Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

Mál nr. 307/2024-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 307/2024

Fimmtudaginn 26. september 2024

A

gegn

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun

Ú R S K U R Ð U R 

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 4. júlí 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 3. júlí 2024, um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi þáði húsnæðisbætur á tímabilinu september til desember 2023. Með bréfi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 3. júlí 2024, var kæranda birt lokauppgjör vegna ársins 2023 þar sem fram kom að hún hefði fengið ofgreiddar húsnæðisbætur, að fjárhæð 183.136 kr.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 4. júlí 2024. Með bréfi, dags. 9. júlí 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð barst 8. ágúst 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 13. ágúst 2024. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hafi tekið ákvörðun um að hún þyrfti að greiða til baka um 183.000 kr. vegna ársins 2023. Kærandi spyrji hvers vegna hún þurfi að greiða til baka því stofnunin framkalli útreikning á þriggja mánaða fresti.

III.  Sjónarmið Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar

Í greinargerð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar kemur fram að kærandi hafi skilað inn umsókn um húsnæðisbætur þann 4. september 2023 vegna leigu á húsnæðinu B. Auk kæranda hafi C og D verið skráðir sem heimilismenn á umsókn. Umsókn kæranda hafi verið samþykkt þann 21. september 2023. Við útreikning á áætluðum húsnæðisbótum hafi verið miðað við meðaltekjur á tímabilinu júní til ágúst. Í samþykktarbréfi hafi athygli kæranda verið vakin á því að breytingar á forsendum húsnæðisbóta hefðu áhrif á rétt til bóta.

Með bréfi, dags. 20. október 2023, hafi kæranda verið send ný tekju- og eignaáætlun. Áætlunin hafi verið byggð á fyrirliggjandi upplýsingum frá Skattinum og tekið mið af heildartekjum, þar með talið fjármagnstekjum, nettóeignum, ásamt orlofs- og desemberuppbótum. Miðað hafi verið við meðaltekjur á tímabilinu júlí til september og heildareignir í árslok 2022. Jafnframt hafi kæranda verið veitt færi á að koma að athugasemdum ef hún teldi þær upplýsingar sem notaðar væru við útreikning húsnæðisbóta ekki endurspegla væntanlegar tekjur og eignir ársins 2023. Engar athugasemdir hafi borist frá kæranda í kjölfar bréfsins.

Með bréfi, dags. 3. júlí 2024, hafi kæranda verið sent lokauppgjör húsnæðisbóta vegna ársins 2023. Þar hafi komið í ljós að kærandi hefði fengið ofgreiddar húsnæðisbætur sem næmu 183.136 kr. Endurreikningurinn hafi verið byggður á skattskyldum tekjum og eignastöðu samkvæmt skattframtali 2024. Þar sem kærandi hafi einungis fengið greiddar húsnæðisbætur hluta úr árinu, eða á tímabilinu september til desember 2023, hafi endurreikningurinn verið byggður á tekjum samkvæmt staðgreiðsluyfirliti á umræddu tímabili og fjármagnstekjum.

Skattframtal - tekjuár 2023

Heildartekjur              7.221.392

Fjármagnstekjur         704.213                       m.t. á mán. 58.684

Heildareignir              11.467.690

Staðgreiðsluyfirlit sept-des (leigutímabilið) m.t. á mán.

Skattskyldar tekjur     2.590.013                   647.503

Fjármagnstekjur         234.735                      58.684

Heildartekjur              2.824.748                   706.187

Í samræmi við útreikning lokauppgjörsins hafi skerðing vegna tekna numið 1.192 kr. á mánuði og vegna eigna 44.592 kr. Mismunur hafi því verið 45.784 kr. á mánuði eða 183.136 kr. á leigutímabilinu.

Kærandi hafi samdægurs borið upp athugasemdir við lokauppgjörið. Kærandi hafi verið ósammála niðurstöðu stofnunarinnar og hafi óskað eftir endurútreikningi. Rétt sé að benda á að athugasemdir kæranda hafi verið órökstuddar og ekki studdar gögnum. Þann 4. júlí 2024 hafi kæranda borist svar við athugasemdum sínum frá starfsmanni Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Kærandi hafi verið upplýst um að þær upplýsingar sem hefðu verið lagðar til grundvallar lokauppgjörinu tækju mið af skattframtali fyrir árið 2023. Aukinheldur hafi athygli kæranda verið vakin á því að ef þær upplýsingar endurspegluðu ekki rauntekjur og eignastöðu fyrir árið 2023 bæri henni að senda stofnuninni gögn til stuðnings þeirri staðfestingu.

Í máli þessu sé deilt um lokauppgjör húsnæðisbóta vegna ársins 2023. Samkvæmt niðurstöðu lokauppgjörs hafi kærandi fengið ofgreiddar húsnæðisbætur árið 2023 vegna tekna og eigna. Samkvæmt 1. mgr. 25. gr. laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur megi endurskoða rétt til húsnæðisbóta hvenær sem er og endurreikna fjárhæð þeirra þannig að húsnæðisbætur verði í samræmi við þær breytingar sem hafi orðið á aðstæðum umsækjanda eða annarra heimilismanna. Í 2. mgr. 25. gr. komi fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur og eignir næstliðins almanaksárs samkvæmt 17. og 18. gr. laga um húsnæðisbætur liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum að framkvæmdaraðili skuli endurreikna fjárhæðir húsnæðisbóta vegna þess almanaksárs á grundvelli þeirra upplýsinga.

Kæranda hafi í október 2023 verið sent endurreikningsbréf en í bréfinu hafi henni verið bent á að koma athugasemdum á framfæri við stofnunina teldi hún þær upplýsingar sem væru notaðar við útreikning húsnæðisbóta ekki endurspegla komandi tekjur og eignir ársins. Rétt sé að benda á að það sé á ábyrgð umsækjanda að upplýsa stofnunina um allar þær breytingar sem verði á aðstæðum sem kunni að hafa áhrif á rétt til húsnæðisbóta, sbr. 3. mgr. 14. gr. laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur. Engar upplýsingar hafi borist stofnuinni um breytta tekju- eða eignastöðu.

Í 18. gr. laga um húsnæðisbætur, sbr. 15. gr. reglugerðar nr. 1200/2016 um húsnæðisbætur, sé fjallað um áhrif eigna á grunnfjárhæðir húsnæðisbóta. Í 1. mgr. komi fram að grunnfjárhæðir samkvæmt 2. mgr. 16. gr., eftir atvikum að teknu tilliti til lækkunar vegna tekna samkvæmt 17. gr., lækki sem nemi hlutfalli af samanlögðum eignum allra heimilismanna, 18 ára og eldri, sem fari umfram 8.000.000 kr., uns þær falli alveg niður við 60% af þeirri fjárhæð. Í 2. mgr. 18. gr. komi fram að miða skuli við eignir í lok þess almanaksárs þegar greiðslur húsnæðisbóta hafi staðið yfir. Í 3. mgr. komi fram að með eignum í lögunum sé átt við allar eignir samkvæmt 72. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, að frádregnum skuldum.

Samanlagðar eignir allra heimilismanna byrji að skerða bótarétt við 8.000.000 kr. og skerði að fullu við 12.800.000 kr. Það liggi fyrir að eignir kæranda og annarra heimilismanna í lok árs 2023 hafi numið alls 11.476.690 kr. samkvæmt upplýsingum frá Skattinum. Skerðing húsnæðisbóta sé aðallega tilkominn vegna eigna kæranda.

Eftir lokauppgjör ársins 2023 hafi komið í ljós að kærandi hafi fengið ofgreiddar húsnæðisbætur og beri henni að endurgreiða þá fjárhæð sem hafi verið ofgreidd, sbr. 26. gr. laga um húsnæðisbætur.

Af hálfu Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sé byggt á því að málsmeðferðin hafi að öllu leyti verið í samræmi við ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og að ákvörðunin hafi verið gerð í samræmi við ákvæði laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur og reglugerð nr. 1200/2016 um húsnæðisbætur, með síðari breytingum. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun krefjist þess að hin kærða ákvörðun stofnunarinnar í málinu verði staðfest.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 3. júlí 2024, um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta vegna tímabilsins september til desember 2023, að fjárhæð 183.136 kr.

Í 8. gr. laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur kemur fram að húsnæðisbætur séu mánaðarlegar greiðslur sem greiðast til umsækjanda, sbr. þó 4. mgr. 21. gr., og skuli ákvarðaðar og reiknaðar út miðað við grunnfjárhæðir sem miðast við fjölda heimilismanna, sbr. 3. tölul. 3. gr., að teknu tilliti til tekna, sbr. 17. gr., eigna, sbr. 18. gr., og greiðsluþátttöku í húsnæðiskostnaði, sbr. 19. gr. Samkvæmt 14. gr. laga nr. 75/2016 er umsækjanda skylt að veita framkvæmdaraðila allar þær upplýsingar og gögn þeim til staðfestingar sem óskað er eftir og nauðsynlegar eru til að staðreyna rétt hans til húsnæðisbóta. Enn fremur er skylt að upplýsa um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans eða heimilismanna eða öðrum þeim atriðum sem kunna að hafa áhrif á rétt viðkomandi til húsnæðisbóta samkvæmt lögunum á þeim tíma sem hann fær greiddar húsnæðisbætur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um meðal annars tekju- og eignabreytingar á bótagreiðsluári sem kunna að hafa áhrif á bótarétt.

Í 18. gr. laga nr. 75/2016 segir að grunnfjárhæðir samkvæmt 2. mgr. 16. gr., eftir atvikum að teknu tilliti til lækkunar vegna tekna samkvæmt 17. gr., lækki sem nemi hlutfalli af samanlögðum eignum allra heimilismanna, 18 ára og eldri, sem fari umfram 6.500.000 kr., nú 8.000.000 kr., sbr. 15. gr. reglugerðar nr. 1200/2016 um húsnæðisbætur, uns þær falli alveg niður við 60% hærri fjárhæð, eða 12.800.000 kr. Samkvæmt 2. mgr. 18. gr. laganna skal miða við eignir í lok þess almanaksárs þegar greiðslur húsnæðisbóta stóðu yfir. Þó skuli fasteign eða búseturéttur samkvæmt lögum um húsnæðissamvinnufélög, sem geti orðið andlag réttar til vaxtabóta, ekki teljast til eigna samkvæmt 1. mgr. hafi fasteignin eða búseturétturinn ekki verið í eigu umsækjanda eða annarra heimilismanna meðan á greiðslum húsnæðisbóta hafi staðið á almanaksárinu. Þá kemur fram í 3. mgr. 18. gr. að með eignum í lögunum sé átt við allar eignir samkvæmt 72. gr. laga um tekjuskatt að frádregnum skuldum samkvæmt 1. mgr. 75. gr. sömu laga, sbr. þó 2. málsl. 2. mgr. Í 2. mgr. 72. gr. laga um tekjuskatt segir að framtalsskyldar eignir séu allar fasteignir, lausafé og hvers konar önnur verðmæt eignarréttindi, með þeim takmörkunum sem um ræði í 74. gr., og skipti ekki máli hvort eignirnar gefi af sér arð eða ekki.

Í 25. gr. laganna er kveðið á um endurreikning á húsnæðisbótum. Þar segir í 1. mgr. að rétt til húsnæðisbóta megi endurskoða hvenær sem er og endurreikna fjárhæð húsnæðisbóta þannig að húsnæðisbætur verði í samræmi við þær breytingar sem orðið hafa á aðstæðum umsækjanda eða annarra heimilismanna. Í 2. mgr. kemur fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur og eignir næstliðins almanaksárs samkvæmt 17. og 18. gr. liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum skuli framkvæmdaraðili endurreikna fjárhæðir húsnæðisbóta vegna þess almanaksárs á grundvelli þeirra upplýsinga. Í 3. mgr. kemur fram að leiði endurreikningur samkvæmt 1. og 2. mgr. til breytinga á fjárhæð húsnæðisbóta skuli leiðrétta húsnæðisbæturnar samkvæmt 26. gr. laganna. Þar segir í 1. mgr. að hafi umsækjandi fengið hærri húsnæðisbætur en honum bar á umræddu tímabili beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var.

Kærandi þáði húsnæðisbætur á tímabilinu september til desember 2023. Samkvæmt útreikningi húsnæðisbóta, dags. 21. september 2023, voru heildartekjur kæranda áætlaðar 599.943 kr. á mánuði og heildareignir 0 kr. Samkvæmt endurútreikningi, dags. 20. október 2023, voru heildartekjur kæranda áætlaðar 616.414 kr. á mánuði og heildareignir 7.488.763 kr. Við lokauppgjör ársins 2023 reyndust tekjur kæranda á tímabilinu, þ.e. september til desember 2023, vera hærri en framangreindar áætlanir gerðu ráð fyrir, eða 706.187 kr. á mánuði. Þá reyndust eignir kæranda á árinu 2023 vera töluvert hærri en framangreindar áætlanir gerðu ráð fyrir, eða 11.467.690 kr. Samkvæmt útreikningi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar nam skerðing vegna tekna því 1.192 kr. á mánuði og 44.592 kr. á mánuði vegna eigna. Mismunur var því 45.784 kr. á mánuði eða 183.136 kr. á leigutímabilinu. Kæranda ber í samræmi við ákvæði 26. gr. laga nr. 75/2016 að endurgreiða þá fjárhæð.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta til handa kæranda staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 3. júlí 2024, um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta A, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta