Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

Mál nr. 52/2014

Úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 101 Reykjavík


Miðvikudaginn 26. nóvember 2014 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 52/2014:


Kæara A

á ákvörðun

Reykjavíkurborgar


og kveðinn upp svohljóðandi

 Ú R S K U R Ð U R:

 

A hefur með kæru, dags. 23. september 2014, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála synjun Reykjavíkurborgar, dags. 17. september 2014, á umsókn hennar um lán til tryggingar húsaleigu.

 

I. Málavextir og málsmeðferð

Kærandi sótti um lán til tryggingar húsaleigu að fjárhæð 600.000 krónur hjá Reykjavíkurborg með umsókn, dags. 25. ágúst 2014. Umsókn kæranda var synjað með bréfi þjónustumiðstöðvar, dags. 8. september 2014, með þeim rökum að umsóknin samræmdist ekki reglum Reykjavíkurborgar. Kærandi áfrýjaði synjuninni til velferðarráðs sem tók málið fyrir á fundi sínum þann 17. september 2014 og samþykkti svohljóðandi bókun:

Velferðarráð staðfesti synjun starfsmanna þjónustumiðstöðvar um lán að upphæð kr. 600.000.- þar sem eigi verður talið að aðstæður umsækjanda falli að skilyrðum þeim sem sett eru í 23. gr. reglna um fjárhagsaðstoð varðandi styrk til fyrirframgreiðslu/tryggingu húsaleigu.

Niðurstaða velferðarráðs var tilkynnt kæranda með bréfi, dags. 17. september 2014. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála 23. september 2014. Með bréfi, dags. 24. september 2014, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir greinargerð Reykjavíkurborgar vegna kærunnar og gögnum málsins. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst með bréfi, dags. 26. september 2014. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 30. september 2014, var bréf Reykjavíkurborgar sent kæranda til kynningar. Frekari athugasemdir bárust ekki frá kæranda. Með bréfi til Reykjavíkurborgar, dags. 24. október 2014, óskaði úrskurðarnefndin eftir upplýsingum um hvort velferðarráð hefði lagt mat á félagslegar aðstæður kæranda og hvort samræmis og jafnræðis hefði verið gætt gagnvart kæranda við úrlausn máls hennar, sbr. 11. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Umbeðnar upplýsingar bárust með bréfi Reykjavíkurborgar, dags. 31. október 2014, og voru þær sendar kæranda til kynningar með bréfi, dags. 4. nóvember 2014. Frekari athugasemdir bárust ekki.  

 

II. Málsástæður kæranda

Kærandi greinir frá því að hún hafi verið búsett í núverandi húsnæði frá árinu 2009 og þurft að endurnýja húsaleigusamning ár hvert. Hún hafi alltaf verið með bankaábyrgð en fái hana ekki lengur þar sem hún sé í vanskilum. Kærandi þurfi að greiða þriggja mánaða tryggingu í nóvember 2014 við endurnýjun húsaleigusamningsins en hún eigi þá fjárhæð ekki til og fái hvergi lán. Hún hafi ávallt staðið í skilum með húsaleiguna til að tryggja barninu sínu öruggt heimili en þurfi nú aðstoð til þess að halda húsnæðinu.

 

III. Sjónarmið Reykjavíkurborgar

Í greinargerð Reykjavíkurborgar er vísað til þess að það hafi verið mat velferðarráðs að skilyrði 23. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg hafi ekki verið uppfyllt þar sem kærandi hafi ekki þegið fjárhagsaðstoð til framfærslu mánuðinn sem sótt hafi verið um og mánuðinn þar á undan. Kærandi sé 75% öryrki og fái greiddar örorkubætur ásamt launagreiðslum fyrir 50% starf en tekjur hennar séu hærri en fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg.

 

IV. Niðurstaða

Málskotsheimild kæranda er reist á 63. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Fyrir nefndinni liggja reglur um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg sem tóku gildi 1. janúar 2011, með síðari breytingum. Í máli þessu er ágreiningur um það hvort Reykjavíkurborg hafi borið að samþykkja umsókn kæranda um lán til tryggingar húsaleigu.

Fjallað er um rétt til fjárhagsaðstoðar til þeirra sem eigi fá séð fyrir sjálfum sér, maka sínum og börnum yngri en 18 ára í IV. og VI. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sveitarstjórn setja sér reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar að fengnum tillögum félagsmálanefndar er metur þörf og ákveður fjárhagsaðstoð til einstaklinga í samræmi við reglur sveitarstjórnar, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til að meta sjálf miðað við aðstæður á hverjum stað, hvers konar þjónustu þau vilja veita. Í samræmi við þetta og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri nauðsyn að meginstefnu til lagt í hendur þeirrar sveitarstjórnar er þjónustuna veitir. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála enda byggist það á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.

Kærandi sótti um lán til tryggingar húsaleigu að fjárhæð 600.000 krónur og var umsókn hennar synjað á þeirri forsendu að hún hafi ekki þegið fjárhagsaðstoð til framfærslu mánuðinn sem sótt hafi verið um og mánuðinn þar á undan.

Í 23. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg er fjallað um styrk eða lán til fyrirframgreiðslu húsaleigu og til tryggingar húsaleigu. Samkvæmt ákvæðinu er Reykjavíkurborg heimilt að veita þeim sem fengið hafa fjárhagsaðstoð til framfærslu samkvæmt reglunum í mánuðinum sem sótt er um og í mánuðinum á undan lán eða styrk til fyrirframgreiðslu húsaleigu. Þinglýstur leigusamningur skal liggja fyrir eða önnur staðfesting um að samningur eigi við rök að styðjast og skal leigufjárhæð vera í samræmi við leigu á almennum markaði.

Samkvæmt gögnum málsins naut kærandi ekki fjárhagsaðstoðar sér til framfærslu í mánuðinum sem hún sótti um styrkinn og í mánuðinum á undan líkt og gert er að skilyrði í 23. gr. framangreindra reglna. Í ljósi þess að kærandi uppfyllir ekki skilyrði 23. gr. verður að telja að Reykjavíkurborg hafi þegar af þeirri ástæðu verið heimilt að synja umsókn kæranda lán til tryggingar húsaleigu.

Almennt ber sveitarfélögum að gæta jafnræðis og samræmis við ákvörðun um fjárhagsaðstoð. Það er álit úrskurðarnefndarinnar að ekkert hafi komið fram um að mat Reykjavíkurborgar á aðstæðum kæranda hafi verið ómálefnalegt eða andstætt þeim reglum sem um það gilda. Með vísan til þessa ber að staðfesta hina kærðu ákvörðun.

Úrskurð þennan kváðu upp Bergþóra Ingólfsdóttir formaður, Arnar Kristinsson og Gunnar Eydal, meðnefndarmenn.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð


Ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 17. september 2014, um synjun á umsókn A um lán til tryggingar húsaleigu er staðfest.

 

Bergþóra Ingólfsdóttir, formaður

Arnar Kristinsson

Gunnar Eydal


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta