Mál nr. 426/2016
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 426/2016
Fimmtudaginn 9. febrúar 2017
A
gegn
Reykjavíkurborg
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.
Með kæru, dags. 26. október 2016, kærir A, til úrskurðarnefndar velferðarmála, synjun Reykjavíkurborgar, dags. 19. október 2016, á umsókn hans um styrk að fjárhæð 85.000 kr. til greiðslu flutningskostnaðar.
I. Málavextir og málsmeðferð
Með umsókn, dags. 27. september 2016, sótti kærandi um styrk hjá Reykjavíkurborg að fjárhæð 85.000 kr. til greiðslu flutningskostnaðar. Í umsókn kæranda kemur fram að sótt sé um styrk vegna sérstakra erfiðleika; flutningskostnaðar. Umsókn kæranda var synjað með bréfi þjónustumiðstöðvar, dags. 29. september 2016, með þeim rökum að umsóknin samræmdist ekki reglum Reykjavíkurborgar. Kærandi áfrýjaði niðurstöðunni til velferðarráðs Reykjavíkurborgar. Við vinnslu málsins hjá velferðarráði virðist tekin afstaða til umsóknar um fjárhagsaðstoð á grundvelli a-liðar 27. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg, nánar tiltekið um sérstaka aðstoð vegna stuðningsvinnu og/eða annarra sérstakra aðstæðna, en ekki 24. gr. reglnanna sem kveður á um aðstoð vegna sérstakra erfiðleika. Velferðarráð tók málið fyrir á fundi sínum þann 19. október 2016 og staðfesti synjunina á þeirri forsendu að aðstæður kæranda féllu ekki að skilyrðum 27. gr. reglna sveitarfélagsins um fjárhagsaðstoð.
Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála þann 31. október 2016. Með bréfi, dags. 2. nóvember 2016, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Reykjavíkurborgar þar sem meðal annars kæmi fram rökstuðningur fyrir hinni kærðu ákvörðun. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst með bréfi, dags. 9. nóvember 2016. Með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 11. nóvember 2016, var bréf Reykjavíkurborgar sent kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.
II. Málsástæður kæranda
Kærandi greinir frá því að hann hafi nýlega flutt í annað húsnæði og kostnaðurinn við það hafi verið 85.000 kr. Það hafi reynst kæranda erfitt þar sem hann sé öryrki og hafi ekki mikið á milli handanna. Kærandi tekur fram að hann hafi þurft að henda mestum hluta af innbúi sínu þar sem hann hafi flutt í minna húsnæði.
III. Sjónarmið Reykjavíkurborgar
Í greinargerð Reykjavíkurborgar er greint frá aðstæðum kæranda. Tekið er fram að í a-lið 27. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg komi fram að heimilt sé að veita sérstaka aðstoð í málum þar sem verið sé að veita markvissan stuðning. Aðstoðin miði að því að viðhalda árangri sem hafi náðst með stuðningsvinnu. Skilyrði sé að umsækjandi eigi í miklum félagslegum erfiðleikum.
Byggt er á því af hálfu Reykjavíkurborgar að ákvæði 27. gr. reglnanna sé heimildarákvæði sem beri að nota í undantekningartilfellum. Við mat á því hvort skilyrði a-liðar 27. gr. reglnanna sé uppfyllt sé litið til þeirrar vinnu sem verið hafi í málum umsækjanda undanfarin ár og sé tilgangur aðstoðarinnar að viðhalda þeim árangri sem hafi náðst. Þá sé það skilyrði að viðkomandi hafi átt í miklum félagslegum erfiðleikum. Það hafi verið mat velferðarráðs Reykjavíkurborgar að aðstæður kæranda féllu ekki að a-lið 27. gr. reglnanna, þ.e. með því að veita fjárhagsaðstoð til þess að greiða fyrir flutningskostnað væri hvorki verið að veita markvissan stuðning né viðhalda árangri sem hafi náðst með stuðningsvinnu.
Með hliðsjón af framansögðu hafi það verið mat velferðarráðs að ekki væri unnt að veita sérstaka aðstoð vegna stuðningsvinnu og/eða annarra sérstakra aðstæðna og því hafi synjun um styrk verið staðfest.
IV. Niðurstaða
Í máli þessu er ágreiningur um hvort Reykjavíkurborg hafi borið að samþykkja umsókn kæranda um styrk að fjárhæð 85.000 kr. til greiðslu flutningskostnaðar.
Fjallað er um rétt til fjárhagsaðstoðar til þeirra sem eigi fá séð fyrir sjálfum sér, maka sínum og börnum yngri en 18 ára í IV. og VI. kafla laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sveitarstjórn setja sér reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar að fengnum tillögum félagsmálanefndar er metur þörf og ákveður fjárhagsaðstoð til einstaklinga í samræmi við reglur sveitarstjórnar, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til að meta sjálf, miðað við aðstæður á hverjum stað, hvers konar þjónustu þau vilja veita. Í samræmi við þetta og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri nauðsyn að meginstefnu til lagt í hendur þeirrar sveitarstjórnar er þjónustuna veitir. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar velferðarmála, enda byggist það á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.
Í 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg er kveðið á um aðstoð vegna sérstakra erfiðleika. Samkvæmt því er heimilt að veita einstaklingum, hjónum eða sambúðarfólki lán eða styrk vegna mikilla fjárhagslegra og félagslegra erfiðleika, að uppfylltum öllum neðangreindum skilyrðum:
-
umsækjandi hafi fengið fjárhagsaðstoð til framfærslu samkvæmt reglum þessum undanfarna sex mánuði eða lengur,
-
staðfest sé að umsækjandi hafi ekki aðgang að lánafyrirgreiðslu banka, sparisjóða eða annarra lánastofnana,
-
fyrir liggi yfirlit starfsmanns þjónustumiðstöðvar eða Umboðsmanns skuldara um fjárhagsstöðu umsækjanda og tillögur að úrbótum þegar við á,
-
fyrir liggi á hvern hátt lán eða styrkur muni breyta skuldastöðu umsækjanda til hins betra þegar til lengri tíma er litið,
-
fyrir liggi samkomulag um félagslega ráðgjöf og/eða fjármálaráðgjöf þegar það á við.
Í 27. gr. reglnanna er kveðið á um sérstaka aðstoð vegna stuðningsvinnu og/eða annarra sérstakra aðstæðna. Samkvæmt a-lið 27. gr. er heimilt að veita sérstaka aðstoð í málum þar sem verið er að veita markvissan stuðning. Aðstoðin miðar að því að viðhalda árangri sem náðst hefur með stuðningsvinnu. Skilyrði er að umsækjandi eigi í miklum félagslegum erfiðleikum.
Umsókn kæranda var synjað á grundvelli þess að aðstæður hans hafi ekki fallið að skilyrðum a-liðar 1. mgr. 27. gr. framangreindra reglna. Við meðferð kærumáls þessa hefur komið fram af hálfu Reykjavíkurborgar að ekki sé unnt að líta svo á að það sé verið að veita markvissa stuðningsvinnu í máli kæranda. Þá kemur fram að með aðstoð til að greiða fyrir flutningskostnað væri ekki verið að viðhalda árangri sem náðst hafi með stuðningsvinnu.
Samkvæmt gögnum málsins þiggur kærandi ekki fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg en hefur áður fengið margvíslega aðstoð hjá sveitarfélaginu, meðal annars fengið greidda sálfræðiþjónustu. Að mati úrskurðarnefndarinnar benda gögn málsins ekki til þess að málefni kæranda hafi talist vera í markvissu ferli þegar hann sótti um styrk til greiðslu flutningskostnaðar. Að því virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndarinnar að kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði a-liðar 1. mgr. 27. gr. reglna Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð. Þar sem kærandi hafði ekki notið fjárhagsaðstoðar sér til framfærslu frá Reykjavíkurborg síðastliðna sex mánuði eða lengur þegar umsókn barst átti hann ekki heldur rétt á aðstoð vegna sérstakra erfiðleika, sbr. a-lið 24. gr. reglnanna. Hin kærða ákvörðun er því staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Reykjavíkurborgar um synjun á umsókn A, um styrk að fjárhæð 85.000 kr. til greiðslu flutningskostnaðar er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Kári Gunndórsson