Mál nr. 506/2024-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 506/2024
Þriðjudaginn 17. desember 2024
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 14. október 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. september 2024, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 10. júní 2024 og var umsóknin samþykkt 1. júlí 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. september 2024, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 14. október 2024. Með bréfi, dags. 15. október 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Frekari gögn bárust frá kæranda 30. október 2024. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 26. nóvember 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 27. nóvember 2024. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi greinir frá því að hafa reynt að fara inn á tvo Teams fundi sem Vinnumálastofnun hafi boðað hann á. Í hvorugt skiptið hafi kærandi komist inn á fundinn og hafi í bæði skiptin fengið upp skilaboð um að einhver myndi hleypa honum inn fljótlega en svo hafi ekkert gerst. Kærandi hafi upplýst Vinnumálastofnunar um það hvers vegna hann hafi ekki mætt á þessa kynningarfundi. Augljóslega hafi verið um tæknilegt vandamál að ræða af hálfu Vinnumálastofnunar en ekki hafi honum dottið í hug að það myndi leiða til þess að hann fengi ekki atvinnuleysisbætur í þrjá mánuði.
Kærandi óski eftir því að hin kærða ákvörðun verði endurmetin þar sem hann hafi reynt að komast inn á fundina. Kærandi sé á fullu að reyna að fá vinnu og langi helst ekki að vera á atvinnuleysisbótum. Í augnablikinu þurfi hann virkilega á bótunum að halda á meðan hann reyni að fá vinnu. Það hljóti fleiri en kærandi að hafa lent í því að komast ekki inn á fundi. Kærandi hafi búist við skilaboðum frá Vinnumálastofnun um að eitthvað hafi farið úrskeiðis og sé því í áfalli að stofnunin ætli að stöðva greiðslur til hans í þrjá mánuði.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 10. júní 2024. Með erindi, dags. 1. júlí 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.
Þann 6. september 2024 hafi kærandi verið boðaður á rafrænan kynningarfund Vinnumálastofnunar, þriðjudaginn 10. september 2024, klukkan 14:00 á Teams. Athygli hafi verið vakin á því að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun á greiðslum atvinnuleysistrygginga. Boðunin hafi verið birt á „Mínum síðum“ atvinnuleitanda og athygli hafi verið vakin á nýjum samskiptum með tölvupósti á skráð netfang kæranda og með SMS skilaboðum í skráð símanúmer hans, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi SMS skilaboðin borist í símtæki kæranda þann 6. september 2024, klukkan 11:00. Ítrekun vegna kynningarfundarins hafi verið send í símtæki kæranda klukkan 11:56 sama dag og fundurinn hafi átt að fara fram, þann 10. september 2024. Kærandi hafi hvorki sinnt boðuninni né látið vita af forföllum.
Þann 11. september 2024 hafi kærandi verið boðaður á annan rafrænan kynningarfund Vinnumálastofnunar, föstudaginn 13. september 2024, klukkan 09:30 á Teams. Boðunin hafi verið send með sama hætti og áður og skráðs sé móttaka í símtæki kæranda þann 11. september 2024, klukkan 14:42. Boðunin hafi verið samhljóða þeirri fyrri að öllu leyti, með gefnum fyrirvörum og áminningum um skyldur kæranda.
Sama dag og seinni boðunin hafi verið send hafi kærandi haft samband við stofnunina með tölvupósti klukkan 14:47 og sagst hafa reynt að komast inn á fundinn daginn áður án árangurs. Kæranda hafi verið svarað þann 12. september með tölvupósti og ítrekað að hann hefði nú þegar móttekið boðun á annan fund daginn eftir og ráðlagt að ef hann lenti í vandræðum með að tengjast fundinum skyldi hann strax senda tölvupóst til að greiða mætti úr mögulegum vandræðum. Kærandi hafi svarað þeim pósti samdægurs og þakkað fyrir sig. Engu að síður hafi kærandi ekki skráð sig inn á fundinn þann 13. september né hafi hann boðað forföll.
Þann 18. september 2024 hafi Vinnumálastofnun sent kæranda erindi þar sem óskað hafi verið eftir skriflegum skýringum á fjarveru í boðað viðtal. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að skila skýringum. Skýringar hafi borist frá kæranda í formi skjáskots úr síma og bréfs þar sem fram hafi komið að kærandi hefði lent í tæknivandamálum. Kærandi hafi óskað eftir því að tekið yrði tillit til þess.
Með erindi, dags. 30. september 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans hefðu verið stöðvaðar í tvo mánuði sökum þess að hann hafi ekki mætt í boðað viðtal á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr., sbr. 4. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Sú ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 14. október 2024. Kæra til nefndarinnar sé efnislega samhljóða þeim skýringum sem þegar höfðu borist Vinnumálastofnun, að fjarveru kæranda megi rekja til tæknivandamála.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Eitt af almennum skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði.
Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.
Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðaða kynningarfundi Vinnumálastofnunar þann 11. og 13. september 2024. Áður hafi kærandi fengið sendar tilkynningar í tölvupósti, með smáskilaboðum í farsíma og á „Mínum síðum“, þar sem tilgreindar hafi verið tímasetningar og leiðbeiningar. Kæranda hafi sömuleiðis verið greint frá því að öll forföll þyrfti að tilkynna til stofnunarinnar án ástæðulausrar tafar. Þá hafi kæranda einnig verið skýrt frá því í tölvupósti, sem hann hafi svarað samdægurs, með hvaða hætti hann skyldi láta vita af viðlíka vandkvæðum og hann hafi sagst hafa lent í þegar fyrri kynningarfundurinn hafi verið haldinn.
Í 1. mgr. 58. gr. segi:
„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“
Ákvæðið geri ráð fyrir því að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð er hafi fylgt frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Kærandi hafi veitt skýringar á fjarveru sinni á umrædda kynningarfundi en þær lúti að því að hann hafi reynt að tengjast en aldrei komist inn á fundina. Kærandi hafi einnig lagt fram skjáskot sem hluta af skýringu sinni. Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Í því samhengi bendi Vinnumálastofnun á að boðuninni hafi fylgt leiðbeiningar um hvernig kærandi skyldi haga tengingu á fundinn. Þá hafi kærandi verið upplýstur í tölvupósti um hvernig tilkynna bæri vandræði við tengingar sem kærandi hafi svarað. Boðun til umrædds fundar hafi borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Auk þess sem sérstaklega hafi verið tekið fram að tilkynningar um forföll skyldu berast án ástæðulausrar tafar. Í ljósi framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum og að hann skuli sæta viðurlögum á grundvelli 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Í 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi fram að sá sem hafi áður sætt viðurlögum samkvæmt 57.-59. gr. eða biðtíma samkvæmt 54. og 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greini eigi sér stað að nýju á sama tímabili samkvæmt 29. gr. skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggi fyrir ef hann hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili samkvæmt 29. gr.
Í 2. mgr. 61. gr. segi svo að þegar viðurlög eða biðtími hafi frestast leggist sá tími sem eftir hafi verið af fyrri viðurlagaákvörðun eða biðtíma saman við viðurlög samkvæmt 1. mgr.
Kærandi hafi áður sætt viðurlögum á grundvelli 59. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. ákvörðun Vinnumálstofnunar, dags. 5. október 2023. Kærandi hafi því sætt viðurlögum í annað sinn á sama bótatímabili þann 30. september 2024. Kærandi beri því að sæta viðurlögum í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.
Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:
„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“
Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.
Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.
Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var tvívegis boðaður á rafrænan kynningarfund hjá Vinnumálastofnun sem áttu að fara fram annars vegar 10. september 2024 og hins vegar 13. september 2024. Kæranda voru veittar ýmsar tæknilegar leiðbeiningar varðandi fundinn og greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða. Kæranda var einnig tjáð af ef upp kæmu forföll skyldi tilkynna þau á tiltekið netfang stofnunarinnar. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ekki væri hægt að fá nýja boðun á kynningarfundinn en ástæður forfalla yrðu sendar á Greiðslustofu til skoðunar þar sem afstaða yrði tekin til mögulegra viðurlaga í formi tímabundinnar eða varanlegrar greiðslustöðvunar. Boðunin var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma.
Kærandi hefur greint frá því að hafa reynt að komast inn á framangreinda fundi en enginn hafi hleypt honum inn. Augljóslega hafi verið um tæknilegt vandamál að ræða.
Samkvæmt gögnum málsins var kæranda þann 12. september 2024, eða daginn fyrir seinni fundinn, tilkynnt að ef hann myndi ekki ná að tengjast fundinum skyldi hann strax senda tölvupóst á tiltekið netfang til þess að hægt væri að leysa málið. Engar upplýsingar liggja fyrir um að kærandi hafi sett sig í samband við Vinnumálastofnun þann 13. september 2024 vegna þeirra vandræða sem hann kveðst hafa lent í.
Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta fjarveru á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun.
Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:
„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“
Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 5. október 2023 á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. laga nr. 54/2006, staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. september 2024, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir