Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

Mál nr. 417/2024-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 417/2024

Þriðjudaginn 29. október 2024

A

gegn

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun

Ú R S K U R Ð U R 

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 9. september 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 25. júní 2024, um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi þáði húsnæðisbætur á tímabilinu desember 2022 til desember 2023. Með bréfi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 25. júní 2024, var kæranda birt lokauppgjör vegna ársins 2023 þar sem fram kom að hann hefði fengið ofgreiddar húsnæðisbætur, að fjárhæð 554.520 kr.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 9. september 2024. Með bréfi, dags. 1. október 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð barst 7. október 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 8. október 2024. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun krefji hann um ofgreiddar húsnæðisbætur að fjárhæð 554.520 kr. með þeim rökum að fjárhagsstaða kæranda hafi skyndilega batnað. Fjárhagsstaða kæranda hafi hins vegar versnað til muna vegna slæmrar fjárfestingar, andlegrar heilsu og hnéaðgerðar með þeim afleiðingum að kærandi hafi misst tvo til þrjá mánuði úr vinnu.

III.  Sjónarmið Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar

Í greinargerð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar kemur fram að kærandi hafi skilað inn umsókn um húsnæðisbætur þann 28. nóvember 2022 vegna leigu á húsnæðinu B. Auk kæranda hafi synir hans, C og D, verið skráðir sem heimilismenn á umsókn. Umsókn kæranda hafi verið samþykkt þann 6. desember 2022. Við útreikning á áætluðum húsnæðisbótum hafi verið miðað við meðaltekjur í nóvember og aðrar skattskyldar tekjur. Í samþykktarbréfi hafi athygli kæranda verið vakin á því að breytingar á forsendum húsnæðisbóta hefðu áhrif á rétt til bóta.

Með bréfi, dags. 9. janúar 2023, hafi kærandi verið inntur eftir upplýsingum um áætlaðar verktakagreiðslur allra heimilismanna 18 ára og eldri. Að mati Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar hafi fyrirliggjandi upplýsingar verið ófullnægjandi og því óljóst hvort skilyrði fyrir greiðslum húsnæðisbóta væru fyrir hendi. Á grundvelli upplýsinga frá kæranda um áætlaðar verktakagreiðslur á árinu 2023 hafi húsnæðisbætur verið endurreiknaðar og áætlun byggð á nýjustu upplýsingum.

Á árinu 2023 hafi kæranda verið send uppfærð tekju- og eignaáætlun í apríl, ágúst og október og hafi áætlanirnar byggt á fyrirliggjandi upplýsingum frá Skattinum.

Með bréfi, dags. 25. júní 2024, hafi kærandi fengið sent lokauppgjör húsnæðisbóta vegna ársins 2023. Þar hafi komið í ljós að kærandi hefði fengið ofgreiddar húsnæðisbætur sem hefðu numið 554.520 kr. Kærandi hafi verið upplýstur um að ef þær upplýsingar sem hefðu verið lagðar til grundvallar lokauppgjörinu endurspegluðu ekki rauntekjur og eignastöðu fyrir árið 2023 gæti hann sent athugasemdir til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar innan tíu daga. Bærust engar athugasemdir innan þess tíma yrði farið eftir þeim upplýsingum sem hefðu verið notaðar við endurreikninginn við endanlega ákvörðun lokauppgjörs húsnæðisbóta fyrir árið 2023.

Engin gögn eða rökstuðningur hafi borist frá kæranda um að fyrirliggjandi upplýsingar sem lagðar hafi verið til grundvallar endurreikningi hafi verið rangar.

Skattframtal - tekjuár 2023

                                    A                     D         Samtals

Heildartekjur 2.7        2.694.533        1.554.906                    4.249.439

Fjármagnstekjur 3.1   64.464             97.065                         161.529          

Leigufjárhæð              2.375.000        0                                  2.375.000

Húsnæðisbætur           795.341           0                                  795.341

Heildareignir              11.525.365      3.321.387                    14.865.312

31.12.2023*

Heildareignir               6.943.672

31.12.2022

*Eign 11.543.925 kr. – skuld 18.560 kr. = 11.525.365 kr.

Skerðing húsnæðisbóta sé eingöngu tilkomin vegna eigna kæranda. Í samræmi við útreikning lokauppgjörsins hafi skerðing vegna eigna numið 46.210 kr. á mánuði eða 554.520 kr. á árinu 2023. Við endurreikning húsnæðisbóta hafi eignir kæranda að frádregnum skuldum í árslok 2023, að fjárhæð 11.525.473, verið lagðar til grundvallar. Um sé að ræða bankainnstæður, hlutabréf, fasteignir og bifreiðar en skattframtalið sé staðfesting á eignum og skuldum kæranda á skattárinu.

Húsnæðisbætur hafi ekki verið skertar vegna tekna kæranda þar sem tekjur hafi verið lægri en skilgreind neðri tekjumörk. Með hliðsjón af uppgefnum tekjum eftir skatt samkvæmt skattframtali kæranda, áætluðum framfærslukostnaði fjölskyldunnar, rekstri bifreiða og húsaleigu verði hins vegar ekki séð að tekjurnar séu þess eðlis að kærandi hafi slík fjárráð sem geti skýrt eignaaukningu á árinu.

Ljóst sé að bankainnstæða og bifreiðaeign kæranda hafi hækkað frá árinu á undan. Það skýrist meðal annars af því að kærandi hafi keypt Nissan Leaf bifreið á árinu 2023 og sé kaupverðið 3.500.000 kr. Kærandi hafi upplýst að bifreiðakaupin hafi alfarið verið fjármögnuð með eigin fé. Rétt sé að benda á að kærandi sé enn skráður eigandi bifreiðarinnar samkvæmt ökutækjaskrá en að sögn kæranda sé hann að reyna að selja bifreiðina. Þá hafi kærandi upplýst að hann hafi keypt strandveiðibát á 4.800.000 kr. sem hann hafi síðan selt aftur.

Rétt sé að benda á að C hafi ekki náð 18 ára aldri á árinu 2023 og D hafi orðið 18 ára á árinu. Í því sambandi sé litið til þess að börn séu á framfæri foreldra sinna til 18 ára aldurs, sbr. 53. gr. barnalaga og því óeðlilegt að eignir eða tekjur þeirra hafi áhrif til lækkunar á húsnæðisbótum.

Í kjölfar lokauppgjörsins hafi kærandi sent Húsnæðis- og mannvirkjastofnun tölvupóst, dags. 27. júní 2024, þar sem hann hafi sagst alls ekki getað borgað endurgreiðslukröfuna og því óskað eftir að hún yrði felld niður. Engar athugasemdir hafi borist frá kæranda um að þær upplýsingar sem notaðar hafi verið við lokauppgjörið endurspegli ekki réttar tekjur og eignir ársins 2023.

Í máli þessu sé deilt um lokauppgjör húsnæðisbóta vegna ársins 2023. Samkvæmt niðurstöðu lokauppgjörs hafi kærandi fengið ofgreiddar húsnæðisbætur árið 2023 vegna eignastöðu.

Samkvæmt 1. mgr. 25. gr. laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur megi endurskoða rétt til húsnæðisbóta hvenær sem er og endurreikna fjárhæð þeirra þannig að húsnæðisbætur verði í samræmi við þær breytingar sem hafi orðið á aðstæðum umsækjanda eða annarra heimilismanna.

Í 2. mgr. 25. gr. komi skýrt fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur og eignir næstliðins almanaksárs samkvæmt 17. og 18. gr. laga um húsnæðisbætur liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum skuli framkvæmdaraðili endurreikna fjárhæðir húsnæðisbóta vegna þess almanaksárs á grundvelli þeirra upplýsinga.

Kæranda hafi á árinu 2023 þrívegis verið sent endurreikningsbréf en í bréfinu hafi kæranda verið bent á að koma athugasemdum á framfæri við stofnunina teldi hann þær upplýsingar sem væru notaðar við útreikning húsnæðisbóta ekki endurspegla komandi tekjur og eignir ársins. Rétt sé að benda á að það sé á ábyrgð umsækjanda að upplýsa stofnunina um allar þær breytingar sem verði á aðstæðum sem kunni að hafa áhrif á rétt til húsnæðisbóta, sbr. 3. mgr. 14. gr. laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur. Engar upplýsingar hafi borist stofnuninni um breytta tekju- eða eignastöðu.

Í 18. gr. laga um húsnæðisbætur, sbr. 15. gr. reglugerðar nr. 1200/2016 um húsnæðisbætur, sé fjallað um áhrif eigna á grunnfjárhæðir húsnæðisbóta. Í 1. mgr. komi fram að grunnfjárhæðir samkvæmt 2. mgr. 16. gr., eftir atvikum að teknu tilliti til lækkunar vegna tekna samkvæmt 17. gr., lækki sem nemi hlutfalli af samanlögðum eignum allra heimilismanna, 18 ára og eldri, sem fari umfram 8.000.000 kr. uns þær falli alveg niður við 60% af þeirri fjárhæð. Í 2. mgr. 18. gr. komi fram að miða skuli við eignir í lok þess almanaksárs þegar greiðslur húsnæðisbóta hafi staðið yfir. Í 3. mgr. komi fram að með eignum í lögunum sé átt við allar eignir samkvæmt 72. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, að frádregnum skuldum.

Samanlagðar eignir allra heimilismanna byrji að skerða bótarétt við 8.000.000 kr. og skerði að fullu við 12.800.000 kr. Það liggi fyrir að eignir kæranda og annarra heimilismanna í lok árs 2023 hafi numið alls 11.525.473 kr. samkvæmt upplýsingum frá Skattinum.

Eftir lokauppgjör ársins 2023 hafi komið í ljós að kærandi hafi fengið ofgreiddar húsnæðisbætur og beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem hafi verið ofgreidd, sbr. 26. gr. laga um húsnæðisbætur.

Af hálfu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sé byggt á því að málsmeðferðin hafi að öllu leyti verið í samræmi við ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og að ákvörðunin hafi verið gerð í samræmi við ákvæði laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur og reglugerð nr. 1200/2016 um húsnæðisbætur, með síðari breytingum. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun krefjist þess að hin kærða ákvörðun stofnunarinnar í málinu verði staðfest.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 25. júní 2024, um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta vegna ársins 2023, að fjárhæð 554.520 kr.

Í 8. gr. laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur kemur fram að húsnæðisbætur séu mánaðarlegar greiðslur sem greiðast til umsækjanda, sbr. þó 4. mgr. 21. gr., og skuli ákvarðaðar og reiknaðar út miðað við grunnfjárhæðir sem miðast við fjölda heimilismanna, sbr. 3. tölul. 3. gr., að teknu tilliti til tekna, sbr. 17. gr., eigna, sbr. 18. gr., og greiðsluþátttöku í húsnæðiskostnaði, sbr. 19. gr. Samkvæmt 14. gr. laga nr. 75/2016 er umsækjanda skylt að veita framkvæmdaraðila allar þær upplýsingar og gögn þeim til staðfestingar sem óskað er eftir og nauðsynlegar eru til að staðreyna rétt hans til húsnæðisbóta. Enn fremur er skylt að upplýsa um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans eða heimilismanna eða öðrum þeim atriðum sem kunna að hafa áhrif á rétt viðkomandi til húsnæðisbóta samkvæmt lögunum á þeim tíma sem hann fær greiddar húsnæðisbætur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um meðal annars tekju- og eignabreytingar á bótagreiðsluári sem kunna að hafa áhrif á bótarétt.

Í 18. gr. laga nr. 75/2016 segir að grunnfjárhæðir samkvæmt 2. mgr. 16. gr., eftir atvikum að teknu tilliti til lækkunar vegna tekna samkvæmt 17. gr., lækki sem nemi hlutfalli af samanlögðum eignum allra heimilismanna, 18 ára og eldri, sem fari umfram 6.500.000 kr., nú 8.000.000 kr., sbr. 15. gr. reglugerðar nr. 1200/2016 um húsnæðisbætur, uns þær falli alveg niður við 60% hærri fjárhæð, eða 12.800.000 kr. Samkvæmt 2. mgr. 18. gr. laganna skal miða við eignir í lok þess almanaksárs þegar greiðslur húsnæðisbóta stóðu yfir. Þó skuli fasteign eða búseturéttur samkvæmt lögum um húsnæðissamvinnufélög, sem geti orðið andlag réttar til vaxtabóta, ekki teljast til eigna samkvæmt 1. mgr. hafi fasteignin eða búseturétturinn ekki verið í eigu umsækjanda eða annarra heimilismanna meðan á greiðslum húsnæðisbóta hafi staðið á almanaksárinu. Þá kemur fram í 3. mgr. 18. gr. að með eignum í lögunum sé átt við allar eignir samkvæmt 72. gr. laga um tekjuskatt að frádregnum skuldum samkvæmt 1. mgr. 75. gr. sömu laga, sbr. þó 2. málsl. 2. mgr. Í 2. mgr. 72. gr. laga um tekjuskatt segir að framtalsskyldar eignir séu allar fasteignir, lausafé og hvers konar önnur verðmæt eignarréttindi, með þeim takmörkunum sem um ræði í 74. gr., og skipti ekki máli hvort eignirnar gefi af sér arð eða ekki.

Í 25. gr. laganna er kveðið á um endurreikning á húsnæðisbótum. Þar segir í 1. mgr. að rétt til húsnæðisbóta megi endurskoða hvenær sem er og endurreikna fjárhæð húsnæðisbóta þannig að húsnæðisbætur verði í samræmi við þær breytingar sem orðið hafa á aðstæðum umsækjanda eða annarra heimilismanna. Í 2. mgr. kemur fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur og eignir næstliðins almanaksárs samkvæmt 17. og 18. gr. liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum skuli framkvæmdaraðili endurreikna fjárhæðir húsnæðisbóta vegna þess almanaksárs á grundvelli þeirra upplýsinga. Í 3. mgr. kemur fram að leiði endurreikningur samkvæmt 1. og 2. mgr. til breytinga á fjárhæð húsnæðisbóta skuli leiðrétta húsnæðisbæturnar samkvæmt 26. gr. laganna. Þar segir í 1. mgr. að hafi umsækjandi fengið hærri húsnæðisbætur en honum bar á umræddu tímabili beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var.

Kærandi þáði húsnæðisbætur á tímabilinu desember 2022 til desember 2023. Samkvæmt útreikningi húsnæðisbóta, dags. 6. desember 2022, voru heildartekjur kæranda áætlaðar 316.734 kr. á mánuði og heildareignir 7.010.969 kr. Samkvæmt endurútreikningi, dags. 16. febrúar 2023, voru heildartekjur kæranda áætlaðar 678.653 kr. á mánuði og heildareignir 7.010.969 kr. Við lokauppgjör ársins 2023 reyndust eignir kæranda á tímabilinu, þ.e. janúar til desember 2023, vera töluvert hærri en framangreindar áætlanir gerðu ráð fyrir, eða 11.525.473 kr. á mánuði. Samkvæmt útreikningi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar nam skerðing vegna eigna því 46.210 kr. á mánuði. Mismunur var því 46.210 kr. á mánuði eða 554.520 kr. á leigutímabilinu. Kæranda ber í samræmi við ákvæði 26. gr. laga nr. 75/2016 að endurgreiða þá fjárhæð.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta til handa kæranda staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 25. júní 2024, um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta A, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta