Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 237/2022-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 237/2022

Fimmtudaginn 25. ágúst 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 4. maí 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. mars 2022, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun þann 14. júní 2021 og var umsókn hans samþykkt 31. ágúst 2021. Þann 22. febrúar 2022 var ferilskrá kæranda send til B vegna starfs hjá fyrirtækinu. Þann 3. mars 2022 bárust Vinnumálastofnun upplýsingar um að kærandi hefði hafnað starfi hjá B. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 11. mars 2022, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda vegna höfnunar á starfi hjá B. Skýringar bárust frá kæranda 21. mars 2022. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. mars 2022, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Kærandi sendi Vinnumálastofnun ný gögn og var mál hans því endurupptekið. Kæranda var tilkynnt með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 5. apríl 2022, að fyrri ákvörðun í máli hans væri staðfest.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 4. maí 2022. Með bréfi, dags. 5. maí 2022, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar ásamt gögnum málsins. Sú beiðni var ítrekuð 21. júní 2022. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 21. júní 2022 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 23. júní 2022. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Af kæru má ráða að kærandi sé ósáttur við ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt hans í tvo mánuði vegna höfnunar á atvinnutilboði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 14. júní 2021. Með erindi, dags. 31. ágúst 2021, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur hans væri 75%.

Þann 22. febrúar 2022 hafi ferilskrá kæranda verið send atvinnurekanda, B. Yfirskrift starfsins hafi verið afgreiðsla/þjónn. Þann 1. mars 2022 hafi kærandi tilkynnt um tilfallandi verktakavinnu í gegnum „Mínar síður“. Jafnframt hafi kærandi tilkynnt tilfallandi vinnu dagana 8. mars, 23. mars, 4. apríl og 19. apríl 2022. Atvinnurekandi hafi svarað tillögu að starfsmanni þann 3. mars 2022 þar sem fram hafi komið að kærandi hefði hafnað starfinu af þeirri ástæðu að hann væri kominn með annað starf. Með erindi, dags. 11. mars 2022, hafi verið óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda á höfnun á starfi hjá B. Athygli kæranda hafi jafnframt verið vakin á því að höfnun á atvinnutilboði eða atvinnuviðtali án gildra ástæðna gæti valdið biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga eða missi bótaréttar með vísan til 57. og 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Skýringar kæranda hafi borist þann 21. mars 2022 sem segi að kærandi hafi ekki hafnað starfinu. Kæranda hafi raunar ekki verið boðið starf hjá fyrirtækinu. Kærandi hafi greint frá því að hann hefði fundið annað starf sem verktaki sem hann væri nú að prófa. Ef allt gengi að óskum kynni hann að verða ráðinn í fullt starf en hann væri að minnsta kosti í tilfallandi vinnu sem verktaki. Kærandi hafi ítrekað að hann hefði ekki fengið tölvupóst eða símtal frá fyrirtækinu þar sem honum hafi verið boðið starf.

Vinnumálastofnun hafi fjallað um höfnun kæranda á atvinnutilboði hjá B þann 28. mars 2022. Skýringar kæranda hafi legið fyrir. Kærandi hafi verið upplýstur um að það væri mat stofnunarinnar að skýringar hans teldust ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar og væru greiðslur atvinnuleysisbóta til hans því felldar niður í tvo mánuði frá ákvörðunardegi sem ella hefðu verið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir. Sú ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi hafi sent inn frekari skýringar sama dag þar sem hann hafi ítrekað að honum hafi ekki verið boðið starfið og því hefði hann ekki hafnað starfinu. Hann hafi ekki einu sinni vitað hvað fælist í starfinu. Þá hafi kærandi sagst vera mjög virkur í atvinnuleit sinni.

Kærandi hafi haft samband á símatíma þann 4. apríl 2022 þar sem hann vildi ítreka að hann hefði ekki hafnað starfinu og um misskilning væri að ræða. Hann væri með vinnu á fimmtudögum en almennt ekki aðra daga vikunnar. Með erindi þann 5. apríl 2022 hafi kærandi verið upplýstur um að mál hans hefði verið tekið fyrir að nýju með tilliti til nýrra gagna. Það væri mat stofnunarinnar að staðfesta bæri fyrri ákvörðun frá 28. mars 2022, enda hefði hún að geyma efnislega rétta niðurstöðu í málinu. Kærandi hafi aftur haft samband á símatíma þann 7. apríl 2022 þar sem hann hafi verið ósáttur með biðtíma en hann hafi ekki hafnað starfinu. Hann hafi einungis sagt við atvinnurekanda að hann væri að byrja í annarri vinnu. Eina vinnan sem hann væri með væri verktakavinna sem mögulega yrði að fullu starfi þegar áhrifa Covid-19 dvínuðu. Samkvæmt samskiptafærslu fulltrúa stofnunarinnar hafi kærandi í lok samtalsins þvertekið fyrir að hafa viðurkennt að hafa réttilega sagt við atvinnurekanda að hann væri að byrja í annarri vinnu þegar haft hafi verið samband við kæranda vegna starfs hjá B.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Mál þetta lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslu atvinnuleysistrygginga til kæranda vegna höfnunar á starfi. Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð á meðan þeir séu að leita sér að nýju starfi. Með þessu sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Gert sé ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðubúnir að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu. Ríkar kröfur beri að gera til þeirra sem hafni starfi á innlendum vinnumarkaði um að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að hann sé í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 1. mgr. 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi, án sérstaks fyrirvara, óháð því hvort um fullt starf eða hlutastarf sé að ræða, og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit.

Í greinargerð sem fylgdi frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar komi meðal annars fram í athugasemdum við 14. gr. að mikilvægt sé að einstaklingurinn sé reiðubúinn að taka starfi, óháð því hvort um fullt starf eða hlutastarf sé að ræða. Því sé ekki gert ráð fyrir að hinn tryggði geti takmarkað atvinnuleit sína við það tryggingahlutfall sem hann hafi áunnið sér innan kerfisins nema undanþágur 4. mgr. kunni að eiga við.

Í 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög vegna höfnunar á starfi. Ákvæðið sé svohljóðandi:

,,Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Ágreiningur í máli þessu snúi meðal annars að því hvort kærandi hafi hafnað starfi í skilningi 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt 4. mgr. 57. gr. skuli Vinnumálastofnun meta við ákvörðun um viðurlög samkvæmt 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg, en í 4. mgr. segi orðrétt:

,,Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Í greinargerð sem fylgdi frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar komi meðal annars fram í athugasemdum við 57. gr. laganna að þrátt fyrir að vera í hlutastarfi og að hafa hlutfallslegar atvinnuleysisbætur á móti sé áfram gert ráð fyrir að atvinnuleitandinn verði að uppfylla skilyrði laganna til að teljast tryggður, þar á meðal að vera í virkri atvinnuleit, sbr. 14. gr. laganna.

Vinnumálastofnun sé gert að meta skýringar atvinnuleitenda vegna höfnunar á atvinnutilboði með hliðsjón af þeirri ríku skyldu sem hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til að vera reiðubúnir að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara, og hafi til þess vilja og getu. Gert sé ráð fyrir því að Vinnumálastofnun sé heimilt að líta til aldurs hins tryggða, félagslegra aðstæðna tengdum skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima við ákvörðun um hvort hinn tryggði skuli sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 57. gr. laganna. Enn fremur sé Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar í boði sé starf fjarri heimili hans sem geri kröfur um að hlutaðeigandi flytji búferlum.

Fyrir liggi að kæranda hafi verið boðið í atvinnuviðtal hjá B. Kærandi hafi gefið skýringar á höfnun á atvinnuviðtali til Vinnumálastofnunar. Skýringar lúti einkum að því að honum hafi ekki verið boðið starfið og því hefði hann ekki hafnað því. Hann væri í tilfallandi vinnu og ef allt gengi að óskum gæti hann fengið fullt starf í framtíðinni.

Rík skylda hvíli á atvinnuleitendum að taka því starfi sem þeim bjóðist, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. Jafnframt þurfi atvinnuleitendur að vera reiðubúnir að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, hlutastarf eða fullt starf, án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu, sbr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Einnig sé sérstaklega fjallað um tilvik sem þessi í athugasemdum með 17. gr. frumvarps þess er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar. Þar komi fram að hinn tryggði þurfi að uppfylla það skilyrði að vera í virkri atvinnuleit þó að hann sé í hlutastarfi á móti greiðslum atvinnuleysisbóta. Svo segi: „í því felst meðal annars að hann sé reiðubúinn að taka störfum sem bjóðast og fela í sér hærra starfshlutfall en starf það sem hann gegnir eða hlutastörf á móti starfi hans.“ Atvinnuleitendur geti því ekki hafnað störfum á þeim forsendum að þeir séu þegar í hlutastarfi.

Fyrir liggi að haft hafi verið samband við kæranda vegna starfs hjá B. Atvinnurekandi hafi greint frá því að kærandi hefði þá upplýst að hann væri þegar kominn með annað starf. Kærandi hafi staðfest framangreint í símtali við fulltrúa stofnunarinnar. Í lok umrædds símtals hafi kærandi þó hafnað því að hafa gefið slíkar upplýsingar. Samkvæmt þeim skýringum sem kærandi haldi sig við hafi honum ekki verið boðið starfið og hann hefði því ekki hafnað starfinu en hann væri réttilega í tilfallandi vinnu. Að mati Vinnumálastofnunar megi leggja afstöðu kæranda að jöfnu við það að kærandi hafi hafnað starfinu.

Í ljósi framangreinds séu skýringar kæranda ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á atvinnutilboði en atvinnuleitendur geti almennt ekki hafnað störfum á þeim forsendum að þeir séu þegar í hlutastarfi. Þá samræmist slíkar skýringar ekki skilyrðum 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um virka atvinnuleit atvinnuleitenda. Við móttöku umsóknar um atvinnuleysistryggingar veiti Vinnumálastofnun atvinnuleitendum leiðbeiningar um hvar megi finna upplýsingar um réttindi og skyldur atvinnuleitenda. Þannig sé öllum atvinnuleitendum vísað á heimasíðu Vinnumálastofnunar þar sem meðal annars sé að finna skýrar upplýsingar um afleiðingar þess að hafna starfi án gildra ástæðna. Ákvæði laga um atvinnuleysistryggingar séu skýr hvað varði skyldu atvinnuleitenda til að taka störfum sem séu í boði og um höfnun á atvinnutilboðum. Út frá fyrirliggjandi gögnum sé ekki fallist á að kærandi hafi verið reiðubúinn að taka því starfi sem hafi boðist, án sérstaks fyrirvara.

Það sé mat Vinnumálastofnunar að skýringar kæranda vegna höfnunar á starfi geti ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda beri því að sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 57. gr. laganna.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Þá segir svo í 4. mgr. 57. gr. laganna:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Samkvæmt gögnum málsins var ferilskrá kæranda send B þann 22. febrúar 2022. Fyrirtækið tilkynnti Vinnumálastofnun þann 3. mars 2022 að kærandi hefði hafnað starfi vegna þess hann væri kominn með aðra vinnu. Kærandi hefur vísað til þess að hann hafi ekki hafnað atvinnutilboði þar sem honum hafi ekki boðist starfið. Í fyrirliggjandi samskiptasögu skráir þjónustufulltrúi Vinnumálastofnunar 4. apríl 2022 að kærandi segist ekki hafa hafnað vinnu, heldur að þetta hafi verið misskilningur hjá vinnuveitanda þar sem hann hafi sagst vera með vinnu á fimmtudögum, en almennt ekki á hverjum degi. Þá kemur fram að kærandi hafi hringt í Vinnumálastofnun 7. apríl 2022 og greint frá því að hann hefði ekki hafnað vinnu en hann hafi sagt atvinnurekanda að hann væri að byrja í annarri vinnu.

Af gögnum málsins má ráða að B hafi haft samband við kæranda vegna starfs hjá fyrirtækinu. Að mati úrskurðarnefndarinnar voru framangreind viðbrögð kæranda þess eðlis að þau jafngildi höfnun á starfi. Úrskurðarnefndin bendir á að eitt af skilyrðum þess að vera tryggður samkvæmt lögum nr. 54/2006 er að vera í virkri atvinnuleit samkvæmt 14. gr. Í því felst meðal annars að hafa vilja og getu til að taka starfi, án sérstaks fyrirvara, sbr. d. lið 1. mgr. ákvæðisins. Að því virtu er það mat úrskurðarnefndarinnar að þær ástæður og skýringar sem kærandi hefur gefið séu ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á starfinu, sbr. 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. mars 2022, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta