem kærandi hefur gefið séu ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á starfinu, 4. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:

„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“

Þá segir í 4. mgr. 61. gr. að ef atvik sem lýst sé í 1. málsl. 1. mgr. endurtaki sig á sama tímabili samkvæmt 29. gr. skuli hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr. Samkvæmt 29. gr. laga nr. 54/2006 getur sá sem telst tryggður samkvæmt lögunum átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í 30 mánuði frá þeim degi er Vinnumálastofnun tók við umsókn hans um atvinnuleysisbætur, nema annað leiði af lögunum. Biðtími eftir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt X. kafla telst hluti tímabilsins sem og sá tími er viðurlög samkvæmt XI. kafla standa yfir. Í 31. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að nýtt tímabil samkvæmt 29. gr. hefjist þegar hinn tryggði sækir að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur.

Samkvæmt gögnum málsins hófst bótatímabil kæranda 11. apríl 2022. Kærandi sætti niðurfellingu bótaréttar á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 þann 23. maí 2022. Bótaréttur kæranda var felldur niður í annað sinn, þá í þrjá mánuði, þann 25. janúar 2023 á grundvelli sama ákvæðis, sbr. 1. mgr. 61. gr. laganna. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom nú til ítrekunaráhrifa samkvæmt 4. mgr. 61. gr. laganna og á kærandi því ekki rétt á greiðslu atvinnuleysibóta fyrr en hún uppfyllir skilyrði 31. gr. laganna, þ.e. eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hún fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda er því staðfest.

 

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. maí 2023, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til A, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

 Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta