Mál nr. 322/2024-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 322/2024
Fimmtudaginn 26. september 2024
A
gegn
Vinnumálastofnun – Fæðingarorlofssjóði
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.
Með kæru, dags. 16. júlí 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 11. júlí 2024, um að synja umsókn hans um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Með umsókn, dags. 5. júlí 2024, sótti kærandi um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna fæðingar barns þann X 2023. Með ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 11. júlí 2024, var umsókn kæranda synjað á þeirri forsendu að hann hefði ekki verið í samfelldu starfi á innlendum vinnumarkaði í sex mánuði fyrir fæðingardag barns.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 16. júlí 2024. Með bréfi, dags. 17. júlí 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs ásamt gögnum málsins. Greinargerð sjóðsins barst með bréfi, dags. 12. ágúst 2024, og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 13. ágúst 2024. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi greinir frá því að hann hafi ekki getað uppfyllt skilyrðið um samfellt starf í að minnsta kosti sex mánuði fyrir fæðingu barns vegna aðstæðna sem hann hafi ekki haft stjórn á. Nánar tiltekið hafi kærandi ekki verið í starfi í X og X 2022. Á því tímabili hafi kærandi verið að ljúka íslenskunámi en um fullt nám hafi verið að ræða til að bæta tungumálakunnáttu kæranda, aðlagast íslensku samfélagi og auka atvinnumöguleika hans. Þá hafi kærandi ekki getað þegið lengur atvinnuleysisbætur á þeim tíma sem hafi haft áhrif á fjárhagsstöðu hans.
Kærandi óski eftir að tekið verði tillit til stöðu hans sem námsmanns þessa tvo mánuði og viðleitni hans til að tryggja sér örugga atvinnu. Einnig bendi kærandi á stöðuna varðandi leikskólapláss á Íslandi en vegna hennar þurfi kærandi á fæðingarorlofi að halda til að tryggja rétta umönnun barnsins. Fjárhæð fæðingarstyrksins, 90.000 kr., dugi ekki til framfærslu, sérstaklega miðað við núverandi aðstæður.
Kærandi skilji mikilvægi þeirra skilyrða sem Fæðingarorlofssjóður setji en vonist til að þessar upplýsingar hans gefi skýrari mynd af þeirri stöðu sem hann sé í. Kærandi óski eftir skilningi og að umsókn hans um fullt fæðingarorlof verði samþykkt, í ljósi viðleitni hans til að bæta starfshæfni með menntun.
III. Sjónarmið Fæðingarorlofssjóðs
Í greinargerð Fæðingarorlofssjóðs kemur fram að kærandi hafi með umsókn, dags. 5. júlí 2024, sótt um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna fæðingar barns þann X 2023.
Í 1. mgr. 21. gr. laga nr. 144/2020 um fæðingar- og foreldraorlof sé kveðið á um að foreldri öðlist rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði eftir að hafa verið í samfelldu starfi á innlendum vinnumarkaði í sex mánuði fyrir fæðingardag barns eða fyrir þann tíma þegar barn komi inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur.
Í 2. tölul. 4. gr. laganna sé að finna orðskýringu á samfelldu starfi. Með samfelldu starfi samkvæmt lögunum sé átt við að minnsta kosti 25% starfshlutfall í hverjum mánuði á innlendum vinnumarkaði yfir tiltekið tímabil og því geti verið um að ræða tímabil sem afmarkist ekki af heilum almanaksmánuðum. Enn fremur teljist til samfellds starfs þau tilvik sem talin séu upp í a. til f. liðum 2. mgr. 22. gr.
Í 1. mgr. 22. gr. laga nr. 144/2020 segi síðan að þátttaka á innlendum vinnumarkaði samkvæmt 21. gr. feli í sér að starfa sem starfsmaður, sbr. 4. tölul. 4. gr., sjálfstætt starfandi einstaklingur, sbr. 3. tölul. 4. gr., eða sem starfsmaður og sjálfstætt starfandi, sbr. 5. tölul. 4. gr. Loks sé í 2. mgr. 22. gr. laganna talið upp í eftirfarandi sex stafliðum hvað teljist jafnframt til þátttöku á vinnumarkaði:
- orlof eða leyfi starfsmanns, sbr. 4. tölul. 4. gr., samkvæmt lögum, kjarasamningi eða ráðningarsamningi þótt ólaunað sé að hluta eða öllu leyti og starfsmaðurinn hafi á því tímabili sem um ræðir verið í a.m.k. 25% starfshlutfalli,
- sá tími sem foreldri fær greiddar atvinnuleysisbætur, er á biðtíma eftir slíkum bótum, hefði átt rétt á þeim hefði foreldrið skráð sig án atvinnu eða hefur hætt atvinnuleit tímabundið vegna orlofs erlendis og ekki hafa liðið meira en tíu virkir dagar þar til atvinnuleit hefur hafist að nýju samkvæmt gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar, hafi starfshlutfall foreldris á viðmiðunartíma framangreindra greiðslna verið a.m.k. 25%,
- sá tími sem foreldri fær greiðslur í sorgarleyfi á grundvelli laga um sorgarleyfi eða hefði átt rétt á slíkum greiðslum hefði foreldrið sótt um þær hjá Vinnumálastofnun, hafi starfshlutfall foreldris á viðmiðunartíma framangreindra greiðslna verið a.m.k. 25%,
- sá tími sem foreldri fær greidda sjúkra- eða slysadagpeninga, er á biðtíma eftir dagpeningum eða hefði átt rétt á þeim hefði foreldri sótt um þá til sjúkratryggingastofnunarinnar samkvæmt lögum um sjúkratryggingar og lögum um slysatryggingar almannatrygginga, eða fær greiðslur sjúkradagpeninga úr sjúkrasjóði stéttarfélags enda hafi foreldri látið af launuðum störfum af heilsufarsástæðum, hafi starfshlutfall foreldris á viðmiðunartíma framangreindra greiðslna verið a.m.k. 25%,
- sá tími sem foreldri nýtur bóta frá tryggingafélagi sem koma í stað launa vegna tímabundins atvinnutjóns af völdum slyss, hafi starfshlutfall foreldris á viðmiðunartíma framangreindra greiðslna verið a.m.k. 25%,
- sá tími er foreldri fær tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna eða hefði átt rétt á slíkum greiðslum hefði foreldri sótt um þær til Tryggingastofnunar ríkisins, hafi starfshlutfall foreldris á viðmiðunartíma framangreindra greiðslna verið a.m.k. 25%.
Fæðingardagur barns kæranda hafi verið X 2023. Ávinnslutímabil kæranda sé því frá X 2022 og fram að fæðingardegi barns. Til að öðlast rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði hafi kærandi þurft að hafa verið í samfelldu starfi á innlendum vinnumarkaði á tímabilinu samkvæmt framangreindum ákvæðum.
Samkvæmt staðgreiðsluskrá Skattsins hafi kærandi þegið atvinnuleysisbætur í upphafi ávinnslutímabilsins. Kærandi hafi fullnýtt rétt sinn til atvinnuleysisbóta þann X 2022 og engar tekjur séu skráðar á hann tímabilið X 2022 til X 2023. Ágreiningur málsins snúi því að tímabilinu X 2022 til X 2023.
Að mati Fæðingarorlofssjóðs liggi þannig skýrt fyrir að á tímabilinu X 2022 fram að fæðingu uppfylli kærandi ekki skilyrði þess að hafa verið í samfelldu starfi á innlendum vinnumarkaði samkvæmt 1. og 2. mgr. 21. gr. laga nr. 144/2020, sbr. og b. lið 2. mgr. 22. gr. laganna. Þá verði ekki séð að aðrir stafliðir 2. mgr. 22. gr. laganna geti átt við um aðstæður kæranda á þessu tímabili.
Með kæru hafi fylgt upplýsingar um nám kæranda en við mat á þátttöku á vinnumarkaði sé ekki finna heimild í lögum til að meta nám til þátttöku á vinnumarkaði, sbr. tæmandi talningu 22. gr. laga nr. 144/2020. Þá kunni að koma til álita hvort kærandi uppfylli skilyrði um fæðingarstyrk námsmanna samkvæmt 27. gr. laganna en af meðfylgjandi gögnum verði ekki ráðið að nám kæranda teljist til fulls náms samkvæmt 2. tölul. 4. gr. laga nr. 144/2020, þar sem einstök námskeið teljist ekki til náms.
Með vísan til alls framangreinds telji Fæðingarorlofssjóður að kæranda hafi réttilega verið synjað um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, sbr. bréf til hans, dags. [11. júlí 2024]. Kærandi eigi þess í stað rétt á fæðingarstyrk samkvæmt 26. gr. laga nr. 144/2020.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 11. júlí 2024, um að synja umsókn kæranda um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði.
Í 21. gr. laga nr. 144/2020 um fæðingar- og foreldraorlof er kveðið á um rétt foreldris til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði. Þar segir í 1. mgr. að foreldri öðlist rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði eftir að hafa verið í samfelldu starfi á innlendum vinnumarkaði í sex mánuði fyrir fæðingardag barns eða fyrir þann tíma þegar barn komi inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur, sbr. 2. og 4. mgr. 8. gr., og því geti verið um að ræða tímabil sem afmarkist ekki af heilum almanaksmánuðum.
Í 22. gr. laga nr. 144/2020 kemur fram að þátttaka foreldris á innlendum vinnumarkaði samkvæmt 21. gr. feli í sér að starfa sem starfsmaður, sbr. 4. tölul. 4. gr., sjálfstætt starfandi, sbr. 3. tölul. 4. gr., eða sem starfsmaður og sjálfstætt starfandi, sbr. 5. tölul. 4. gr. Fullt starf starfsmanns miðist við 172 vinnustundir á mánuði en þó skuli jafnan tekið tillit til fjölda vinnustunda sem samkvæmt kjarasamningi teljist fullt starf. Fullt starf sjálfstætt starfandi miðast við að viðkomandi hafi greitt mánaðarlega staðgreiðsluskatt og tryggingagjald af reiknuðu endurgjaldi eða launum er nemur að lágmarki viðmiðunarfjárhæð Ríkisskattstjóra í viðkomandi starfsgrein eða sem samkvæmt kjarasamningi telst fullt starf. Þá teljast enn fremur til þátttöku á innlendum vinnumarkaði þau tilvik sem talin eru upp í 2. mgr. 22. gr. laganna en ákvæðið er svohljóðandi:
- orlof eða leyfi starfsmanns, sbr. 4. tölul. 4. gr., samkvæmt lögum, kjarasamningi eða ráðningarsamningi þótt ólaunað sé að hluta eða öllu leyti og starfsmaðurinn hafi á því tímabili sem um ræðir verið í a.m.k. 25% starfshlutfalli,
- sá tími sem foreldri fær greiddar atvinnuleysisbætur, er á biðtíma eftir slíkum bótum, hefði átt rétt á þeim hefði foreldrið skráð sig án atvinnu eða hefur hætt atvinnuleit tímabundið vegna orlofs erlendis og ekki hafa liðið meira en tíu virkir dagar þar til atvinnuleit hefur hafist að nýju samkvæmt gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar, hafi starfshlutfall foreldris á viðmiðunartíma framangreindra greiðslna verið a.m.k. 25%,
- sá tími sem foreldri fær greiðslur í sorgarleyfi á grundvelli laga um sorgarleyfi eða hefði átt rétt á slíkum greiðslum hefði foreldrið sótt um þær hjá Vinnumálastofnun, hafi starfshlutfall foreldris á viðmiðunartíma framangreindra greiðslna verið a.m.k. 25%,
- sá tími sem foreldri fær greidda sjúkra- eða slysadagpeninga, er á biðtíma eftir dagpeningum eða hefði átt rétt á þeim hefði foreldri sótt um þá til sjúkratryggingastofnunarinnar samkvæmt lögum um sjúkratryggingar og lögum um slysatryggingar almannatrygginga, eða fær greiðslur sjúkradagpeninga úr sjúkrasjóði stéttarfélags enda hafi foreldri látið af launuðum störfum af heilsufarsástæðum, hafi starfshlutfall foreldris á viðmiðunartíma framangreindra greiðslna verið a.m.k. 25%,
- sá tími sem foreldri nýtur bóta frá tryggingafélagi sem koma í stað launa vegna tímabundins atvinnutjóns af völdum slyss, hafi starfshlutfall foreldris á viðmiðunartíma framangreindra greiðslna verið a.m.k. 25%,
- sá tími sem foreldri fær tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, nr. 22/2006, eða hefði átt rétt á slíkum greiðslum hefði foreldri sótt um þær til Tryggingastofnunar ríkisins, hafi starfshlutfall foreldris á viðmiðunartíma framangreindra greiðslna verið a.m.k. 25%.
Barn kæranda fæddist X 2023. Sex mánaða ávinnslutímabil samkvæmt 21. gr. laga nr. 144/2020 er því frá X 2022 og fram að fæðingardegi barnsins. Til þess að eiga rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði þurfti kærandi því að hafa verið samfellt á innlendum vinnumarkaði á því tímabili í skilningi 22. gr. laganna. Ágreiningur málsins lýtur að tímabilinu X 2022 til X 2023 en óumdeilt er að kærandi var í samfelldu starfi á innlendum vinnumarkaði á öðrum tíma ávinnslutímabilsins.
Fyrir liggur að kærandi fullnýtti rétt sinn til greiðslu atvinnuleysisbóta X 2022 og var tekjulaus frá þeim tíma fram að fæðingu barns. Samkvæmt framangreindu og gögnum málsins uppfyllir kærandi ekki skilyrði 21. gr. laga nr. 144/2020 um að hafa verið í samfelldu starfi á innlendum vinnumarkaði í sex mánuði fyrir fæðingardag barns, en ekkert hefur komið fram í málinu um að stafliðir 2. mgr. 22. gr. laganna geti átt við um kæranda á því tímabili sem deilt er um.
Enga heimild er að finna í lögum nr. 144/2020 til að víkja frá skýru ákvæði 21. gr. við mat á því hvort foreldi hafi verið í samfelldu starfi á innlendum vinnumarkaði í sex mánuði fyrir fæðingardag barns. Ákvörðun Fæðingarorlofssjóð um að synja umsókn kæranda um greiðslur úr sjóðnum er því staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 11. júlí 2024, um að synja umsókn A, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir