Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Fæðingar- og foreldraorlof

Mál nr. 71/2002

Mánudaginn, 19. nóvember 2002

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Úrskurður

Mál þetta úrskurðuðu Guðný Björnsdóttir hdl., Ósk Ingvarsdóttir læknir og Gylfi Kristinsson skrifstofustjóri.

Þann 4. nóvember 2002 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dags. 4. nóvember 2002.

Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar:

Samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.) skal kæra berast úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun. Samkvæmt gögnum málsins barst kæranda máls þessa bréf, dags. 25. apríl 2001 frá Tryggingastofnun ríkisins, þar sem tilkynnt var hvernig afgreiðslu málsins yrði háttað hjá stofnuninni. Kæran barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála 4. nóvember 2002.

Í 4. mgr. 6. gr. ffl. er um málsmeðferð vísað til stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Í 1. mgr. 28. gr. þeirra laga segir:

"Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá, nema:
1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða
2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar."

Þar sem hvorki verður séð að sérstakar ástæður leiði til þess að afsakanlegt verði talið að kæra hafi komið of seint fram, né að veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin fyrir, kemst nefndin að þeirri niðurstöðu að vísa kærunni frá, þar sem hún er of seint fram komin.

ÚRSKURÐARORÐ:

Kæru A er vísað frá þar sem hún er of seint fram komin.

Guðný Björnsdóttir

Gylfi Kristinsson

Ósk Ingvarsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta