Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Fæðingar- og foreldraorlof

Mál nr. 17/2013

Fimmtudaginn 14. nóvember 2013

A

gegn

Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóði

 

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Haukur Guðmundsson hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 14. mars 2013 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dags. 11. mars 2013. Kærð var ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs (hér eftir nefndur Fæðingarorlofssjóður) sem tilkynnt var með bréfi, dags. 22. janúar 2013, þar sem hún var krafin um endurgreiðslu útborgaðrar fjárhæðar frá Fæðingarorlofssjóði.

Með bréfi, dags. 19. mars 2013, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs sem barst með bréfi, dags. 28. mars 2013.

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dags. 9. apríl 2013, og henni gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Athugasemdir kæranda bárust með bréfi, dags. 20. apríl 2013.

 

I. Sjónarmið kæranda.

Kærandi greinir frá því að kærð sé ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 22. janúar 2013, um að endurkrefja kæranda um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði að fjárhæð X kr., vegna fæðingar barns hinn Y. október 2011 og þess krafist að hún verði felld úr gildi.

Í hinni kærðu ákvörðun sé á því byggð að kærandi hafi fengið orlofslaun vegna starfsloka greidd frá vinnuveitanda sem hafi átt við um sama tíma og hún hafi þegið greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Kærandi mótmæli þeirri niðurstöðu Fæðingarorlofssjóðs og telji hana hvorki í samræmi við fyrirliggjandi gögn og skýringar né sjónarmið sem leiða megi af lögum og lögskýringargögnum.

Málavextir séu þeir að hinn 20. desember 2012 hafi kærandi fengið sent bréf frá Fæðingarorlofssjóði þar sem fram kom að mál hennar vegna hugsanlegrar ofgreiðslur væri til meðferðar hjá sjóðnum. Fyrrum vinnuveitandi og kærandi hafi sent skýringar og gögn til sjóðsins vegna málsins með tölvupósti, dags. 28. desember 2012, og bréfi dags. 29. desember 2012.

Greiðsluáskorun Fæðingarorlofssjóðs hafi verið send til kæranda með bréfi, dags. 7. janúar 2013. Þar hafi verið gerð krafa um endurgreiðslu að fjárhæð X kr. sem hafi samanstaðið af höfuðstól að fjárhæð X kr. og 15% álagi að fjárhæð X kr.. Af ákvörðun sjóðsins verði ekki annað ráðið en að hún hafi eingöngu verið byggð á ákvæði núgildandi 10. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.), auk 2. mgr. 15. gr. a sömu laga, sbr. 1. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 1218/2008.

Kærandi hafi óskað eftir endurupptöku málsins þar sem hún hafi talið ljóst að ákvörðun sjóðsins hafi ekki byggst á réttum málsatvikum auk þess sem skýrt hafi verið að ákvörðunin hafi ekki verið í samræmi við fordæmi úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála, sé tekið mið af þeim rökstuðningi sem sjóðurinn hafi gefið fyrir ákvörðun sinni. Í kjölfarið hafi Fæðingarorlofssjóður virst hafa tekið nýja ákvörðun í máli kæranda þar sem önnur greiðsluáskorun hafi borist, dags. 22. janúar 2013, þar sem byggt sé á öðrum lagagrundvelli en í hinni fyrri ákvörðun, þ.e. 4. mgr. 33. gr. ffl., auk þess sem fallið hafi verið frá kröfu um 15% álag.

Kærandi hafi nýtt sér rétt til sex mánaða orlofs en kosið að dreifa þeim greiðslum á rúma tíu mánuði. Kærandi hafi hins vegar sagt upp starfi sínu í lok ágúst og því ekki snúið aftur til starfa. Í kjölfarið hafi kærandi fengið greiðslur vegna starfsloka þann 31. ágúst 2012 sem hafi samanstaðið af desemberuppbót fyrir árið 2012 og áunnu orlofi að fjárhæð X kr.

Kærandi byggi á því að Fæðingarorlofssjóður hafi ekki sýnt fram á að umrædd greiðsla frá vinnuveitanda sé ætluð fyrir sama tímabil og kærandi hafi verið í fæðingarorlofi, en það sé forsenda þess að um ósamrýmanlegar greiðslur sé að ræða.

Af orðalagi 10. mgr. 13. gr. og 4. mgr. 33. gr. ffl. og lögskýringargagna verði skýrlega ráðið að eingöngu megi draga frá greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði þær greiðslur sem ætlaðar séu fyrir það tímabil sem foreldri sé í fæðingarorlofi. Í samræmi við skýr fordæmi úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála, meðal annars frá 8. desember 2011 í málum nr. 23/2011 og 20/2011 þurfi þannig að vera skýrt að umræddar greiðslur eigi við um sama tímabil og foreldri sé í fæðingarorlofi. Þessi mál hafi varðað greiðslu til aðila fyrir orlof vegna starfsloka. Niðurstaðan hafi verið sú að í þeim tilvikum sem um starfslok sé að ræða væri það ekki jafn skýrt fyrir hvaða tímabil greiðslurnar séu ætlaðar. Í því sambandi hafi meðal annars verið vísað til 7. og 8. gr. laga um orlof, nr. 30/1987, og 10. mgr. 13. gr. ffl.

Kærandi bendi á að í 4. mgr. 33. gr. ffl. sé með sama hætti og í 10. mgr. 13. gr. ffl. kveðið með skýrum hætti á um að umræddar greiðslur vegna starfsloka verði að eiga við um sama tímabil og viðkomandi fái greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Af því leiði að skýra verði ákvæði 4. mgr. 33. gr. ffl. að þessu leyti til samræmis við 10. mgr. 13. gr. ffl. og gera verði sömu kröfur um að sýnt sé fram á að greiðslurnar hafi verið ætlaðar fyrir það tímabil sem foreldri sé í fæðingarorlofi.

Af hinni kærðu ákvörðun sé ekki hægt að ráða annað en að sjóðurinn hafi gengið út frá því að skýra eigi ákvæði 4. mgr. 33. gr. ffl. með þeim hætti að fái foreldri greiðslu á ákveðnum tíma, þegar það sé í fæðingarorlofi, þá eigi sú greiðsla við sama tímabil og foreldri sé í fæðingarorlofi.

Kærandi hafni því að sjóðurinn hafi heimild til að ákveða einhliða að tiltekin greiðsla fyrir orlof við starfslok skuli vera fyrir ákveðið tímabil og að sjóðurinn geti sjálfur ákveðið fyrir hvaða tímabil sú greiðsla eigi að gilda þvert á fyrirliggjandi skýringar. Eðli máls samkvæmt geti kærandi ekki unnið sér inn fullt orlof hjá nýjum vinnuveitanda og umræddar greiðslur því ætlaðar til að koma til móts við þá skerðingu síðar.

Kærandi telji því Fæðingarorlofssjóð ekki hafa sýnt fram á að umræddar greiðslur hafi verið fyrir sama tímabil og kærandi hafi verið í fæðingarorlofi.

Kærandi byggi í öðru lagi á því að hún hafi átt rétt á umræddri greiðslu úr Fæðingarorlofssjóði löngu áður en til greiðslu vegna starfsloka hafi komið. Kærandi hafi skipt fæðingarorlofi sínu niður á tíu mánuði án þess að vinna á móti. Af því leiði að kærandi hefði átt rétt á að vera búin að fá umræddar greiðslur frá sjóðnum greiddar út fyrstu sex mánuðina í fæðingarorlofinu, þ.e. um fjórum mánuðum áður en til greiðslu vegna starfsloka hafi komið.

Þá byggi kærandi á því að hún hafi hvað sem öðru líði átt rétt á umræddri greiðslu frá vinnuveitanda samhliða greiðslum frá Fæðingarorlofssjóði sé litið á stöðu kæranda og atvika máls í heild sinni. Telji Fæðingarorlofssjóður sig hafa heimild til að ákveða að umrædd starfslokagreiðsla hafi átt við um sama tímabil og kærandi hafi verið í fæðingarorlofi beri sjóðnum að líta til þess að kærandi hefði átt rétt til umræddrar greiðslu samhliða greiðslum frá vinnuveitanda á því tíu mánaða tímabili sem lagt hafi verið upp með að kærandi yrði í fæðingarorlofi. Í slíku tilviki beri sjóðnum að líta heildstætt á fæðingarorlof kæranda og dreifa umræddri greiðslu frá vinnuveitanda niður á þá mánuði sem kærandi hafi verið í fæðingarorlofi enda hafi kærandi hvorki verið við störf né fengið aðrar greiðslur á því tímabili.

Að lokum bendi kærandi á að ýmsir annmarkar hafi verið á málsmeðferð Fæðingarorlofssjóðs. Ákvarðanir sjóðsins hafi verið óskýrar og misvísandi og hafi virst hafa byggt á röngum lagagrundvelli í upphafi. Þá hafi kæranda ekki verið greint frá því að ákvörðun sjóðsins myndi leiða til þess að kærandi gæti sótt á ný um fæðingarorlof vegna þess tíma sem sjóðurinn hafi endurkrafið hana um. Slík vinnubrögð geti ekki talist í samræmi við leiðbeiningarskyldu stjórnvalda.

 

II. Sjónarmið Fæðingarorlofssjóðs.

Af hálfu Fæðingarorlofssjóðs kemur fram að sjóðurinn hafi með bréfi til kæranda, dags. 20. desember 2012, vakið athygli kæranda á því að stofnunin hafi verið með til meðferðar mál hennar vegna hugsanlegrar ofgreiðslu. Samkvæmt staðgreiðsluskrá RSK hefði kærandi verið að fá laun frá vinnuveitanda sínum á sama tíma og hún hafi þegið greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Með bréfinu hafi verið óskað eftir launaseðlum fyrir ágúst 2012 ásamt útskýringum frá vinnuveitanda og útskýringum og andmælum kæranda ásamt öðru því sem skýrt gæti málið.

Bréf hafi borist frá kæranda, dags. 29. desember 2012, tölvupóstur, dags. 1. janúar 2013, og bréf frá fyrrum vinnuveitanda kæranda, dags. 28. desember 2012, ásamt umbeðnum launaseðli. Í kjölfarið hafi kæranda verið send greiðsluáskorun, dags. 7. janúar 2013, þar sem hún hafi verið krafin um endurgreiðslu hluta útborgaðrar fjárhæðar fyrir ágúst 2012. Litið hafi verið svo á samkvæmt skrám RSK, fyrirhugaðri töku fæðingarorlofs með barni fæddu Y. október 2011 og innsendum skýringum og launaseðli að kærandi hafi fengið ofgreitt úr Fæðingarorlofssjóði fyrir ágúst 2012 skv. 10. mgr. 13. gr. og 4. mgr. 33. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004, f-lið 8. gr. laga nr. 74/2008, 3. og 14. gr. laga nr. 136/2011, sbr. og 2. mgr. 15. gr. a ffl.

Í kjölfarið hafi borist beiðni frá kæranda um endurupptöku, dags. 16. janúar 2013, og ósk um niðurfellingu á 15% álagi. Í framhaldinu hafi kæranda verið send ný greiðsluáskorun, dags. 22. janúar 2013, þar sem fallist hafi verið á að fella niður 15% álag á endurkröfuna þar sem kæranda hafi eigi verið kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar sjóðsins. Að öðru leyti hafi ekki þótt tilefni til að breyta fyrri ákvörðun sjóðsins í málinu en þó hafi verið vísað til 4. mgr. 33. gr. ffl. sem láðst hafi verið að gera í fyrri greiðsluáskorun til kæranda.

Samkvæmt fortakslausu ákvæði 10. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004 og 8. gr. laga nr. 74/2008, skuli greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem séu hærri en nemi mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris skv. 2. eða 5. mgr. koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Eingöngu skuli greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar séu fyrir það tímabil sem foreldri sé í fæðingarorlofi koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Þó sé heimilt að taka tillit til kjarasamningsbundinna launahækkana, annarra kjarasamningsbundinna greiðslna og launabreytinga sem rekja megi til breytinga á störfum foreldris.

Með umsókn kæranda, dags. 10. september 2011, hafi kærandi sótt um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði í sex mánuði vegna barns hennar sem fæddist Y. október 2011. Ein tilkynning hafi borist frá kæranda um tilhögun fæðingarorlofs og hafi hún verið afgreidd í fæðingarorlof í samræmi við hana, sbr. greiðsluáætlun til hennar, dags. 15. nóvember 2011.

Á viðmiðunartímabili kæranda skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. hafi viðmiðunarlaun hennar verið X kr. á mánuði en frá því að viðmiðunartímabilinu lauk og fram að fæðingu barnsins hafi þau verið komin í X kr. sem miðað hafi verið við. Þannig hafi verið tekið mið af hækkuðum launum kæranda henni til hagsbóta við útreikning á hugsanlegri ofgreiðslu skv. 10. mgr. 13. gr. og 4. mgr. 33. gr. ffl.

Í bréfi kæranda, dags. 29. desember 2012, komi meðal annars fram að kærandi hafi sagt upp störfum hjá vinnuveitanda sínum í ágúst og því ekki snúið aftur til starfa eftir fæðingarorlof. Í kjölfarið hafi farið fram lokauppgjör sem hafi falið í sér greiðslu áunnins orlofs og greiðslu á 45,83% á desemberuppbót ársins 2012. Í bréfi fyrrum vinnuveitanda kæranda, dags. 28. desember 2012, komi efnislega fram það sama og í bréfi kæranda. Í endurupptökubeiðni kæranda, dags. 16. janúar 2013, komi efnislega ekkert nýtt fram sem ekki hafi legið fyrir í fyrri skýringum kæranda og vinnuveitanda. Í beiðninni hafi jafnframt verið óskað eftir niðurfellingu á 15% álagi og það verið samþykkt.

Í ágúst 2012 hafi kærandi þegið X kr. í orlofslaun vegna starfsloka frá vinnuveitanda sínum (hafi þá desemberuppbót að fjárhæð X kr. verið undanskilin og laun samkvæmt staðgreiðsluskrá RSK og launaseðli séu X kr.). Hún hafi því fengið sem svari 94% af meðaltali heildarlauna sinna frá vinnuveitanda sínum í mánuðinum og hefði því mátt þiggja 6% greiðslu frá Fæðingarorlofssjóði. Ofgreiðsla fyrir ágúst 2012 sé því X kr. útborgað.

Af öllum gögnum málsins svo og kæru kæranda sé óumdeilt að ágreiningur málsins snúi að þeirri greiðslu sem kærandi hafi þegið frá vinnuveitanda sínum í ágúst 2012 og séu orlofslaun að fjárhæð X kr. vegna starfsloka skv. 8. gr. laga um orlof, nr. 30/1987. Í kæru kæranda sé í fyrsta lagi á því byggt að Fæðingarorlofssjóður hafi ekki sýnt fram á að uppgjör vinnuveitanda hafi verið greiðsla fyrir ágústmánuð. Í öðru lagi að kærandi hafi átt rétt á umræddri greiðslu frá Fæðingarorlofssjóði löngu áður en til greiðslu fyrir starfslok hafi komið og í þriðja lagi að hvað svo sem öðru líði hafi kærandi átt rétt til umræddrar greiðslu frá vinnuveitanda samhliða greiðslum frá Fæðingarorlofssjóði sé litið til stöðu kæranda og atvika máls í heild sinni.

Samkvæmt 1. gr. orlofslaga eigi allir þeir sem starfi í þjónustu annarra gegn launum, hvort sem þau séu greidd í peningum eða öðrum verðmætum, rétt á orlofi og orlofslaunum. Í 7. gr. orlofslaga sé fjallað um rétt launþega til orlofslauna, hvernig þau séu reiknuð út og hvenær orlofslaun skuli greiða. Í athugasemdum með 7. gr. orlofslaga segi: „Í 7. gr. frumvarpsins felst að allur réttur til launa í orlofi verður í formi orlofslauna sem greiðast af launagreiðanda til launþega við upphaf orlofstöku, nema til ráðningarslita komi, sbr. 8. gr.“

Komi til ráðningarslita, sbr. 8. gr. orlofslaga, skuli vinnuveitandi við lok ráðningartímans greiða launþeganum öll áunnin orlofslaun hans samkvæmt reglunni í 2. mgr. 7. gr.

Samkvæmt framangreindu sé meginreglan sú að orlofslaun samkvæmt orlofslögum séu greidd í tvenns konar tilvikum, annars vegar við upphaf orlofstöku og hins vegar við starfslok. Í þeim tilvikum sem starfsmenn fá orlofsgreiðslur frá vinnuveitendum á sama tíma og þeir séu í fæðingarorlofi hafi úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála staðfest að vegna ákvæða 7. gr. orlofslaga verði að líta svo á að starfsmennirnir séu í orlofi en ekki fæðingarorlofi, enda mæli ákvæðið fyrir um að orlofslaun greiðist af launagreiðanda til launþega við upphaf orlofstöku, sbr. meðal annars úrskurði í málum nr. 20/2011 og 23/2011. Öðru máli gegni hins vegar um orlofsgreiðslur sem starfsmenn fái vegna starfsloka enda sé í orlofslögum ekki gert ráð fyrir því að orlof sé greitt við upphaf orlofstöku þegar um ráðningarslit er að ræða.

Með breytingalögum nr. 136/2011 hafi komið inn svohljóðandi ákvæði í 4. mgr. 33. gr. ffl., sbr. 14. gr. laga nr. 136/2011: „Foreldri sem nýtur orlofslauna eða greiðslna vegna starfsloka getur ekki nýtt sér rétt sinn til fæðingarstyrks eða greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt lögum þessum á sama tímabili og þær greiðslur eiga við um.“ Lög nr. 136/2011 hafi verið samþykkt á Alþingi 17. september 2011 og útgáfudagur þeirra í Stjórnartíðindum verið 30. sama mánaðar. Samkvæmt 16. gr. laganna taki ákvæði þeirra til foreldra barna sem fæðist, séu ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur eftir gildistöku þeirra. Barn kæranda fæddist eins og áður segir þann 6. janúar 2012 og því eigi ákvæðið við um tilvik kæranda.

Í athugasemdum með lagaákvæðinu sé ekki að finna frekari skýringar en komi fram í lagaákvæðinu sjálfu. Í samræmi við það sé ekki annað fært en að skýra það í samræmi við almenn lögskýringarsjónarmið samkvæmt orðanna hljóðan og að skýra beri yngri lög þannig að þau gangi fyrir eldri lögum ef þau rekist á.

Í ákvæðinu sé þannig ekki gerður greinarmunur á því hvort greiðslur vegna starfsloka séu greiðslur vegna launa í uppsagnarfresti, greiðslur vegna starfslokasamninga eða greiðslur orlofslauna skv. 8. gr. orlofslaga. Ákvæði 4. mgr. 33. gr. ffl., sbr. 14. gr. laga nr. 136/2011, séu yngri lög gagnvart 8. gr. orlofslaga og gangi því framar ef þau rekist á.

Samkvæmt 4. mgr. 33. gr. ffl., sbr. 14. gr. laga nr. 136/2011, verði ekki séð að greiðslur vegna starfsloka, hvort heldur um sé að ræða laun í uppsagnarfresti, greiðslur vegna starfslokasamninga eða greiðslur orlofslauna skv. 8. gr. orlofslaga, fari saman með greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði á sama tímabili og þær greiðslur eigi við um. Skýrt sé skv. 8. gr. orlofslaga að komi til ráðningarslita skuli vinnuveitandi við lok ráðningartímans greiða launþeganum öll áunnin orlofslaun hans samkvæmt reglunni í 2. mgr. 7. gr. og því ekki annað hægt en líta svo á að þær greiðslur eigi þá við um tímabil í beinu framhaldi ráðningarslita.

Í því ljósi megi benda á að við mat á þátttöku á innlendum vinnumarkaði skv. a-lið 2. mgr. 13. gr. a ffl. hafi verið staðfest að uppsafnað orlof sem greitt sé út við starfslok hafi talist til tíma við matið. Einnig megi til dæmis benda á í þessu samhengi að einstaklingur sem sækir um greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði teljist ekki tryggður samkvæmt lögunum hafi hann fengið greitt út ótekið orlof við starfslok eða fái greiðslur vegna starfsloka á því tímabili sem þær greiðslur eigi við um. Við umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hinn tryggði taka fram hvenær hann ætli að taka út orlof sitt fyrir lok næsta orlofstímabils, sbr. 4. mgr. 51. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006.

Í samhengi við framangreint þyki einnig rétt að vekja athygli á að foreldri geti ákveðið að taka fæðingarorlof sitt á öðrum tíma en greiðslur berist vegna starfsloka, sbr. 10. gr. ffl. Fái foreldri til dæmis greiðslur vegna starfsloka á sama tíma og greitt sé úr Fæðingarorlofssjóði og hefji síðan störf hjá sama vinnuveitanda eða nýjum vinnuveitanda strax að fæðingarorlofi loknu, sé ljóst að það leiðir til þess að greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði hafi í raun komið til viðbótar við greiðslur frá vinnuveitanda að hluta eða öllu leyti. Með þeim hætti væri tilgangi greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði, sem sé aðallega að gera foreldrum kleift að leggja niður launuð störf í fæðingarorlofi án þess að fjárhagsleg hagnaðarsjónarmið liggi þar að baki og að allar greiðslur sem séu umfram mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóðnum, ekki náð.

Kærandi hafi hafið störf hjá nýjum vinnuveitanda og þegið greiðslur frá honum í september 2012 að afloknu fæðingarorlofi.

Óumdeilt sé að til ráðningarslita hafi komið í ágúst 2012 og í þeim mánuði hafi kærandi jafnframt fengið uppgerð orlofslaun vegna starfsloka en á sama tíma hafi kærandi einnig verið í fæðingarorlofi og þegið greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Fæðingarorlofi kæranda hafi lokið 5. september 2012.

Samkvæmt öllu framangreindu hafi Fæðingarorlofssjóður því ofgreitt kæranda X kr. útborgað, sbr. greiðsluáskorun til hennar ásamt sundurliðun á ofgreiðslu, dags. 22. janúar 2013. Ekki sé gerð krafa um 15% álag.

 

III. Athugasemdir kæranda

Kærandi ítrekar að ekki hafi verið sýnt fram á að umdeild greiðsla hafi verið greiðsla fyrir sama tímabil og kærandi hafi verið í fæðingarorlofi. Kærandi ítreki að sá tímapunktur sem greiðsla sé greidd út geti ekki ákvarðað fyrir hvaða tímabil greiðslan eigi við um. Þannig geti Fæðingarorlofssjóður ekki lagt til grundvallar að sá tímapunktur eða tímabil sem viðkomandi greiðsla komi inn í skrá RSK ákvarði fyrir hvaða tímabil greiðslan sé ætluð. Hvergi í ffl. sé að finna ákvæði sem styðji þá túlkun Fæðingarorlofssjóðs að miða eigi við að greiðsla falli innan tímabils fæðingarorlofs sé hún greidd á því tímabili.

Kærandi segi málflutning sjóðsins óskýran að þessu leyti. Kærandi hafi til dæmis ekki enn fengið fullnægjandi skýringar á fyrir hvaða tímabil Fæðingarorlofssjóður miði að umrædd greiðsla hafi átt við um. Ætli Fæðingarorlofssjóður að byggja á að umrædd greiðsla hafi átt við ákveðið tímabil innan þess tíma sem kærandi hafi verið í fæðingarorlofi þurfi hann að rökstyðja ákvörðun sína með fullnægjandi hætti.

Í greinargerð Fæðingarorlofssjóðs komi fram að í 3. málsl. 10. mgr. 13. gr. ffl. segi að eingöngu skuli greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar séu fyrir það tímabil sem foreldri sé í fæðingarorlofi koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Fæðingarorlofssjóður dragi þá ályktun í greinargerð sinni að breytingin sem hafi verið gerð með því að fella málsliðinn inn í lögin hafi fyrst og fremst átt að taka til eingreiðslna og annarra slíkra greiðslna frá vinnuveitendum sem foreldri geti átt rétt á á ákveðnum tíma árs og komi til framkvæmda meðan foreldri sé í fæðingarorlofi en sé ætlað fyrir lengra tímabil en nemi fæðingarorlofi foreldris. Starfslokagreiðsla kæranda, vegna áunnins orlofs frá maí 2011 til ágúst 2012 sé einmitt, að mati kæranda, dæmi um slíka eingreiðslu frá vinnuveitanda á ákveðnum tíma árs, þ.e. 31. ágúst 2012, sem komi til framkvæmda meðan kærandi hafi verið í fæðingarorlofi en kærandi unnið sér hana inn á lengri tíma. Eðli starfslokagreiðslu vegna áunnins orlofs geti því verið að fullu sambærileg við til dæmis eðli bónusgreiðslu til starfsmanns, eins og sérstaklega sé vikið að í lögskýringargögnum með ákvæðinu, þar sem í báðum tilvikum vinni starfsmaður sér inn umrædda greiðslu á ákveðnu tímabili en greiðsla vinnuveitanda komi til framkvæmda síðar í einu lagi.

Kærandi geri einnig athugasemdir við þær reiknireglur sem sjóðurinn beiti við útreikning á því hversu háar greiðslur foreldri megi fá frá vinnuveitanda á meðan fæðingarorlofi stendur. Kærandi telji frádráttarreglu 10. mgr. 13. gr. ffl. skýra að því leyti að foreldri megi þiggja mismun viðmiðunartekna og greiðsla frá Fæðingarorlofssjóði frá vinnuveitanda meðan á fæðingarorlofi stendur.

Kærandi hafi nýtt sér rétt til sex mánaða orlofs en dreift þeim rétti á rúma tíu mánuði. Af því leiði að kærandi hafi mátt þiggja X kr. frá vinnuveitanda á þeim tíma sem hún hafi verið í fæðingarorlofi, án þess að þær greiðslur kæmu til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði á sama tíma í fæðingarorlofinu. Umdeild greiðsla hafi verið eina greiðslan sem kærandi hafi fengið frá vinnuveitanda í fæðingarorlofinu að fjárhæð X kr. og því verið innan framangreindra marka. Kærandi bendi einnig á að kærandi hefði átt rétt á sömu greiðslum, bæði frá Fæðingarorlofssjóði og vinnuveitanda ef hún hefði ekki kosið að dreifa orlofinu heldur kosið að fá greiðslur Fæðingarorlofssjóðs á sex mánuðum og farið í fulla vinnu væstu fjóra mánuði.

Sú framkvæmd að litið sé einangrað á hvern mánuð foreldris í fæðingarorlofi þegar réttur þeirra til greiðslna úr sjóðnum sé reiknaður eigi sér ekki lagastoð. Kærandi ítreki að í kæru sé byggt á að líta beri heildstætt á mál kæranda en ekki einangrað á einn mánuð. Kærandi hafi farið í eitt fæðingarorlof vegna fæðingar eins barns, en ekki tíu fæðingarorlof eins og Fæðingarorlofssjóður hafi virst byggja á. Kærandi bendir á að ffl. gangi út frá að líta beri heildstætt á greiðslur til foreldris í fæðingarorlofi, sbr. einkum a-lið 1. mgr. 7. gr. og einnig 2. málsl. 10. gr. 13. gr. ffl. En af orðalagi ákvæðanna sé skýrt að taka eigi mið af greiðslum til foreldris í fæðingarorlofi en ekki til ákveðinna tímabila sem Fæðingarorlofssjóður ákveði einhliða sem ekki verði betur séð en leiði auk þess að jafnaði til óhagstæðari niðurstöðu fyrir foreldra. Slík skerðing á rétti foreldra samkvæmt lögunum þurfi að eiga sér skýra lagastoð.

Framangreindu til stuðnings byggi kærandi á að réttur hennar til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði fyrir sex mánaða tímabil hafi stofnast löngu áður en til umdeildrar greiðslu frá vinnuveitanda hafi komið enda hafi kærandi ekki fengið neinar aðrar greiðslur á því tímabili frá vinnuveitanda. Verklagsreglur Fæðingarorlofssjóðs leiði til þess að sjóðurinn telji sig hafa heimild til að breyta þeim tíma sem foreldri sé í fæðingarorlofi, samrýmist tilhögun orlofsins ekki verklagsreglum sjóðsins. Ekkert í ffl. heimili sjóðnum að líta svo á að kærandi hafi verið í styttra fæðingarorlofi á því tímabili sem um ræði eingöngu vegna þess að kærandi hafi kosið að dreifa greiðslunum á tíu mánuði í stað sex, enda hafi kærandi átt rétt um umræddri greiðslu samhliða greiðslum frá Fæðingarorlofssjóði eins og áður sé rakið.

 

IV. Niðurstaða.

Kærð er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að endurkrefja kæranda um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna fæðingar barns hinn Y. október 2011. Ekki er gerð krafa um 15% álag og kemur það því ekki til skoðunar.

Í hinni kærðu ákvörðun er á því byggt að kærandi hafi þegið greiðslur frá vinnuveitanda sínum í ágúst 2012 á sama tíma og hún þáði greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði. Séu þessar greiðslur frá vinnuveitanda svo háar og þess eðlis að þær leiði til lækkunar á rétti til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði.

Kærandi byggir á því að Fæðingarorlofssjóði sé óheimilt að líta einangrað á einstaka almanaksmánuði auk þess sem aðferðafræði sjóðsins við útreikning á endurgreiðslukröfum sé ekki í samræmi við ákvæði ffl. Þá byggi kærandi einnig á því að hefði hún ekki kosið að dreifa fæðingarorlofi sínu á tíu mánuði heldur klárað það á sex mánuðum hefði hún ekki verið endurkrafin.

Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. ffl. er fæðingarorlof leyfi frá launuðum störfum sem stofnast til við fæðingu, frumættleiðingu barns yngra en átta ára eða töku barns yngra en átta ára í varanlegt fóstur. Í 2. mgr. 10. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 74/2008, segir meðal annars að með samkomulagi við vinnuveitanda sé starfsmanni heimilt að haga fæðingarorlofi á þann veg að það skiptist niður á fleiri tímabil og/eða það verði tekið samhliða minnkuðu starfshlutfalli, sbr. þó 3. mgr. 8. gr.

Barn kæranda er eins og fyrr greinir fætt Y. október 2011. Viðmiðunartímabil útreiknings meðaltals heildarlauna kæranda skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. er því tímabilið frá apríl 2010 til mars 2011. Í greiðsluáætlun, dags. 15. nóvember 2011, kemur fram að meðaltekjur kæranda á viðmiðunartímabili skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. voru alls X kr. og greiðsla úr Fæðingarorlofssjóði miðað við 100% fæðingarorlof væri samkvæmt því 300.000 kr. Af útreikningi sem fylgdi greiðsluáskorun má hins vegar sjá að frá því að viðmiðunartímabili meðaltals heildarlauna kæranda lauk og fram til fæðingar barnsins hækkuðu laun kæranda í X kr. sem miðað hafi verið við við útreikning á endurgreiðslukröfu Fæðingarorlofssjóðs í samræmi við heimild í 10. mgr. 13. gr. ffl. Er það kæranda til hagsbóta.

Samkvæmt ákvæði 10. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004 og 8. gr. laga nr. 74/2008, skulu greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem eru hærri en nemur mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris skv. 2. eða 5. mgr. 13. gr. koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Eingöngu skuli greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar eru fyrir það tímabil sem foreldri er í fæðingarorlofi koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði, en úrskurðarnefnd hefur miðað við almanaksmánuði í þessu sambandi, sbr. til dæmis úrskurð nefndarinnar í máli nr. 49/2012.

Þar sem kærandi þáði greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði í ágústmánuði 2012 var henni einungis heimilt að þiggja greiðslur frá vinnuveitanda sem námu mismuni meðaltals heildarlauna hennar eins og þau voru hækkuð skv. 10. mgr. 13. gr. ffl. og greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði án þess að greiðslur vinnuveitanda til hennar kæmu til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.

Líkt og áður segir er rétt að mati úrskurðarnefndar að miða endurgreiðslukröfu á hendur kæranda við meðaltals heildarlaun að fjárhæð X kr. Samkvæmt gögnum málsins fékk kærandi greiðslu úr Fæðingarorlofssjóði að fjárhæð X kr. í ágúst 2012 og var henni því heimilt að þiggja greiðslur frá vinnuveitanda sínum að fjárhæð X kr. í ágúst 2012 án þess að það kæmi til lækkunar á greiðslum úr sjóðnum. Er þessi túlkun í samræmi við álit umboðsmanns Alþingis í málinu nr. 7022/2012 o.fl. frá 28. ágúst 2013.

Samkvæmt gögnum málsins fékk kærandi greitt ótekið orlof vegna starfsloka frá vinnuveitanda sínum í ágúst 2012 að fjárhæð X kr., en ljóst er að útborgun ótekins orlofs vegna starfsloka telst til réttinda sem eru ósamrýmanleg fæðingarorlofsgreiðslum skv. 4. mgr. 33. gr. ffl.

Það er kjarni þessa máls hvernig eigi að túlka ákvæði 4. mgr. 33. gr. ffl. um orlofslaun og greiðslur vegna starfsloka um „sama tímabil [..] og þær greiðslur eiga við um“, sérstaklega með hliðsjón af orðalagi 10. mgr. 13. gr. um „greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar eru fyrir það tímabil sem foreldri er í fæðingarorlofi“.

Ekki er unnt að fallast á að í þessum ákvæðum sé verið að vísa til þess tímabils þegar unnið er til orlofslauna. Launþegar vinna almennt til orlofslauna allt árið, en þær greiðslur sem þeir ávinna sér eru ætlaðar til orlofstöku yfir sumarmánuði, eða eftir atvikum til dæmis við starfslok. Það virðist þannig hafið yfir vafa að umrædd orlofsgreiðsla var „ætluð fyrir tímabil“ og „átti við um“ það tímabil þegar kærandi var í fæðingarorlofi.

Það er því ljóst að kærandi þáði hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en henni var heimilt fyrir ágústmánuð 2012. Verður niðurstaða Fæðingarorlofssjóðs um skyldu kæranda til endurgreiðslu fyrir þann mánuð því staðfest.

Af gögnum málsins má sjá að Fæðingarorlofssjóður byggir hina kærðu ákvörðun á hlutfallsútreikningi. Það er álit úrskurðarnefndar, með vísan til álits umboðsmanns Alþingis í málinu nr. 7022/2012 o.fl. frá 28. ágúst 2013, að sú aðferð sé ekki í samræmi við ákvæði ffl. og því er hin kærða ákvörðun felld úr gildi.

Með vísan til framangreinds er það niðurstaða úrskurðarnefndar að kærandi hafi fengið ofgreitt fæðingarorlof og því beri henni að endurgreiða Fæðingarorlofssjóði X kr., að teknu tilliti til staðgreiðslu og annarra launatengdra gjalda.

 

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Kærandi, A skal endurgreiða Fæðingarorlofssjóði X kr. vegna ofgreidds fæðingarorlofs.

 

 

Haukur Guðmundsson

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta