Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 269/2024-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 269/2024

Fimmtudaginn 22. ágúst 2024

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 12. júní 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 5. júní 2024, um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til hans á bið.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 20. maí 2024. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 5. júní 2024, var kæranda tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt en með vísan til þess að hann ætti ótekinn biðtíma frá fyrri umsókn yrðu bætur ekki greiddar fyrr en sá tími væri liðinn.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 12. júní 2024. Með bréfi, dags. 19. júní 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 9. júlí 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 10. júlí 2024. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hann hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta þann 1. mars 2024 og að umsókn hans hafi verið samþykkt þann 3. apríl 2024. Kærandi hafi hins vegar afhent stofnuninni gögn sem hafi sýnt að kærandi hefði ferðast til Póllands þann 17. mars 2024 til að gangast undir aðgerð við mígreni. Hann hafi einnig skilað afriti af flugfarseðli sem sýni heimkomu til Íslands þann 13. apríl 2024. Vinnumálastofnun hafi tilkynnt kæranda að hann hefði brotið samning sinn við stofnunina með þeim afleiðingum að réttur hans til atvinnuleysisbóta yrði felldur niður í tvo mánuði frá og með 12. apríl 2024. Kærandi hafi viðurkennt þá ákvörðun stofnunarinnar og ákveðið að kæra hana ekki.

Þann 20. apríl 2024 hafi kærandi staðfest atvinnuleit sína. Í maí 2024 hafi hann einnig ætlað að staðfesta atvinnuleit en séð að hann væri ekki lengur skráður á atvinnuleysisbætur. Eftir að hafa sótt um að nýju hafi kærandi búist við að fá greiddar atvinnuleysisbætur frá og með 1. júlí 2024. Kæranda hafi hins vegar verið tilkynnt þann 5. júní 2024 að þar sem hann ætti ótekinn biðtíma frá fyrri umsókn yrðu bætur ekki greiddar fyrr en sá tími væri liðinn.

Kærandi sé ekki sammála ákvörðun Vinnumálastofnunar þar sem hann hafi lagt fram öll nauðsynleg gögn, þar á meðal afrit af flugfarseðli til Íslands. Kærandi óski því eftir að mál hans verði endurskoðað þar sem hann þurfi nauðsynlega á atvinnuleysisbótum að halda. Kærandi vilji einnig vekja athygli á því að biðtími eftir atvinnuleysisbótum hafi átt að hefjast þann 12. apríl 2024 en ekki 5. júní 2024.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga þann 1. mars 2024. Með bréfi, dags. 3. apríl 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 31%.

Þann 4. apríl 2024 hafi kærandi verið boðaður til viðtals hjá ráðgjafa Vinnumálastofnunar. Viðtalið hafi átt að fara fram daginn eftir, þann 5. apríl 2024, klukkan 09:15. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að um skyldumætingu væri að ræða og að ótilkynnt forföll og forföll án gildra ástæðna gætu valdið stöðvun greiðslna atvinnuleysisbóta. Umrædd boðun hafi verið send þann 4. apríl 2024, klukkan 09:02, á „Mínar síður“ kæranda, með tilkynningu á uppgefið netfang og með smáskilaboðum í farsíma um að hann ætti skilaboð inni á „Mínum síðum“.

Þann 4. apríl 2024, klukkan 11:35, hafi skilaboð borist frá kæranda til Vinnumálastofnunar þess efnis að kærandi gæti ekki mætt í boðað viðtal þar sem hann væri staddur erlendis. Kærandi hafi ekki tilkynnt um þessa ferð sína erlendis til Vinnumálastofnunar. Þann 8. apríl 2024 hafi Vinnumálastofnun óskað eftir skriflegum skýringum á því hvers vegna hann hefði ekki tilkynnt fyrir fram um ferð sína erlendis.

Þann 8. apríl 2024 hafi skriflegar skýringar borist frá kæranda. Kærandi hafi borið því við að hann hefði talið að einungis þyrfti að tilkynna Vinnumálastofnun um ferðir erlendis eftir að búið væri að samþykkja umsókn um atvinnuleysisbætur. Flugfarseðlar hafi jafnframt borist frá kæranda sem hafi staðfest að kærandi hefði sannarlega farið erlendis þann 17. mars 2024 og komið aftur til Íslands þann 13. apríl 2024.

Með erindi, dags. 12. apríl 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði þar sem hann hefði látið hjá líða að tilkynna stofnuninni fyrir fram um dvöl sína erlendis. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda hafi jafnframt verið tilkynnt að í ljósi þess að hann hefði ekki uppfyllt skilyrði greiðslu atvinnuleysisbóta þann tíma sem hann hefði verið erlendis fengi hann ekki greiddar atvinnuleysisbætur vegna tímabilsins 17. mars 2024 til [13]. apríl 2024.

Þann 4. maí 2024 hafi umsókn kæranda, dags. 1. mars 2024, verið afskráð þar sem kærandi hafi ekki staðfest atvinnuleit sína á „Mínum síðum“ á vef Vinnumálastofnunar fyrir apríl 2024.

Kærandi hafi sótt um atvinnuleysistryggingar að nýju þann 20. maí 2024. Með bréfi, dags. 5. júní 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt. Kæranda hafi jafnframt verið tilkynnt að hann ætti tvo mánuði í ótekinn biðtíma. Eldri viðurlög hafi með öðrum orðum haldið áfram að líða þar sem engri vinnusögu hafi verið til að dreifa á tímabilinu apríl til maí 2024.

Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 12. júní 2024. Í kæru til nefndarinnar bendi kærandi á að hann hafi veitt allar upplýsingar um ferð sína erlendis þegar Vinnumálastofnun hafi óskað eftir þeim. Kærandi telji því að hann eigi ekki að sæta viðurlögum.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Mál þetta lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda vegna ótilkynntrar dvalar erlendis í tvo mánuði.

Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð meðan þeir séu að leita sér að nýju starfi. Með þessu sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Því sé gert ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðubúnir að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu.

Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að hann sé í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit.

Í c. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé mælt fyrir um að umsækjandi um greiðslur atvinnuleysistrygginga þurfi að vera búsettur, með skráð lögheimili og staddur hér á landi til að teljast tryggður samkvæmt lögunum.

Í 3. mgr. 9. gr. sé mælt fyrir um upplýsingaskyldu umsækjanda til Vinnumálastofnunar. Þar segi:

„Sá sem telst tryggður á grundvelli laga þessara skal upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir.“

Í athugasemdum með frumvarpi því er hafi orðið að lögum nr. 37/2009 segi meðal annars að „láti atvinnuleitandi hjá líða að veita Vinnumálastofnun þessar upplýsingar sem og í þeim tilvikum þegar rangar upplýsingar eru gefnar kemur til álita að beita viðurlögum skv. 59. gr. laganna.“

Í 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé enn frekar mælt fyrir um þessa upplýsingaskyldu atvinnuleitanda. Þar segi að atvinnuleitanda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti.

Í 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög við brotum á þessari upplýsingaskyldu hins tryggða en þar segi orðrétt:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Fyrir liggi að kærandi hafi dvalið erlendis frá 17. mars 2024 til 13. apríl 2024. Í 13. og 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé skýrt kveðið á um þá skyldu atvinnuleitanda að vera í virkri atvinnuleit. Það sé jafnframt gert að skilyrði að umsækjandi sé staddur hér á landi, sbr. c. lið 1. mgr. 13. gr. laganna. Kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun fyrir fram um þessa utanlandsferð sína líkt og honum hafi borið samkvæmt 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi hafi því verið beittur viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 59. gr. laganna.

Í skýringum sínum til Vinnumálastofnunar og í kæru til úrskurðarnefndarinnar greini kærandi frá því að hann hafi veitt allar upplýsingar um dvöl hans erlendis þegar eftir þeim hafi verið leitað af hálfu Vinnumálastofnunar.

Þegar rafrænni umsókn um greiðslur atvinnuleysisbóta sé skilað sé umsækjendum kynnt margvísleg atriði er varði réttindi og skyldur, þar með talið að tilkynna beri um ferðir erlendis. Umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki að þeir hafi lesið og skilið þær upplýsingar sem fram komi í umsókn um réttindi og skyldur umsækjenda um atvinnuleysisbætur. Kærandi hafi samþykkt framangreinda skilmála þegar hann hafi sótt um atvinnuleysisbætur hjá stofnuninni þann 1. mars 2024. Kæranda hafi einnig verið sendur tölvupóstur þann 1. mars 2024 vegna umsóknar hans um atvinnuleysisbætur þar sem bent hafi verið á að ef farið væri erlendis þyrfti að tilkynna það fyrir fram og skila afriti af flugfarseðlum til stofnunarinnar því til staðfestingar. Þá séu víðtækar og ítarlegar upplýsingar um réttindi og skyldur atvinnuleitanda á vefsíðu Vinnumálastofnunar. Ljóst sé að réttindi og skyldur atvinnuleitenda samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar stofnist frá og með umsóknardegi, enda séu atvinnuleysisbætur greiddar frá og með umsóknardegi samkvæmt 29. gr. laganna. Á því tímabili sem atvinnuleitandi fái greiddar atvinnuleysisbætur beri honum að tilkynna Vinnumálastofnun um allar breytingar á högum sínum, sbr. 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, þar á meðal ferðir sínar utanlands. Atvinnuleitendum beri því að uppfylla framangreindar skyldur á þeim tíma sem beðið sé úrskurðar um bótarétt. Stofnunin vísi, hvað þetta varði, til niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar í máli nr. 13/2019 frá 7. mars 2019 er hafi varðað viðlíka álitaefni.

Í máli þessu liggi fyrir að kærandi hafi látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um utanlandsferð sína líkt og honum hafi borið. Eins og framan greini hafi kærandi fengið upplýsingar um réttindi sín og skyldur, þar með talið varðandi tilkynningar á dvöl erlendis. Að öllu framangreindu virtu sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi í umrætt sinn látið hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar um atvik er hafi haft bein áhrif á rétt hans til greiðslu atvinnuleysistrygginga og að hann skuli því sæta viðurlögum samkvæmt 59. gr. laga nr. 54/2006.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 5. júní 2024, um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á bið vegna viðurlagaákvörðunar stofnunarinnar frá 12. apríl 2024 en með henni var réttur kæranda til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði ekki tilkynnt fyrir fram um dvöl sína erlendis.

Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Ákvæðið ber meðal annars að túlka með hliðsjón af ákvæði c. liðar 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 þar sem fram kemur að launamaður sé tryggður samkvæmt lögunum sé hann búsettur, með skráð lögheimili og staddur hér á landi.

Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., þar á meðal um tilfallandi veikindi, án ástæðulausrar tafar.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi staddur erlendis á tímabilinu 17. mars 2024 til 13. apríl 2024 en tilkynnti Vinnumálastofnun ekki fyrir fram um ferð sína. Kærandi hefur vísað til þess að hann hafi veitt Vinnumálastofnun allar nauðsynlegar upplýsingar um dvöl sína erlendis.

Réttindi og skyldur atvinnuleitenda samkvæmt lögum nr. 54/2006 stofnast almennt frá og með umsóknardegi, enda eru atvinnuleysisbætur almennt greiddar frá umsóknardegi samkvæmt 29. gr. laganna þrátt fyrir að það geti tekið einhverjar vikur að afgreiða umsóknir og ákvarða bótarétt. Þann 1. mars 2024 var kæranda tilkynnt að Vinnumálastofnun hefði móttekið umsókn hans um atvinnuleysisbætur og var hann upplýstur um að umsóknin myndi miðast við 2. mars 2024. Kæranda var greint frá því að upplýsa þyrfti um allar breytingar á persónulegum högum inni á „Mínum síðum“, þar á meðal að upplýsa fyrir fram um ferðir til útlanda. Þá var kæranda bent á að ítarlegri upplýsingar um réttindi hans og skyldur væri að finna á heimasíðu Vinnumálastofnunar.

Með hliðsjón af framangreindu telur úrskurðarnefndin að kærandi hefði mátt vita af tilkynningarskyldu vegna ferða erlendis eða að minnsta kosti haft tilefni til þess að afla sér upplýsinga um hvort slík skylda væri fyrir hendi.

Í gögnum málsins er hvergi að sjá að kærandi hafi tilkynnt Vinnumálastofnun fyrir fram um dvöl sína erlendis fyrr en 4. apríl 2024 en þann dag tilkynnti hann stofnuninni að hann gæti ekki mætt í boðað viðtal, dags. 5. apríl 2024, þar sem hann væri staddur erlendis. Fyrir liggur að kærandi var staddur erlendis frá 17. mars 2024 til 13. apríl 2024. Verður því fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn upplýsingaskyldu sinni er hann tilkynnti ekki fyrir fram um ferð sína erlendis. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti.

Kemur þá til skoðunar ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 5. júní 2024, um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á bið í tvo mánuði vegna framangreindrar viðurlagaákvörðunar í kjölfar nýrrar umsóknar hans um atvinnuleysisbætur, dags. 20. maí 2024.

Í 29. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í 30 mánuði frá þeim degi er Vinnumálastofnun tók við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Biðtími eftir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt X. kafla telst hluti tímabilsins sem og sá tími er viðurlög samkvæmt XI. kafla standa yfir. Í 4. mgr. 29. gr. laganna kemur fram að tímabilið samkvæmt 1. mgr. haldi áfram að líða þegar hinn tryggði sækir að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað í skemmri tíma en 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Þá segir í 31. gr. laga nr. 54/2006 að nýtt tímabil samkvæmt 29. gr. hefjist þegar hinn tryggði sækir að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur.

Samkvæmt gögnum málsins hafði kærandi ekki, þegar umsókn hans barst Vinnumálastofnun þann 20. maí 2024, starfað í 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Kærandi hafði því ekki áunnið sér rétt til nýs bótatímabils samkvæmt 31. gr. laga nr. 54/2006 og því hélt allur ótekinn biðtími vegna eldri viðurlaga áfram að líða þegar hann skráði sig atvinnulausan að nýju 20. maí 2024. 

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á bið, staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. apríl 2024, um að fella niður rétt til A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest. Ákvörðun stofnunarinnar, dags. 5. júní 2024, um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á bið, er einnig staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta