Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 173/2024-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 173/2024

Miðvikudaginn 5. júní 2024

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 17. apríl 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. apríl 2024, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 21. nóvember 2023 og var umsóknin samþykkt 21. desember 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. apríl 2024, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði ekki mætt í boðað viðtal. Mál kæranda var tekið fyrir að nýju hjá Vinnumálastofnun í kjölfar frekari skýringa frá honum. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. apríl 2024, var fyrri ákvörðun staðfest með þeim rökum að engin ný gögn hefðu borist sem áhrif hefðu á mat stofnunarinnar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 17. apríl 2024. Með bréfi, dags. 23. apríl 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 14. maí 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 15. maí 2024. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála óskar kærandi eftir því að ákvörðun Vinnumálastofnunar um viðurlög verði breytt. Kærandi hafi ekki séð boðun í umrætt viðtal þar sem tilkynning hafi verið send á rangt netfang. Af þeim sökum hafi kærandi ekki séð hana fyrr en of seint. Kærandi viðurkenni að hann hafi fengið tilkynningar um tímasetningu viðtalsins en óski eftir öðru tækifæri.

Kærandi sjái eftir því að hafa ekki mætt til viðtalsins og geri sér grein fyrir mikilvægi skyldu sinnar til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum. Kærandi sé í virkri atvinnuleit og greiðsla atvinnuleysisbóta sé honum mikilvæg.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 21. nóvember 2023. Með bréfi, dags. 21. desember 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 66% en með tilliti til starfsloka hans væri réttur hans felldur niður í tvo mánuði frá umsóknardegi á grundvelli 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Með erindi, dags. 2. apríl 2024, klukkan 8:53, hafi kærandi verið boðaður í viðtal hjá ráðgjafa Vinnumálastofnunar. Viðtalið hafi átt að fara fram 4. apríl 2024, klukkan 10:00. Boðunin hafi verið ítrekuð 3. apríl 2024, klukkan 12:41. Boðanir hafi verið sendar með smáskilaboðum í farsíma kæranda og tölvupósti á skráð netfang kæranda í kerfi stofnunarinnar. Kærandi hafi ekki mætt í boðað viðtal og með erindi, dags. 8. apríl 2024, hafi verið óskað eftir skýringum á fjarveru kæranda. Þann 9. apríl 2024 hafi kærandi sent tölvupóst og sagst hafa skipt um netfang og því ekki séð boðunina. Með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 12. apríl 2024, hafi kæranda verið tilkynnt um þriggja mánaða biðtíma eftir greiðslum samkvæmt 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr., laga um atvinnuleysistryggingar.

Frekari skýringar kæranda hafi borist Vinnumálastofnun þann 13. apríl 2024, hvar hann hafi ítrekað skýringar sínar um breytingu á netfangi sínu. Málið hafi verið tekið til endurumfjöllunar á grundvelli þess. Stofnunin hafi ekki talið efni til að falla frá ákvörðun eftir endurumfjöllun á máli kæranda, enda hefðu engin ný gögn borist sem áhrif hefðu á mat stofnunarinnar. Kæranda hafi verið tilkynnt um þá niðurstöðu með bréfi, dags. 22. apríl 2024.

Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 17. apríl 2024. Efni kærunnar sé samhljóma því bréfi sem hafi borist stofnuninni þann 13. apríl 2024 og leitt til endurumfjöllunar á máli kæranda.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Á meðal skilyrða fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta sé að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Samkvæmt [h-lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum. Ráðgjafar stofnunarinnar skuli boða atvinnuleitendur reglulega í viðtöl eftir þörfum hvers og eins atvinnuleitanda.

Á grundvelli 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitendum að hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Í tilfelli kæranda hafi hann verið boðaður til viðtals hjá stofnuninni, en samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laganna sé Vinnumálastofnun heimilt að boða atvinnuleitendur til stofnunarinnar með sannanlegum hætti, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum þeirra sem kunni að hafa áhrif á rétt þeirra til greiðslu atvinnuleysisbóta. Atvinnuleitendur skuli vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara. Ákvæði 3. mgr. 13. gr. hafi komið inn í lög um atvinnuleysitryggingar með 4. gr. laga nr. 134/2009, en í athugasemdum með 4. gr. segi að gert sé ráð fyrir að stofnunin geti boðað atvinnuleitanda með allt að sólarhringsfyrirvara á þá skrifstofu sína sem næst sé lögheimili viðkomandi.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt til viðtals á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 4. apríl 2024. Áður hafi kærandi tvívegis fengið senda tilkynningu í tölvupósti, farsíma og á ,,Mínum síðum“ um boðun í umrætt viðtal. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga, komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.

Skýringar kæranda á ástæðum þess að hann hafi ekki mætt til boðaðs viðtals lúti að því að hann hafi skipt um netfang og tölvupósturinn hafi ekki skilað sér. Frekari skýringar hafi ekki borist. Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar, enda hafi kærandi ekki gert viðeigandi ráðstafanir til að upplýsa stofnunina um netfang. Kærandi hafi verið upplýstur með fullnægjandi hætti um hvernig honum yrðu send mikilvæg skilaboð og tilkynningar. Boðun til umrædds fundar hafi borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þá bendi Vinnumálastofnun á að boðun í umrætt viðtal hafi einnig verið send kæranda með skilaboðum í skráð símanúmer hans. Stofnunin telji því ekki efni til að fallast á skýringar kæranda fyrir fjarveru í boðað viðtal.

Í ljósi alls framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Með því að hafa ekki mætti til umrædds viðtals hafi kærandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði og beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var þann 2. apríl 2024 boðaður í viðtal hjá Vinnumálastofnun sem fara átti fram á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík tveimur dögum síðar, þann 4. apríl 2024. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ótilkynnt forföll gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Þá var kærandi hvattur til að hafa samband við stofnunina ef eitthvað væri óljóst eða ef hann vildi frekari upplýsingar. Kærandi hvorki boðaði forföll né mætti í viðtalið.

Kærandi hefur gefið þær skýringar að hann hafi ekki séð boðun í umrætt viðtal sökum þess að hann hefði skipt um netfang.

Framangreind boðun var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hann hafi ekki mætt í boðað viðtal hjá Vinnumálastofnun.

Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:

„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“

Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 21. desember 2023 á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. laga nr. 54/2006, staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. apríl 2024, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum