Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál

Mál nr. 528/2020 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 528/2020

Föstudaginn 12. febrúar 2021

A

gegn

Barnaverndarnefnd B

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Björn Jóhannesson lögfræðingur og Guðfinna Eydal sálfræðingur

Með kæru, móttekinni 21. október 2020, kærði C lögmaður, f.h. A, til úrskurðarnefndar velferðarmála úrskurð Barnaverndarnefndar B frá 13. október 2020 vegna umgengni hans við dóttur sína, D.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Stúlkan D er tæplega X ára gömul stúlka sem lýtur forsjá föður síns. Móðir stúlkunnar var að kröfu Barnaverndarnefndar B svipt forsjá dóttur sinnar með dómi Héraðsdóms B, uppkveðnum 25. nóvember 2020, en þeim dómi hefur verið áfrýjað til Landsréttar. Barnaverndarnefnd B hefur gert þær kröfur fyrir dómi að kærandi verði sviptur forsjá stúlkunnar. Kærandi er kynfaðir stúlkunnar.

Mál stúlkunnar hefur verið til meðferðar hjá Barnavernd B allt frá fæðingu hennar. Áhyggjur voru af aðstæðum stúlkunnar í umsjá beggja foreldra. Þegar stúlkan var X var hún vistuð á E, vistheimili barna, með samþykki foreldra. Móðir stúlkunnar var með henni fyrst um sinn en faðir tók við umönnun stúlkunnar í október 2019. Í lok janúar 2020 fluttu feðginin á heimili föðurömmu og faðir fékk stuðning. Stúlkan fór úr umsjá föður þann 13. júlí 2020 á grundvelli úrskurðar Barnaverndarnefndar B þar sem kveðið var á um tveggja mánaða vistun stúlkunnar utan heimilis og að á tímabili vistunar færi fram endurmat á forsjárhæfni föður. Stúlkan dvaldi fyrst um sinn á E og fór í umsjá núverandi fósturforeldra sinna þann 17. júlí 2020.

Á fundi Barnaverndarnefndar B þann 1. október 2020 var bókað um forsjársviptingu gagnvart föður á grundvalli a- og d-liða 29. gr. barnaverndarlaga. Þegar tekin var ákvörðun um að gera kröfu um að faðir yrði sviptur forsjá stúlkunnar og þar með stefnt að varanlegri fósturvistun hennar utan heimilis var að mati starfsmanna barnaverndar nauðsynlegt að gera breytingar á tíðni umgengni við kæranda. Fjallað var um umgengni í tímabundnu fóstri á fundi Barnaverndarnefndar B þann 6. október 2020. Fyrir fundinn lá fyrir greinargerð starfsmanna Barnaverndar B, dags. 14. september 2020, með tillögu um umgengni einu sinni í mánuði á heimili föðurömmu. Faðir samþykkti ekki tillöguna og var málið því tekið til úrskurðar.

Barnaverndarnefnd B kvað upp úrskurð varðandi umgengni stúlkunnar við kæranda á fundi nefndarinnar þann 13. október 2020. Úrskurðarorð hins kærða úrskurðar er svohljóðandi, auk þess sem bent er á kæruheimild til úrskurðarnefndar velferðarmála:

Barnaverndarnefnd B ákveður að A, hafi umgengni við D, einu sinni í mánuði í þrjár klukkustundir í senn á meðan forsjársviptingarmál er rekið fyrir dómstólum. Umgengni fari fram á heimili föður og föðurömmu eða öðrum fyrirfram ákveðnum stað sem aðilar koma sér saman um.“

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála þann 21. október 2020. Með bréfi úrskurðarnefndar velferðarmála, dags. 21. október 2020, var óskað eftir greinargerð Barnaverndarnefndar B ásamt gögnum málsins. Greinargerð Barnaverndarnefndar B barst nefndinni þann 5. nóvember 2020 og með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 13. nóvember 2020, var hún send lögmanni kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust frá lögmanni kæranda með bréfi, dags. 2. desember 2020, og voru þær sendar Barnaverndarnefnd B til kynningar með bréfi, dags. 4. desember 2020. Athugasemdir bárust frá Barnaverndarnefnd B með bréfi, dags. 7. desember 2020, og voru þær sendar lögmanni kæranda til kynningar og veittur frestur til að gera athugasemdir með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 10. desember 2020. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi krefst þess aðallega að umgengni hans við dóttur sína verði aukin þannig að hún verði einu sinni í viku í sex klukkustundir í senn. Til vara gerir kærandi þá kröfu að umgengni hans við dóttur sína verði tvisvar í mánuði í þrjár klukkustundir í senn, líkt og áður hafi verið.

Stúlkan D sé dóttir kæranda og F og þau fari með sameiginlega forsjá stúlkunnar en nú séu rekin mál gegn þeim báðum fyrir Héraðsdómi B þar sem þess sé krafist að þau verði svipt forsjá stúlkunnar. Málin séu rekin hvort í sínu lagi þar sem ávallt hafi verið stefnt að því að stúlkan yrði í umsjá föður síns þar til nýlega þegar gerð hafi verið krafa um að hann yrði einnig sviptur forsjá.

Kærandi og móðir stúlkunnar hafi verið í sambúð þar til stúlkan hafi orðið X en þá hafi hún flutt með móður til móðurömmu. Þar hafi kærandi notið umgengni aðra hvora helgi. Eftir að stúlkan flutti með móður sinni hafi barnavernd borist fjölmargar tilkynningar vegna áhyggja í umsjá móður og andlegs óstöðugleika hennar. Í september 2019 hafi stúlkan farið á E, vistheimili, með stuðningi á vegum barnaverndar. Fyrst um sinn hafi móðir verið með stúlkunni á E en í október 2019 hafi kærandi alfarið tekið við umsjá stúlkunnar inni á E.

Það hafi fljótlega orðið ljóst að kærandi þyrfti stuðning og fræðslu til að aðstoða hann við uppeldi dóttur sinnar. Kærandi hafi verið að verða faðir í fyrsta skipti og stúlkan hafi að mestu verið í umsjá móður. Þá sé kærandi greindur bæði með einhverfu og ADHD. Á E hafi kærandi og dóttir hans fengið nauðsynlegan stuðning og leiðbeiningar. Kærandi hafi sýnt miklar framfarir og tekist að tileinka sér flest það sem hafi verði lagt fyrir hann af hálfu starfsmanna E á þeim tveimur til þremur mánuðum sem hann dvaldi þar með dóttur sinni.

Í janúar 2020 hafi mál stúlkunnar verið tekið fyrir hjá barnavernd og lagt til að móðir myndi afsala sér forsjá stúlkunnar, ella yrði hún svipt forsjánni. Þar sem vel hafi gengið hjá kæranda og dóttur hans hafi verið lagt upp með að kærandi myndi flytja með stúlkuna af E í eigin íbúð en njóta stuðnings inni á heimilinu. Einnig hafi kærandi og dóttir hans notið aðstoðar frá stuðningsfjölskyldu sem stúlkan dvaldi hjá fjóra daga í mánuði.

Stuðningurinn við heimili kæranda hafi gengið vel, enda hafi hann alltaf verið samvinnufús. Þar að auki hafi móðir kæranda flutt inn á heimilið og veitti þar aðstoð eftir fremsta megni. Þá hafi systir kæranda komið til landsins og einnig veitt stuðning eftir fremsta megni. Kærandi sé í fullri vinnu hjá G sé að hitta sálfræðing og reyni að þiggja og nýta allan þann stuðning sem honum hafi staðið til boða.

Vegna Covid-19 faraldursins hafi komið bakslag í þann stuðning sem kærandi og dóttir hans hafi notið. Óumdeilt sé í málinu að stuðningurinn hafi borið árangur og að kærandi hafi sýnt framfarir en að mati starfsmanna barnaverndar hafi það gengið of hægt og því verið óskað eftir því að kærandi myndi gangast undir endurmat á forsjá. Kærandi hafi verið samþykkur því að undirgangast slíkt mat, enda bæði í hans þágu og dóttur hans að greina hvaða stuðningsúrræði geti nýst þeim best. Vegna skýrslna frá starfsmanni H., sem hafði veitt stuðning inni á heimili kæranda, um áhyggjur af tengslaröskun hjá barninu þá hafi það einnig verið mat barnaverndar að nauðsynlegt væri að vista barnið utan heimilis á meðan endurmat á forsjárhæfni færi fram. Að lokum hafi stúlkan verið vistuð utan heimilis kæranda í tvo mánuði og umgengni kæranda við barnið ákveðin tvisvar í mánuði í þrjá tíma í senn.

Kærandi hafi verið ósáttur við umgengnina eins og hún hafi verið ákveðin þegar stúlkan hafi verið tekin af heimili hans. Ekki síst í ljósi þess að meðal þeirra þátta sem hafi átt að endurmeta væru tengsl hans og barnsins en þegar svo ungt barn eigi í hlut sé óhjákvæmilegt að sú mynd skekkist þegar barnið sé tekið út af heimilinu og hitti ekki föður sinn nema í þrjá tíma í senn á tveggja vikna fresti. Kærandi hafi þó áfram sýnt samstarfsvilja og umgengni gengið vel frá því að barnið hafi verið tekið af heimili kæranda. Kærandi og móðir hans hafi ávallt sinnt umgengni og unnið hana í sátt við vistforeldra og barnavernd.

Kærandi telur þá umgengni, sem hafi verið ákveðin með úrskurði þann 13. október 2020, vera of litla og til þess fallna að skaða tengsl og samband á milli hans og dóttur sinnar. Þó að nú sé rekið mál fyrir héraðsdómi vegna kröfu barnaverndar um forsjársviptingu, sé alls óvíst hver niðurstaða málsins verði. Af þessum sökum verði að gera ráð fyrir þeim möguleika að barnið muni snúa aftur í umsjá kæranda. Ef svo fari, sé mjög slæmt fyrir hagsmuni barnsins ef búið er að rjúfa, eða að minnsta kosti skerða tengsl barnsins og kæranda. Það fyrirkomulag sem nú hafi verið úrskurðað um gæti jafnvel skaðað hagsmuni barnsins þegar til lengri tíma sé litið.

Samkvæmt núverandi fyrirkomulagi fái kærandi aðeins að hitta dóttur sína einu sinni í mánuði í þrjár klukkustundir í senn. Um sé að ræða verulega skerðingu á því sem áður hafi verið og þessi skerðing styðjist ekki við nein rök. Ákvörðunin hafi verið tekin í kjölfar beiðni kæranda um að auka umgengni þar sem umgengni hafi ávallt gengið vel og verið unnin í sátt við barnavernd og vistforeldra. Kærandi telji þessa skerðingu vera bæði ónauðsynlega og ósanngjarna. Hún fari gegn ráðum sérfræðinga sem hafi komið að málinu um að það sé æskilegt að tryggja ríka umgengni kæranda ef það eigi að vista barnið utan heimilis. Þessi afstaða hafi komið fram í tveimur sálfræðimötum sem unnin hafi verið og í skýrslu starfsmanna H. Þá komi jafnframt fram að vistforeldrar barnsins telji mikilvægt að stúlkan eigi umgengni við föður og af gögnum málsins virðast þeir ekki hafa verið mótfallnir breyttri umgengni þó að þeir hafi ekki verið samþykkir aukinni umgengni.

Kærandi telji hinn kærða úrskurð illa rökstuddan og engin rök sé þar að finna sem styðji þá niðurstöðu að skerða umgengni kæranda. Í úrskurðinum sé vísað til þess að sem standi sé stúlkan vistuð í tímabundið fóstur og ekki sé tímabært að ákveða umgengni til frambúðar fyrr en niðurstaða dómstólsins liggi fyrir. Þrátt fyrir þetta sé jafnframt byggt á því að stúlkan þurfi að fá að aðlagast breyttum aðstæðum í lífi sínu þar sem hún sé nýlega komin í umsjá fósturforeldra. Virðist því hreinlega verið gengið út frá því að barnið sé komið í varanlegt fóstur sem sé ekki staðan á þessu stigi málsins. Kærandi fái ekki séð að umgengni einu sinni í viku, hvað þá tvisvar í mánuði, raski stöðugleika og ró barnsins. Þvert á móti gæti það raskað hagsmunum barnsins ef kæranda sé því næst sem kippt út úr lífi hennar og það áður en endanleg niðurstaða fáist í mál þeirra.

Umgengni hafi almennt gengið vel og það virðist óumdeilt. Stúlkan hafi að sögn vistforeldra virst þreytt eftir umgengni og hegðað sér öðruvísi fyrst um sinn. Það eitt og sér telji kærandi ekki vera til marks um það að umgengni hafi slæm áhrif á barnið, enda sé það í sjálfu sér ekki óeðlilegt að barn á þessum aldri bregðist við breytingum sem eru að verða á lífi þess. Barnið og kærandi tengist sterkum böndum og það sé ekki útilokað að barnið bregðist hreinlega við því að vera tekið af kæranda aftur eftir skammvinna umgengni.

Kærandi telji jafnframt nauðsynlegt að minnast á að upphaf þess að barnavernd taldi þörf á endurmati á forsjárhæfni kæranda hafi verið vegna skýrslu starfsmanns H þar sem því hafi verið lýst að barnið væri að sýna merki tengslaröskunar. Þetta hafi þótt vera alvarlegt merki um að það væri nauðsynlegt að koma barninu úr umsjá kæranda og barnið hafi vegna þessa verið vistað utan heimilis á meðan forsjárhæfni kæranda hafi verið endurmetin. Þegar nýtt mat hafi legið fyrir hafi komið í ljós að matsmaður blési á þessar áhyggjur og teldi engin merki tengslaröskunar til staðar. Kærandi sé ekki alls kostar sáttur við það hvernig þetta mat hafi farið fram og niðurstöður þess, enda byggi það ekki á neinum mælanlegum prófum. Þó sé komist að þeirri niðurstöðu að barnið sé ekki haldið tengslaröskun sem sé eitt og sér til marks um það að barninu stafi engin hætta af umgengni við kæranda. Líklega hafi ekki verið þörf á að grípa til eins róttækra aðgerða og gerðar hafi verið þegar barnið hafi verið vistað utan heimilis tímabundið.

Kærandi byggi kröfur sínar á því að barn eigi rétt til umgengni við kynforeldra sína og aðra sem séu þeim nákomnir, sbr. 1. mgr. 74. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 (bvl.). Sá réttur sé í samræmi við mannréttindaákvæði og alþjóðasamninga sem Ísland hafi fullgilt. Kærandi byggi jafnframt á því að kynforeldrar eigi rétt á umgengni við barn í fóstri nema umgengni sé bersýnilega andstæð hagsmunum og þörfum barnsins, sbr. 2. mgr. 74. gr. bvl. Kærandi bendi á að réttur barns til að njóta umgengni við kynforeldra sína sé sérstaklega ríkur, enda komi fram í greinargerð með frumvarpi með barnaverndarlögum að „ef neita á um umgengnisrétt með öllu eða takmarka hann verulega verður að sýna fram á að hann sé bersýnilega andstæður hagsmunum barnsins“. Kærandi telji að ekkert sé fram komið sem sýni að umgengni sé bersýnilega andstæð hagsmunum barnsins. Þá telji kærandi að markmið fósturs standi ekki í vegi fyrir kröfum hans þar sem krafan feli í sér mjög hóflega aukningu á umgengni og sé ekki til þess fallin að raska markmiðum þess fósturs sem nú standi yfir. Það sé mikilvægt að hafa í huga að barnið sé enn í tímabundnu fóstri og mjög mikilvægt sé að raska ekki tengslum kæranda og barnsins þar sem óljóst sé hver niðurstaða málsins verði fyrir dómstólum. Kröfur kæranda byggi því einnig á meginreglu barnaverndarlaga um að hagsmunir barnsins skuli ávallt hafðir í fyrirrúmi, sbr. 1. 3., og 4. mgr. 4. gr. bvl.

Kærandi byggi kröfu sína jafnframt á því að barnið hafi aldrei verið í hættu statt í umgengni né hafi það komist í uppnám í tengslum við umgengni við kæranda og ömmu sína. Kærandi telji sig hafa getu og hæfni til að sinna dóttur sinni í umgengni og að innsæi hans í þarfir dóttur sinnar sé dýpra en nokkurn tímann áður. Kærandi sé reglusamur og nýti sér ýmis stuðningsúrræði til að halda áfram að standa sig og bæta. Móðir kæranda, amma barnsins, búi hjá honum og veiti honum kærkominn stuðning í daglegu lífi og þegar umgengni fari fram. Kærandi elski dóttur sína og sýni henni mikla ástúð og umhyggju. Það hafi reynst kæranda erfitt að vera svo mikið frá dóttur sinni og það sé einlægur vilji hans að fá að umgangast dóttur sína meira en hann geri nú. Kærandi vilji í þeim efnum vera í fullu samstarfi við barnavernd og vistforeldra. Kærandi telji í öllu falli ljóst að ekkert tilefni sé til að skerða umgengni líkt og gert hafi verið með úrskurði barnaverndarnefndar þann 13. október 2020.

Með vísan til framangreinds telji kærandi ekkert vera því til fyrirstöðu að fallast á kröfur kæranda, enda um hóflega kröfu að ræða sem sé ekki til þess fallin að raska markmiðum þess tímabundna fósturs sem sé enn í gildi eða hagsmunum barnsins. Þótt stefnt sé að varanlegu fóstri af hálfu barnaverndar, verði að gera ráð fyrir þeim möguleika að barnið snúi aftur í umsjá kæranda á þessu stigi málsins. Ekkert bendi til þess að umgengni kæranda við barnið raski hagsmunum þess, hvorki öryggi þess né stöðugleika. Enn síður bendi nokkuð til þess að barnið geti borið skaða af umgengni við kæranda.

Í athugasemdum kæranda, dags. 2. desember 2020, segir að með úrskurði Landsréttar frá 26. nóvember 2020 í máli nr. 589/2020 hafi verið fallist á beiðni kæranda um dómkvaðningu matsmanns til að framkvæma nýtt forsjárhæfnismat. Í ljósi úrskurðar Landsréttar muni málið taka lengri tíma þar sem nú þurfi að fara af stað sérstök vinna við að meta forsjárhæfni kæranda með tilliti til greininga hans og hvaða úrræði kunni að gagnast honum við uppeldi dóttur sinnar. Kærandi telji ljóst að þörf standi til þess að umgengni hans við dóttur sína verði aukin á meðan á þessu standi, ekki síst þar sem erfitt sé fyrir matsmann að meta tengsl þeirra feðgina og stuðningsþörf kæranda ef umgengni sé eins lítil og raun beri vitni. Með svo lítilli umgengni sé veruleg hætta á að tengsl þeirra rofni frekar og þá telji kærandi að sú litla umgengni sem hann þó hafi sýni ekki rétta mynd af veru dóttur hans á heimilinu. Lítil umgengni skekki einmitt það mat sem hafi verið unnið síðastliðið sumar þar sem matsmaður hafi meðal annars merkt óróleika hjá stúlkunni í fyrstu heimsókn sinni, en þá hafi stúlkan verið að koma í umgengni til kæranda eftir 14 daga fjarveru frá honum.

III.  Sjónarmið Barnaverndarnefndar B

Barnaverndarnefnd B gerir kröfu um að hinn kærði úrskurður verði staðfestur.

Í greinargerð barnaverndarnefndar kemur fram að um sé að ræða tæplega X ára stúlku sem lúti forsjá beggja foreldra sinna. Barnaverndarnefnd B hafi gert þær kröfur fyrir dómi að báðir foreldrar stúlkunnar verði sviptir forsjá hennar. Áhyggjur hafi verið af aðstæðum stúlkunnar í umsjá foreldra allt frá fæðingu hennar. Málið hafi verið unnið hjá Þjónustumiðstöð I sem hafi hlutast meðal annars til um þjónustu frá Miðstöð foreldra og barna. Fjölskyldan hafi verið búsett í Í um tíma og málið verið flutt samkvæmt 15. gr. barnaverndarlaga til Barnaverndar B í júlí 2019.

Foreldrar stúlkunnar hafi verið í sambúð og annast dóttur sína í sameiningu þar til hún varð X þegar þau hafi slitið sambandi sínu. Móðir hafi um tíma verið með stúlkuna á heimili móðurömmu stúlkunnar og kærandi átt reglulega umgengni aðra hvora helgi við barnið. Stúlkan hafi verið vistuð á E í lok september 2019 þar sem foreldrar hafi gengist undir kennslu og leiðbeiningarvistun. Stúlkan dvaldi á heimilinu samanlagt í fimm mánuði. Móðir stúlkunnar hafi annast hana þar í skamman tíma en kærandi hafi tekið alfarið við umönnun hennar á E í byrjun október 2019. Á E hafi kæranda verið veittar ítarlegar leiðbeiningar varðandi uppeldi og umönnun stúlkunnar. Kæranda hafi verið leiðbeint á fundum, í spjalli, rituðu máli og með sýnikennslu. Stúlkan hafi farið af E með kæranda á heimili föðurömmu í lok janúar 2020. Kæranda hafi verið veittur stuðningur inn á heimilið frá H. í formi reglulegra heimsókna og ráðgjafar á heimilinu.

Kærandi hafi gengist undir forsjárhæfnismat í tvígang, fyrst í lok árs 2019 og að nýju í ágúst 2020. Í niðurstöðum fyrra matsins komi fram að faðir sé metinn á tornæmisstigi í greind og á einhverfurófinu. Eldri greiningar, sem hafi verið gerðar á kæranda, beri með sér að hann sé með ADHD og röskun á einhverfurófi. Í fyrra mati hafi kærandi verið sagður hafa innsýn í vanda sinn og tengsl við dóttur sína. Í matinu komi einnig fram að kærandi gæti ekki búið stúlkunni viðunandi uppeldisskilyrði án aðstoðar. Ekki hafi verið mælt með að kærandi færi einn með stúlkuna heim af vistheimilinu.

Í fyrri skýrslu E, dags. 10. desember 2019, komi fram talsverðar áhyggjur af hæfni kæranda í uppeldishlutverkinu. Fram komi að faðir eigi erfitt með að lesa í þarfir barnsins og sé í vandræðum með að yfirfæra vissar leiðbeiningar á milli daga og í mismunandi aðstæðum. Í seinni skýrslu E, dags. 24. janúar 2020, komi fram að kærandi hafi sýnt að hann geti tileinkað sér ákveðna hluti. Hann sé öruggari og vilji standa sig. Kærandi hafi verið sagður treysta meira á sjálfan sig og starfsmenn talið að hann gæti sinnt stúlkunni hefði hann aðgang að aðilum sem hann treysti.

Úrræðið H. hafi veitt sérhæfðan stuðning inn á heimili kæranda eftir útskrift feðginanna af E. Alls hafi verið farnar 30 heimsóknir til kæranda frá febrúar til júlí 2020. Þá hafi stúlkunni verið fundin stuðningsfjölskylda í febrúar 2020. Stúlkan hafi farið fyrst um sinn í fjóra sólarhringa í mánuði til stuðningsfjölskyldunnar en frá apríl 2020 hafi stuðningur verið aukinn í sjö sólarhringa. Þrjár skýrslur liggi fyrir varðandi aðkomu H á heimili kæranda og föðurömmu. Í skýrslunum komi fram áhyggjur af hæfni föður til að annast stúlkuna. Fram komi að kæranda þyki vænt um dóttur sína og sé viljugur að þiggja aðstoð. Hann skorti bjargir og verði ráðalaus ef stúlkan sýni erfiða hegðun. Í skýrslu H, dags. 4. maí 2020, komi fram að kærandi reiði sig mikið á stuðning móður sinnar. Starfsmaður H. greini frá því að hafa rætt um vistun stúlkunnar utan heimilis við kæranda og föðurömmu. Föðuramma hafi þá lagt til að stúlkan yrði vistuð í fóstur með þeim hætti að hún væri til jafns á heimili föður og fósturforeldra. Í skýrslu, dags. 14. júlí 2020, hafi verið bent á að kærandi hafi fengið leiðsögn í hálft ár sem hefði borið takmarkaðan árangur. Verulegum áhyggjum hafi verið lýst af stúlkunni í umsjá kæranda. Kærandi hafi verið sagður sjálflægur og ekki geta lesið í þarfir í barnsins. Þá komi fram að þungt hafi verið yfir stúlkunni sem væri farin að gera minni kröfur á kæranda. Stúlkan hafi verið sögð búa yfir seiglu en vera farin að gefa eftir því hún átti sig á því að hún geti ekki treyst á að þörfum hennar sé sinnt. Þá sé kærandi sagður háðari stúlkunni en hún honum. Kærandi hafi að mati starfsmanna H ekki verið talinn hafa hæfni til að ala upp barn svo að geðtengsl sem barni séu nauðsynleg væru tryggð. Kærandi hafi auk þess verið sagður ekki fær um umönnun stúlkunnar svo að tilfinningalegum eða sálfræðilegum þörfum hennar væri sinnt.

Fjallað hafi verið um mál stúlkunnar á fundi Barnaverndarnefndar B þann 3. júlí 2020 þar sem úrskurðað hafi verið um tveggja mánaða vistun stúlkunnar utan heimilis og kveðið á um að faðir undirgengist forsjárhæfnismat að nýju á tímabilinu. Í bókun fundarins komi fram að sá mikli og sérhæfði stuðningur sem hafði verið veittur kæranda hefði ekki skilað tilætluðum árangri.

Stúlkan hafi farið úr umsjá kæranda þann 13. júlí 2020 og dvalið fyrst um sinn á E þar til hún hafi farið í umsjá fósturforeldra sinna þann 22. júlí 2020. Aðlögun á fósturheimilinu hafi gengið vel og dvelji stúlkan á þessu heimili í dag.

Föðursystir stúlkunnar, sem sé búsett í J, hafi óskað eftir að fá að vista stúlkuna í tímabundið fóstur og hafi kærandi verið samþykkur í því. Í bókun meðferðarfundar, dags. 15. júlí 2020, sé fjallað um ósk föðursystur og rök færð fyrir því að stúlkan geti ekki vistast þar. Meðal þess sem fram komi í bókuninni sé að ekki sé lagaheimild til að vista stúlkuna […] samkvæmt 84. gr. bvl. Þar sem um stutta vistun væri að ræða væri líklegt að langt yrði liðið á vistunina þegar þær upplýsingar sem afla þyrfti […] frá um aðstæður föðursystur bærust og það væri ekki hagsmunum stúlkunnar fyrir bestu að hún biði á E á meðan umræddra gagna væri aflað. Þá komi fram það mat starfsmanna Barnaverndar B að veita þyrfti stúlkunni verulega andlega og tilfinningalega örvun og atlæti á tímabili vistunar. Með vistun […], auk þess sem erfitt yrði að tryggja að stúlkan hefði umgengni við foreldra sína.

Í seinna forsjárhæfnismatinu, sem hafi verið framkvæmt á föður, hafi matsmaður fylgst með stúlkunni í umsjá föður og einnig hjá fósturforeldrum. Í matinu komi fram að hegðun stúlkunnar sé afar ólík á þessum tveimur heimilum. Stúlkan hafi öskrað mikið í umgengni við kæranda, ekkert talað og verið mjög eirðarlaus. Matsmaður hafi haft áhyggjur af mögulegum þroskafrávikum stúlkunnar með hliðsjón af þessari hegðun hennar. Á heimili fósturforeldra hafi stúlkan verið eins og annað barn. Hún hafi verið mjög róleg, dundað sér, ekki öskrað og setið í fangi fósturforeldra að lesa bækur. Matsmaður hafi aldrei orðið var við neitt af þeirri hegðun stúlkunnar sem hún hafi viðhaft í umgengni við kæranda. Í niðurstöðu matsins komi fram að kærandi hafi […] takmarkanir sem hafi áhrif á getu hans til að yfirfæra lærða þekkingu yfir á aðstæður dagslegs lífs og aðlögunarfærni. Vegna þessa eigi kærandi erfitt með að sinna daglegum þörfum stúlkunnar. Hann virðist eiga erfitt með að lesa í þarfir stúlkunnar þótt hann reyni sitt besta. Matsmaður bendi á að kærandi hafi ekki náð að tileinka sér þá kennslu og leiðbeiningar sem hann hafi fengið og sé ekki fær um að sinna grunnþörfum stúlkunnar. Matsmaður bendi á að stúlkan hafi sýnt gríðarlegar framfarir á skömmum tíma og bendi meðal annars á að stúlkan hafi gengið á hnjánum þegar hún hafi farið úr umsjá fósturforeldra. Hegðunar- og skapofsaköst stúlkunnar hafi stórminnkað hjá fósturforeldrum. Hún hafi náð miklum árangri við að stjórna tilfinningum og hegðun, hún sé rólegri og með betri einbeitingu. Matsmaður segi að huga verði að hagsmunum stúlkunnar og erfiðleikar hennar virðast því miður skýrast best af þeim aðstæðum sem hún hafi búið í hjá foreldrum sínum.

Á fundi Barnaverndarnefndar B þann 1. september 2020 hafi verið bókað að krefjast ætti þess fyrir dómi að kærandi yrði sviptur forsjá stúlkunnar á grundvelli 1. mgr. 29. gr. bvl. Í bókun nefndarinnar segi meðal annars að daglegri umönnun og uppeldi barnsins sé alvarlega ábótavant með hliðsjón af aldri hennar og þroska. Þrátt fyrir góðan vilja föður hafi hann ekki  náð að tileinka sér nauðsynlega færni til að annast stúlkuna og bendi gögn málsins til þess að hann sé augljóslega vanhæfur til að fara með forsjá barnsins. Með hagsmuni stúlkunnar að leiðarljósi með tilliti til ungs aldurs hennar hafi niðurstaða Barnaverndarnefndar B því verið sú að kærandi teldist ófær um að fara með forsjá dóttur sinnar.

Kærandi hafi haft reglulega umgengni við stúlkuna frá því að hún hafi farið úr hans umsjá. Bókað hafi verið um umgengni í tímabundnu fóstri á meðferðarfundi þann 28. júlí 2020. Samkvæmt bókuninni hafði kærandi umgengni við stúlkuna á 14 daga fresti í allt að þrjár klukkustundir í senn á heimili föðurömmu án eftirlits. Umgengni hafi verið með þessum hætti þar til 13. september 2020.

Þegar ljóst hafi verið að ekki væri stefnt að því lengur að stúlkan færi á ný í umsjá kæranda hafi verið bókað á meðferðarfundi, dags. 9. september 2020, að breytingar yrðu gerðar á umgengni kæranda. Það hafi verið gert með vísan í líðan stúlkunnar eftir umgengni samkvæmt upplýsingum frá fósturforeldrum sem og hegðunar stúlkunnar í umgengni.

Í greinargerð starfsmanna Barnaverndar B, dags. 14. september 2020, sem hafi legið fyrir á fundi Barnaverndarnefndar B þann 6. október 2020, komi fram að miðað við stöðu málsins hafi starfsmenn ekki talið rök fyrir því að fallast á kröfu föður um jafn mikla umgengni og hann óski eftir. Þar sem ekki sé lengur stefnt að því að stúlkan fari í umsjá kæranda að nýju telji starfsmenn það ekki þjóna hagsmunum hennar. Mikilvægt sé að stúlkan upplifi öryggi og ró á fósturheimilinu og í ljósi þess sé lagt til að umgengni verði mánaðarlega í þrjár klukkustundir án eftirlits á heimili föðurömmu á meðan forsjársviptingarmálið sé rekið fyrir dómstólum.

Lögmaður föður hafi mætt á fund nefndarinnar þann 6. október 2020 og gert grein fyrir afstöðu föður. Fram komi að ekki væri komin niðurstaða í forsjársviptingarmálinu sem rekið sé fyrir héraðsdómi og af þeim sökum megi alls ekki rjúfa tengsl stúlkunnar við kæranda á þessu stigi. Þá hafi lögmaður kæranda bent á að í gögnum H. og gögnum sálfræðinga komi fram að umgengni sé mjög mikilvæg fyrir föður og mælt sé með því að umgengni verði með ríkari hætti en gangi og gerist.

Í bókun Barnaverndarnefndar B frá 6. október 2020 og hinum kærða úrskurði nefndarinnar frá 13. október 2020 taki Barnaverndarnefnd B undir mat starfsmanna og tillögur að umgengni. Barn sem sé í fóstri eigi rétt á umgengni við kynforeldra og aðra sem séu því nákomnir samkvæmt 74. gr. bvl. Samkvæmt sömu lagagrein eigi kynforeldrar rétt á umgengni við barn í fóstri nema umgengni sé bersýnilega andstæð hagsmunum og þörfum barnsins og ósamrýmanleg þeim markmiðum sem stefnt sé að með ráðstöfun þess í fóstur. Taka skuli mið af því hvað þjóni hagsmunum barnsins best.

Markmiðið í þessu máli, og í samræmi við úrskurð nefndarinnar 1. september 2020, sé að stúlkan fari í varanlegt fóstur. Í ljósi þess sé lögð áhersla á að hún upplifi öryggi og ró á fósturheimilinu. Meta verði umgengni með hliðsjón af hagsmunum stúlkunnar og það sé mat nefndarinnar að umgengni með þeim hætti sem kærandi óski eftir geti raskað ró stúlkunnar og stefnt í hættu þeim stöðugleika sem reynt hafi verið að tryggja henni á fósturheimilinu. Að mati nefndarinnar sé hæfilegt að umgengni stúlkunnar við kæranda verði einu sinni í mánuði í þrjár klukkustundir í senn. Umgengni fari fram á heimili kæranda og föðurömmu. Umgengni verði með þessum hætti á meðan forsjársviptingarmál sé rekið fyrir dómstólum.

Með ákvörðun Barnaverndarnefndar B þann 1. september 2020 hafi orðið sú breyting í vinnslu málsins að ekki hafi verið stefnt að því að stúlkan færi aftur í umsjá kæranda heldur stefnt að því að hún alist upp í varanlegu fóstri hjá núverandi fósturforeldrum. Í ljósi þess sé lögð áhersla á að hún upplifi öryggi og ró á fósturheimilinu og það sé mat nefndarinnar að rýmri umgengni en úrskurðað hafi verið um geti raskað ró stúlkunnar og stefnt í hættu þeim stöðugleika sem reynt hafi verið að tryggja henni á fósturheimilinu. Þegar nauðsynlegt sé að vista svo ungt barn utan heimilis, án þess að vitað sé hvað framtíðin beri með sér, sé mikilvægt að vistunin raski sem minnst ró og öryggi barnsins.

Í athugasemdum Barnaverndarnefndar B, dags. 7. desember 2020, kemur fram að nefndin ítreki áður framkomnar kröfur sínar þess efnis að hinn kærði úrskurður verði staðfestur. Að mati nefndarinnar sé ekki að efast um það sem fram komi í matsgerð matsmanns og frásögnum fósturforeldra varðandi líðan stúlkunnar sem hafi tekið miklum framförum eftir að hún hafi farið í umsjá fósturforeldra sinna. Þá hafi tilfinningaleg líðan hennar einnig tekið miklum framförum ef horft sé til upplýsinga sömu aðila. Mikil umgengni barns við kynforeldri á óvissutímum geti haft í för með sér hættu á að barnið upplifi kvíða og spennu. Ungur aldur stúlkunnar hafi í för með sér að hún ráði illa við breytingar og geti ekki tjáð sig sjálf um eigin hag.

Umgengni samkvæmt 74. gr. bvl. þurfi að ákvarða í samræmi við hagsmuni og þarfir stúlkunnar. Réttur til umgengni og umfang hans geti verið takmarkaður og háður mati á hagsmunum hennar þar sem meðal annars beri að taka tillit til markmiðanna sem stefnt sé að með fósturráðstöfuninni og hversu lengi fóstri sé ætlað að vara. Fari hagsmunir stúlkunnar og kæranda ekki saman verði hagsmunir kæranda að víkja samkvæmt 1. mgr. 4. gr. bvl. Það sé mat Barnaverndarnefndar B að umgengni stúlkunnar við kæranda hafi verið hæfilega ákveðin með hinum kærða úrskurði nefndarinnar.

IV.  Niðurstaða

Stúlkan D er tæplega X ára stúlka sem lýtur forsjá kæranda sem er kynfaðir stúlkunnar.

Með hinum kærða úrskurði frá 13. október 2020 var ákveðið að kærandi hefði umgengni við stúlkuna einu sinni í mánuði í þrjár klukkustundir í senn á meðan forsjársviptingarmál væri rekið fyrir dómstólum. Umgengni færi fram á heimili föður og föðurömmu eða öðrum fyrir fram ákveðnum stað sem aðilar kæmu sér saman um.

Kærandi krefst þess að hinum kærða úrskurði verði hrundið og að umgengni verði aukin þannig að hún verði einu sinni í viku í sex klukkustundir í senn. Til vara krefst kærandi þess að umgengni verði tvisvar í mánuði í þrjár klukkustundir í senn. Barnaverndarnefnd B krefst að hinn kærði úrskurður verði staðfestur.

Í hinum kærða úrskurði kemur fram að það sé mat barnaverndarnefndar að mikilvægt sé að stúlkan fái næði til að aðlagast breyttum aðstæðum í lífi sínu en hún sé nýlega komin í umsjá fósturforeldra sinna og fyrir skemmstu hafið leikskólagöngu í grennd við heimili þeirra. Miklar breytingar hafi verið á högum hennar undanfarið og stúlkan sé í þörf fyrir ró og stöðugleika.

Í greinargerð starfsmanna barnaverndar, dags. 14. september 2020, kemur fram að starfsmenn barnaverndar telji að ekki séu forsendur fyrir umgengni með þeim hætti sem kærandi hafi óskað eftir miðað við stöðu málsins. Ekki sé lengur stefnt að því að stúlkan fari í umsjá föður en talið sé fullreynt að veita honum stuðning á grundvelli barnaverndarlaga. Stefnt sé að því að stúlkan verði í varanlegu fóstri en þó sé ekki tímabært að ákveða umgengni til frambúðar fyrr en niðurstaða dómstóla liggi fyrir.

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. bvl. á barn í fóstri rétt á umgengni við kynforeldra og aðra sem eru því nákomnir. Kynforeldrar eiga með sama hætti rétt á umgengni við barn sitt samkvæmt 2. mgr. sömu lagagreinar, nema umgengni sé bersýnilega andstæð hagsmunum og þörfum barnsins og ósamrýmanleg þeim markmiðum sem stefnt er að með ráðstöfun þess í fóstur. Við mat á þessu skal meðal annars taka tillit til þess hversu lengi fóstri er ætlað að vara. Samkvæmt 3. mgr. lagagreinarinnar skal taka afstöðu til umgengni barns, sem ráðstafað er í fóstur, við foreldra og aðra nákomna og skal taka mið af því hvað þjóni hagsmunum barnsins best. Samkvæmt 4. mgr. sömu lagagreinar hefur barnaverndarnefnd úrskurðarvald um ágreiningsefni er varða umgengni barns við foreldra og aðra nákomna, hvort sem það varðar rétt til umgengni, umfang umgengnisréttarins eða framkvæmd.

Það er meginregla í barnaverndarstarfi að hagsmunir barns skuli ávallt vera í fyrirrúmi og beita skuli þeim ráðstöfunum sem barni eru fyrir bestu. Við úrlausn þessa máls ber því að líta til þeirrar stöðu sem stúlkan er í. Það er gert til að unnt sé að taka ákvörðun um umgengni hennar við kæranda á þann hátt að hún þjóni hagsmunum hennar best, sbr. 3. mgr. 74. gr. bvl.

Samkvæmt því, sem fram kemur í framangreindum lagaákvæðum, ber að leysa úr kröfum kæranda með tilliti til þess hvað þjónar hagsmunum stúlkunnar best með tilliti til stöðu hennar. Samkvæmt gögnum málsins er stúlkan í tímabundnu fóstri og lýtur enn forsjá foreldra sinna. Barnið er í tímabundnu fóstri hjá fósturforeldrum, sbr. 65. gr. bvl., en Barnaverndarnefnd B hefur gert þá kröfu fyrir dómi að kærandi verði sviptur forsjá stúlkunnar. Forsenda hins kærða úrskurðar er að stúlkan upplifi öryggi og ró á fósturheimilinu og það sé mat barnaverndarnefndarinnar að rýmri umgengni en úrskurðað hafi verið um geti raskað ró stúlkunnar og stefnt í hættu þeim stöðugleika sem reynt hafi verið að tryggja henni á fósturheimilinu. Samkvæmt gögnum málsins er um að ræða barn sem er á viðkvæmum aldri sem líður vel í umsjá fósturforeldra. Með hinum kærða úrskurði var umgengni kæranda við stúlkuna talin vera hæfileg einu sinni í mánuði, þrjár klukkustundir í senn, í stað tvisvar í mánuði, þrjár klukkustundir í senn, en þá umgengni hafði kærandi við stúlkuna frá 17. júlí 2020 eftir að úrskurðað var um tveggja mánaða vistun stúlkunnar utan heimilis. Á fundi Barnaverndarnefndar B 1. september 2020 var meðal annars á grundvelli forsjárhæfismats kæranda bókað um forsjársviptingu hans. Í málinu liggur fyrir að Landsréttur hefur fallist á kröfu kæranda um að nýtt forsjárhæfismat verði framkvæmt í tilefni kröfu Barnaverndarnefndar B um að hann verði sviptur forsjá stúlkunnar. Þá kemur fram í greinargerð starfsmanna barnaverndar, dags. 14. september 2020, að ekki sé tímabært að ákveða með umgengni til frambúðar fyrr en niðurstaða dómstóla liggur fyrir.

Samkvæmt gögnum málsins kemur fram í afstöðu tveggja sérfræðinga að mikilvægt sé að stúlkan eigi umgengni við föður vegna fyrri tengsla þeirra. Þá er einnig til þess að líta að fósturforeldrar stúlkunnar hafa ekki verið mótfallnir þeirri umgengni sem var til staðar áður en úrskurður barnaverndarnefndar var kveðinn upp 13. nóvember 2020. Með hliðsjón af framangreindu og gögnum málsins að öðru leyti, er úrskurðarnefndin sammála sjónarmiðum kæranda að varakrafa hans um umgengni við stúlkuna tvisvar í mánuði í þrjár klukkustundir í senn sé hófleg og ekki til þess fallin að raska markmiðum þess fósturs sem er í gildi eða fari gegn hagsmunum barnsins.

Með vísan til alls þess, sem að framan greinir, ber að fella úr gildi hinn kærða úrskurð og vísa málinu til nýrrar meðferðar Barnaverndarnefndar B.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Úrskurður Barnaverndarnefndar B frá 13. október 2020 varðandi umgengni D, við A, er felldur úr gildi og vísað til nýrrar meðferðar.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

 

Kári Gunndórsson

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta