Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Fæðingar- og foreldraorlof

Mál nr. 1/2014

Þriðjudaginn 18. febrúar 2014


A

gegn

Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóði

 

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Haukur Guðmundsson hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 13. janúar 2014 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A dags. 13. janúar 2014. Kærð var ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs (hér eftir nefndur Fæðingarorlofssjóður) sem tilkynnt var með bréfi, dags. 14. október 2013, þar sem hann var krafinn um endurgreiðslu hluta útborgaðrar fjárhæðar frá Fæðingarorlofssjóði fyrir mánuðina apríl og júní 2013 ásamt viðbættu álagi.

Með bréfi, dags. 14. janúar 2014, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs sem barst með bréfi, dags. 25. janúar 2014.

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dags. 29. janúar 2014, og honum gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Engar frekari athugasemdir bárust.

 

I. Málsatvik.

Kærandi eignaðist barn þann Y. september 2012. Kærandi var í fæðingarorlofi frá 16. apríl 2013 til og með 15. júní 2013. Kærandi fékk greidd laun frá vinnuveitanda sínum í apríl og júní 2013. Fæðingarorlofssjóður sendi kæranda greiðsluáskorun, dags. 14. október 2013, þar sem kærandi var krafinn um endurgreiðslu hluta útborgaðrar fjárhæðar fyrir apríl og júní 2013 þar sem sjóðurinn leit svo á að framangreindar greiðslur frá vinnuveitanda kæranda hafi verið svo háar og þess eðlis að þær kæmu til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Sú ákvörðun sé kærð nú. Kærandi gerir einnig athugasemdir við stjórnsýsluhætti Fæðingarorlofssjóðs.

 

II. Sjónarmið kæranda.

Kærandi greinir frá því að hann geri athugasemd við stjórnsýsluhætti stofnunarinnar. Ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs hafi verið birt með óundirrituðu bréfi, dags. 14. október 2013, þar sem undirskriftin sé Starfsfólk Fæðingarorlofssjóðs. Óumdeilt sé að starfsfólk Fæðingarorlofssjóðs sé ekki stjórnvald sem sé til þess bært að taka ákvörðun í málinu. Eftir að kærandi hafi sent Fæðingarorlofssjóði athugasemdir hafi verið sent undirritað bréf af starfsmanni sjóðsins í nafni sjóðsins. Það bréf sé einnig dagsett 14. október 2013 þótt ljóst megi vera af samskiptum kæranda við sjóðinn að bréfið sé sent síðar. Þetta samrýmist ekki vönduðum stjórnsýsluháttum að mati kæranda.

Kærandi hafi verið í fæðingarorlofi frá 16. apríl 2013 til og með 15. júní 2013. Fæðingarorlofssjóður líti svo á að kærandi hafi fengið ofgreitt úr Fæðingarorlofssjóði vegna greiðslna frá vinnuveitanda sem komi til frádráttar greiðslum úr sjóðnum. Við ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs hafi verið litið til greiðslna vegna yfirvinnu á tímabilinu frá 15. mars 2013 til 15. apríl 2013 og frá 16. júní 2013 til 30. júní 2013 sem og launagreiðslna vegna tímabilsins frá 1. apríl 2013 til 15. apríl 2013 sem og launagreiðslna fyrir tímabilið frá 16. júní til 1. júlí 2013. Þetta samrýmist ekki ákvæði laganna um að eingöngu skuli greiðslur frá vinnuveitanda vegna þess tímabils sem foreldri sé í fæðingarorlofi koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.

Þá hafi sjóðurinn byggt á því að kærandi hafi verið í 53% fæðingarorlofi í apríl og 47% fæðingarorlofi í júní en að mati kæranda eigi það enga stoð í staðreyndum málsins. Kærandi hafi verið í 100% fæðingarorlofi frá 16. apríl 2013 til og með 15. júní 2013. Reikniaðferð sjóðsins eigi sér ekki stoð í texta laganna og gangi raunar beint gegn fyrrgreindu ákvæði um að eingöngu skuli greiðslur vinnuveitanda sem ætlaðar séu fyrir það tímabil sem foreldri sé í fæðingarorlofi koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.

Fæðingarorlofssjóður geti ekki einhliða breytt tilhögun fæðingarorlofs á þennan máta og ákveðið að foreldri sé í 53% fæðingarorlofi frá 1. apríl 2013 til 30. apríl 2013 þegar fyrir liggi umsókn um 100% fæðingarorlof frá 16. apríl 2013 til 30. apríl 2013. Það sama eigi við um tilhögun fæðingarorlofs í júní 2013.

Þá brjóti reikniaðferð Fæðingarorlofssjóðs gegn jafnræðisreglu stjórnsýsluréttar þar sem augljóst misræmi og mismunun sé á rétti til greiðslna úr sjóðnum eftir því hvort fæðingarorlof sé tekið í heilum almanaksmánuðum eða ekki. Skerðing í þessu máli hefði orðið önnur hefði það verið tekið frá 1. apríl til 31. maí 2013 þó svo að heildargreiðslur frá vinnuveitanda hefðu verið þær sömu. Það sé augljós mismunun og gangi gegn tilgangi laganna auk þess sem reikniregla sem eigi sér ekki stoð í texta laganna geti haft úrslitaáhrif á tilhögun fæðingarorlofs.  

 

III. Sjónarmið Fæðingarorlofssjóðs.

Af hálfu Fæðingarorlofssjóðs kemur fram að sjóðurinn hafi með bréfi til kæranda, dags. 20. september 2013, vakið athygli kæranda á því að stofnunin hafi verið með til meðferðar mál hans vegna hugsanlegrar ofgreiðslu fyrir mánuðina apríl og júní 2013. Með bréfinu hafi verið óskað eftir launaseðlum, tímaskýrslum, útskýringum vinnuveitanda og útskýringum og andmælum kæranda ásamt öðru því sem skýrt gæti málið.

Skýringar hafi borist frá vinnuveitanda kæranda, dags. 4. september 2013, skýringar kæranda, dags. 9. september 2013, launaseðlar tímabilsins og tímaskráningar fyrir mars og apríl 2013. Í kjölfarið hafi kæranda verið send greiðsluáskorun, dags. 14. október 2013, þar sem hann hafi verið krafinn um endurgreiðslu hluta útborgaðrar fjárhæðar ásamt 15% álagi. Litið hafi verið svo á samkvæmt skrám RSK, innsendum skýringum, launaseðlum og tímaskráningum að kærandi hafi fengið ofgreitt úr Fæðingarorlofssjóði skv. 10. mgr. 13. gr. og 4. mgr. 33. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000 (ffl.), sbr. og 2. mgr. 15. gr. a ffl.

Í framhaldinu hafi borist tölvupóstur frá kæranda, dags. 18. október 2013, þar sem hann geri athugasemdir við að ákvörðun stofnunarinnar og að greiðsluáskorun Fæðingarorlofssjóðs hafi ekki borið með sér hvaða starfsmaður hafi tekið ákvörðunina fyrir hönd stofnunarinnar. Í framhaldinu hafi gengið tölvupóstar milli kæranda og forstöðumanns Fæðingarorlofssjóðs og þess starfsmanns sem tekið hafi ákvörðunina fyrir hönd stofnunarinnar og hafi kærandi þannig verið upplýstur með tölvupósti, dags. 24. október 2013, hvaða starfsmaður hafi tekið ákvörðunina í málinu fyrir hönd stofnunarinnar og í framhaldinu hafi honum verið send ákvörðunin frá 14. október 2013 að nýju með undirritun starfsmannsins.

Kærandi hafi í kjölfarið sent tölvupóst á forstjóra Vinnumálastofnunar, dags. 20. nóvember 2013, og honum verið svarað með tölvupósti, dags. 22. nóvember 2013. Í svari forstjóra Vinnumálastofnunar hafi komið fram að meginreglan sé sú að skriflegar stjórnvaldsákvarðanir eigi að sýna frá hvaða stjórnvaldi ákvörðunin stafi og hvaða starfsmaður eða starfsmenn hafi tekið ákvörðunina. Í tilviki kæranda hafi strax legið fyrir hvaða stjórnvald hafi tekið ákvörðunina og að það hafi verið lögbært til þess. Jafnframt hafi kærandi í framhaldinu verið upplýstur um hvaða starfsmaður hafi tekið ákvörðunina, sbr. tölvupóst forstöðumanns Fæðingarorlofssjóðs og undirritaða ákvörðun starfsmannsins sem hafi fylgt tölvupósti kæranda og hafi því sannanlega borist honum. Því hafi verið bætt úr þeim þætti.

Ákvörðun í þessu máli hafi verið tekin eftir álit setts umboðsmanns Alþingis í máli nr. 7022/2012 o.fl. frá 28. ágúst 2013 og sé í samræmi við framangreint álit og úrskurði úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála sem hafi fallið eftir álit setts umboðsmanns.

Athugun setts umboðsmanns Alþingis hafi lotið að því hvort sú aðferð sem Fæðingarorlofssjóður hafi beitt til að reikna út frádrátt í ofgreiðslumálum, og úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála hafi staðfest, hafi verið í samræmi við ákvæði 2. málsl. 10. mgr. 13. gr. ffl., þar sem mælt sé fyrir um að tilteknar greiðslur frá vinnuveitanda skuli koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Settur umboðsmaður hafi talið að aðferðin hafi ekki verið í samræmi við lög og að nota ætti þá aðferð við útreikning sem leiddi beint af orðalagi ákvæðisins, þ.e. að einungis greiðslur vinnuveitanda til foreldris sem væru hærri en mismunur greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris kæmu til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.

Samkvæmt 2. málsl. 10. mgr. 13. gr. ffl., framangreindu áliti og úrskurðum úrskurðarnefndar sem hafi fallið í kjölfar álitsins skuli einungis greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem séu hærri en nemi mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris skv. 2. eða 5. mgr. koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.

Í 3. málsl. 10. mgr. 13. gr. ffl. komi fram að eingöngu skuli greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar séu fyrir það tímabil sem foreldri sé í fæðingarorlofi koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála hafi staðfest í úrskurðum sínum að við túlkun á orðalaginu „tímabil sem foreldri er í fæðingarorlofi“ skuli miða við almanaksmánuði, sbr. til dæmis úrskurði nefndarinnar í málum nr. 49/2012 og 46/2013.

Á viðmiðunartímabili kæranda skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. hafi viðmiðunarlaun hans verið X kr. á mánuði en frá því að viðmiðunartímabili lauk og fram að fæðingu barnsins hafi þau lækkað í X kr. Miðað hafi verið við viðmiðunarlaun kæranda á viðmiðunartímabili skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. við útreikning á hugsanlegri ofgreiðslu skv. 10. mgr. 13. gr. ffl.

Í apríl 2013 hafi kærandi fengið greiddar X kr. úr Fæðingarorlofssjóði og hefði honum því verið heimilt að þiggja greiðslur frá vinnuveitanda sínum sem næmu mismuni á X kr. og fjárhæð greiðslu Fæðingarorlofssjóðs eða X kr. án þess að það kæmi til lækkunar á greiðslum úr sjóðnum, sbr. 2. málsl. 10. mgr. 13. gr. ffl.

Samkvæmt staðgreiðsluskrá RSK fyrir apríl 2013 hafi kærandi þegið X kr. í laun. Á launaseðli og skýringum vinnuveitanda og kæranda hafi komið fram að kærandi hafi fengið greidda uppbót í fæðingarorlofi að fjárhæð X kr. í mánuðinum sem sé undanskilinn við útreikning á ofgreiðslu, sbr. heimild til þess í 4. málsl. 10. mgr. 13. gr. ffl. Jafnframt sé hluti af yfirvinnu og orlofi vegna vinnu í mars undanskilinn í samræmi við skýringar vinnuveitanda og tímaskráningar eða alls X kr. Þannig hafi verið miðað við að laun kæranda sem hafi tilheyrt apríl 2013 næmu X kr. í stað X kr. við útreikning á ofgreiðslu kæranda. Hann hafi því fengið X kr. hærri greiðslu frá vinnuveitanda sínum en hann hafi mátt og beri því að endurgreiða Fæðingarorlofssjóði. Ofgreiðsla fyrir apríl 2013 sé því X kr. að teknu tilliti til staðgreiðslu og annarra launatengdra gjalda.

Í júní 2013 hafi kærandi fengið greiddar X kr. úr Fæðingarorlofssjóði og hefði honum því verið heimilt að þiggja greiðslur frá vinnuveitanda sem næmu mismuni á X kr. og fjárhæð greiðslu Fæðingarorlofssjóðs eða X kr. án þess að það kæmi til lækkunar á greiðslum úr sjóðnum, sbr. 2. málsl. 10. mgr. 13. gr. ffl.

Samkvæmt staðgreiðsluskrá RSK fyrir júní 2013 hafi kærandi þegið X kr. í laun. Á launaseðli og skýringum vinnuveitanda og kæranda komi fram að kærandi hafi fengið greidda uppbót í fæðingarorlofi að fjárhæð X kr. sem sé undanskilin við útreikning á ofgreiðslu, sbr. heimild til þess í 4. málsl. 10. mgr. 13. gr. ffl. Önnur laun tilheyri mánuðinum, sbr. skýringar vinnuveitanda. Þannig hafi verið miðað við að laun kæranda í júní 2013 næmu X kr. í stað X kr. við útreikning á ofgreiðslu kæranda. Hann hafi því fengið X kr. hærri greiðslu frá vinnuveitanda sínum en hann hafi mátt og beri því að endurgreiða Fæðingarorlofssjóði. Ofgreiðsla fyrir júní 2013 sé því X kr. að teknu tilliti til staðgreiðslu og annarra launatengdra gjalda.

Í 15. gr. a ffl., sbr. 6. gr. laga nr. 90/2004, sé fjallað um leiðréttingar á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Í 2. mgr. komi fram að hafi foreldri fengið hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en því bar samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri foreldri að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið að viðbættu 15% álagi. Fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni hafi foreldri fært rök fyrir því að því verði eigi kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Samkvæmt ákvæðinu skuli leggja álagið á óháð huglægri afstöðu eða ásetningi foreldri og verði foreldri að færa fyrir því rök að því verði eigi kennt um annmarkann eigi að fella það niður. Fyrir liggi í gögnum málsins sem og í kæru kæranda að ofgreiðslan sé komin til vegna vinnu kæranda í apríl og júní 2013 sem leiði til þess að greiðslur frá vinnuveitanda sem séu hærri en nemi mismuni greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltali heildarlauna komi til frádráttar greiðslum úr sjóðnum. Verði því ekki séð að mati Fæðingarorlofssjóðs að tilefni sé til að fella niður álagið.

Samkvæmt öllu framangreindu hafi Fæðingarorlofssjóður því ofgreitt kæranda X kr. að viðbættu 15% álagi X kr. Alls sé því gerð krafa um að kærandi endurgreiði Fæðingarorlofssjóði X kr., sbr. greiðsluáskorun til hans ásamt sundurliðun á ofgreiðslu, dags. 14. október 2013.  

 

IV. Niðurstaða.

Kærð er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að endurkrefja kæranda um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna fæðingar barns hinn Y. september 2012.

Ekki fæst séð að athugasemdir kæranda við undirritanir bréfa sem honum bárust hafi þýðingu fyrir efnislega úrlausn málsins.

Í hinni kærðu ákvörðun er á því byggt að kærandi hafi þegið greiðslur frá vinnuveitanda sínum í apríl og júní 2013 á sama tíma og hann þáði greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði. Séu þessar greiðslur frá vinnuveitanda svo háar og þess eðlis að þær leiði til lækkunar á rétti til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði.

Kærandi byggir á því að umræddar greiðslur hafi ekki verið fyrir sama tímabil og hann hafi verið í fæðingarorlofi. Kærandi hafi verið í fæðingarorlofi frá 15. apríl til 15. júní 2013 en Fæðingarorlofssjóður hafi litið til greiðslna utan þess tímabils og miðað við heila almanaksmánuði við útreikninga sína.

Barn kæranda er eins og fyrr greinir fætt Y. september 2012. Viðmiðunartímabil útreiknings meðaltals heildarlauna kæranda skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. er því tímabilið frá mars 2011 til febrúar 2012. Í greiðsluáætlun, dags. 5. apríl 2013, kemur fram að meðaltekjur kæranda á viðmiðunartímabili skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. voru alls X kr. og greiðsla úr Fæðingarorlofssjóði miðað við 100% fæðingarorlof væri samkvæmt því X kr. Af útreikningi sem fylgdi greiðsluáskorun frá 14. október 2013 má sjá að frá því að viðmiðunartímabili meðaltals heildarlauna kæranda lauk og fram til fæðingar barnsins lækkuðu laun kæranda í X kr. svo miðað hafi verið við viðmiðunartekjur kæranda. Er það kæranda til hagsbóta.

Ákvæði 10. mgr. 13. gr. ffl. mælir fyrir um að greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem eru hærri en nemur mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris skv. 2. eða 5. mgr. skuli koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Til þess að unnt sé að beita þessari reglu þarf að liggja fyrir hvaða tímabil á að miða við í þessu sambandi, en það er ekki tekið skýrt fram í ffl. Með vísan til markmiðsskýringar, með því að líta til þess tilgangs ffl. að gera foreldri kleift að leggja niður launuð störf í fæðingarorlofi án þess að fjárhagsleg hagnaðarsjónarmið liggi þar að baki, hefur úrskurðarnefnd miðað við almanaksmánuði í þessu sambandi. Einnig hefur úrskurðarnefndin talið sig þurfa að túlka ákvæðið til samræmis við önnur ákvæði ffl. en önnur ákvæði laganna miða við almanaksmánuði, t.a.m. þegar mánaðarleg greiðsla og starfshlutfall er ákveðið, en nefndin telur þessi atriði nátengd þeim atriðum sem á reynir við túlkun á 10. mgr. 13. gr. og mat á hugsanlegri endurgreiðsluskyldu foreldris.

Að mati nefndarinnar myndi önnur túlkun fara gegn þeim tilgangi ffl. sem reifaður var hér að framan. Lögin heimila þannig ekki að foreldri geti valið að vera í fæðingarorlofi hluta dags eða hluta mánaðar og lagt niður vinnu þann tíma en síðan bætt upp það tekjutap sem af því hlýst með frekari vinnu, til dæmis með yfirvinnu, seinni hluta sama dags eða mánaðar og það leiði þannig til þess að greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði komi í raun til viðbótar við greiðslur frá vinnuveitanda að hluta eða öllu leyti. Væri ekki miðað við almanaksmánuð í þessu samhengi gæti foreldri unnið upp það tekjutap sem foreldrið yrði fyrir með því að færa verkefni sín yfir á þann hluta mánaðarins sem það væri ekki í fæðingarorlofi og vinna þannig upp, til dæmis með yfirvinnu, það tekjutap sem það hefði orðið fyrir með því að leggja niður störf, auk þess að fá umrætt tekjutap bætt úr Fæðingarorlofssjóði. Með þeim hætti væri tilgangi greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði ekki náð að mati nefndarinnar, sem sé að gera foreldrum kleift að leggja niður launuð störf í fæðingarorlofi án þess að fjárhagsleg hagnaðarsjónarmið liggi þar að baki.

Með vísan til þessara sjónarmiða verður ekki fallist á þá málsástæðu kæranda að laun sem hann hafði í apríl og júní 2013 hafi ekki áhrif á heimildir hans til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði fyrir viðkomandi mánuði.

Þar sem kærandi þáði greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði í apríl og júní 2013 var honum einungis heimilt að þiggja greiðslur frá vinnuveitanda sem námu mismuni meðaltals heildarlauna hans og greiðslna frá Fæðingarorlofssjóði án þess að greiðslur vinnuveitanda til hans kæmu til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.

Líkt og áður segir er rétt að mati úrskurðarnefndar að miða endurgreiðslukröfu á hendur kæranda við meðaltals heildarlaun að fjárhæð X kr. Samkvæmt gögnum málsins fékk kærandi greiðslu úr Fæðingarorlofssjóði að fjárhæð X kr. í apríl 2013 og X kr. í júní 2013 og var því heimilt að þiggja greiðslur frá vinnuveitanda sínum að fjárhæð X kr. í apríl 2013 og X kr. í júní 2013 án þess að það kæmi til lækkunar á greiðslum úr sjóðnum. Er þessi túlkun í samræmi við álit umboðsmanns Alþingis í málinu nr. 7022/2012 o.fl. frá 28. ágúst 2013.

Samkvæmt gögnum málsins fékk kærandi greidd laun frá vinnuveitanda sínum að fjárhæð X kr. fyrir aprílmánuð 2013 og X kr. fyrir júní 2013. Það er því ljóst að kærandi þáði hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en honum var heimilt fyrir apríl og júní 2013. Verður niðurstaða Fæðingarorlofssjóðs um skyldu kæranda til endurgreiðslu fyrir þá mánuði því staðfest.

Af gögnum málsins má sjá að Fæðingarorlofssjóður byggir hina kærðu ákvörðun á framangreindri frádráttarreglu 10. mgr. 13. gr. ffl. og er því staðfest að kærandi ber að endurgreiða sjóðnum X kr. vegna ofgreidds fæðingarorlofs í apríl og júní 2013.

Í 2. mgr. 15. gr. a ffl., sbr. 6. gr. laga nr. 90/2004 og 5. gr. laga nr. 155/2006, segir að hafi foreldri fengið hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en því bar samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri foreldri að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Þá segir jafnframt að fella skuli niður álagið færi foreldri rök fyrir því að því verði eigi kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Með umsókn kæranda um fæðingarorlof veitti hann ýmsar upplýsingar vegna fyrirhugaðs orlofs. Í umsókninni er feitletraður og undirstrikaður texti með yfirlýsingu umsækjanda um að hann heimili Vinnumálastofnun að afla gagna úr skattskrám og að hann sé upplýstur um að þessi gögn verði notuð til eftirlits. Þá segir orðrétt: „Með undirskrift minni staðfesti ég einnig að láta Fæðingarorlofssjóð vita um allar breytingar sem kunna að hafa áhrif á afgreiðslu umsóknar þessarar og/eða greiðslur samkvæmt henni.“ Í umsókninni gaf kærandi engar upplýsingar um tekjur og ekki er þar tekið fram að breytingar á þeim séu á meðal þess sem tilkynna beri um. Í framhaldi af þessari umsókn var kæranda send greiðsluáætlun þar sem sérstaklega var tiltekið að greiðslur sjóðsins miðist við „hlutfall af meðaltekjum þínum samkvæmt skrám skattyfirvalda á 12 mánaða samfelldu tímabili sem lýkur 6 mánuðum fyrir fæðingarmánuð barns“ og var því beint til kæranda að yfirfara upplýsingar um tekjur á þessu tímabili sem fylgdu áætluninni. Í smáu letri sem fylgdi kom fram að yrðu „breytingar á lágmarksgreiðslu, skatthlutfalli, persónuafslætti eða öðrum forsendum sem hafa áhrif á greiðslur geta fjárhæðir breyst“. Hvergi var á hinn bóginn minnst á breytingar á tekjum eftir að umræddu tímabili lauk eða að þær gætu skipt máli. Þegar þessi samskipti kæranda og stjórnvaldsins eru skoðuð heildstætt er útilokað að leggja ábyrgðina á því að kærandi upplýsti ekki sjóðinn um breyttar tekjur sínar á kæranda. Verður því hafnað að leggja 15% álag á endurgreiðsluna.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 14. október 2013, um að krefja kæranda, A um X kr. vegna ofgreidds fæðingarorlofs er staðfest. Ákvörðun sjóðsins um að leggja 15% álag á endurgreiðsluna er felld úr gildi.

 

Haukur Guðmundsson

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta